Fréttablaðið - 06.08.2011, Page 80
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR44
FÓTBOLTI Dregið var í lokaumferð-
ina í forkeppni Evrópudeildar
UEFA í gær og fékk skoska liðið
Hearts það erfiða verkefni að
mæta Tottenham, sem sló ræki-
lega í gegn í Meistaradeild Evrópu
á síðustu leiktíð. Eggert Gunnþór
Jónsson er leikmaður Hearts og
hlakkar vitanlega til að fá að kljást
við þá ensku.
„Það voru mörg erfið lið í pott-
inum en við fengum líklega það
allra erfiðasta. Það verður samt
gaman að fá að spreyta sig gegn
Tottenham,“ sagði Eggert, sem
mun halda upp á 23 ára afmælið
sitt þegar liðin mætast í Edinborg
hinn 18. ágúst næstkomandi.
„Það væri ekki leiðinlegt að fá
sigur í afmælisgjöf,“ sagði hann.
„Ég bið nú ekki um meira.“
Mikið hefur gengið á hjá Hearts
á undanförnum vikum. Eigandi
félagsins, Vladimir Romanov,
ákvað að reka Jim Jefferies úr
starfi knattspyrnustjóra og réði
Paulo Sergio frá Portúgal í hans
stað. Er það áttundi stjóri liðsins
á síðustu sex árum.
„Mér líst vel á hann. Við fengum
aðeins tvær æfingar með honum
fyrir síðasta leik en mér fannst við
strax ná að bæta okkar leik,“ sagði
Eggert.
Eggert hefur leikið sem mið-
vörður í síðustu leikjum en seg-
ist helst vilja spila á miðjunni.
„Þar líður mér best. Ég var settur
á miðjuna í leiknum gegn Rang-
ers fyrir tveimur vikum en þá
meiddist miðvörðurinn okkar og
tók ég þá hans stöðu. Ég hef verið
þar síðan,“ sagði Eggert. „Það er
samt skárra en að vera í hægri
bakverðinum,“ bætti hann við í
léttum dúr. - esá
Eggert Gunnþór Jónsson og félagar í Hearts mæta Tottenham í forkeppni Evrópudeildar UEFA:
Vill fá sigur gegn Tottenham í afmælisgjöf
Á FULLU Eggert Gunnþór, til hægri, er hér í leik Hearts gegn Rangers í fyrstu umferð
skosku úrvalsdeildarinnar í síðasta mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Þrjú Íslendingalið voru í
pottinum þegar dregið var í Evr-
ópudeild UEFA í gær. AEK frá
Aþenu, lið Eiðs Smára Guðjohnsen
og Elfars Freys Helgasonar, mætir
KR-bönunum í Dinamo Tbilisi frá
Georgíu. KR-ingar léku ytra í
fyrrakvöld og töpuðu, 2-0, og þar
með rimmunni samanlagt 6-1.
Jóhann Berg Guðmundsson og
félagar í AZ Alkmaar leika gegn
Álasundi frá Noregi og eins og
fram kemur hér fyrir ofan dróst
Hearts, lið Eggerts Gunnþórs
Jónssonar, gegn enska liðinu
Tottenham.
CD Nacional frá Portúgal, sem
sló FH úr leik fyrr í sumar, mætir
enska B-deildarliðinu Birm-
ingham, sem komst í Evrópu-
keppnina með því að vinna enska
deildabikarinn
á síðustu leik-
tíð.
Tvö önnur
ensk lið voru í
pottinum. Ful-
h a m mæt i r
D n ipr o frá
Ú k ra í nu og
Stoke þarf að
vinna sviss-
nesk a l ið ið
Thun til að komast áfram.
Meðal annarra viðureigna má
nefna að þýska liðið Hannover
mætir Sevilla frá Spáni.
48 lið komast í riðlakeppnina; 38
úr forkeppninni og þau tíu lið sem
tapa sínum viðureignum í lokaum-
ferð forkeppni Meistaradeildar
Evrópu. - esá
Dregið í forkeppni Evrópudeildar UEFA í gær:
Eiður Smári og Elfar
Freyr á slóðir KR-inga
EIÐUR SMÁRI
GUÐJOHNSEN
FÓTBOLTI Grannarnir í Manchester
City og United mætast á morgun
í Samfélagsskildinum í knatt-
spyrnu. Leikurinn er árleg við-
ureign Englandsmeistaranna og
bikarmeistaranna og fer fram á
Wembley-leikvanginum í London.
Tæpir fjórir mánuðir eru síðan
liðin mættust á sama stað í und-
anúrslitaleik enska bikarins. City
hafði sigur í baráttuleik og fór
alla leið í keppninni. Titillinn var
sá fyrsti hjá félaginu í 35 ár og
loks fékk City-liðið uppreisn æru.
Þrátt fyrir að taka skuli leiki
á undirbúningstímabilinu með
fyrirvara hafa bæði lið litið afar
vel út. United fór í æfingaferð
til Bandaríkjanna þar sem hvert
MLS-liðið varð fyrir barðinu á því
á fætur öðru. Liðið kórónaði ferð-
ina með 2-1 sigri á Barcelona og
mætir fullt sjálfstrausts til leiks
á morgun.
„Þetta verður enginn venjuleg-
ur leikur um Samfélagsskjöld-
inn fyrir Manchester United.
Við þurfum að taka á háværu
nágrönnum okkar. Þetta verður
áhugaverður leikur,“ sagði Sir
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
United, á blaðamannafundi í gær.
Antonio Valencia er enn að
jafna sig af meiðslum sem hann
varð fyrir í Suður-Ameríkubik-
arnum og verður ekki með. Dar-
ren Fletcher verður einnig fjarri
góðu gamni ásamt Rafael, Micha-
el Carrick og Javier Hernan-
dez. Reiknað er með að sá síðast-
nefndi verið klár í slaginn í lok
mánaðarins.
Manchester City vann sömu-
leiðis alla leiki sína á undirbún-
ingstímabilinu. Sá síðasti var 3-0
sigur á sterku liði Inter frá Míl-
anó. Dýrasti knattspyrnumað-
ur City, Sergio Aguero, verður á
bekknum en landi hans, Carlos
Tevez, verður ekki með. Miklar
vangaveltur hafa verið með fram-
tíð Tevez hjá félaginu. Roberto
Mancini, knattspyrnustjóri City,
sagðist eiga von á honum á æfingu
á mánudaginn.
„Carlos er atvinnumaður. Ef
hann nær ekki að semja við annað
félag á næstu tíu dögum eða
tveimur vikum hugsa ég að hann
spili fyrir okkur. Af fullum krafti
líkt og á síðasta tímabili. Líkt og
alltaf,“ sagði Mancini um stöðu
Tevez hjá City.
Manchester City spilar í Meist-
aradeild Evrópu á þessari leik-
tíð. Mancini leggur þó áherslu að
áherslan sé fyrst og fremst á að
standa sig í deildinni. Liðið geti
gert betri hluti en í fyrra en United
standi liðinu þó enn framar.
„Manchester United er líklegast
enda með mjög sterkt lið. Félagið
hefur keypt nokkra leikmenn. Ég
tel okkur standa því nærri en United
hefur fimm metra forskot á okkur,“
sagði Mancini.
Leikurinn á Wembley hefst klukk-
an 13 á morgun. kolbeinntd@365.is
BARÁTTAN UM BORGINA
Manchester-félögin City og United mætast á Wembley á morgun í Samfélags-
skildinum. Þrátt fyrir gott málefni má reikna með hörkubaráttu á vellinum.
TVEIR FLOTTIR Yaya Toure fór auðveldlega framhjá Nemanja Vidic í undanúrslita-
leiknum á Wembley í fyrra og skoraði sigurmarkið. NORDICPHOTOS/AFP
1. deild karla
Víkingur Ólafsvík - ÍA 0-1
0-1 Gary Martin (8. )
ÍR - Fjölnir 0-1
0-1 Guðmundur Karl Guðmundsson (30. )
Þróttur R. - HK 3-1
1-0 Halldór Hilmisson (25.), 2-0 Sveinbjörn
Jónasson (27.), 3-0 Halldór hilmisson (28.), 3-1
Ívar Örn Jónsson (63.)
ÚRSLIT
STAÐAN Í 1. DEILD KARLA
ÍA 15 14 1 0 42-6 43
Selfoss 15 10 1 4 31-14 31
Haukar 14 7 3 4 20-15 24
Fjölnir 15 6 5 4 24-25 23
Þróttur R. 15 7 2 6 20-27 23
BÍ/Bolungarvík 14 6 3 5 18-23 21
Víkingur Ó. 15 5 4 5 18-18 19
ÍR 15 4 3 7 18-26 15
Grótta 14 3 5 6 9-18 14
KA 14 4 2 8 15-25 14
Leiknir R. 15 3 4 8 20-21 13
HK 15 0 5 9 14-31 5
FÓTBOLTI Íslensku landsliðin í knatt-
spyrnu skipuð drengjum yngri en
17 ára leika um verðlaun á Opna
Norðurlandamótinu á morgun.
Ísland teflir fram tveimur liðum á
mótinu sem léku hvort í sínum riðl-
inum.
Ísland I lagði kollega sína frá
Englandi 2-1 í úrslitaleiknum um
efsta sætið í A-riðli á Dalvík í gær.
Þórður Jón Jóhannesson úr Hauk-
um og Stefán Þór Pálsson úr ÍR
skoruðu mörk Íslands í leiknum.
Íslands II beið hins vegar lægri
hlut 0-2 gegn Dönum á Húsavík.
Danir tryggðu sér efsta sætið í B-
riðli á kostnað íslensku strákanna
sem höfnuðu í öðru sæti riðils-
ins. Þeir leika um þriðja sætið á
morgun.
Leikir íslensku liðanna á morgun
fara fram á Þórsvelli á Akureyri.
Klukkan 11 mætir Ísland II lands-
liði Noregs í leiknum um brons-
verðlaunin. Leikurinn um gullið fer
fram á sama stað klukkan 13 þar
sem Ísland I mætir Danmörku. - ktd
Frábær árangur hjá U17 ára:
Bæði lið leika
um verðlaun
FRJÁLSAR Spjótkastarinn Ásdís
Hjálmsdóttir úr Ármanni varð í
sjöunda sæti á Demantamótinu í
London í gærkvöldi. Ásdís kastaði
lengst 57,77 metra í sínu fjórða
kasti. Sigurvegari varð Christina
Obergföll frá Þýskalandi með
kast upp á 66,74 metra.
Ásdís sagðist í samtali við
Fréttablaðið sjá bæði jákvæða og
neikvæða hluti við keppnina.
„Ég er mjög ánægð með að
kastserían mín var jöfn og löng.
Ég á lengra kast inni en það kom
ekki núna sem er aðeins svekkj-
andi,“ sagði Ásdís en gömul
meiðsli tóku sig upp í fæti hennar
í keppninni í gær í gær.
„Það kom smá smellur snemma
í keppninni en ég kláraði þetta
samt,“ sagði Ásdís sem ætlar
ekki að taka neina áhættu á Bik-
armótinu í frjálsum íþróttum um
næstu helgi. Hún segist líklega
munu kasta einu sinni og ná í stig
fyrir félag sitt en ekki reyna á sig
enda heimsmeistaramótið í frjáls-
um á dagskrá í lok mánaðarins.
Átta af fremstu spjótkasts-
konum heims tóku þátt í mótinu.
Íslandsmet Ásdísar er 61,37 metr-
ar sem hefði dugað í fjórða sæti.
Ásdís náði í vikunni lágmarkinu
fyrir Ólympíuleikana í London
þegar hún kastaði 59,12 metra á
móti í Laugardalnum. - ktd
Demantamótið í London:
Ásdís í 7. sæti
METNAÐARFULL Ásdís keppir á sínum
öðrum Ólympíuleikum í London að ári.
FÓTBOLTI Óskar Örn Hauksson,
leikmaður KR, verður frá út tíma-
bilið vegna meiðsla. Óskar stað-
festi þetta í samtali við Frétta-
blaðið í gær.
Óskar Örn, sem leikið hefur frá-
bærlega með KR í sumar, meidd-
ist í viðureign KR gegn Dinamo
Tbilisi ytra á fimmtudagskvöld.
Óttast var að meiðslin væru alvar-
leg og í gær kom í ljós að bein er
brotið í rist Óskars. - ktd
Slæm tíðindi fyrir KR-inga:
Óskar Örn frá
út tímabilið