Fréttablaðið - 26.07.2011, Side 26
KYNNING − AUGLÝSINGSúkkulaði ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 20114
HVÍTT SÚKKULAÐI
Hvítt súkkulaði á uppruna
sinn í Sviss og kom fyrst á
markað árið 1930 hjá Nestlé-
verksmiðjunum. En úr hverju er
það? Jú, það er úr kakósmjöri,
sykri, mjólkurdufti og bragðefni
en í það vantar kakómassa eða
kakóþurrefni sem venjulegt
dökkt eða brúnt súkkulaði
inniheldur.
Dæmi eru um að í stað
kakósmjörs sé notuð önnur
jurtafeiti í hvítt súkkulaði en
bæði í Bandaríkjunum og
löndum Evrópusambandsins
þarf að minnsta kosti 20 prósent
af þyngd vörunnar að vera
kakósmjör til þess að mega
kallast súkkulaði.
Heimild:
www.visinda vefurinn.is
Með Betty
verður baksturinn
minnsti vandinn
HVERNIG GEYMA SKAL
SÚKKULAÐI
Fáum þykir ástæða til þess
að geyma súkkulaði en þær
aðstæður geta komið upp og
þá er ekki sama hvernig það er
gert.
Súkkulaði geymist best
á köldum, dimmum og
þurrum stað. Þó má ekki geyma
súkkulaði í kæliskáp né frysta
því þegar það er tekið út þéttist
loft og sest á molana. Í heitum
löndum er oft nauðsynlegt að
kæla eða frysta súkkulaði en þá
skal hafa það í loftþéttum um-
búðum til að forðast rakaþétt-
ingu. Bestu geymsluskilyrðin
eru við 15-16°C stiga hita og
má þannig geyma súkkulaði í
allt að ár. Einnig skal hafa í huga
að geyma súkkulaði alltaf inn-
pakkað og fjarri annarri matvöru
því það tekur auðveldlega í sig
aðra lykt og bragð.
Orðspor svissnesks súkkulaðis hefur áhrif á skoðanir fólks á bragði þess. Þetta kemur fram
í nýrri rannsókn sem gerð var af Babson-háskóla í Massachusetts og birtist í Tímariti um
neytendarannsóknir.
Rannsóknin fór þannig fram að neytendum var talin trú um þeir væru að fara að fá sér bita
af svissnesku súkkulaði. Kunnu þeir betur við það heldur en þegar þeim var sagt að sami biti
kæmi frá Kína. Ef neytendum var sagt frá því eftir að þeir höfðu smakkað svissneska súkkulaðið
þá líkaði þeim betur hið kínverska.
Rannsakendur segjast hafa reiknað með þessum niðurstöðum vegna sterks orðspors Sviss á
sviði súkkulaðiframleiðslu. „Þegar þátttakendum var sagt að súkkulaðið kæmi frá Sviss fannst
þeim það ekki jafn gott og þeir bjuggust við. Á sama hátt gerðu þeir minni væntingar til
súkkulaðis frá Kína og fannst það því ekki eins vont,“ sagði Keith Wilcox, aðstoðarprófessor við
Babson háskóla.
VÆNTINGAR HAFA ÁHRIF Á BRAGÐ