Fréttablaðið - 06.08.2011, Page 39
LAUGARDAGUR 6. ágúst 2011 7
Actavis Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Fjölbreytt störf í boði
hjá Actavis á Íslandi
Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 14. ágúst nk.
Verkefnastjóri í skráningaferladeild
Skráningaferladeild er ein af fjórum deildum skráningarsviðs. Deildin ber ábyrgð á að útvega og viðhalda markaðsleyfum lyfja, aðallega innan Evrópu. Verkefnastjóri
tekur þátt í mótun skráningarstefnu og ber ábyrgð á að fylgja henni eftir þar til markaðsleyfi fæst ásamt því að endurnýja markaðsleyfi eins og við á. Verkefnastjóri
ber ábyrgð á rekstri umfangsmikilla skráningarferla sem ná yfir allt Evrópusambandið. Um er að ræða krefjandi starf í spennandi og síbreytilegu umhverfi. Starfið
felur í sér mikil samskipti við evrópskar lyfjastofnanir, viðskiptavini og við aðrar deildir Actavis.
Helstu verkefni:
Undirbúningur og innsending skráningarumsókna innan ESB
Þátttaka í mótun skráningarstefnu og eftirfylgni
Endurnýjun og viðhald markaðsleyfa eins og við á
Við leitum að einstaklingi:
með háskólapróf á sviði raunvísinda
með reynslu af verkefnastjórnun
sem er sveigjanlegur og með góða samstarfs- og skipulagshæfileika
með mjög góða ensku- og tölvukunnáttu
með nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
Kvörðunarstjóri
Starfið tilheyrir tæknideild sem er hluti af starfsemi Actavis hf. Tæknideildin sér um viðhald, kvarðanir og eftirlit með tækjabúnaði í verksmiðju og rannsóknarstofu
fyrirtækisins, sem staðsett er í Hafnarfirði. Unnið er eftir skriflegum leiðbeiningum og öll viðhaldsvinna er skráð í þjónustuskýrslur/viðhaldsforrit. Starfið felur í sér
samskipti við starfsfólk ýmissa deilda Actavis sem og utanaðkomandi þjónustuaðila.
Helstu verkefni:
Kvarðanir á tækjum á rannsóknarstofu, framleiðslu-, og þróunarsviði
Umsjón með kvörðun á kvörðunarbúnaði
Útgáfa og viðhald skriflegra leiðbeininga
Við leitum að einstaklingi:
með háskólamenntun í eðlisfræði, tæknifræði eða sambærilega menntun
með reynslu af mælingum og kvörðunum
sem er nákvæmur, samviskusamur og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum
með góða ensku- og tölvukunnáttu
Starfsmaður í töfludeild
Í töfludeild fer fram lyfjablöndun sem felur í sér vigtun, blöndun og frumvinnslu hráefna. Einnig sér töfludeild um framleiðslu á töflum og hylkjum. Í starfinu felst
samsetning á vélum, skýrslugerð og skjalfesting. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Ef þú ert...
hress og jákvæð/ur
stundvís
samviskusöm/samur og getur tileinkað þér nákvæm vinnubrögð
verklagin/n
...þá bjóðum við
snyrtilegan og öruggan vinnustað
fjölskylduvænt starfsumhverfi
góðan starfsanda
gott mötuneyti
fræðslu og þjálfun
Sérfræðingur í gjaldeyrismiðlun og áhættustýringu
Starfið tilheyrir fjárstýringu (Corporate Treasury) sem er hluti af fjármálasviði Actavis Group. Fjárstýring hefur yfirumsjón með lausafjárstýringu samstæðunnar.
Einnig hefur deildin umsjón með lánum, gjaldeyris- og vaxtaáhættu, tryggingum og bankasamskiptum. Viðkomandi er í miklum samskiptum við erlendar
fjármálastofnanir sem og starfsmenn dótturfélaga Actavis Group hér heima og erlendis.
Helstu verkefni:
Dagleg umsjón með gjaldeyrismiðlun
Greining gjaldeyris- og vaxtaáhættu, hönnun og utanumhald
á afleiðusamningum
Skýrslugjafir tengdar gengismálum
Verkefni tengd lánasamningi
Utanumhald á lánum milli tengdra félaga
Önnur fjárstýringarverkefni
Við leitum að einstaklingi:
með háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilega menntun
með a.m.k. 5 ára reynslu úr sambærilegu starfi
með reynslu af gjaldeyrismörkuðum, áhættugreiningu og afleiðusamningum
með reynslu af notkun Reuters, Bloomberg og IT/2
með mikla hæfni í mannlegum samskiptum
sem sýnir öguð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
sem er skipulagður og talnaglöggur og með afar góða enskukunnáttu
Starfsmaður í bókhald
Medis er eitt af dótturfyrirtækjum Actavis Group og annast sölu á lyfjum og lyfjahugviti fyrir samstæðuna til annarra lyfjafyrirtækja sem selja
lyf undir eigin vörumerkjum. Á meðal viðskiptavina Medis eru öll stærstu samheitalyfjafyrirtæki í Evrópu. Starfið tilheyrir deildinni Finance and
Administration sem sér um bókhald, innheimtu og almenna skrifstofuþjónustu fyrir Medis.
Helstu verkefni:
Bókun á innkaupum frá verksmiðjum Actavis
Afstemmingar banka, lánadrottna og fjárhagslykla
Aðstoð við mánaðarleg uppgjör
Ýmis skýrslugerð
Við leitum að einstaklingi:
með stúdentspróf eða sambærilega menntun
með reynslu úr sambærilegu starfi (kostur)
með reynslu af bókhaldsvinnu og góð kunnátta í Excel er nauðsynleg
sem vinnur skipulega og á skilvirkan og árangursríkan hátt
með góða samskiptahæfni og mjög góða enskukunnáttu
iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni
sem sinna heilsuvernd starfsmanna
árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk
fræðslustyrks
öflugt starfsmannafélag