Fréttablaðið - 26.07.2011, Qupperneq 36
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR28
folk@frettabladid.is
SKÖLLÓTT? Lady Gaga er að missa hárið
og þarf að taka inn lyf sem vinnur gegn
skalla.
SKEMMTU SÉR Í BÍÓ Hertogahjónin Vilhjálmur og Katrín fóru að sjá Bridesmaids í
bíó. NORDICPHOTO/GETTY
Hertogahjónin af Cambrigde, þau
Vilhjálmur og Katrín, ákváðu að
skella sér í bíó um daginn og sjá
gamanmyndina Bridesmaids.
Fljótlega eftir að myndin byrjaði
tóku forvitnir bíógestir eftir kon-
unglega parinu í salnum og var
fréttin því ekki lengi að berast á
samskiptavefinn Twitter sem log-
aði þetta kvöld.
Vilhjálmur og Katrín eru
nýkomin úr opinberri ferð til
Bandaríkjanna þar sem þau slógu í
gegn og hittu meðal annars helstu
stjörnurnar í Hollywood eins og
Tom Hanks, Nicole Kidman og
Reese Witherspoon.
Nú hafa þau beðið bresku press-
una um að gefa sér frið út sum-
arið á meðan þau koma sér fyrir
í nýjum hlutverkum fjarri sviðs-
ljósinu.
Fóru í bíó
Lady Gaga er að missa hárið
sökum of mikillar hárlitunar og
hefur söngkonan undanfarið tekið
inn lyfið Rogaine, sem notað er til
þess að vinna gegn skalla.
„Í mörg ár hefur Lady Gaga
hellt svo miklum efnum í hárið
að það hefur skemmt ræturnar,“
sagði heimildarmaður við dag-
blaðið Sun. Hann sagði einnig að
söngkonan hefði eitt sinn brjálast
baksviðs þegar hún greiddi sér, en
þá hrundu hár af höfði hennar og
niður á gólf.
Lady Gaga
tekur lyf við skalla
Leikkonan Megan Fox prýðir
forsíðu kínverska Elle í ágúst. Í
viðtali við tímaritið segist Fox
hafa dreymt um að vera ljóshærð
þegar hún var barn.
„Mig langaði alltaf að vera
ljóshærð þegar ég var lítil, eins
og Barbie og Pamela Anderson.
Mér fannst það framandi því allir
í fjölskyldu minni eru dökkhærð-
ir. En ég held að það mundi fara
illa með hárið að lita það ljóst,“
sagði leikkonan.
Hún sagði einnig að bestu
fegrunarráðin væru nægur svefn
og að drekka nóg af vatni. „Ég
farða mig mjög lítið og passa mig
bara á því að þrífa húðina vel
eftir daginn, fá nægan svefn og
drekka mikið af vatni.“
Vildi vera
ljóshærð
VILDI VERA LJÓSHÆRÐ Leikkonan
Megan Fox vildi vera ljóshærð þegar
hún var barn. NORDICPHOTOS/GETTY
Það var tilfinningaþrungin stund þegar fjölskylda Amy Winehouse
safnaðist saman fyrir utan íbúð söngkonunnar í London. Winehouse
fannst látin þar á laugardaginn, aðeins 27 ára að aldri og höfðu fjöl-
margir lagt leið sína þangað til að votta söngkonunni virðingu sína.
Mitch og Janis Winehouse, foreldrar hennar, gátu ekki haldið aftur
af tárunum þegar þau sáu blómin og lásu aðdáendabréfin sem voru
í hrönnum fyrir utan húsið. Innan um öll blómin, kertin, bréfin og
myndirnar af söngkonunni, mátti sjá áfengisflöskur og sígarettur. Það
var einmitt fíkn Winehouse í áfengi og eiturlyf sem að lokum dró hana
til dauða.
MARGIR GRÁTA AMY WINEHOUSE
BRESTA Í GRÁT Janis og Mitch Winehouse grétu er þau skoðuðu öll blómin fyrir utan
íbúð dóttur sinnar, söngkonunnar Amy Winehouse, sem lést á laugardag.
NORDICPHOTO/GETTY
ALVARLEGIR Reg Traviss, fyrrum kærasti
söngkonunnar, var þungur á brún eins
og bróðir hennar, Alex Winehouse.
VINSÆL Amy Winehouse þótti gríðarlega góð söngkona og plata hennar Back to
Black sló í gegn. Það voru því margir sorgmæddir aðdáendur sem lögðu blóm fyrir
utan heimili hennar.
BRÉF, BLÓM OG ÁFENGI Sumir vottuðu
söngkonunni virðingu sína með því að
skilja eftir áfengi og sígarettur.
18. AFMÆLISDAGUR TAYLOR MOMSEN er í dag. Hún er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Gossip Girl, en reynir nú að koma
sér á framfæri sem rokkstjarna.
FARÐU Á TOPPINN
Í SUMAR
VERÐ: 49.990 KR.
MEINDL ISLAND PRO GTX
Hálfstífir og margrómaðir.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
VERÐ: 19.990 KR.
TNF HEDGEHOG III.
Vinsælir í léttar göngur.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
MEÐ GORE-TEX: 26.990 KR.
HALTU ÞÉR GANGANDI Í SUMAR OG SKOÐAÐU LANDIÐ AF TINDUM FJALLANNA. MIKIÐ ÚRVAL AF SKÓM.
TILBOÐ: 33.990 KR.
MEINDL KANSAS GTX
Sérlega þægilegir og traustir.
Gore-Tex vatnsvörn.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
ALMENNT VERÐ: 39.990 KR.
TILBOÐ: 18.990 KR.
TREZETA MAYA
Vel vatnsvarðir og á góðu verði.
Fást bæði fyrir dömur og herra.
ALMENNT VERÐ: 22.990 KR.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS