Fréttablaðið - 06.08.2011, Side 35
LAUGARDAGUR 6. ágúst 2011 3
Capacent Ráðningar
Capacent Ráðningar
Borgartúni 27
Sími 540 1000
Microsoft Ísland óskar eftir að ráða sölu- og markaðsdrifinn einstakling til starfa til þess að sjá um samskipti við lykilviðskiptavini. Um mjög spennandi
og krefjandi starf er að ræða sem gefur viðkomandi tækifæri til mótunar og starfsframa hjá Microsoft Corporation. Starfið felur í sér að vera í tryggu og
stöðugu sambandi við stærstu viðskiptavini Microsoft hér á landi. Jafnframt felst í starfinu greining á sölu- og markaðstækifærum auk áætlanagerðar.
Umsjón með starfinu hafa Ragnheidur Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) og Sigríður Pétursdóttir (sigridur.petursdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum eiga
að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Menntunarlegar og faglegar kröfur:
• Háskólamenntun skilyrði, meistarapróf eða MBA nám að auki mjög æskilegt
• 5 -10 ára reynsla í svipuðu eða sambærilegu starfi
• Reynsla af stjórnendaráðgjöf er mikill kostur eða reynsla af sölu til þeirra sem
taka viðskiptalegar ákvarðanir innan fyrirtækja
• Reynsla af hagnýtingu upplýsingatækni
• Reynsla af skipulagningu verkefna
• Glöggskyggni, framtakssemi og frumkvæði í samskiptum við viðskiptavini
• Yfirborðsþekking á vörum og lausnum Microsoft
• Góð færni í ensku skilyrði, góð færni í dönsku æskileg
• Mikil hæfni til að koma frá sér upplýsingum í töluðu og rituðu máli
Lykileiginleikar starfsmannsins eru:
• Að geta helgað sig samskiptum við viðskiptavini af einlægum áhuga og stutt
þá í það finna lausnir sem eykur hag þeirra
• Skipulagshæfileikar, skarpskyggni og einbeitni við verkefni og markmið
• Metnaður og áhugi, áræðni og frumkvæði
• Sjálfstæði, mikil ábyrgðartilfinning og hæfni í mannlegum samskiptum
• Mannblendinn, umburðarlyndi og hæfileiki til að þrífast í síbreytilegu umhverfi
Microsoft er staðsett í Borgartúni 25,
þar starfa í dag 15 starfsmenn.
Starfsaðstaða er mjög góð.
VIÐSKIPTASTJÓRI STÆRRI FYRIRTÆKJA
(CORPORATE ACCOUNT MANAGER)
Ef þú:
- Hefur mikinn metnað og dug
- Vilt uppskera í samræmi við árangur
- Ert með góða samskiptahæfileika
- Átt auðvelt með að koma fram
- Átt gott með að leiða margþætt og margslungin verkefni
- Átt auðvelt með að aðlagast nýjum aðstæðum og fólki
- Átt auðvelt með samskipti við fólk
- Átt auðvelt að koma auga á nýjar leiðir til lausnar verkefna
Þá býðst þér:
- Spennandi starf með mikla ábyrgð
- Laun í samræmi við hæfileika, getu og reynslu
- Góðir möguleikar á þróun í starfi innan Microsoft
Capacent Ráðningar
Capacent Ráðningar
Borgartúni 27
Sími 540 1000
Fjármálaeftirlitið óskar eftir sérfræðingum á Lífeyris- og verðbréfasjóðasvið. Leitað er að öflugum einstaklingum með góða greiningar- og samskiptahæfni í
eftirlit með lífeyrissjóðum. Lífeyris- og verðbréfasjóðasvið Fjármálaeftirlitsins (FME) hefur eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða annars vegar og rekstrarfélögum
verðbréfasjóða hins vegar. Lífeyrissjóðir landsins eru fjölmennastir eftirlitsaðila og mjög afgerandi í íslensku fjármálaumhverfi. Í boði eru fjölbreytt verkefni og
áhugaverð störf í afar krefjandi umhverfi.
Umsjón með störfunum hafa Auður Bjarnadóttir (audur.bjarnadottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum eiga
að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Starfssvið:
• Fjárhagslegt eftirlit með lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar
• Vettvangsathuganir og skýrslugerð því tengdu
• Tengiliður við eftirlitsaðila og umsjón með hæfismati þeirra
• Þátttaka í þróun og vinnu við rafræn skýrsluskil og úrvinnslukerfi
• Aðkoma að rannsóknum vegna lífeyrissjóða og vörsluaðila séreignarsparnaðar
• Þátttaka í innra starfi Fjármálaeftirlitsins
• Önnur tilfallandi verkefni
Starfssvið:
• Eftirlit með lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignasparnaðar
• Eftirlit með starfsháttum, starfsheimildum, fjárfestingum og skuldbindingum
• Veita umsagnir vegna lífeyrismála til fjármálaráðuneytisins
• Þátttaka í rannsóknarvinnu
• Þátttaka í vettvangsathugunum
• Þátttaka í innra starfi Fjármálaeftirlitsins
• Önnur tilfallandi verkefni
Fjármálaeftirlitið (FME) er sjálfstæð eftirlitsstofnun með sérstaka stjórn. Hlutverk FME er að fylgjast
með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög og reglur og í samræmi við eðlilega
viðskiptahætti. Eftirlitsskyldir aðilar stofnunarinnar eru m.a. viðskiptabankarnir, sparisjóðir, lána- og
verðbréfafyrirtæki, verðbréfamiðlar, lífeyrissjóðir, rekstrar- og vátryggingafélög, kauphallir o.fl .
Nánari upplýsingar um stofnunina má nálgast á www.fme.is
SÉRFRÆÐINGUR OG LÖGFRÆÐINGUR
Í LÍFEYRISSJÓÐAMÁLUM
SÉRFRÆÐINGUR LÖGFRÆÐINGUR
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðeigandi menntun, t.d. viðskiptafræði, hagfræði eða verkfræði
• Viðeigandi starfsreynsla, t.d. af fjármálamarkaði
• Reynsla af lífeyrissjóðamálum æskileg
• Góð greiningarhæfni nauðsynleg
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð nauðsynleg
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistara eða embættispróf í lögfræði
• Viðeigandi reynsla, t.d. af fjármálamarkaði
• Reynsla af lífeyrissjóðamálum æskileg
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð nauðsynleg