Fréttablaðið - 26.07.2011, Síða 34
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR26 26
menning@frettabladid.is
Mikið úrval af
tjöldum.
Fjölskyldutjöld með
3000 mm vatnsheldni
Áfastur botn,
pöddufrí tjöld
Sem dæmi, fjölskyldutjöld:
Boston 300 - 30% afsl.
Boston 400 - 30% afsl.
Boston 400
útlitsgölluð - 50% afsl.
Boston 500
útlitsgölluð -50% afsl.
Takmarkað magn
Fyrstir koma fyrstir fá
lÍs en kus
Faxafen i 8 / / 108 Reyk jav ík / / S ím i 534 2727 / / e -ma i l : a lpa rn i r@a lparn i r . i s / / www.a lparn i r . i s
Verðhrun á tjöldum
20% til 50 % afsláttur
Danska djasssöngkonan
Cathrine Legardh og saxó-
fónleikarinn Sigurður
Flosason halda tónleika í
Norræna húsinu í kvöld
klukkan átta í tilefni af
útkomu geisladisks þeirra
Land & Sky.
„Ég syng um allt,“ segir Cathrine
Legardh söngkona spurð um tón-
leika þeirra Sigurðar Flosasonar
saxófónleikara í Norræna hús-
inu í kvöld. „Það er heilmikið um
land og himin, vinda og skóga, líf
og ást. En ekki endilega þessa ást
sem kemur fyrir í mörgum lögum,
heldur ást til mannkynsins, til
alheimsins, náttúrunnar og þess
að vera til.“
Tilurð laganna má rekja til þess
að Cathrine og Sigurður kynntust
í djassbúðum í Danmörku sumar-
ið 2009. Hún varð svo hugfangin
af tónlist sem hann og Kristjana
Stefánsdóttir höfðu samið að hana
fór sjálfa að langa til að setjast
niður við textasmíðar. Þegar Sig-
urður stakk síðan upp á því að hún
sendi sér ljóð eða lagatexta lét hún
ekki segja sér það tvisvar. Sam-
starfið fór fyrst fram í gegnum
símalínur og ljósleiðara. Sigurður
sendi alltaf lagasmíðar um hæl
og segir Cathrine þá einhverja
sprengingu hafa orðið í sköpunar-
krafti sínum.
„Á hálfu ári vorum við komin
með tuttugu lög. Ein ástæðan
fyrir því að þetta gekk svona vel
var að ég festist á Íslandi þegar
Eyjafjallajökull fór að gjósa. Ég
dýrka Ísland þar sem ég ólst upp
í snjónum í Noregi og leita í öfgar.
Danmörk er fín, liggur svona mið-
svæðis og þar er hvorki of heitt
né kalt,“ segir Cathrine sem á
líka ættir að rekja til Svíþjóðar
og Noregs og talar og syngur á
norsku, sænsku auk móðurmáls-
ins dönsku.
Íslandsdvölin setur sitt mark á
Land & Sky. Í einu laginu, Vulk-
an, má til dæmis lesa eftirfarandi
línur: „Jeg har haft en vulkan
boende i mig / Den har boblet og
sydet, den har raset på min vej.“
Í ljós kemur að Cathrine er
ekki ókunn textagerð þar sem
hún starfaði lengi vel sem blaða-
maður, lauk kennslufræðum og
kenndi tónlist. Þar á undan varði
hún tveimur árum í nám í hag-
fræði. Ekki eru mörg ár síðan hún
sagði upp starfi sínu sem kennari
og fann út í samráði við lífsþjálf-
ara og sálfræðing að hana langaði
til að helga líf sitt tónlistinni. Nú
hefur hún fundið skáldið í sér og
ætlar sér ekki að gera neitt annað.
„Ég er stórt barn, inni í mér er
lítið frekjubarn sem vill ekki fara í
burtu. Ég hef að vísu gengið til sál-
fræðings síðan ég var nítján ára,“
segir hún og hlær kvikindislega.
Cathrine segist alltaf hafa verið
á varðbergi gagnvart fullorðnu
fólki en sér hafi liðið vel við að
skrifa djass fyrir börn. „Fullorð-
ið fólk er svo gagnrýnið, gáfað og
viturt. En þegar ég hitti Sigurð
Flosason hugsaði ég að nú væri
gott tækifæri til að semja fyrir
fullorðna,“ útskýrir hún.
Rödd Cathrine er margbreyti-
leg, getur verið sæt og ljúf en líka
hrjúf og sterk og allt þar á milli.
Hún lýsir dagskránni í kvöld þann-
ig að sum lögin hljómi hefðbundin
en önnur framsækin, nokkuð verði
um swing og bossanova. „Nokkur
lög hljóma furðulega en flest eru
melódísk. Ég hef heyrt hlustend-
ur segja að upplifunin sé eins og
að vera í ævintýri, tónlistin sé
full af alls konar litum. Því miður
syng ég ekki á íslensku í kvöld, ég
reyndi að æfa eina þýðingu en er
ekki tilbúin. Kannski næst þegar
ég kem,“ segir Cathrine og af efa-
semdarsvipnum á andliti hennar
má ráða að hún hefur þegar æft
sig á íslenskum framburði.
nielsg@365.is
Sköpun sem nær yfir land og sjó
SÝNINGIN LÝÐVELDIÐ Í FJÖRUNNI opnar í samkomuhúsinu Gimli
á Stokkseyri laugardaginn 30. júlí klukkan 14. Sýningin er hluti af eins konar
sýningargjörningi sem spannað hefur sex sýningar í fimm sveitarfélögum.
Haukur Guðlaugsson leikur á
orgel Dómkirkju Krists konungs í
Landakoti á orgelandakt í hádeg-
inu á morgun, 27. júlí, milli klukk-
an 12 og 12.30. Á efnisskránni eru
verk eftir Lübeck, Bach, Pachelbel
og fleiri tónskáld.
Tónleikarnir eru liður í orgel-
andakt sem haldin er í Krists-
kirkju alla miðvikudaga í júlí og
ágúst. Ýmsir organistar koma þar
fram og er megináhersla lögð á
trúarlega orgeltónlist.
Þetta er þriðja sumarið sem
slík tónleikaröð er haldin og er
aðgangur ókeypis og öllum frjáls.
- gun
Trúarlegir
orgeltónleikar
ORGELANDAKT Haukur var söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar í rúman aldar-
fjórðung.
Konan með opna faðminn nefn-
ist nýútkomin bók. Hún hefur að
geyma æviminningar Ingibjargar
Jónsdóttur sem gekk undir heitinu
Imma og lifði og starfaði innan
Hjálpræðishersins frá unga aldri
fram á elliár, bæði hér á Íslandi og
í nágrannalöndunum.
Sigríður Hrönn Sigurðardóttir
guðfræðingur skráði sögu Immu
sem byggð er á viðtölum við hana
sjálfa, ættingja, vini og aðra sem
þekktu konuna með opna faðminn.
Útkoman er lifandi og persónuleg
frásögn.
Hér er gripið niður í bókina á
bls. 66 þar sem Einar og Inger
Höyland segja frá gestrisni Ingi-
bjargar og Óskars manns hennar.
„Þegar við litum við hjá þeim
eftir samkomur sátu alltaf ein-
hverjir í stofunni. Fólki frá öllum
þjóðum og á öllum aldri leið vel
heima hjá þeim. Imma var stöð-
ugt með kaffikönnuna á lofti og ef
hún átti ekkert með kaffinu fund-
um við óðara ilminn af nýbökuð-
um pönnukökum. Og við töluð-
um og hlógum langt fram á nótt.
Það var erfitt að slíta sig frá gleð-
skapnum.“ - gun
Lífshlaup Immu
á Hernum
KONAN MEÐ OPNA FAÐMINN Lífshlaupi
Ingibjargar Jónsdóttur eru gerð skil í
nýútkominni bók.
SYNGUR UM ALLT „Hey, dancer of The dark!” mun Cathrine legardh syngja í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG