Fréttablaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 26
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR26
V
iðureign Manches-
ter-félaganna City
og United í Sam-
félagsskildinum á
morgun markar að
margra mati upp-
haf leiktíðarinnar á Englandi.
Aðeins vika er í að flautað verði
til leiks í ensku úrvalsdeildinni á
nýjan leik. Englandsmeistararn-
ir í Manchester United þykja sig-
urstranglegir auk granna sinna
í City og Lundúnaliðsins Chel-
sea. Margir vilja meina að tíma-
bilið gæti verið síðasti möguleiki
Arsene Wenger til þess að skila
nýjum titli í hús hjá Arsenal. Þá
setja bjartsýnustu stuðnings-
menn Liverpool stefnuna á titil-
inn meðan svartsýnni menn tækju
Meistaradeildarsæti fegins hendi.
Líklegastir til sigurs
Sir Alex Ferguson hefur sitt
tuttugasta og sjötta starfsár hjá
Manchester United staðráðinn í að
skila tuttugasta Englandsmeist-
aratitli félagsins í hús. United
náði frábærum árangri á síðustu
leiktíð en auk þess að vinna Eng-
landsmeistaratitilinn komst liðið
í úrslit Meistaradeildar í þriðja
skipti á fjórum árum. Miklu mun-
aði um frammistöðu Mexíkóans
Javier „Chicharito“ Hernandez,
sem var nokkuð óþekkt stærð
fyrir tímabilið og lítils vænst af
honum.
Fróðlegt verður að sjá hversu
mikið United mun sakna mark-
varðarins Edwins van der Sar sem
hefur lagt skóna á hilluna. David
de Gea var keyptur frá Atletico
Madrid og ljóst er að mikil pressa
verður á Spánverjanum tvítuga.
Sparkspekingum er minnisstætt
hversu illa gekk að finna traustan
arftaka Peters Schmeichel á sínum
tíma og andstæðingar United vona
að markvarðarstaðan eigi eftir að
valda meisturunum vandræðum.
Englendingarnir Ashley Young
og Phil Jones eru komnir til Uni-
ted en arftaki Paul Scholes á miðj-
unni er ófundinn. Ferguson, sem
verður sjötugur á síðasta degi árs-
ins, er þekktur fyrir að fara sínar
eigin leiðir á leikmannamarkaðn-
um líkt með kaupunum á Chicha-
rito (og Bebe). Hann gæti komið á
óvart áður en félagaskiptaglugg-
inn lokast í lok mánaðarins. Meist-
ararnir hljóta að teljast líklegir til
þess að verja titil sinn, líklegastir
til sigurs eins og staðan er í dag.
Er tími City kominn?
Stuðningsmenn Manchester City
fengu loks uppreisn æru á síðustu
leiktíð. Félagið vann enska FA-bik-
arinn, sinn fyrsta bikar í 35 ár, og
sló granna sína í United út í undan-
úrslitum. Félagið tryggði sér sæti
í Meistaradeild Evrópu og sýndi
að héðan í frá skyldi fólk taka City
alvarlega. Konungsfjölskyldan í
Abu Dhabi hefur varið miklum
fjármunum í félagið undanfarin
þrjú ár og virðast sjóðir þess
ótæmandi.
Sagan endalausa um heimþrá
Carlos Tevez er óleyst. Tevez,
sem hefur verið jafnbesti leik-
maður deildarinnar undanfarin
ár, hefur ekki farið leynt með van-
líðan sína í Manchester-borg. City-
menn sögðust ekkert þurfa að flýta
sér að selja Tevez og nýttu sum-
arið í að tryggja sér þjónustu ann-
ars argentísks framherja, Sergio
Aguero, dýrasta leikmanns City
frá upphafi.
Helsti hausverkur Roberto
Mancini, knattspyrnustjóra City,
gæti orðið að halda stjörnum
sínum ánægðum. Leikmannahóp-
urinn er afar vel skipaður en þó er
ljóst að aðeins ellefu byrja hvern
leik. Óvíst er hvernig bekkjarset-
an fer í stórstjörnur City en liðið
hefur þó litið vel út á undirbún-
ingstímabilinu. Sannfærandi 3-0
sigur á sterku liði Inter frá Míl-
anó í síðustu viku gefur til kynna
að menn Mancinis séu til alls vísir
í vetur.
Nýr Mourinho-tími
gæti verið í uppsiglingu
Þegar síðasta leiktíð var um það
bil hálfnuð virtist fátt geta komið
í veg fyrir annan meistaratitil
Chelsea á tveimur árum. Meiðsli
lykilmanna á skömmum tíma urðu
hins vegar til þess að Chelsea-
vélin bræddi úr sér. Félagið sá á
eftir titlinum og marði að lokum
annað sætið með betri marka-
tölu en Manchester City. Aldrei
þessu vant hefur félagið hald-
ið sig af leikmannamarkaðnum í
sumar ef frá eru talin nýleg kaup
á táningnum Oriol Romeu frá
Barcelona.
Mikil pressa er á herðum hins
33 ára gamla André Villas-Boas.
Eftir frábæran árangur með Porto
í heimalandinu og Evrópudeild-
inni á síðustu leiktíð er Portúgal-
inn tekinn við stórliði Chelsea þar
sem kröfurnar eru miklar. Roman
Abramovich, hinn rússneski eigandi
Chelsea, hikaði ekki við að sparka
einum virtasta stjóra síðasta ára-
tugar, Ítalanum Carlo Ancelotti, í
lok síðustu leiktíðar.. Annað sæti í
deild og átta liða úrslit í Meistara-
deildinni var árangur vel undir
væntingum
Sjaldan er minnst á Villas-Boas
nema nafn læriföður hans, Jose
Mourinho, sé nefnt í sömu andrá.
Villas-Boas aðstoðaði „hinn sér-
staka“ bæði hjá Porto og Chelsea.
Mourinho skilaði tveimur Eng-
landsmeistaratitlum í hús hjá Chel-
sea en segja má að kjarninn í liðinu
sé enn hinn sami, bara sex árum
eldri. Lykillinn að árangri hlýtur
að liggja í því að sameina krafta
Didier Drogba og Fernando Torres
í framlínu Chelsea. Sá síðarnefndi
hefur átt afar erfitt uppdráttar
síðan hann kom frá Liverpool en
enginn velkist í vafa um hæfileika
hans.
Síðasti séns fyrir Wenger
Sex ára titlaleysi hefur tekist að
snúa fjölmörgum stuðningsmönnum
Arsenal gegn stefnu knattspyrnu-
stjórans Arsene Wenger. Svo virðist
sem Wenger hafi efnahagsvanda-
mál heimsins á herðum sér þegar
kemur að nýjum leikmönnum. Svo
fátíð eru kaup á dýrum heimsklassa
leikmönnum. Eftir frábær fyrstu
níu ár hjá félaginu þar sem liðið
breyttist úr varnarsinnuðu liði í
best spilandi lið Englands hafa þau
sex síðustu verið í meira lagi mögur.
„Næstum því“ lýsir ágætlega gengi
Arsenal ár eftir ár. Wenger fékk
frábært tækifæri til þess að binda
enda á titlaleysið í deildabikarnum
en leikmenn liðsins voru sjálfum
sér verstir í 2-1 tapi gegn fallliði
Birmingham í úrslitaleiknum.
Árangursleysi og vanhæfni
Wengers til þess að styrkja liðið
hafa einnig skilað sér í pirruðum
leikmönnum. Stjörnur félagsins,
Cesc Fabregas og Samir Nasri,
hafa báðar sagst ósáttar með stöðu
mála og alls óvíst er hvort þeir
verði áfram í herbúðum Lundúna-
félagsins. Brotthvarf óánægðra
leikmanna gæti hreinsað andrúms-
loftið en einnig er líklegt að aðrir
lykilmenn bregðist illa við. Franski
þjálfarinn þarf að opna veskið, eins
og hann gerði með kaupunum á
Fílabeinsstrendingnum sókndjarfa
Gervinho.
Enginn vafi er á því að Wenger
getur stillt upp frábæru byrjunar-
liði hjá Arsenal sem getur staðið
flestum snúning. Breiddin er hins
vegar ekki upp á marga fiska og því
viðbúið að sagan endurtaki sig lendi
lykilmenn í meiðslum. Meiðsli lykil-
manna Arsenal hafa reyndar verið
svo tíð að tímabært er að athuga
réttindi sjúkrateymisins.
Kóngurinn fær vinnufrið
Þrátt fyrir að árangur Liver-
pool hafi staðið undir væntingum
svartsýnustu manna á síðustu leik-
tíð höfðu stuðningsmenn Liverpool
yfir nógu að gleðjast innan vallar
sem utan. Eigendaskiptin, ráðn-
ing „kóngsins“ Kenny Dalglish og
Úrúgvæi að nafni Luis Suarez sem
skyggði á söluna á Fernando Tor-
res svo um munaði stóðu upp úr.
Dalglish, sem stýrði Liverpool til
þriggja Englandsmeistaratitla og
tveggja bikarmeistaratitla á níunda
áratugnum, er jafn heilagur hjá
aðdáendum Liverpool og páfinn er
í Vatíkaninu. Hann mun fá vinnu-
frið, auk þess sem fjarvera Liver-
pool í Evrópudeildinni ætti að koma
liðinu til góða í Úrvalsdeildinni.
Félagið hefur styrkt sig töluvert
í sumar í kjölfarið á því sem virð-
ast frábær kaup á Andy Carroll
og Suarez í stað Fernando Torres.
Ensku landsliðsmennirnir Jordan
Henderson og Stewart Downing
eru komnir á Anfield, að ógleymd-
um Skotanum Charlie Adam. Allir
hafa ýmislegt til brunns að bera og
stóðu sig vel hjá lægra skrifuðum
úrvalsdeildarfélögum í fyrra. Eng-
inn þeirra hefur þó enn sannað sig
á stóra sviðinu.
Leikmönnum Liverpool hefur
gengið illa að standa vaktina í
vörninni á undirbúningstíma-
bilinu. Hvort sem mótherjinn
hefur verið malasískur, norskur
eða tyrkneskur hefur markvörður
liðsins mátt hirða knöttinn úr neti
sínu þrisvar sinnum, sem er allt
of oft gegn lægra skrifuðum and-
stæðingum. Dalglish virðist vera
í leit að miðverði en sú leit stend-
ur enn yfir þegar aðeins vika er
í mót. Liverpool-liðið virðist öllu
sterkara fram á við. Suarez hefur
nú þegar sannað ágæti sitt en Eng-
lendingurinn Andy Carroll er enn
nokkurt spurningarmerki. Stuðn-
ingsmenn Liverpool binda vonir
við að fyrirgjafir Downings á
kollinn á framherjanum stæðilega
skili mörkum frá þessum dýrasta
knattspyrnumanni Bretlandseyja.
Fulltrúar Íslands og Wales
Þrátt fyrir að athygli flestra bein-
ist að stóru félögunum sem fyrr
eru nefnd er fleira sem fylgjast
verður með. Í fyrsta skipti í sögu
úrvalsdeildarinnar verður fulltrúi
frá Wales í deildinni en róðurinn
gæti reynst þungur hjá nýliðunum
frá Swansea.
Íselndingar eiga tvo fulltrúa
í deildinni í vetur. Grétar Rafn
Steinsson stendur vaktina í hægri
bakverðinum hjá Bolton og þá
verður Heiðar Helguson í fram-
línu nýliða QPR. Dalvíkingurinn
er einn reynslumesti leikmaður-
inn í liði QPR en hann hefur spilað
með Watford, Fulham og Bolton í
deild þeirra bestu.
Sparkspekingar geta deilt um
hvort enska úrvalsdeildin sé sú
besta í heimi. Þegar kemur að
vinsældum stenst engin knatt-
spyrnudeild í heimi henni snún-
ing. Veislan er handan við hornið.
Dalglish, sem stýrði Liverpool til þriggja Englandsmeistaratitla
og tveggja bikarmeistaratitla á níunda áratugnum, er jafn
heilagur hjá aðdáendum Liverpool og páfinn er í Vatíkaninu.
Aldrei fleiri félög gert tilkall
Keppni í ensku úrvalsdeildinni, vinsælustu knattspyrnudeild heims, hefst eftir viku. Tilhlökkun stuðningsmanna er mikil að sjá
hvernig félögum sínum reiðir af. Kolbeinn Tumi Daðason tók stöðuna á félögunum sem eiga raunhæfan möguleika á titlinum.
Félag Knattspyrnustjóri Þjóðerni
Arsenal Arsene Wenger Franskur
Aston Villa Alex McLeish Skoskur
Blackburn Steve Kean Skoskur
Bolton Owen Coyle Skoskur
Chelsea André Villas-Boas Portúgalskur
Everton David Moyes Skoskur
Fulham Martin Jol Hollenskur
Liverpool Kenny Dalglish Skoskur
Man City Roberto Mancini Ítalskur
Man Utd Alex Ferguson Skoskur
Newcastle Alan Pardew Enskur
Norwich City Paul Lambert Skoskur
QPR Neil Warnock Enskur
Stoke City Tony Pulis Velskur
Sunderland Steve Bruce Enskur
Swansea City Brendan Rodgers Norður-Írskur
Tottenham Harry Redknapp Enskur
WBA Roy Hodgson Enskur
Wigan Athletic Roberto Martínez Spænskur
Wolves Mick McCarthy Írskur
Skoskir stjórar vinsælastir
Magnað er hversu dugleg ensku úrvalsdeildarfélögin eru að sækja
knattspyrnustjóra til nágranna sinna í Skotlandi. Sjö Skotar stýra liðum
í deildinni en aðeins fimm Englendingar eru við stjórnvölinn. Fámenni
knattspyrnustjóra frá heimalandinu er einsdæmi í stærstu deildum
heimsins. Þrátt fyrir að erlendir þjálfarar séu ekki óþekkt stærð í ítölsku,
spænsku og þýsku deildinni eru heimamenn í miklum meirihluta.
Englendingur hefur reyndar ekki stýrt félagi til sigurs í ensku úrvals-
deildinni frá stofnun hennar árið 1992.
■ KNATTSPYRNUSTJÓRAR ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Í ELTINGALEIK VIÐ BOLTANN Berbatov, Fletcher og Giggs hjá Manchesr United höfðu betur gegn Torres og félögum í Chelsea í langhlaupinu um Englandsmeistaratitilinn á
síðustu leiktíð. Fróðlegt verður að sjá hverjir koma til með að fagna þegar bikarinn fer á loft í maí. NORDIC PHOTOS/AFP