Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2011, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 26.07.2011, Qupperneq 46
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR38 SUNDLAUGIN MÍN Ég stunda ekki mikið sund núna en ég æfði alltaf í Sundhöll Reykjavíkur svo ég verð að segja að hún sé í uppáhaldi. Kannski mest af því hún er í göngufæri. Níels Thibaud Girerd, skemmtikraftur og þáttastjórnandi. „Ég lít á þetta sem svona „pro- fessional“ áhugamennsku,“ segir Erlingur Grétar Einarsson, en hann hefur stofnað kvikmynda- vefsíðuna Filmophilia.com þar sem hann ætlar að fjalla um og gagnrýna kvikmyndir. Erlingur Grétar hefur verið rit- stjóri Mynda mánaðarins í á hálft fjórða ár, en ákvað nýverið að flytja af landi brott og hættir því sem ritstjóri blaðsins. „Ég er að flytja til Taílands að kenna ensku í hálft ár og svo sjáum við hvert framtíðin leiðir okkur eftir það,“ segir Erlingur, sem útskrifaðist með BA-gráðu í ensku og kvik- myndafræði frá Háskóla Íslands í vor. Erlingur ætlar að skrifa á síðuna samhliða kennslunni í Taí- landi. „Ég er með rosalega kvik- myndadellu og gat ekki alveg hætt þessu. Ég ákvað að stofna kvik- myndasíðu í bloggformi og verð með fullt af pennum að skrifa.“ Spurður hvort síðan hans verði ekki bara eins og allar hinar kvik- myndasíðurnar, segir Erlingur að svo verði ekki. „Það eru til ógeðs- lega margar svona síður. Margar eru góðar en margar eru það ekki. Mér hefur oft fundist kvik- myndafréttasíður ekki vera með nógu vandað málfar og frágang. Ég legg mikla áherslu á að allt sé vel skrifað og að það séu engar villur,“ segir Erlingur. Eiginkona Erlings, Kolbrún Björt, er mennt- aður leikstjóri og ætlar hún að skrifa kvikmyndagagnrýni, ásamt fleiri pennum sem menntaðir eru í bókmenntafræði og öðru því líku. „Þetta verður ekki bara einhver álitsgjöf út í bæ, heldur reynum við að líta vel á myndirnar og hafa þetta svolítið fagmannlega gert, án þess þó það verði leiðinlegt,“ segir Erlingur. Hann segist einnig ætla að fjalla mikið um íslenskar kvik- myndir. „Það er rosalega lítið skrifað um íslenska kvikmynda- heiminn á ensku, svo við ætlum að fara aðeins inn á það.“ - ka Stýrir kvikmyndasíðu frá Taílandi ÆTLAR AÐ VANDA TIL VERKA Erlingur Grétar segir margar kvikmyndasíður ekki vanda málfar og frágang. Hann hefur stofnað kvikmyndasíðuna Filmophilia. com og ætlar að sjá til þess að síðan verði villulaus og vönduð. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Bandaríska hljómsveitin Bon Iver flutti eigin útgáfu af lagi Bjarkar Guðmundsdóttur, Who Is It, á tón- leikum í borginni Milwaukee fyrir skömmu. Lagið er að finna á plötunni Medúllu sem Björk gaf út árið 2004. Platan er nær eingöngu tekin upp án hljóðfæra og eru raddir því í aðalhlut- verki. Í útgáfu Bon Iver eru þó notuð hljóðfæri. Stutt er síðan hljómsveitin söng lagið Come Talk to Me eftir Peter Gabriel á tónleikum. Það verður B-hliðarlag á næstu smáskífu sveitarinnar, Holocone. Bon Iver er á tónleikaferð um Banda- ríkin um þessar mundir. Í október legg- ur hún af stað í tónleikaferð um Evrópu þar sem Justin Vernon og félagar spila í borgum á borð við London, París, Ósló og Kaupmannahöfn. Tilefnið er útgáfa annarrar plötu sveitarinnar sem kom út fyrr í sumar við mjög góðar undirtektir. BON IVER Justin Veron og félagar í Bon Iver fluttu Bjarkarlag á tónleikum sínum. Bon Iver söng lag eftir Björk „Það var frekar gaman að vinna með röddina hennar í stúdíóinu,“ segir Pálmi Ragnar Ásgeirsson sem, ásamt liðsmönnum sínum í upptökuteyminu StopWaitGo, hefur eytt síðustu dögum í að endurút- setja lag fyrir bresku söngkonuna Leonu Lewis. Allt byrjaði þetta á því að StopWaitGo, sem auk Pálma er skipað bróður hans, Ásgeirs Orra, og Sæþóri, hélt út til Los Angeles í vor og nældi sér í umboðs- mann. „Við fórum út til að hitta umboðsmanninn Darryl E. Farmer. Hann þekkti okkur frá því að við gerðum lög með stelpunum í The Charlies en hann er líka með þær á sínum snærum,“ segir Pálmi en strákarnir skrifuðu að lokum undir fyrir viku, eftir mikla pappírsvinnu. Í kjölfarið þurftu þeir að fresta öllum íslenskum verkefnum og fengu sitt fyrsta verkefni í hendurnar, lag fyrir nýj- ustu plötu bresku stjörn- unnar Leonu Lewis. „Þetta er svona týpísk ballaða eins og Lewis er þekkt fyrir og við send- um henni tvær útgáfur af laginu. Gerð - um þetta í henn- ar stíl en settum okkar stimpil á það,“ segir Pálmi, sem fyrir nokkr- u m d ö g u m fékk staðfest- ingu á því að Lewis vissi að lagið henn- ar væri komið t i l Í s l a nd s . „Frænka mín er búsett í New York og maður hennar er ljósmyndari en sama dag og við fengum lagið í hendurnar var hann að taka myndir af Lewis fyrir plötu- umslagið. Þegar hann nefndi þetta við hana sagðist Lewis vita að lagið sitt væri á Íslandi,“ segir Pálmi og viðurkennir að það sé frekar gott. „Ég hélt að lagið væri sent út um allan heim og hún hefði ekki hug- mynd um hvar það væri statt. Vona að hún muni það þegar hún velur hvaða útgáfa fer á plötuna.“ Það er óneitanlega frábært fyrir strákana að vera komnir með umboðsmann í Mekka skemmtana- iðnaðarins í Bandaríkjunum og von- ast þeir til að flytja þangað í fram- tíðinni. „Okkur líður mjög vel hérna í stúdíóinu okkar uppi á Höfða og erum með báðar fætur á jörðinni,“ segir Pálmi en engir háar peninga- upphæðir eru í spilunum enn sem komið er. Þeir fengu þó smáræði fyrir sinn snúð við undirskrift. „Við erum himinlifandi með samninginn og það má segja að við séum allavega komnir skrefinu nær draumnum okkar.“ alfrun@frettabladid.is PÁLMI RAGNAR ÁSGEIRSSON: VIÐ ERUM HIMINLIFANDI ENDURÚTSETTU LAG FYRIR LEONU LEWIS VISSI HVAR LAGIÐ VAR NIÐUR KOMIÐ Breska söngkonan Leona Lewis vann bresku X-Factor keppnina árið 2006 og komst í kjölfarið á samning hjá plötufyrir- tæki Simons Cowell, Syco. Hún hefur unnið þrenn Grammy verðlaun og selt yfir 9 milljónir platna út um allan heim. NORDICPHOTO/GETTY SKREFI NÆR DRAUMNUM Þeir Pálmi Ragnar, Sæþór og Ásgeir Orri í upptökutríóinu StopWaitGo eru komnir með umboðsmann í Bandaríkjunum og útsettu á dögunum lag fyrir bresku söngkonuna Leonu Lewis. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag er tökum á kvikmyndinni Prómeþeus eftir Ridley Scott lokið á Íslandi. Verkefnið var gríðarlega viðamikið og þurfti meðal annars að skerða aðgengi almennings að Dettifossi. Stórstjarnan Charlize Theron leikur í Prómeþeusi og mætti því til landsins ásamt töku- og fylgdarliði. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins var hún ekki dugleg við að blanda geði við fólk og hélt sig löngum stundum inni í hjólhýsi sínu á tökustað. Bók Óttars M. Norðfjörð, Sólkross, kom út í Þýskalandi, Austurríki og Sviss í gær undir nafninu Das Sonennkreuz. Stutt er síðan bókin kom út á Spáni, þá undir nafninu La Cruz Solar. Sólkross er spennu- saga með sögulegu ívafi og kom út á Íslandi árið 2008. Nýjasta bók Óttars, Áttblaðarósin, kom út fyrir síðustu jól. - afb, fb FRÉTTIR AF FÓLKI FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN KOMDU Í ÖLL HELSTU PARTÝIN MEÐ OKKUR m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. HÁRIÐ 10.000 manns hafa séð Hárið. Tryggðu þér miða! SILFUR TUNGLIÐ „Algjör snilld“ Júlíus Júlíusson, Mbl. Miðasala á harid.is Mið. 27. júlí kl. 19 Fim. 28. júlí kl. 19 Fim. 04. ágúst kl. 19 Höfum b ætt við fleiri au kasýnin gum! ÖRFÁ SÆ TI LAUS SÆ TI LAUS SÆ TI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.