Fréttablaðið - 26.07.2011, Page 24
KYNNING − AUGLÝSING ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hanssen ivarorn@frettablaid.is.
s. 512 5429.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Súkkulaði er ekki bara syndsamlega gott heldur ávísun á
létta lund. Hér eru þrír góðir réttir þar sem það kemur við
sögu.
Gelato-ís með súkkulaðibragði
1 lítri mjólk
125 g sykur
150 g suðusúkkulaði, niðurbrytjað
½ tsk. vanilludropar
Hellið mjólk, sykri og vanilludropum út í hent-
ugan pott og hrærið saman, meðan hitnar á
hellu. Gætið þess að suðan komi ekki upp. Fjar-
lægið pottinn af hellunni um leið og sykur-
inn er bráðnaður. Hrærið niðurbrytjuðu suðu-
súkkulaði því næst saman við blönduna þar
til það hefur bráðnað. Leyfið blöndunni þá að
kólna og hellið henni síðan út í ísvél og frystið
samkvæmt leiðbeiningum frá framleiðanda.
Að svo búnu er hægt að bera ísinn fram.
Súkkulaðifondú
300 g suðu-
súkkulaði (eða
200 g dökkt
og 100 g ljóst
súkkulaði)
100 ml rjómi
1 tsk. vanillu-
dropar
Hellið rjóma í lítinn pott.
Brjótið súkkulaðið í bita og
setjið út í ásamt vanilludrop-
um. Hitið aðeins helluna og
hrærið vel og vandlega í þar til
súkkulaðið hefur bráðnað. Fjar-
lægið þá pottinn af hellunni og
haldið áfram að hræra í blöndunni. Hellið henni því næst í fondúpott sem búið er að
hita lítillega. Berið fram ásamt sérstökum fondúspjótum og niðurskornum og hreins-
uðum ávöxtum, svo sem jarðarberjum, ferskjum, mangói og ananas.
Hægt er að bragðbæta sjálfa fondúblönduna með ýmsu móti. Bæta má út í: pekan-
hnetum, heslihnetum, möndlum, sírópi eða matskeið af kaffi.
Súkkulaðibúðingur
¼ bolli sykur
¼ bolli kakóduft (ósætt)
2 msk. maíssterkja
Smá salt
2 bollar mjólk
1 egg
120 g miðlungssætar
súkkulaðibitakökur
Fjórir bollar
Þeytið saman sykri, kakó-
dufti, maíssterkju og salti í
potti. Blandið mjólk smám
saman út í á meðan hrært
er. Látið koma upp að suðu
og hrærið stöðugt í blönd-
unni í um þrjár til fimm mín-
útur, eða þar til blandan
þykknar. Fjarlægið þá pott-
inn af hellunni. Þeytið því
næst egg í skál og bætið
súkkulaðiblöndunni smám
saman út í. Brjótið kökurn-
ar í bita og hrærið saman
við þar til þær hafa bráðn-
að og blandan er orðin slétt.
Hellið í ábætis glös eða bolla og
kælið. Hægt að bera fram með
þeyttum rjóma.
Sælgæti sem
léttir lund
Það eina sem þú þarft að gera er að
smelltu þeim í umslag og sendu okkur
þú færð umslag á næsta sölustað Prince Polo
DREGIÐ Í HVERRI VIKU Í ÞÆTTI SIMMA & JÓA Á BYLGJUNNI
Fyrsti vikulegi útdráttur er 2. júlí og lokaútdráttur er 13. ágúst
SAFNA 10
UMBÚÐUM
Taktu þátt!
af gómsætu Prince Polo
Alltaf jafn gott!
*Gjafakort frá Íslandsbanka.