Fréttablaðið - 30.09.2011, Síða 17

Fréttablaðið - 30.09.2011, Síða 17
Fundarlaun Óbreytt alþingiskona að nafni Jóhanna Sigurðardóttir skrifaði eftirfarandi grein í Morgunblaðið árið 1996 þar sem hún ásakar þáverandi ríkisstjórn fyrir að vera fasta í gamla verðbólgu hugsunarhættinum. Hún sagði efnahagsleg rök og sanngirni mæla með algeru banni á verðtryggingu á lánum til heimilanna. Henni finnst fáránlegt að græn- metisverð hækki höfuðstól lána heimilanna. Hún var þá nýlega búinn að segja þessi fleygu orð: Minn tími mun koma. Undirritaður tekur nánast undir hvert einasta orð í greininni og heitir fundarlaunum hverjum þeim er kann að finna þessa konu – helst fyrir laugardaginn 1. október. Síðast sást til hennar ganga inn í stjórnarráð Íslands með Steingrími nokkrum Sigfússyni fyrir rúmum tveimur árum. Ég vil benda á að Hagsmunasamtök heimilanna standa nú fyrir undirskriftarsöfnun þar sem krafist er afnáms verðtryggingar og réttlátra, almennra leiðréttinga á lánum heimilanna, bæði gengis og verðtryggðra og vil ég hvetja alla þá er styðja þessar heilbrigðu kröfur að skrifa undir á www.heimilin.is og mæta á stefnumót við stjórnvöld á Austurvelli kl. 10 um morguninn laugardaginn 1. október. Undirritaður fylgist spenntur með hvort nafn Jóhönnu Sigurðardóttur sem nú er forsætisráðherra, komi ekki fyrir á lista undirskriftasöfnunarinnar og hvort hún sér ekki sóma sinn í því að taka við undirskriftarlistanum með langt yfir 30.000 nöfnum á Austurvelli hinn 1. október við setningu Alþingis eins og hún er búin að fá boð um. Kannski er hennar tími bara liðinn, hver veit. Vilhjálmur Bjarnason ekki fjárfestir heldur fjölskyldufaðir í Hafnarfirði. p.s. fundarlaunin eru afnám verðtryggingar heimilslána. Hennar tími er kominn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.