Fréttablaðið - 06.08.2011, Qupperneq 78
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR42
sport@frettabladid.is
STEFÁN GÍSLASON hefur leikið sinn síðasta leik fyrir norska úrvalsdeildarfélagið Viking en samningur
hans við félagið er útrunninn. Tilkynnt var á heimasíðu félasgins að hann yrði ekki endurnýjaður þar sem Stefán
væri með tilboð frá öðru liði. Hann hefur helst verið orðaður við Aberdeen í Skotlandi.
Þetta er eitt súrasta
tapið á mínum ferli
sem er nú orðinn ansi langur.
Það sat lengi í mér yfir versl-
unarmannahelgina.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON
LEIKMAÐUR ÍBV
FÓTBOLTI Eyjamenn hafa ekki sagt
sitt síðasta í Pepsi-deild karla þó
svo að margir vilji ganga svo langt
að segja að toppbaráttunni í Pepsi-
deild karla sé í raun lokið – ekkert
lið geti skákað KR úr þessu. Eyja-
maðurinn Tryggvi Guðmundsson,
leikmaður 13. umferðar að mati
Fréttablaðsins, segir að stundum
séu sparkspekingar full snemma
í því.
„Það er þeirra starf að segja
sínar skoðanir en mér finnst
þeir stundum of fljótir til,“ sagði
Tryggvi við Fréttablaðið. „Sumir
keppast um að vera fyrstir til að
láta svona lagað frá sér til að geta
sagt eftir á að þeir hafi sagt það
fyrst. En svo þegja þeir þunnu
hljóði ef það rætist ekki.“
Of snemmt að afskrifa FH
ÍBV er í öðru sæti deildarinnar,
tveimur stigum á eftir KR sem
hefur leikið einum leik minna.
Valur og FH fylgja síðan í humátt
á eftir og segir Tryggvi til dæmis
allt of snemmt að afskrifa hans
gömlu félaga í FH.
„Ég veit alveg hvað er í gangi
þar. FH-ingar eru bara þremur
stigum á eftir okkur og mér sýn-
ist að þeir séu að snúa taflinu við,“
benti Tryggvi á. „Óneitanlega
eru KR-ingar búnir að vera mjög
flottir. Þeir eru taplausir í deild og
bikar og eru með mjög öflugan og
heilsteyptan hóp. Þeir eru án efa
sigurstranglegastir.“
En KR á erfiða leiki eftir. Til
dæmis tvo leiki gegn ÍBV og síðan
Þór, FH, Keflavík og Val – allt á
útivelli. „Þessir tveir leikir okkar
gegn KR-ingum verða mikilvægir.
Það vitum við og þeir líka. En það
er enn langt í þá og fullsnemmt
að velta öllum möguleikum fyrir
sér. Það er bara næsti leikur sem
gildir,“ sagði Tryggvi, en ÍBV
mætir einmitt Val í sannkölluðum
toppslag á Hásteinsvelli klukkan
16.00 á morgun.
„Það væri mjög gott fyrir okkur
að ná sigri þar og ná að spyrna
okkur aðeins frá þeim. Þetta er
ekki aðeins barátta um titilinn,
heldur líka Evrópusæti.“
Eitt það versta á löngum ferli
Fyrir helgi tapaði ÍBV fyrir Þór í
undanúrslitum Valitor-bikarsins,
2-0 á Akureyri. „Sigurinn gegn
Fylki var mjög kærkominn eftir
það tap. Þetta er eitt súrasta tapið
á mínum ferli, sem er nú orðinn
ansi langur. Það sat lengi í mér
yfir verslunarmannahelgina,“
sagði Tryggvi, en Eyjamenn
notuðu tímann vel meðan á
Þjóðhátíð stóð og æfðu stíft fyrir
leikinn gegn Fylki.
„Þetta var góður sigur. Menn
virðast halda að þetta hafi verið
eitthvað auðvelt en það var það alls
ekki. Það er erfitt að pressa hátt á
andstæðinginn í 90 mínútur.“
Fór ekki til Eyja til að deyja
Tryggvi nálgast óðum met Inga
Björn Albertssonar, sem skor-
aði 126 mörk í efstu deild á
sínum tíma. Tryggvi hefur nú
skorað 122 mörk og nálgast metið
óðfluga. Hann hefur átt glæsileg-
an feril sem hefur haldið áfram að
blómstra eftir að hann fór frá FH
til ÍBV eftir Íslandsmótið haustið
2009.
Þá hafði FH tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn í fimmta sinn á
sex árum og ÍBV haldið sæti sínu
í efstu deild með naumindum eftir
tveggja ára veru í 1. deildinni þar
á undan. Tryggvi segist ekki hafa
óttast að hann væri þar með að
taka skref niður á við.
„Stundum heyrði ég því fleygt
að ég hefði „farið til Eyja til að
deyja“,“ sagði hann og brosti. „Það
óttaðist ég ekki. Ég áttaði mig hins
vegar á því að ég væri að stefna
niður á við ef ég héldi áfram í FH.
Ég var ekki lengur lykilmaður í
liðinu og eyddi of miklum tíma á
bekknum,“ sagði Tryggvi og lof-
aði Heimi Hallgrímsson, þjálfara
ÍBV, mikið.
„Heimir er ótrúlega spennandi
þjálfari og allt það sem hann ætl-
aði sér að gera með ÍBV heillaði
mig mikið. Svo var það rómantík-
in að ljúka hringnum með því að
spila aftur með uppeldisfélaginu
á síðustu árum ferilsins. Því
reyndist þetta auðveld ákvörðun á
endanum.“ eirikur@frettabladid.is
Við vildum senda skýr skilaboð
Tryggvi Guðmundsson er leikmaður 13. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann segir að
með sigrinum á Fylki í vikunni hafi Eyjamenn viljað láta önnur lið vita að þeir hefðu ekki sagt sitt síðasta.
Í ESSINU SÍNU Tryggvi þrumar að marki andstæðingsins í leik með ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lið 13. umferðarinnar
Markvörður:
Srdjan Rajkovic, Þór
Varnarmenn:
Eiður Aron Sigurbjörnsson, ÍBV
Janez Vrenko, Þór
Freyr Bjarnason, FH
Miðvallarleikmenn:
Guðjón Pétur Lýðsson, Val
Jesper Jensen, Stjörnunni
Gunnar Már Guðmundsson, Þór
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV
Sóknarmenn:
Ólafur Páll Snorrason, FH
Atli Guðnason, FH
Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson er meiddur á hné
og getur ekki spilað með íslenska landsliðinu
þegar það mætir Ungverjalandi ytra í vináttu-
landsleik á miðvikudaginn næstkomandi. Þetta
staðfesti hann í samtali við Fréttablaðið í gær.
„Ég er allur að koma til en er ekki orðinn 100
prósent ennþá,“ sagði Gylfi, sem hefur glímt við
hnémeiðsli í um þrjár vikur.
„Þetta gerðist strax á þriðja eða fjórða degi
undirbúningstímabilsins,“ sagði Gylfi, sem
spilaði með íslenska U-21 landsliðinu á EM í
Danmörku í júní. „Líklega var líkaminn orð-
inn þreyttur eftir sumarið og ég byrjaði aðeins
of fljótt aftur. En ég vona að þetta fari allt að
koma eftir helgina.“
Gylfi ákvað í samráði við Ólaf Jóhannesson
landsliðsþjálfara að vera áfram í Þýskalandi
í meðhöndlun hjá félagi sínu, Hoffenheim.
Keppni í þýsku úrvalsdeildinni hefst í dag en
Gylfi missir af leik Hoffenheim gegn Hannover.
Hann segir meiðsli sín þó ekki mjög alvarleg.
„Ég er með sködduð liðbönd í hné en hef þurft
óvenjulega langan tíma til að jafna mig.
En maður veit svo sem aldrei hvað
svona lagað þarf langan tíma.“
Líst vel á nýja þjálfarann
Nýr þjálfari, Holger Stanislawski, tók
við stjórn Hoffenheim fyrir tímabil-
ið og líst Gylfa vel á hann. „Leikmönn-
um líkar mjög vel við hann og mér líka.
Hann er harður og leggur hart að
okkur en það er ljóst að hann
er almennilegur þjálfari
– allt annað en sá síðasti
sem við vorum með.“
Ralf Rangnick var
stjóri Hoffenheim
þegar Gylfi kom til
félagsins fyrir ári
en hætti síðan um
á ra mót i n veg n a
deilna við eigendur
félagsi ns . M a rco
Pezzaiuoli tók við en var látinn fara í lok
tímabilsins.
„Rangnick var búinn að vera hjá
félaginu í fimm ár og er mjög góður þjálf-
ari. Ég vona að þessi eigi líka eftir að
gera góða hluti,“ sagði Gylfi, sem hefur
rætt við Stanislawski um hlutverk sitt í
liðinu.
„Ég á ekki von á því að hann breyti miklu
hvað leikskipulagið varðar en mér líst
mjög vel á það sem hann hefur
sagt mér. Ég á samt fastlega
von á því að ég verði á bekkn-
um fyrst um sinn á meðan
ég kem mér aftur í form
eftir meiðslin en vona að
ég nái síðan að vinna mér
sæti í liðinu.“ - esá
Gylfi Þór Sigurðsson missir af landsleik Ungverjalands og Íslands vegna meiðsla:
Líkaminn orðinn þreyttur eftir sumarið
GYLFI ÞÓR Er að jafna sig
á hnémeiðslum þessa
dagana.
FÓTBOLTI Dregið var í lokaumferð
forkeppni Meistaradeildar Evr-
ópu í gær, þar sem spilað er um
fimm laus sæti í riðlakeppninni.
Enska liðið Arsenal fékk erfitt
verkefni en það mætir Udinese
frá Ítalíu.
Tvö Íslendingalið voru með í
pottinum og bæði frá Danmörku.
FC Kaupmannahöfn, lið þeirra
Sölva Geirs Ottesen og Ragnars
Sigurðssonar, mætir Plzen frá
Tékklandi. Rúrik Gíslason og
félagar í OB þurfa að vinna
spænska liðið Villarreal til að
komast í riðlakeppnina.
Bayern München slapp nokkuð
auðveldlega en liðið mætir FC
Zürich frá Sviss. - esá
Dregið í Meistaradeildinni:
Erfitt verkefni
hjá Arsenal
HVAÐ MEÐ FYRIRLIÐANN? Cesc Fabre-
gas gæti verið á leið til Barcelona og
óljóst er hvort hann spilar með Arsenal
gegn Udinese. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikirnir í forkeppninni:
Wisla Krakow (Póllandi) - APOEL (Kýpur)
Maccabi Haifa (Ísrael) - Genk (Belgíu)
Dinamo Z. (Króatíu) - Malmö (Svíþjóð)
FCK (Danmörku) - Plzen (Tékklandi)
BATE (Hv.-Rússl.) - Sturm Graz (Austurríki)
OB (Danmörku) - Villarreal (Spáni)
Twente (Hollandi) - Benfica (Portúgal)
Arsenal (Englandi) - Udinese (Ítalíu)
Bayern (Þýskalandi) - Zürich (Sviss)
Lyon (Frakklandi) - Rubin Kazan (Rússlandi)
FÓTBOLTI Keppni í neðri deildum
Englands hefst í dag en ekki er
útlit fyrir annað en að blaða-
menn dagblaða þar í landi sem og
útsendarar frétta- og myndaveita
fái ekki aðgang að leikjunum.
Fulltrúar fjölmiðla deila nú
við forráðamenn deildanna um
hvernig umfjöllun skuli háttað.
Vilja samtök fjölmiðlanna meina
að kröfur fulltrúa knattspyrnu-
deildanna séu algerlega óraun-
hæfar og vilja ekki gangast við
þeim.
Til boða stendur að framlengja
það samkomulag sem hefur
verið í gildi frá 2003 en eru fjöl-
miðlamenn tregir til þess. Að
öllu óbreyttu fá ljósmyndarar og
blaðamenn því ekki aðgang að
leikjum helgarinnar. - esá
Enska knattspyrnan:
Blaðamenn fá
ekki aðgang
Í BEINNI Enskir blaðamenn munu þurfa
að horfa á leiki helgarinnar í sjónvarpinu
til að geta fjallað um þá. NORDICPHOTOS/GETTY