Fréttablaðið - 06.08.2011, Qupperneq 86
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR50
PERSÓNAN
„Þetta er öðlingur. Rosalega fínn
gæi og jarðbundinn. Þetta var eins
og að hitta frænda sinn á svipuðum
aldri,“ segir útvarpsmaðurinn Sig-
urður Hlöðversson, eða Siggi Hlö.
John Bon Jovi, söngvari rokk-
sveitarinnar heimsfrægu Bon
Jovi, bauð Sigga og eiginkonu hans
á tónleika sína á Ólympíuleikvang-
inum í Barcelona í síðustu viku.
Ástæðan var sú að kona Sigga,
Þorbjörg Sigurðardóttir sem starf-
ar hjá Nordic Visitor, skipulagði frí
Bon Jovi hér á landi fyrr í sumar.
Hjónakornin voru uppi við svið-
ið á tónleikunum, fengu óheftan
aðgang baksviðs og voru hreinlega
eins og kóngar í ríki sínu. „Þegar
mig langaði í bjór á miðjum tón-
leikum fór ég bara í búningsher-
bergið hans og sótti mér. Þetta
var ótrúlegasta lífsreynsla af
þessu tagi sem ég hef lent í. Allir
verðirnir færðu sig bara þegar ég
kom labbandi. Það vissu allir að
við værum „special guests of Mr.
John“. Þetta var bara eins maður
sér í bíómyndum,“ segir Siggi,
enn í skýjunum yfir öllu saman.
Hann kom sjálfur færandi hendi
baksviðs og gaf Bon Jovi og fjöl-
skyldu hans fatnað frá 66° Norð-
ur sem söngvarinn var gríðarlega
ánægður með.
Siggi hitti Bon Jovi einnig þegar
hann var staddur hér á landi og
fór því vel á með þeim í Barce-
lona „Hann var svo uppnuminn
yfir ferðinni hingað að hann tal-
aði ekki um annað,“ segir hann og
bætir við að Bon Jovi dauð-
langi að koma aftur til
Íslands. „Hann sagði
mér hvað konan mín
væri frábær. Ég þóttist
nú vita það enda búinn
að eiga hana í 23 ár,“
segir hann og hlær. -fb
Bon Jovi bauð Sigga Hlö og eiginkonu á tónleika
GÓÐ SÆTI Siggi Hlö
smellti að sjálfsögðu
mynd af Bon Jovi þar
sem hann stóð uppi
við sviðið.
BJÓR BAKSVIÐS
Siggi Hlö fékk sér
bjór í búningsher-
bergi Bon Jovi.
Pétur Sveinsson
Aldur: 24 ára.
Starf: Ég er nemi.
Fjölskylda: Steinunn Pétursdóttir
sérkennari, og Sveinn Skúlason
leiðsögumaður.
Búseta: Reykjavík í sumar en er
með lögheimili í Danmörku.
Stjörnumerki: Fiskur.
Pétur kynnir klappstýruíþróttina fyrir
Íslendingum.
Tónlistarmennirnir Sigurður Guð-
mundsson, Sigríður Thorlacius,
Benedikt Hermann Hermannsson
og Sindri Már Sigfússon voru á
meðal gesta á útgáfutónleikum
Snorra Helgasonar á Faktorý á
fimmtudagskvöld. Einnig mátti
sjá þar tónleikahaldarana
Steinþór Helga
Arnsteinsson og
Kára Sturluson,
auk Bergs Ebba
Benedikts-
sonar og Atla
Bollasonar,
fyrrum félaga
Snorra úr Sprengjuhöllinni. Dóri
DNA, félagi Bergs Ebba í grínhópn-
um Mið-Íslandi, lét einnig sjá sig.
Á tónleikunum vakti athygli þegar
Snorri tileinkaði bassaleikara sínum
og hljómsveitarinnar Hjaltalín, Guð-
mundi Óskari Guðmundssyni, lag
af fyrstu plötu sinni í tilefni þess að
Guðmundur ætlar að ganga í það
heilaga á næstunni.
Listakonan og ljósmynd-
arinn María Kjartans
hlaut fyrstu verðlaun
á myndlistar-
verðlauna hátíðinni
„Signature Art
Awards“ sem fór
fram í London
á fimmtu-
dagskvöld
fyrir ljós-
mynd sína
„A Sense
of Solitude“
sem hún
tók á Dalvík í febrúar á þessu ári.
Sýningin er árlegur viðburður lista-
gallerísins DegreeArt, sem hefur á
snærum sínum mikið af upp-
rennandi, hæfileikaríku listafólki.
María hefur sýnt ljósmyndir sínar
og myndbönd víða um heim að
undanförnu. Meðal annars tók hún
þátt í Feneyjatvíæringnum sem
hluti af 2nd Roma Pavilion-sýn-
ingunni og einnig eru verk hennar
tilnefnd til Magnum Photographic-
verðlaunanna.
Björn Stefánsson, trommuleikari
í hljómsveitinni Mínus, eignaðist
annað barn sitt á dögunum
ásamt eiginkonu sinni, Írisi Dögg
Einarsdóttur. Strákur var það í
þetta skiptið en fyrir eiga hjónin
dótturina Sölku,
sem er fimm
ára. Fjölskyldan
er búsett í
Danmörku þar
sem Björn leggur
stund á leiklistar-
nám og
Íris Dögg
er ljós-
myndari.
- fb, áp
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta verður alveg frábær staður,“ segir
Guðmundur Þór Gunnarsson.
Eigendur Humarhússins ætla að opna veit-
ingastaðinn Forréttabarinn um næstu mán-
aðamót. Hann verður staðsettur á Nýlendu-
götu 14 þar sem verslunin Liborius var áður
til húsa. Undirbúningur er í fullum gangi
þessa dagana.
„Við verður bara með forrétti, mjög ódýra.
Við ætlum ekki að splæsa í dýrt umhverfi
eða einhverja „fansý“ þjónustu. En auðvitað
verður þarna snyrtilegt og flott líka,“ segir
Guðmundur Þór Gunnarsson, sem er eigandi
Humarhússins ásamt Ottó Magnússyni. „Ég
og Ottó erum búnir að vera með þessa for-
réttahugmynd svo lengi að við urðum að koma
henni frá okkur.“
Aðspurður segir hann að engir forréttastað-
ir séu til hér á landi, nema þá helst Tapas-stað-
ir. „Þetta verða forréttir alls staðar að. Við
ætlum að reyna að einblína á íslenskt hráefni.
Við reiknum með tveimur til þremur forrétt-
um á mann eða þá fjórum til sex hálfum for-
réttum á mann, þannig að þú náir að smakka
sem mest,“ segir Guðmundur Þór og nefnir að
bæði geit og hvalur verði á boðstólnum. -fb
Opna Forréttabar á næstunni
NÝR FORRÉTTASTAÐUR Nýi staðurinn verður opnaður við Nýlendugötu
um næstu mánaðamót. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Brosnan hefur sinn skilning á
þessu, sem ég er auðvitað ekki
sammála,“ segir Gunnar Berg-
mann, framkvæmdastjóri Hrefnu-
veiðimanna ehf.
Leikarinn Pierce Brosnan birti
í vikunni bréf þar sem hann gagn-
rýnir stefnu Íslendinga í hvalveið-
um harðlega. Hann skorar á fólk að
slást í lið með sér og hvetja Barack
Obama, forseta Bandaríkjanna, til
að beita Íslendinga viðskiptaþving-
unum þangað til hvalveiðum verði
hætt. Brosnan er þekktastur fyrir
hlutverk sitt sem James
Bond í fjórum mynd-
um um njósnarann á
árunum 1995 til 2002.
Síðustu ár hefur hann
verið eitt af andlitum
náttúruverndarsamtak-
anna Natural Resources
Defense Council og lengi
haft horn í síðu íslenskra
hvalveiðimanna. Það
liggur því beinast
við að spyrja
Gunnar hvern-
ig er að vera
með njósnara
hennar hátign-
ar á hælunum?
„Þetta skipt-
ir okkur engu
máli ,“ segir
hann. „Ég held
að þetta sé fjórða
eða fimmta árið í
röð sem þessi leik-
ari reynir eitthvað
að kvabba um hval-
veiðar, sem hann
hefur mjög tak-
markað vit á. Hann
fer mjög frjálslega
með staðreyndir.
Hann heldur til
dæmis fram að
við séum að veiða
dýr sem eru
í útrýming-
arhættu.
Það tekur
enginn vís-
indamað-
ur í heimin-
um undir að
hrefnan sé í
útrýmingar-
hættu.“
Brosn-
an er afar
harðorður í
bréfi sínu
o g fe r
fram á að
Íslandi
sé refsað
harðlega
fyrir hvalveiðarnar. „Berjumst við
þá, aftur og aftur,“ segir hann og
ítrekar að Íslendingar hætti ekki
að veiða hval fyrr en þeir verði
neyddir til þess. Gunnar segir
málið snúast um peninga fyrir
samtökin sem Brosnan er í for-
svari fyrir. „Hann kemur fram í
sjónvarpi, fær umfjöllun og athygli
úti í heimi,“ segir hann. „Svo fara
samtökin að safna peningum.“
En ætla íslenskir hvalveiðimenn
að svara Brosnan í erlendum fjöl-
miðlum?
„Við værum að skjóta okkur í
fótinn ef við ætluðum að svara ein-
hverju svona, sem er ekki neitt. Þá
eykur það umfjöllunina og ég held
að það sé það sem þetta fólk vill.“
atlifannar@frettabladid.is
GUNNAR BERGMANN: BROSNAN ALLTAF AÐ KVABBA UM HVALVEIÐAR
James Bond á hælum
íslenskra hvalveiðimanna
MEÐ LEYFI TIL AÐ DREPA … HVAL Gunnar Bergmann tekur ekkert
mark á gagnrýni leikarans Pierce Brosnan, sem vill að Banda-
ríkjamenn beiti Íslendinga viðskiptaþvingunum vegna hval-
veiða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
F
E
L
L
S
M
Ú
L
I
S
K
Ú
L
A
G
A
T
A
G
A
R
Ð
A
B
Æ
R
M J Ó D D L E I Ð I N
A
Ð
Í
S
N
U
M