Fréttablaðið - 06.08.2011, Side 30
4 fjölskyldan
bara komin á 2007 hjólhýsi eins og
hinir.“
Eiginmaður Thelmu vinnur
mikið en kemur á Flúðir í öllum
fríum. Hún fór hins vegar í sum-
arfrí 11. júlí og hefur verið í hjól-
hýsinu síðan. Með henni er sonur
þeirra Ingibjörn Margeir sem
verður ellefu ára á morgun. „Ingi-
björn er í ánni,“ segir Thelma
spurð hvað börnin geri sér til
skemmtunar. „Krakkarnir vaða og
synda í ánni og eru mikið í mold-
arnámunni; samt bara skítugu
strákarnir,“ segir hún og kallar þá
moldarstrákana.
Sterk tengsl hafa myndast milli
fólksins á hjólhýsasvæðinu. Eitt-
hvað er um fjölskyldufólk á henn-
ar reki en einnig mikið um ömmur
og afa með barnabörnin. „Þú ert
rosalega mikið að ganga milli hjól-
hýsanna, setjast inn og drekka
kaffi á náttfötunum,“ segir hún en
ástæða þess að hún tekur hjólhýsi
fram yfir sumarhús eru nágrann-
arnir: „Hér er meira samfélag. Í
sumarbústað er maður bara einn í
húsinu sínu.“
Fjölskyldan hefur ferðast mikið
saman á fólksbílnum um nágrennið
í sumar og stefnir á að fara saman
í berjamó. Að vetrarlagi fara hjón-
in á rjúpnaveiðar og ætla að vera
í hjólhýsinu þann tíma. „Hjólhýsið
er því fjölskylduhjólhýsi í sumar en
hjónahjólhýsi í vetur.“
Bæði börnin á golfnámskeiði
„Við höfum farið í sund og keyrt
niður að Sólheimum. Mér finnst
líka bændamarkaðurinn heillandi
og nálægðin við bóndann, að geta
náð í kjötið og grænmetið til hans,“
segir Jóhanna Björk Sigurbjörns-
dóttir aðspurð um kosti Flúða en
þetta er annað sumarið sem fjöl-
skyldan dvelur þar í hjólhýsi.
„Þetta er svo mikil nálægð við
börnin og þvílík afslöppun frá
öllu,“ segir hún og hefur verið þar
allt sumarfríið sitt, frá 15. júlí.
Maðurinn hennar, Guðni Hörðdal
Jónasson, þarf að sinna fyrirtæk-
inu sínu í Keflavík, þar sem þau
búa. Hann nýtir samt hvert tæki-
færi til þess að vera með fjölskyld-
unni. Börnin þeirra tvö eru Sigrún
Helga níu ára og Svavar Hörðdal
þriggja ára. Fyrir á eiginmaður
hennar tvo drengi og er annar
þeirra, sem er sextán ára, nýfar-
inn eftir vikudvöl.
„Hér er maður alltaf að kynnast
nýju fólki enda eru um 100 til 120
stæði,“ segir Jóhanna sem kannað-
ist við einhverja á svæðinu áður.
„Grindvíkingarnir eru með svona
tuttugu til þrjátíu stæði og Kefl-
víkingar með fimmtán til tuttugu
á svæðinu. Við Suðurnesjamenn-
irnir erum því með svona helming
stæðanna. Það var algjör tilviljun,
ég vissi ekkert um það.“
Bæði börnin hafa verið á golf-
námskeiði á Flúðum og stefnir
fjölskyldan á að geta farið saman í
golf í framtíðinni. Mikið er af börn-
um á Sigrúnar aldri og leika þau
sér saman en hafa einnig kynnst
krökkum á Flúðum. „Árbakkinn er
eins og strönd í góðu veðri,“ segir
FRAMHALD AF FORSÍÐU
Allir á hjólum „Börn sem dvelja lengi á svæðinu eru öll komin á hjól. Þannig geta þa
en krakkarnir á hjólunum eru Sigrún Helga, 9 ára, og Svavar Hörðdal, 3 ára.
Sterk tengsl Fólk á svæðinu hefur kynnst hvert öðru vel og það gengur á milli hjólhý
Moldarstrákarnir „Krakkarnir vaða og synda í ánni og eru mikið í moldarnámunni; samt bara skítugu strákarnir,”
segir Thelma. Hér er hún ásamt Ingibirni syni sínum.
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Uppskriftarbók og DVD diskur fylgir
Vita Mix svunta og
kanna fylgja með á
meðan birgðir endast
Blandarinn sem allir eru
að tala um!