Fréttablaðið - 26.07.2011, Qupperneq 23
SÚKKULAÐI
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011 Kynningarblað Sælkeraferðir, eftirréttir, uppskriftir, fróðleikur.
Hjartað tekur meiri kipp við súkk-
ulaðiát en við ástríðufullan koss, sem
ef til vill skýrir vinsældir þess.
SÚKKULAÐI ÁHRIFA
RÍKARA EN ÁSTRÍÐU
FULLUR KOSS
Ýmsar rannsóknir hafa verið
gerðar á áhrifum súkkulaðis en
það er meðal annars talið hafa
góð áhrif á blóðflæði og örva
heilaboð. Ein af mýmörgum
rannsóknum á þessu vinsæla
ljúfmeti hefur leitt í ljós að þeir
sem bræða súkkulaði í munni
sér sýna fram á meiri virkni í
heila og hraðari hjartslátt en
fólk sem tekur þátt í ástríðu-
fullum kossi. Áhrifin á hjarta
og heilaboð endast líka fjórum
sinnum lengur.
Víða um heim má sækja
skipulagða viðburði þar
sem súkkulaði gegnir stóru
hlutverki.
Alls kyns skemmtilegar og áhugaverðar uppákomur tengdar súk kulaði eru
skipulagðar víða um heim og upp-
lagt fyrir sælkera að sækja þær til
að láta dekra við bragðlaukana.
Salon du Chocolat er sjálfsagt
ein umfangsmesta og vinsælasta
alþjóðlega súkkulaðihátíðin. Gest-
um og gangandi gefst þar færi á að
fylgjast með samkeppni um bestu
súkkulaðiuppskriftina, horfa á
tískusýningar sem tengjast súkk-
ulaði, skoða súkkulaðiskúlptúra og
vitanlega bragða á ýmsu góðgæti.
Hátíðin hefur verið haldin árlega
frá 1994 og fer nú fram í sýning-
arhöllum við Porte de Versailles í
París dagana 20. til 24. október.
Önnur árleg hátíð fer fram í
Perugia á Ítalíu, nú dagana 14. til
23. október. Miðbærinn tekur þá á
sig mynd útimarkaðar með sölu-
básum og viðburðum helguðum
súkkulaði. Margir hafa vakið at-
hygli í gegnum tíðina; þar á meðal
heimsins stærsti súkkulaðibar
sem var reistur þar 2003. Hann var
tveggja metra hár, sjö metra breið-
ur og settur saman úr sex tonnum
af dökku súkkulaði. Reiknað er
með að hátíðin laði til sín milljón
gesti í ár.
Aðrar vinsælar súkkulaðihátíð-
ir standa sælkerum til boða, þar á
meðal í portúgalska bænum Óbi-
dos. Hún fer að vísu ekki fram
fyrr en á næsta ári, dagana 3. til
13. mars ,og gæti því verið tilval-
in fyrir þá sem vilja skipuleggja
fríið sitt með góðum fyrirvara. Þar
spreyta bakarar sig í sætindagerð
og í boði eru súkkulaðikynningar
og námskeið í súkkulaðigerð fyrir
börn og fullorðna.
Hátíðahöld fyrir sælkera
Borðin svigna jafnan undan kræsingum á hátíðum og öðrum skipulögðum viðburðum þar sem súkkulaði er í aðalhlutverki.
NORDICPHOTOS/GETTY
KARAMELLUR SEM
BRÁÐNA Á TUNGU
1 dl rjómi
125 g sykur
100 g síróp
200 g súkkulaði 70%
Setjið rjóma, sykur og síróp
í pott og hitið að suðu. Brytjið
súkkulaðið, setjið það út í og
hrærið í blöndunni þar til hitinn
hefur náð um 120 gráðum.
Takið þá pottinn af eldinum og
hellið innihaldinu í smurt form
úr málmi. Látið karamelluna
kólna vel og skerið hana í bita.