Fréttablaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 78
30. september 2011 FÖSTUDAGUR50FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Það yrði í fyrsta lagi World
með Swedish House Mafia og
svo I Like með Bodybangers.“
Óli Geir plötusnúður.
Enska stúlknasveitin The Satur-
days er væntanleg til Íslands um
helgina. Stelpurnar ætla að taka
upp myndband við nýjan slagara
sinn, My Heart Takes Over, sem
er nýkominn út.
Einar Sveinn, markaðsstjóri
framleiðslufyrirtækisins Pega-
sus sem mun þjónusta tökuliðið,
segir að þetta hafi borið frekar
brátt að. „Þær ætla að gera þetta
í nágrenni við Reykjavík, þetta
er ekkert stórt enda eru menn
farnir að draga úr kostnaði við
gerð myndbanda. Og engir Íslend-
ingar koma fyrir í myndband-
inu,“ segir Einar. „Þær eru bara
að leita að fallegum landslags-
myndum fyrir hverja og eina.“
The Saturdays hafa notið tölu-
verðra vinsælda hér á landi, verið
spilaðar á FM 957 og náð þar inn
á lista samkvæmt upplýsingum
frá dagskrár stjóra stöðvarinnar,
Heiðari Austmann.
Sara Nassim, framleiðandi hjá
Pegasus, segir þau binda vonir
við að veðrið verði ögn skárra um
helgina en það hafi verið undan-
farna daga. The Saturdays verða
hér á landi í þrjá daga og með
þeim kemur heill her af stílistum
og förðunar fræðingum. „Þetta
er svona hefðbundið íslenskt
myndband á þessum dæmigerðu
íslensku tökustöðum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Við verð-
um töluvert á ferðinni,“ segir
Sara en leikstjóri myndbandsins
er Elisha Smith-Leverock sem
hefur meðal annars gert mynd-
bönd fyrir Bombay Bicycle Club.
Þetta er í annað sinn á tiltölu-
lega skömmum tíma sem breskar
poppstjörnur velja Ísland. Elliot
John Gleave, betur þekktur sem
Example, var staddur hér á landi
fyrir viku og gerði myndband
með Pegasus þar sem fyrirsætan
Svala Lind Þórðardóttir, Fjöln-
ir Geir Bragason og Þorsteinn
Bachmann voru í stórum hlut-
verkum.
The Saturdays er ein stærsta
stúlknasveit Bretlands um þessar
mundir og liðsmenn hennar eru
æði oft á forsíðum bresku slúður-
blaðanna. Þekktust þeirra er
Frankie Sandford en hún var sögð
eiga í ástarsambandi við örvfætta
bakvörðinn Ashley Cole þegar
hann var kvæntur söngkonunni
Cheryl Cole. Sandford er núna á
föstu með öðrum knattspyrnu-
kappa, sem einnig er örvfættur
og leikur stöðu bakvarðar, en hann
heitir Wayne Bridge og er á mála
hjá Manchester City í Úrvalsdeild-
inni. freyrgigja@frettabladid.is
SARA NASSIM: ÞETTA VERÐUR HEFÐBUNDIÐ ÍSLANDSMYNDBAND
The Saturdays til landsins
VINSÆLAR The Saturdays er ein vinsælasta hljómsveitin í Bretlandi um þessar mundir. Stúlkurnar eru fastir gestir á forsíðum
slúðurblaðanna og hafa oftar en ekki átt vingott við þekkta enska íþróttamenn. NORDICPHOTOS/GETTY
Vesturport fer þess á leit í erindi
sem lagt var fyrir á fundi menn-
ingar- og ferðamálaráðs Reykja-
víkurborgar á mánudag að borg-
in semji við leikhópinn til þriggja
ára. Samningurinn myndi hljóða
upp á að borgin greiði leik-
hópnum 6-8 milljónir króna á
ári. Í erindinu kemur jafnframt
fram að Vesturport ætli að fara
þess á leit við menntamála-
ráðuneytið að það geri slíkt hið
sama. Undir erindið skrifar Gísli
Örn Garðars son.
Í erindinu kemur fram að
Vesturport hafi verið styrkt af
Reykjavíkurborg frá árinu 2002.
2003–2006 hafi hópurinn fengið
styrki sem gerði honum kleift að
halda úti útrás sinni. „Svo gerist
það árið 2007 að styrkir til okkar
lækka og hafa þeir farið lækk-
andi síðan. Þetta hefur haft þær
afleiðingar að við höfum þurft
að segja upp starfsfólki. Þetta
hefur gert okkur erfiðara fyrir
og ef reyndin verður sú sama í
framtíðinni verður enginn fast-
ur starfsmaður hjá Vesturporti
frá og með 2012.“ Að mati Gísla
mun það bitna á tækifærum hóps-
ins til útrásar en í október verður
Faust sett upp í Kóreu og Ham-
skiptin sýnd í Síberíu.
Samkvæmt erindinu þarf
Vestur port umræddan fjárstuðn-
ing til að geta rekið Vest-
urport í: „samræmi við
þá stærðargráðu sem við
getum hæglega vaxið í.“
Sýningar hópsins séu
oft í mörgum löndum á
sama tíma og við slíkar
aðstæður sé ráðið nýtt
listafólk inn til að
sinna þeim störf-
um. „Fleiri leik-
ferðir og stærri
útrás þýðir að
fleiri Íslending-
ar fá vinnu […}
auk þess sem
hróður íslenskr-
a r le i k l i s t a r
berst víðar.“ Ef Reykjavíkur-
borg fellst á samninginn
gæti hópur inn, að mati Gísla
Arnar, undantekningarlaust
frumsýnt 2-3 nýjar leiksýn-
ingar á ári. Ekki náðist í Gísla
Örn vegna málsins. - fgg
Vesturport biðlar til Reykjavíkurborgar
Á BIÐILSBUXUM Gísli
Örn Garðarsson
fer þess á leit við
Reykjavíkurborg að
hún semji við leik-
hópinn til þriggja ára.
Sá samningur myndi
hljóða upp á 6-8
milljónir króna.
Bandaríski grínistinn Charlie Murphy, bróðir
gaman leikarans Eddie Murphy, kemur fram í Hörpu
á laugardagskvöld.
Samkvæmt kröfulista Murphy er kappinn afar
nægjusamur. Hann fer fram á hreint loftkælt bún-
ingsherbergi og að öryggisvörður standi þar
fyrir utan. Þá þarf að vera starfsmaður á vakt
sem kemur inn í búningsherbergið á 20 mínútna
fresti og athugar hvort allt sé í lagi.
Inni í búningsherberginu vill Charlie Murphy
hafa vatn, jurtate, sérstakt te sem fer vel í háls-
inn, sítrónubáta, hunang, ávexti og kjöt ásamt
handáburði og sótthreinsandi kremi. Þá vill
hann lyktarkerti, orkudrykki, rauð- og hvítvín
ásamt stórri flösku af Jack Daniels-viskíi.
Loks herma heimildir Fréttablaðsins að eftir-
partíið verði á veitingastaðnum Austur. Þar
hyggst Charlie Murphy sýna sig og sjá aðra, en
hann ku vera afar viðkunnanlegur. - afb
Vill viskí, kerti og handáburð
HÓGVÆR Kröfur Charlies Murphy eru ekki klikkaðar.
Hann vill þó að starfsmaður athugi á 20 mínútna fresti
hvort allt sé í lagi hjá honum inni í búningsherberginu.
SILFUR TUNGLIÐ
„Algjör snilld“
Júlíus Júlíusson, Mbl. Miðasala á harid.is
HÁRIÐ
LOKASÝNINGIN ER Í KVÖLD!
LOKASÝ
NING
Örfá sæti laus á lokasýningu ársins.
1. 2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
15.
16.
23.
24.
25.
15.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
33.
34.
35.
36.
37.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.