Fréttablaðið - 06.08.2011, Síða 8

Fréttablaðið - 06.08.2011, Síða 8
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR8 SVEITARSTJÓRNARMÁL „Stranda- byggð skilaði þriggja ára fjár- hagsáætlun bréflega á réttum tíma, hins vegar láðist að senda áætlunina á tölvutæku formi,“ segir Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri Strandabyggðar, í samtali við Bæjarins besta. Strandabyggð er meðal þeirra sex sveitarfélaga sem fengu áminningu fyrir að hafa ekki skilað inn þriggja ára fjárhags- áætlun til ráðuneytisins. Sveit- arfélögunum var hótað dag- sektum og stöðvun greiðslna úr jöfnunar sjóði ef áætlanir yrðu ekki birtar. Ingibjörg telur að Stranda- byggð hefði aldrei átt að lenda á listanum. Að hennar sögn er búið að hafa samband við ráðuneytið og leiðrétta málið, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta. - kh Ársreikningur Strandabyggðar: Gleymdu að skila rafrænt Borgartúni 26 · Ármúla 13a sími 540 3200 · www.mp.is Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu fyrir fólk og fyrirtæki og skjóta afgreiðslu mála í síma- og þjónustuveri. Þannig á banki að vera og þess vegna eru meira en 90% viðskiptavina ánægð með þjónustuna hjá okkur. Við tökum vel á móti þér! Debetkort Launareikningar Sparnaðarreikningar Kreditkort Netbanki Erlend viðskipti Útlán Það er auðvelt að skipta um banka. En það er mikilvægt að vanda valið! Bárður Helgason, viðskiptastjóri F í t o n / S Í A WALL STREET Erfið vika er að baki á mörkuðum heims. Hughreystandi atvinnuleysis- tölur frá Bandaríkjunum hresstu fjárfesta þó nokkuð við í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EFNAHAGSMÁL, AP Hlutabréfaverð hækkaði nokkuð við opnun í helstu kauphöllum í gær eftir miklar lækkanir síðustu daga. Ástæðan er talin vera tölur sem birtar voru í gær um fjölda atvinnulausra í Bandaríkjunum, en þær voru betri en markaðir höfðu búist við. Talnanna hafði verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, en mánað- arlegar atvinnuleysistölur í Banda- ríkjunum hafa haft töluverð áhrif á markaði síðustu misseri. Þrátt fyrir jákvæð tíðindi eru þó enn miklar áhyggjur af hinum hæga efnahagsbata vestanhafs. Skuldakreppan í nokkrum evruríkjanna er sem fyrr helsta áhyggjuefni fjárfesta í Evrópa en þó birti einnig til á evrópskum mörkuðum í gær í kjölfar tíðind- anna frá Bandaríkjunum. Voru hlutabréfavísitölur í Frakklandi og Spáni meðal þeirra sem stóðu sig best, en áhyggjur fjárfesta af skuldastöðu ríkjanna hafa aukist merkjanlega síðustu daga. Þá lækkaði í gær ávöxtunar- krafa á ríkisskuldabréf evruríkj- anna, sem hefur nálgast sögulegar hæðir í vikunni. Ávöxtunarkrafa ítalskra og spænskra bréfa er þó enn yfir sex prósentum, sem er talið ósjálfbært til lengri tíma. Seinagangur leiðtoga evruríkj- anna við að stækka og auka vald- heimildir björgunarsjóðs sem ríki evrusvæðisins hafa komið á fót hafa skilið þau eftir í lausu lofti og eru ófær um að koma ríkjunum í neyð til hjálpar. Þá eru vandræði stjórnmálamanna í Bandaríkjun- um við að semja um hækkun á skuldaþaki bandaríska ríkisins talin hafa dregið úr trausti á getu ráðamanna til að leysa úr vanda- málum hagkerfisins. Þrátt fyrir ánægjuleg tíðindi í gær er búist við áframhaldandi svartsýni á mörkuðum út sumar- ið. Sérfræðingar segja fjárfesta verða vara um sig áfram þangað til skýr merki um öflugri efna- hagsbata komi fram. Þá er beðið frekari viðbragða frá leiðtogum evruríkjanna um hvernig hægt verði að stöðva skuldakreppuna. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, og Nicolas Sarkozy, for- seti Frakklands, gerðu bæði hlé á sumarfríum sínum í gær til að ræða ástandið á mörkuðum. Á meðan fagnaði Barack Obama Bandaríkjaforseti 50 ára afmæli sínu en hefur þó varla getað ein- beitt sér fyllilega að hátíðahöldum vegna ástandsins. magnusl@frettabladid.is Svartsýni á hlutabréfa- mörkuðum Hlutabréfamarkaðir heims réttu sig örlítið við í gær eftir hrinu mikilla lækkana. Hægur efnahagsbati í Bandaríkjunum og skuldakreppa í nokkrum evru- ríkjanna mun þó eflaust valda áhyggjum. NOREGUR, AP Sautján ára breskur drengur lét lífið í árás hvítabjarnar á eyjunni Svalbarða í gær. Björninn særði fjóra samferðamenn drengsins áður en öðrum úr hópnum tókst að fella dýrið. Drengurinn var í hópi um áttatíu breskra ferðamanna sem höfðu slegið upp tjöldum við Von Postbreen-jökulinn. Hópurinn var í skóla- ferð og voru flestir í hópnum á aldrinum 16 til 23 ára. Tveir þeirra sem slösuðust voru fararstjór- ar en hinir voru úr hópi nemenda. Þeir voru sendir með sjúkraflugi til Noregs, en sam- kvæmt upplýsingum frá læknum á Svalbarða voru áverkar allra alvarlegir. „Þegar hafísinn kemur og fer eins og hann gerir þessa dagana er alls ekki ólíklegt að rekast á hvítabirni,“ segir Lars Erikis, vara- ríkisstjóri á Svalbarða, í samtali við BBC. „Hvítabirnir eru gríðarlega hættulegir og eiga það til að ráðast á fólk án nokkurs fyrirvara.“ Um 3.000 hvítabirnir eru á Svalbarða á þessum árstíma, en íbúar á eyjunni eru um 2.400. Hvítabirnirnir eru friðaðir en heimilt er að skjóta þá í nauðvörn. - bj Hópur breskra ferðamanna í lífshættu á bjarnarslóðum í óbyggðum á Svalbarða: Hvítabjörn drap einn og særði fjóra FLUTTIR Engir vegir liggja að tjaldbúðum ferðamann- anna og var þyrla send eftir hinum slösuðu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÞJÓÐKIRKJAN Kosið verður milli Sigrúnar Óskarsdóttur, prests í Árbæjarkirkju, og Kristjáns Vals Ingólfssonar, sóknarprests á Þing- völlum, í síðari umferð í vígslubisk- upskjöri í Skálholti. Kosningu til embættisins lauk fimmtudaginn 28. júlí og atkvæði voru talin í gær. Á kjörskrá eru 149 menn og var kjör- sókn 98 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni. Sigrún fékk 39 atkvæði og Kristján Valur 37. Séra Agnes M. Sigurðardóttir fékk einnig 37 atkvæði en reglur gera ráð fyrir að fái einstaklingar jafn mörg atkvæði ráði hlutkesti því hvor fari í seinni umferð. Séra Jón Dalbú Hróbjarts- son tók einnig þátt í kosningunni og endaði hann með 33 atkvæði. Önnur umferð kosningarinnar fer fram strax að afloknum kæru- fresti, 12. ágúst næstkomandi. Skilafrestur atkvæða rennur út 26. ágúst. Gert er ráð fyrir að talning atkvæða úr annarri umferð fari fram laugardaginn 3. september 2011. - sv Hlutkesti réð því hver fór áfram í kosningum: Vígslubiskup kosinn í þessum mánuði KRISTJÁN VALUR INGÓLFSSON SIGRÚN ÓSKARSDÓTTIR 1 Hve mikill þorskur var borðaður á Íslandi á síðasta ári? 2 Hve margar nauðganir hefur verið tilkynnt um á Þjóðhátíð í ár? 3 Hvaða fyrirtæki ákvað nýlega að verða einn bakhjarla Hofs á Akureyri? SVÖR: 1. 576 tonn 2. 6 3. VÍS VEISTU SVARIÐ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.