Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.09.2011, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 30.09.2011, Qupperneq 44
12 föstudagur 30. september Hér finna bæði unglings-stelpur og langafar buxur sem smellpassa,“ segir Elísabet Blöndal, verslunarstjóri Gallabuxnabúðarinnar í Kringl- unni. Buxurnar fást í hinum ýmsu stærðum allt frá 34 og upp í 56. „Við erum því með buxur fyrir dömur, herra, stráka, stelpur, afa og ömmur,“ segir hún glaðlega og bætir við að ávallt sé reynt að bjóða upp á mjög gott verð. Til dæmis sé hægt að fá buxur frá 5.900 krónum og upp í 13.900 kr. Gallabuxnabúðin býður upp á ýmis merki. Vinsælast er Bessie, sem er danskt fyrirtæki en bux- urnar eru framleiddar á Ítalíu. „Þá látum við líka sérsauma fyrir okkur buxur á Ítalíu,“ upp lýsir Elísabet og segir sniðin fjölmörg. „Við erum með allt frá niður- þröngum til útvíðra, háar í mitt- ið og niður í mjaðma buxur,“ segir hún. Þar sem úrvalið er svo mikið er mikilvægt að fá aðstoð við valið og þar koma starfsmenn Galla- buxnabúðarinnar sterkir inn. „Afgreiðslufólkið er ótrúlega flinkt að finna buxur sem henta fólki. Maður fær heil mikið út úr því að hitta fólk sem segist lengi hafa leitað að buxum sem passa en finnur loksins fullkomnar buxur hjá okkur.“ Í Gallabux nabúðinni fást þó ekki eingöngu buxur held- ur einnig efri partar bæði fyrir dömur og herra. Þar má nefna herra skyrtur, -peysur og -jakka. „Fyrir dömurnar erum við líka með leðurlíkisjakka, toppa og peysur og eins og í öllu öðru reyn- um við að halda verðinu í algjöru lágmarki,“ segir Elísabet og nefn- ir sem dæmi leðurlíkisjakka sem kostar aðeins 9.900 krónur. Gallabuxnabúðin er á tveimur stöðum á landinu, í Kringlunni og göngugötunni á Akureyri. Gallabuxur fyrir alla Í Gallabuxnabúðinni í Kringlunni og á Akureyri er gríðarlegt úrval af gallabuxum í fjölmörgum sniðum og stærðum. Því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi og ekki sakar að verðinu er stillt í hóf. Úrvalið af gallabuxum er ákaflega mikið í Gallabuxnabúðinni. „Við erum með buxur fyrir dömur, herra, stráka, stelpur, afa og ömmur,” segir Elísabet Blöndal. Kynning - auglýsing Einnig fást peysur, skyrtur og jakkar af ýmsum gerðum. F atahönnuðurinn Sigríður María Sigurjóns-dóttir, eða Sigga Mæja eins og hún er oft- ast kölluð, hefur skemmtilegan og persónuleg- an fatastíl. Föstudagur fékk hana til að velja fimm uppáhaldsskópörin sín, sem Sigga Mæja segir öll vera svolítið sjúskuð. Hún hrífst af 90‘s- tískunni og dreymir um að finna hið fullkomna rauða skópar. Uppáhaldsskórnir: Þægilegir og þykkbotna Þolgóðir skór „Ég nota Dr. Martens skóna mest af öllum. Mig hafði lengi langað í eitt par en tímdi ekki að kaupa þá nýja. Ég fann svo þessa, alveg ónotaða, í verslun Rauða krossins. Á botninum á þeim stendur að þeir þoli allt, jafn- vel sýru, og svo eru þeir með þykkum sólum sem er full- komið fyrir stubba eins og mig.“ Flottur fundur „Ég keypti þessa í Hjálpræðishernum á 800 krónur. Kosturinn við þá er að þeir eru hælaskór en án þess að vera sérstaklega háir. Ég nota þessa bæði í vinn- una og út að skemmta mér.“ Útskriftargjöf „Þessir Chie Mih- ara-skór eru dýrustu skórnir sem ég á og voru útskriftar- gjöf frá mínum heittelsk- aða. Þessa nota ég bara spari og ég reyni að ganga sem minnst á þeim til að skemma þá ekki.“ Arfurinn „Ég erfði þessa frá systur minni sem var mikil 80‘s og 90‘s pía. Ég kalla þá „hógværu Vivienne Westwood-skóna“ mína. Ég veit þó ekkert hvaðan þeir koma en ég elska þá. Þeir eru samt aðeins notaðir við mjög sérstök tækifæri því þeir eru ekki sérstaklega stöðugir.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.