Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 41

Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 41
KYNNING − AUGLÝSING outlet30. SEPTEMBER 2011 FÖSTUDAGUR 3 OPIÐ: Mánudaga - föstudaga: 11 - 18, laugardaga: 11 - 18, sunnudaga: 12 - 17 - erum á DIESEL - ADIDAS - SPARKZ - SOLID - BRUUNZ BAZAAR - JUNK DE LUXE - MALENE BIRGER - NIKITA - MISS SIXTY - NÜMPH - MAVI - MATINIQUE - PAUL SMITH - MOMA SENDRA - BUNKER - G-STAR - MAO - MOSS - DKNY - BJÖRKVIN - TIGER OF SWEDEN - SAMSOE & SAMSOE - MIA - KILLAH - INWEAR - SISTERS POINT - JUST FEMALE SOAKED IN LUXURY - JOHN ZACK - PART TWO - RELIGION - BULLBOXER - AGAIN AND AGAIN - BRONX - IKKS OG FULLT AF FLEIRI FLOTTUM MERKJUM. FAXAFENI 10 - s. 578 7977 Kaffiilmur, notalegt andrúmsloft og starfsfólk sem kappkostar að bjóða góða þjónustu tekur á móti þeim sem leggja leið sína í Out-let 10 í Faxafeni 10. Þar er að finna merkjavöru frá helstu tískuvöru- verslunum landsins og það nýjasta í dömu- og herrafatnaði frá London. „Og ekki má gleyma því að hér er allt saman á mjög góðu verði,“ segir Kári Sverrisson, sem sér um verslunina ásamt Gunnari Þjóðólfssyni. Til marks um það nefnir hann að nú sé verðhrun í Outlet 10. „Við höfum lækkað verðið til að rýma fyrir nýjum vörum frá London og bjóðum þá vörur sem kosta allt niður í 500 krónur. Hér er dömu- og herrafatnaður ásamt fylgihlutum sem kosta sáralítið og til dæmis er hægt að fá Diesel- gallabuxur á aðeins 4.000 og tvær saman á 7.000 krónur!“ Kári tekur fram að verðinu sé þó stillt í hóf allt árið um kring. „Við bjóð- um upp á merkjavöru með allt að 70-80 prósenta afslætti. Hér eru til að mynda vönduð jakkaföt á 12.000 og kjólar á 5.000 krónur, sem kostuðu allt að 25.000 nýir út úr búð,“ upplýsir hann. En hvaðan skyldu fötin koma? „Hluti kemur, eins og ég segi, beint að utan og hluti frá NTC og má þar nefna búðir eins og Company ś, Galleri 17, Kultur, GS Skór, Focus, Smash og Deres,“ svarar hann og segir gæði og fjölbreytt vöru- úrval í fyrirrúmi. „Við gætum þess að hér sé hægt að fá allt frá hversdags- klæðnaði, peysum og gallabuxum upp í fínni föt, kjóla og jakkaföt, á allar manngerðir og alla aldurshópa,“ segir hann og hvetur fólk að kíkja við í Faxa- feni. „Enda er það bara fyrstur kemur, fyrstur fær. Sem betur fer fáum við á móti reglulega nýja sendingu þar sem þetta er svona ótrúlega fljótt að fara og mjög gaman að upplifa hvað Íslendingar eru miklu ófeimnari við að spóka sig í outlet-verslunum nú en áður og blanda saman ódýru og dýru sem er þá annars staðar frá,“ segir Kári og getur þess að hægt sé að fylgjast með nýjum vörum og tilboðum á Facebook-síðu Outlet 10. Merkjavara fyrir minna Í Outlet 10 í Faxafeni fæst ný og nýleg merkjavara á góðu verði. Gæði og fjölbreytni í fyrirrúmi segir Kári Sverrisson, annar verslunarstjóra Outlet 10. Gallajakki frá Diesel, 9.000 krónur, buxur 4.194 krónur, bolur, 2.999 krónur, skór á 5.000 krónur. Úlpa á 4.000 krónur, ný peysa frá London á 4.194 krónur, nýjar buxur frá London á 2.990 krónur og skór á 2.000 krónur. Úlpa á 4.000 krónur, skyrta á 2.000 krónur og buxur á 5.390 krónur. Jakkaföt á 12.000 krónur, skyrta á 4.000 krónur og skór á 5.000 krónur. Jakki á 5.000 krónur, Diesel- bolur á 2.000, buxur á 3.000 krónur og skór á 2.000 krónur. Toppur á 3.000 krónur, hlýrabolur á 1.000 krónur, Diesel-galla- buxur á 4.000 krónur, skór á 5.000 krónur og armbönd á 1.000 krónur stykkið. „Við bjóðum upp á merkjavöru með allt að 70-80 prósenta afslætti,“ upplýsir Kári Sverrisson, sem sér um Outlet 10 ásamt Gunnari Þjóðólfssyni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.