Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 40
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR32
sport@frettabladid.is
FH 3-2 VALUR
1-0 Matthías Vilhjálmsson (14.),
1-1 Haukur Páll Sigurðsson (31.),
1-2 Christian R. Mouritsen (45.)
2-2 Matthías Vilhjálmsson (57.)
3-2 Atli Guðnason (73.)
Kaplakrikavöllur, áhorf.: 1890
Dómari: Kristinn Jakobsson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7-11 (5-10)
Varin skot Gunnleifur 8 – Haraldur 2
Horn 4–7
Aukaspyrnur fengnar 14–16
Rangstöður 0–2
FH 4–3–3 Gunnleifur Gunnleifsson 8 - Ásgeir Gunnar
Ásgeirsson 5 (38., Guðmundur Sævarsson 7), Pétur
Viðarsson 4, Freyr Bjarnason 6, Björn Daníel Sverrisson
6 - Hákon Atli Hallfreðsson 5, Hólmar Örn Rúnarsson
6, Emil Pálsson 4 (63., Tommy Nielsen 7) - Ólafur
Páll Snorrason 6, Atli Guðnason 6 (82., Hannes Þ.
Sigurðsson -), *Matthías Vilhjálmsson 8
Valur 4–3–3 Haraldur Björnsson 7 - Jónas Tór Næs 6,
Atli Sveinn Þórarinsson 6, Halldór Kristinn Halldórsson
5, Pól Jóhannus Justinussen 6 - Haukur Páll Sigurðsson
7, Guðjón Pétur Lýðsson 6, Christian R. Mouritsen 6
(63., Arnar Sveinn Geirsson4 ) - Rúnar Már Sigurjónsson
5 (79., Hörður Sveinsson -), Jón Vilhelm Ákason 3 (74.
Ingólfur Sigurðsson -), Matthías Guðmundsson 4
HRAFNHILDUR LÚTHERSDÓTTIR setti tvö Íslandsmet á HM í sundi í Sjanghæ í Kína sem stendur nú yfir.
Hrafnhildur setti fyrra Íslandsmetið sitt með því að synda 200 metra fjórsund á 2.18.20 mínútum en hún bætti þar met
Erlu Daggar Haraldsdóttur. Hrafnhildur bætti síðan sitt eigið met í 100 metra bringusundi þegar hún synti á 1:09,82
mínútum. Hrafnhildur varð í 26. sæti í báðum greinum.
Vínlandsleið 6-8 S: 530 9400 www.totem.is
VERSLUN
Gaddaskór
Complete TFX Star
Léttir og góðir alhliða
gaddaskór.
Henta vel fyrir flestar
greinar í frjálsum íþróttum.
Stærðir: 35-45
Verð: 13.990 kr.
Usain Bolt
Fljótasti maður
heims, hleypur
alltaf í PUMA
Söluaðilar: Borgarsport Borgarnesi, Sportver Akureyri, Tákn Húsavík,
Íslensku Alparnir Egilsstöðum, Fjarðasport Neskaupstað,
Sport-X Hornafirði, Axel Ó Vestmannaeyjum.
Pepsi-deild karla
STAÐAN Í DEILDINNI:
KR 11 8 3 0 25-7 27
Valur 12 7 2 3 18-9 23
ÍBV 11 7 1 3 16-9 22
FH 12 5 4 3 26-18 19
Stjarnan 12 5 3 4 22-20 18
Fylkir 12 5 3 4 20-21 18
Keflavík 12 5 2 5 17-17 17
Breiðablik 12 4 3 5 20-24 15
Þór 12 4 2 6 17-23 14
Grindavík 12 3 2 7 15-26 11
Víkingur R. 12 1 4 7 9-21 7
Fram 12 1 3 8 7-17 6
MARKAHÆSTIR:
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 9
Halldór Orri Björnsson, Stjarnan 7
Matthías Vilhjálmsson, FH 7
Kjartan Henry Finnbogason, KR 6
Garðar Jóhannsson, Stjarnan 6
Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki 6
Albert Brynjar Ingason, Fylki 6
NÆSTU LEIKIR
Fylkir-ÍBV Mið. 3. ágúst Kl: 18.00
Valur-Grindavík Mið. 3. ágúst Kl: 19.15
Breiðablik-FH Mið. 3. ágúst Kl: 19.15
Víkingur R.-Stjarnan Mið. 3. ágúst Kl: 19.15
Þór-Fram Mið. 3. ágúst Kl: 19.15
NM í körfubolta
Ísland-Danmörk 85-76 (39-32)
Stig Íslands: Logi Gunnarsson 24, Jakob Örn
Sigurðarson 14, Helgi Már Magnússon 13, Hlynur
Bæringsson 9 (9 fráköst), Pavel Ermolinskij 7 (7
fráköst, 4 stoðsendingar, +20 þegar hann var
inná), Haukur Helgi Pálsson 7 (4 fráköst, 4
stoðsendingar), Hörður Axel Vilhjálmsson 6,
Finnur Atli Magnússon 5.
STAÐAN Á NM:
Finnland 3 3 0 297-194 6
Svíþjóð 2 2 0 149-126 4
Ísland 3 1 2 223-258 2
Danmörk 2 0 2 143-178 0
Noregur 2 0 2 115-171 0
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Bjarni Guðjónsson, fyrir-
liði KR, meiddist á nára í 4-0 sig-
urleiknum gegn Breiðablik og er
tæpur fyrir Evrópuleikinn gegn
Dinamo Tbilisi á fimmtudaginn.
„Leikurinn á fimmtudaginn er
aðeins í uppnámi og ég veit ekki
með sunnudaginn. Ég ætla að
reyna að ná leiknum á fimmtudag-
inn og verð í mikilli sjúkraþjálfun
þangað til,“ sagði Bjarni. - ktd
Bjarni Guðjónsson:
Tæpur fyrir
Tbilisi-leikinn
KÖRFUBOLTI Íslenska körfubolta-
landsliðið steig skref í átt að því
að tryggja sér bronsið á Norður-
landamótinu í Sundsvall með því
að vinna níu stiga sigur á Dönum,
85-76, í gærkvöldi. Íslenska liðið
hafði frumkvæðið nær allan leik-
inn en sigurinn var þó ekki í höfn
fyrr en í blálokin. Þetta var fyrsti
sigur íslenska liðsins undir stjórn
sænska þjálfarans Peters Öqvist.
„Þetta var kærkomið. Við ætl-
uðumst til þess af sjálfum okkur
að vinna þá og þetta var því
mjög gott, sérstaklega af því að
við vorum búnir að tapa þessum
fyrstu tveimur leikjum. Við ætluð-
um okkur að vera fyrir ofan Dan-
ina,“ sagði Hlynur Bæringsson,
fyrirliði íslenska liðsins. Íslenska
liðið komst mest fimmtán stig yfir
í þriðja leikhluta en Danirnir náðu
muninum niður í fimm stig í loka-
leikhlutanum.
„Þetta var komið í smá hættu.
Það kom smá rugl, við fengum á
okkur tæknivillu og körfu og víti
að auki á sama tíma. Það var smá
kaos en við fengum í framhaldinu
þrist frá Loga sem stoppaði sprett-
inn þeirra,“ sagði Hlynur en Logi
Gunnarsson var í stuði í gær og
skoraði 11 af 24 stigum sínum í
lokaleikhlutanum.
„Logi var mjög góður. Við þurft-
um virkilega á svona ógn að halda
eftir að við misstum Jón Arnór.
Það minnkaði því miður aðeins
sjálfstraustið í liðinu við að missa
Jón, okkar besta mann. Logi og
Helgi settu niður þessu mikil-
vægu skot í kvöld,“ sagði Hlyn-
ur en Helgi Már Magnússon setti
niður þrjár þriggja stiga körfur í
leiknum.
„Við erum að reyna að hugsa
fram í tímann og þetta eru fyrstu
skrefin hjá okkur. Við viðurkenn-
um það alveg að við þurfum að
bæta mikið en fyrsta skrefið er að
byrja á einhverju jákvæðu og það
var gott að fá einn sigur í kvöld,“
segir Hlynur, sem viðurkennir
að tapið á móti Svíum hafi aðeins
setið í mönnum ekki síst þar sem
liðið missti Jón Arnór Stefánsson í
upphafi leiksins.
„Það var mjög sárt að tapa
Svíaleiknum en Finnarnir voru
bara betri. Okkur langaði í annað
sætið því það er raunhæft mark-
mið að ná Svíunum en Finnarnir
eru nokkrum árum á undan okkur.
Það er ágætt að ná þriðja sætinu,“
sagði Hlynur. - óój
Hlynur Bæringsson eftir níu stiga sigur á Dönum á Norðurlandamótinu í gær:
Það var gott að fá einn sigur
HLYNUR BÆRINGSSON Var rétt við
tvennuna í gær. Hér skorar hann 2 af 9
stigum sínum. MYND/KRISTINN GEIR PÁLSSON
FÓTBOLTI FH vann mikilvægan sigur á Val í
Pepsi-deild karla í gærkvöld 3-2 þrátt fyrir
missa Pétur Viðarsson útaf þegar tæpar 40
mínútur voru eftir leiknum og Valur yfir 2-1.
Leikurinn var hinn fjörugasti og reyndu
bæði lið að láta boltann ganga með jörðinni
og bjóða áhorfendum upp á skemmtilegan
sóknarþenkjandi fótbolta. Bæði lið ætluðu sér
að sækja til sigurs og var nokkuð jafnræði með
liðunum framan af þó FH hafi komist yfir á
14. mínútu. Valur sótti meira er leið á fyrri
hálfleik og uppskar tvö mörk fyrir hálfleik en
geta þakkað Haraldi Björnssyni fyrir að hafa
verið yfir í hálfleik því hann varði tvisvar góða
skalla frá Matthíasi Vilhjálmssyni af stuttu
færi.
Valur hóf seinni hálfleikinn af krafti og
var sterkara liðið allt þar til Pétur nældi
sér í tvö gul spjöld á átta mínútna kafla. Þá
snérist leikurinn því aðeins tveimur mínútum
síðar jafnaði Matthías leikinn með sínu öðru
marki og þegar rúmar stundarfjórðungur var
eftir skoraði minnsti maður vallarins, Atli
Guðnason, mark með skalla af markteig eftir
horn og tyggði FH stigin þrjú.
Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik. Við
vorum seinir og ætluðum að lulla okkur í
gegnum þetta. En það er kredit á allt liðið fyrir
frábæra vinnusemi og vilja til að vinna leikinn,“
sagði Gunnleifur Gunnleifsson markvörður FH
sem hafði nóg að gera í leiknum.
„Pétur Viðarsson fórnaði sér fyrir okkur.
Hann sparkaði okkur inn í leikinn eins og
honum einum er lagið. Hann vildi kveikja
í okkur og hann gerði það svona og við
nýttum okkur það. Við bitum í skjaldarendur
og keyrðum þetta heim,“ sagði glaðbeittur
Gunnleifur glaðbeittur í leikslok.
Kristján Guðmundsson var að vonum ekki
eins glaðbeittur að leiknum loknum enda tapaði
lið hans mikilvægum stigum í toppbaráttunni
en liðið er í öðru sæti fjórum stigum á eftir KR
sem á auk þess leik til góða.
„Maður á eftir að sjá hvað gerist í leiknum
annað en vinnuframlag en við fáum á okkur
annað markið strax eftir rauða spjaldið og það
verður sennilega of mikið áfall að við náum
okkur ekki út úr því. Við gerum of mörg mis-
tök í þessum leik til að réttlæta að við vinnum
en við vorum á leiðinni að vinna þennan leik
í stöðunni 2-1 og með jafn marga leikmenn í
báðum liðum,“ sagði Kristján. - gmi
Tíu FH-ingar of margir fyrir Val
FH-ingar skoruðu tvö mörk og tryggðu sér 3-2 sigur á Valsmönnum eftir að þeir misstu mann af velli á 56.
mínútu. Atli Guðnason skoraði sigurmarkið með skalla eftir hornspyrnu og kom FH upp í fjórða sætið.
MAÐURINN Á BAK VIÐ SÍÐUSTU TVÖ MÖRKIN Atli Guðnason lagði upp jöfnunarmarkið og skoraði síðan
sigurmarkið í sigri FH á Vals í gær. Bæði mörkin komu eftir að FH varð manni færri. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG