Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.08.2011, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 06.08.2011, Qupperneq 26
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR26 V iðureign Manches- ter-félaganna City og United í Sam- félagsskildinum á morgun markar að margra mati upp- haf leiktíðarinnar á Englandi. Aðeins vika er í að flautað verði til leiks í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik. Englandsmeistararn- ir í Manchester United þykja sig- urstranglegir auk granna sinna í City og Lundúnaliðsins Chel- sea. Margir vilja meina að tíma- bilið gæti verið síðasti möguleiki Arsene Wenger til þess að skila nýjum titli í hús hjá Arsenal. Þá setja bjartsýnustu stuðnings- menn Liverpool stefnuna á titil- inn meðan svartsýnni menn tækju Meistaradeildarsæti fegins hendi. Líklegastir til sigurs Sir Alex Ferguson hefur sitt tuttugasta og sjötta starfsár hjá Manchester United staðráðinn í að skila tuttugasta Englandsmeist- aratitli félagsins í hús. United náði frábærum árangri á síðustu leiktíð en auk þess að vinna Eng- landsmeistaratitilinn komst liðið í úrslit Meistaradeildar í þriðja skipti á fjórum árum. Miklu mun- aði um frammistöðu Mexíkóans Javier „Chicharito“ Hernandez, sem var nokkuð óþekkt stærð fyrir tímabilið og lítils vænst af honum. Fróðlegt verður að sjá hversu mikið United mun sakna mark- varðarins Edwins van der Sar sem hefur lagt skóna á hilluna. David de Gea var keyptur frá Atletico Madrid og ljóst er að mikil pressa verður á Spánverjanum tvítuga. Sparkspekingum er minnisstætt hversu illa gekk að finna traustan arftaka Peters Schmeichel á sínum tíma og andstæðingar United vona að markvarðarstaðan eigi eftir að valda meisturunum vandræðum. Englendingarnir Ashley Young og Phil Jones eru komnir til Uni- ted en arftaki Paul Scholes á miðj- unni er ófundinn. Ferguson, sem verður sjötugur á síðasta degi árs- ins, er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir á leikmannamarkaðn- um líkt með kaupunum á Chicha- rito (og Bebe). Hann gæti komið á óvart áður en félagaskiptaglugg- inn lokast í lok mánaðarins. Meist- ararnir hljóta að teljast líklegir til þess að verja titil sinn, líklegastir til sigurs eins og staðan er í dag. Er tími City kominn? Stuðningsmenn Manchester City fengu loks uppreisn æru á síðustu leiktíð. Félagið vann enska FA-bik- arinn, sinn fyrsta bikar í 35 ár, og sló granna sína í United út í undan- úrslitum. Félagið tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu og sýndi að héðan í frá skyldi fólk taka City alvarlega. Konungsfjölskyldan í Abu Dhabi hefur varið miklum fjármunum í félagið undanfarin þrjú ár og virðast sjóðir þess ótæmandi. Sagan endalausa um heimþrá Carlos Tevez er óleyst. Tevez, sem hefur verið jafnbesti leik- maður deildarinnar undanfarin ár, hefur ekki farið leynt með van- líðan sína í Manchester-borg. City- menn sögðust ekkert þurfa að flýta sér að selja Tevez og nýttu sum- arið í að tryggja sér þjónustu ann- ars argentísks framherja, Sergio Aguero, dýrasta leikmanns City frá upphafi. Helsti hausverkur Roberto Mancini, knattspyrnustjóra City, gæti orðið að halda stjörnum sínum ánægðum. Leikmannahóp- urinn er afar vel skipaður en þó er ljóst að aðeins ellefu byrja hvern leik. Óvíst er hvernig bekkjarset- an fer í stórstjörnur City en liðið hefur þó litið vel út á undirbún- ingstímabilinu. Sannfærandi 3-0 sigur á sterku liði Inter frá Míl- anó í síðustu viku gefur til kynna að menn Mancinis séu til alls vísir í vetur. Nýr Mourinho-tími gæti verið í uppsiglingu Þegar síðasta leiktíð var um það bil hálfnuð virtist fátt geta komið í veg fyrir annan meistaratitil Chelsea á tveimur árum. Meiðsli lykilmanna á skömmum tíma urðu hins vegar til þess að Chelsea- vélin bræddi úr sér. Félagið sá á eftir titlinum og marði að lokum annað sætið með betri marka- tölu en Manchester City. Aldrei þessu vant hefur félagið hald- ið sig af leikmannamarkaðnum í sumar ef frá eru talin nýleg kaup á táningnum Oriol Romeu frá Barcelona. Mikil pressa er á herðum hins 33 ára gamla André Villas-Boas. Eftir frábæran árangur með Porto í heimalandinu og Evrópudeild- inni á síðustu leiktíð er Portúgal- inn tekinn við stórliði Chelsea þar sem kröfurnar eru miklar. Roman Abramovich, hinn rússneski eigandi Chelsea, hikaði ekki við að sparka einum virtasta stjóra síðasta ára- tugar, Ítalanum Carlo Ancelotti, í lok síðustu leiktíðar.. Annað sæti í deild og átta liða úrslit í Meistara- deildinni var árangur vel undir væntingum Sjaldan er minnst á Villas-Boas nema nafn læriföður hans, Jose Mourinho, sé nefnt í sömu andrá. Villas-Boas aðstoðaði „hinn sér- staka“ bæði hjá Porto og Chelsea. Mourinho skilaði tveimur Eng- landsmeistaratitlum í hús hjá Chel- sea en segja má að kjarninn í liðinu sé enn hinn sami, bara sex árum eldri. Lykillinn að árangri hlýtur að liggja í því að sameina krafta Didier Drogba og Fernando Torres í framlínu Chelsea. Sá síðarnefndi hefur átt afar erfitt uppdráttar síðan hann kom frá Liverpool en enginn velkist í vafa um hæfileika hans. Síðasti séns fyrir Wenger Sex ára titlaleysi hefur tekist að snúa fjölmörgum stuðningsmönnum Arsenal gegn stefnu knattspyrnu- stjórans Arsene Wenger. Svo virðist sem Wenger hafi efnahagsvanda- mál heimsins á herðum sér þegar kemur að nýjum leikmönnum. Svo fátíð eru kaup á dýrum heimsklassa leikmönnum. Eftir frábær fyrstu níu ár hjá félaginu þar sem liðið breyttist úr varnarsinnuðu liði í best spilandi lið Englands hafa þau sex síðustu verið í meira lagi mögur. „Næstum því“ lýsir ágætlega gengi Arsenal ár eftir ár. Wenger fékk frábært tækifæri til þess að binda enda á titlaleysið í deildabikarnum en leikmenn liðsins voru sjálfum sér verstir í 2-1 tapi gegn fallliði Birmingham í úrslitaleiknum. Árangursleysi og vanhæfni Wengers til þess að styrkja liðið hafa einnig skilað sér í pirruðum leikmönnum. Stjörnur félagsins, Cesc Fabregas og Samir Nasri, hafa báðar sagst ósáttar með stöðu mála og alls óvíst er hvort þeir verði áfram í herbúðum Lundúna- félagsins. Brotthvarf óánægðra leikmanna gæti hreinsað andrúms- loftið en einnig er líklegt að aðrir lykilmenn bregðist illa við. Franski þjálfarinn þarf að opna veskið, eins og hann gerði með kaupunum á Fílabeinsstrendingnum sókndjarfa Gervinho. Enginn vafi er á því að Wenger getur stillt upp frábæru byrjunar- liði hjá Arsenal sem getur staðið flestum snúning. Breiddin er hins vegar ekki upp á marga fiska og því viðbúið að sagan endurtaki sig lendi lykilmenn í meiðslum. Meiðsli lykil- manna Arsenal hafa reyndar verið svo tíð að tímabært er að athuga réttindi sjúkrateymisins. Kóngurinn fær vinnufrið Þrátt fyrir að árangur Liver- pool hafi staðið undir væntingum svartsýnustu manna á síðustu leik- tíð höfðu stuðningsmenn Liverpool yfir nógu að gleðjast innan vallar sem utan. Eigendaskiptin, ráðn- ing „kóngsins“ Kenny Dalglish og Úrúgvæi að nafni Luis Suarez sem skyggði á söluna á Fernando Tor- res svo um munaði stóðu upp úr. Dalglish, sem stýrði Liverpool til þriggja Englandsmeistaratitla og tveggja bikarmeistaratitla á níunda áratugnum, er jafn heilagur hjá aðdáendum Liverpool og páfinn er í Vatíkaninu. Hann mun fá vinnu- frið, auk þess sem fjarvera Liver- pool í Evrópudeildinni ætti að koma liðinu til góða í Úrvalsdeildinni. Félagið hefur styrkt sig töluvert í sumar í kjölfarið á því sem virð- ast frábær kaup á Andy Carroll og Suarez í stað Fernando Torres. Ensku landsliðsmennirnir Jordan Henderson og Stewart Downing eru komnir á Anfield, að ógleymd- um Skotanum Charlie Adam. Allir hafa ýmislegt til brunns að bera og stóðu sig vel hjá lægra skrifuðum úrvalsdeildarfélögum í fyrra. Eng- inn þeirra hefur þó enn sannað sig á stóra sviðinu. Leikmönnum Liverpool hefur gengið illa að standa vaktina í vörninni á undirbúningstíma- bilinu. Hvort sem mótherjinn hefur verið malasískur, norskur eða tyrkneskur hefur markvörður liðsins mátt hirða knöttinn úr neti sínu þrisvar sinnum, sem er allt of oft gegn lægra skrifuðum and- stæðingum. Dalglish virðist vera í leit að miðverði en sú leit stend- ur enn yfir þegar aðeins vika er í mót. Liverpool-liðið virðist öllu sterkara fram á við. Suarez hefur nú þegar sannað ágæti sitt en Eng- lendingurinn Andy Carroll er enn nokkurt spurningarmerki. Stuðn- ingsmenn Liverpool binda vonir við að fyrirgjafir Downings á kollinn á framherjanum stæðilega skili mörkum frá þessum dýrasta knattspyrnumanni Bretlandseyja. Fulltrúar Íslands og Wales Þrátt fyrir að athygli flestra bein- ist að stóru félögunum sem fyrr eru nefnd er fleira sem fylgjast verður með. Í fyrsta skipti í sögu úrvalsdeildarinnar verður fulltrúi frá Wales í deildinni en róðurinn gæti reynst þungur hjá nýliðunum frá Swansea. Íselndingar eiga tvo fulltrúa í deildinni í vetur. Grétar Rafn Steinsson stendur vaktina í hægri bakverðinum hjá Bolton og þá verður Heiðar Helguson í fram- línu nýliða QPR. Dalvíkingurinn er einn reynslumesti leikmaður- inn í liði QPR en hann hefur spilað með Watford, Fulham og Bolton í deild þeirra bestu. Sparkspekingar geta deilt um hvort enska úrvalsdeildin sé sú besta í heimi. Þegar kemur að vinsældum stenst engin knatt- spyrnudeild í heimi henni snún- ing. Veislan er handan við hornið. Dalglish, sem stýrði Liverpool til þriggja Englandsmeistaratitla og tveggja bikarmeistaratitla á níunda áratugnum, er jafn heilagur hjá aðdáendum Liverpool og páfinn er í Vatíkaninu. Aldrei fleiri félög gert tilkall Keppni í ensku úrvalsdeildinni, vinsælustu knattspyrnudeild heims, hefst eftir viku. Tilhlökkun stuðningsmanna er mikil að sjá hvernig félögum sínum reiðir af. Kolbeinn Tumi Daðason tók stöðuna á félögunum sem eiga raunhæfan möguleika á titlinum. Félag Knattspyrnustjóri Þjóðerni Arsenal Arsene Wenger Franskur Aston Villa Alex McLeish Skoskur Blackburn Steve Kean Skoskur Bolton Owen Coyle Skoskur Chelsea André Villas-Boas Portúgalskur Everton David Moyes Skoskur Fulham Martin Jol Hollenskur Liverpool Kenny Dalglish Skoskur Man City Roberto Mancini Ítalskur Man Utd Alex Ferguson Skoskur Newcastle Alan Pardew Enskur Norwich City Paul Lambert Skoskur QPR Neil Warnock Enskur Stoke City Tony Pulis Velskur Sunderland Steve Bruce Enskur Swansea City Brendan Rodgers Norður-Írskur Tottenham Harry Redknapp Enskur WBA Roy Hodgson Enskur Wigan Athletic Roberto Martínez Spænskur Wolves Mick McCarthy Írskur Skoskir stjórar vinsælastir Magnað er hversu dugleg ensku úrvalsdeildarfélögin eru að sækja knattspyrnustjóra til nágranna sinna í Skotlandi. Sjö Skotar stýra liðum í deildinni en aðeins fimm Englendingar eru við stjórnvölinn. Fámenni knattspyrnustjóra frá heimalandinu er einsdæmi í stærstu deildum heimsins. Þrátt fyrir að erlendir þjálfarar séu ekki óþekkt stærð í ítölsku, spænsku og þýsku deildinni eru heimamenn í miklum meirihluta. Englendingur hefur reyndar ekki stýrt félagi til sigurs í ensku úrvals- deildinni frá stofnun hennar árið 1992. ■ KNATTSPYRNUSTJÓRAR ÚR ÖLLUM ÁTTUM Í ELTINGALEIK VIÐ BOLTANN Berbatov, Fletcher og Giggs hjá Manchesr United höfðu betur gegn Torres og félögum í Chelsea í langhlaupinu um Englandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Fróðlegt verður að sjá hverjir koma til með að fagna þegar bikarinn fer á loft í maí. NORDIC PHOTOS/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.