Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 66

Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 66
30. september 2011 FÖSTUDAGUR38 folk@frettabladid.is Útsölu lok Ti lb oð in g ild a á m eð an b irg ði r e nd as t. V SK e r i nn ifa lin n í v er ði . Fy rir va ra r e ru g er ði r v eg na m ög ul eg ra p re nt vi lln a. Lagerútsala Sparið allt að á völdum vörum 80% krakkar@frettabladid.is „Draugar eru ekki eins slæmir og margir telja. Ætli þeir hjálpi manni ekki bara í gegnum lífið, án þess að maður taki eftir því?“ Ísak og Victoría leika í bíó myndinni: „Hrafnar, sóleyjar og myrra“. Krakkasíðan er í helgarblaði Fréttablaðsins MILLJÓN DALA borgaði fyrirsætan Holly Madison fyrir að láta tryggja á sér brjóstin. Það eru um 120 milljónir íslenskra króna. 1 Það eru mörg fræg nöfn á leikaralista myndarinnar The Ides of March og því mikið um dýrðir á rauða dreglinum við frumsýn- ingu myndarinnar í Beverly Hills á dögunum. George Clooney mætti í nýpress- uðum svörtum jakkaföt- um og einnig nýja kær- asta kappans, leikkonan Stacy Keibler, en hún brosti breitt í gulllituðum kjól. Sjarmörinn Ryan Gosling, sem er í aðalhlutverki eins og Clooney, var flottur að venju í flöskugrænum jakkafötum og lakkskóm. Leikkonan unga Evan Rachel Wood mætti töff- araleg í hvítum jakkafötum og Marisa Tomei var í vín- rauðum kjól með eins konar leður svuntu. Báðar leika þær í myndinni. Kátur Clooney á frumsýningu KÖFLÓTT Leikkonan Kate Mara í munstr- uðum kjól en hún er frægust fyrir að vera systir Rooney Mara sem leikur Lisbeth Salander í bandarískri útgáfu af Körlum sem hata konur. Bíó ★★ Inside Lara Roxx Leikstjóri: Mia Donovan Sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík Gölluð vara úr góðu efni Lara Roxx er fyrrverandi vandræðaunglingur sem fluttist frá Kanada til Kaliforníu og lék í klámmyndum til að framfleyta sér. Eftir að hafa leikið í fáeinum myndum smitaðist hún af HIV-veirunni, en hún var ein þriggja kvenna sem smituðust af sama karlinum. Öll léku þau í klámmyndum. Í Inside Lara Roxx fylgjumst við með baráttu stúlkunnar við sjúkdóminn, en auk þess að vera HIV-smituð glímir hún við geðræna kvilla og eitur- lyfjafíkn. Lara fellur ekki inn í staðalmynd „klámstjörnunnar“. Hún er langt frá því að vera heimsk, er með skakkar tennur og virðist ekki hafa látið breyta sér líkamlega. En hún hefur tekið slæmar ákvarðanir og verður nú að laga líf sitt að afleiðingunum. Þessi sæmilega heimildarmynd gefur áhorfandanum innsýn í líf þess- arar ólánsömu konu en hvergi er kafað sérlega djúpt. Myndatakan er aug- unum erfið á köflum og „sögumennska“ konunnar á bak við myndavélina er handahófskennd og þurr. Ég verð þó að hrósa myndinni fyrir það að fara ekki auðveldustu leiðina, sem væri að kæfa áhorfandann í dramatískri tilgerð. Efnið býður upp á það en leikstýran hefur vit á því að gera það ekki. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Umfjöllunarefnið er áhugavert en framkvæmdin ófullnægjandi. GULLKJÓLL Stacy Keibler, hin nýja kærasta Clooneys, lét sig ekki vanta á frumsýninguna. FLOTTIR SAMAN Ryan Gosling og George Clooney leika aðalhlut- verkin í myndinni sen fjallar um spill- ingu í stjórnmálum í Bandaríkjanna. VÍNRAUTT Marisa Tomei var glæsileg í kjól í tísku- litnum í ár, vínrauðum. JAKKAFÖT Evan Rachel Wood ákvað að bregða sér í hvít jakkaföt í tilefni dagsins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.