Íslendingur - 10.05.1946, Blaðsíða 2
2
ISLENDINGUR
Föstudaginn 10. maí 1946
Kirkjan. MessaS í Akureyrar-
kirkju á sunnudaginn kemur kl. 11
(60 ára afmæli unglingareglunnar á
íslandi).
L 0. 0. F. — 12851081/2
Tvœr nýjar bœkur frá Máli og
mrnningu, skáldsagan Salamöndru-
striðiS og 1. hefti Tímarits Máls og
menningar, eru komnar. — Fjelags-
menn vinsamlega beðnir aS vitja
bókanna í Bókaverzl. Pálma H. Jóns-
sonar.
Áheit á Strandarkirkju kr. 10 frá
frá S. J. — MóttekiS á afgreiSslu ís-
lendings.
Golfklúbbur Akureyrar. Upphafs-
keppni um Æfingabikarinn fer fram
á golfvellinum sunnudaginn 12. maí
kl. 9. Þátttakendur sjeu mættir kl.
8.45 stundvíslega aS viðlagðri frá-
vísun. Væntanlegir þátttakendur inn-
riti sig í Verzl. Liverpool fyrir föstu-
dagskvöld 10. maí.
'Enski skákmeistarinn Mr. Wood
er vænlanlegur til Akureyrar nú um
helgina. Mun hann tefla fjölskák við
þá, er þess óska. — Nánari upph
gefa Jóhann Snorrason og Steingr,
BernharSsson.
Jarðrœklarfjelag Akureyrar minnt
ist 50 ára afmælis síns á sunnudag-
inn var aS Hótel KEA. Form. fje-
lagsins setti hófið og bauð menn
velkomna. Brynleifur Tobíasson
minntist fjelagsins og sagði sögu
þess í aðaldráttum. Páhni Einarsson
ráðunautur flutti fjelaginu þakkir
og árnaðaróskir frá BúnaSarfjelagi
íslands og Olafur Jónsson framkv,-
stj. frá Ræktunarfjelagi Norðurlands
og Búnaðarsambandi EyjafjarSar.
Sigurður E. Hlíðar alþm. þakkaði
fjelaginu gott starf í þarfir bæjar-
ins. Erlingur Friðjónsson kvaðst
hafa flútt hingað til Akureyrar fyrir
tilstilli Jarðræktarfjelagsins, er það
rjeð hann sem verkstjóra við jarða-
bótavinnu, og sagði frá minningum
sínum frá þeim tíma. Ármann Dal-
mannsson minntist Akureyrar meS
yndisþýðu kvæði,' er hann hafði ort.
Guðm. Jónsson frá Eyrarlandi bað
menn minnasl stofnenda fjelagsins,
og var það gert á viðeigandi hátt.
Enn tóku til máls Kristján S. Sig-
urðsson, Karl Kr. Arngrímsson og
Brynleifur Tobiasson, er bað sam-
kornuna minnast núverandi stjórnar
íjelagsins. Fór afmælishóf þetta fram
ið bezta, en hluttaka var minni en
búist hafði verið við, vegna influ-
enzu-faraldurs í bænum.
Jl júskapur. ívar Olafsson, frá
Krosshóli í SkíSadal, járnsmiður
hjer í hæ, og ValgerSur Áðálsteins-
dóttir frá Jórunnarstöðum Tryggva-
sonar. Gefin' saman 4. þ. m.
Darnaskólanurn var sþtið 4. þ. m.
90 börn á liigmælturfi aldri og 14
með aldursleyfi luku fullnaðarprófi.
Vorskólinn fyrir smábörnin er nú
byrjaður.
Unglingareglan í I. O. G. T. hjer
á lándi var 60 ára í gær. Fyrsta
barnastúkan var stofnuð í Reykja-
vík 9. maí 1886, „Æskan“ nr. 1.
1 sambandi við þetta afmæli mun
sóknarpresturinn minnast unglinga-
reglunnar af stól á sunnudaginn kem
ur. ,
Inntökupróf til 1. bekkjar Mennta-
skólans fer fram 23. og 24. þ. m.
NámsJceið í meSferð dráttarvjela
stendur nú yfir hjer í bænum, hófst
27. f. m. og stendur í þrjár vikur til
mánuð. Er það haldið á vegum
VjelasjóSs Islands og tilhlutun
Verkfæranefndar ríkisins. Jónas
samlagsstjóri Kristjánsson undirbjó
námskeiðið. Pálmi ráðunautur Ein-
arsson setti það/Og hefir flull þar
nokkra fyrirlestra um jarSrækt. —
Kennarar eru vjelvirkjarnir GuS-
mundur Ilalldórsson og Tryggvi
Jónsson, en ökukennari er Þorlákur
Hjálmarsson frá Villingadal. Um-
sjónarmaður námsskeiðsins er Jónas
Jónsson kennari frá Brekknakoti.
Nemendur eru um 20. Ætlasl er til,
að þeir, sem læra á þessu náms-
skeiði og öðrum framvegis, vinni í
þjónustu búnaðarfjelaganna að jarS
rækt með dráttarvjelum og kenni
meðferð þeirra.
„Esja“ kom hingaS fyrsta sinni
eftir viðgerSina 6. þ. m.
Framh. á 3. og 6. síðu.
Frjettatilkynningar frá
ríkisstjórninni.
SamgöngumálaráSherra undir-
skrifaði í dag samning, sem Skipa-
útgerð ríkisins hefir um nokkurn
| tíma undirbiiið við George Brow
’ skipasmíðastöð ■ í Greenock, Skot-
landi, um smíði á tveimur strand-
ferðabátum.
Fyrri báturinn á að vera lilbúinn
í febrúar næsta ár og sá síðari í
apríl. Bátarnir verða i kringum 350
register tonn, 140 fet á lengd, 25
fet á dýpt með 650 hestafla diesel-
vjel Helmingurinn af lest bátanna er
kælirúm. Einnig er nokkuð farþega-
rúm, en bátarnir eru aðallega ætlað-
ir til flulninga á minni hafnir lands-
ins.
Bátarnir munu kosta tilbúnir um '
52000 pund hvor.
Sendiherra Sovietríkjanna, sem
hjer hefir verið undanfarin tvö ár,
Alexei N. Krassilnikov, er að fara
hjeðan alfarinn. Hann mun taka við
starfi hjá Hinum sameinuðu þjóðum
(United Nations Organization) og
fer beint til New York ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Norska sendiráðið í Reykjavík
hefir nýlega afhent ulanríkisráðu-
neytinu heiðursmerki fyrir hernað-
arafrek í þágu Noregs, sem eftirtald-
ir Islendingar hafa verið sæmdir af
Noregskonungi:
Sigurlaug Olafsdóttir, skipsjóm-
frú,
Sæmundur Albertsson, kyndari,
Karl Kristján Þorleifsson, kyndari,
Jóhann Sörensson, matsveinn.
Heiðursmerkin hafa að tilhlutan
ráðuneytisins verið afhent nánustu
ættingjum móttakenda, þar sem fólk
þetta mun nú vera í siglingum er-
lendis.
Enníremur hefir frú Guðrúnu J.
Olafsdóttur, Dufþaksholti, Hvol-
hreppri, verið afhent heiðursmerki
sonar hennar, Jóns Jónassonar, há-
seta, en liann er nú látinn.
Reykjavík, 4. maí 1946.
BRAUNS-VERZLUN
Páll Sigurgeirsson
Skýrsla frá skólastjóra
harnaskólans
Barnaskólanum á Akureyri var
slitið 4. maí sl. að viðstödd-
um tveimur elztu árgöngum
barnanna, ke’.inurum og fjölda
foreldra. Flutti skólastjóri við
það tækifæri yfirlitsskýrslu um
störf skólans á skólaárinu og
margs konar athuganir í sam-
bandi viS það, og var þeim hluta
ræðu hans einkurn beint til for--
eldra og annarra aðstaridenda
barna í bænum.
I skólann settust 703 börn á sl.
hausti, og yoru af því 118 nýnem-
ar. Frá námi og próli nú forföll-
uðust 18 börn, en 3 fluttu burtu
á skólaárinu. Undanþágu frá
námi fengu 4 börn. Áúsprófi
luku nú 576 börn, en fullnaðar-
próli með lögmætum aldri 90
börn og 14 með .aldursleyfi.
Hæsta einkunn í full,naðarpróf-
inu var 9,44. Burtfararskírteini
fengu 2 börn, og kom annað
þeirra aðvífandi rétt fyrir prófið.
18 fullnaðarprófsbörn eiga eftir
að ljúka sundprófi, en 12 börn
hafa vottorð frá lækni um, að
þau megi ekki synda.
Matreiðslunám í skólanum
hafa stundað 95 stúlkur úr 6. og
7. bekk, og luku 51 þeirra prófi.
Skólinn á nú 140 lesbóka-
flokka með 5800 bindum alls, og
lesstofusafnið á um 400 bindi
bóka, og vantar alveg húsrúm, til
þess að þessi söfn komi að þeim
notum, sem ætlað er.
Sparisjóðsstarfsemi skólans hef-
ir mikið dregizt saman í peninga-
flóði síðustu ára. Áður spöruðu
börnin og söfnuðu talsverðri
upphæð til fermingarársins, er
oft virtist koma sér vel, en af
uppeldislegum ástæðum var
þessi starfsemi hafin fyrir 14 ár-
um. Taldi skólastjóri líklegt, aS
síðar myndi koma í ljós, að ekki
væri rétt að leggja slíka viðleitni
niður, þótt hún helði lítinn byr
í bráðina.
Lýsi hafa öll börn fengið, sem
vildu, og eyddust um 280 lítrar.
Fengu þau með lýsinu hráar gul-
rófur og að síðustu rúgbrauð, er
rófurnar þrutu, því að mjólk
fékkst ekki vegna pelaflöskuleys-
is.
Skýrslur lækna og hjúkrunar-
konu sýna að heilsufar í skólan-
um var í meðallagi yfirleitt.
Tannskemmdirnar eru alvarleg-
asti þáttur þessara skýrslna. Með
óvirka berkla reyndust 9 börn,
og einu þeirra varð að banna
nám. Óþrifakvilla höfðu 52 börn
í haust, en 25 í vor, kokeitlaauka
70 börn og sjóngalla 38. Ekkert
barn dáið.
Handiðjusýningu hafði skólinn
1. maí, og sýndi hún, að börnin
vinna geysimikið af alls konar
munum, og saunia og prjóna
margvíslega hluti og flíkur.
Skólinn lagði í vetur sérstaka
rækt við að útskýra umferðaregl-
ur og aðra framkomu á almanna-
færi fyrir börnunum.
Kristilegt starf í sunnudaga-
skólaformi höfðu nokkrir kenn-
arar með alhnörgum deildum
skólans undir stjórn skólastjór-
ans. Voru samkomur annan
livorn sunnudag frá því í nóvem-
ber lil marz-loka.
Inn í skólann voru nú skráð
102 börn, en nokkur ókomin.
Að lokinni skýrslu um skóla-
haldið og ávarpi til aðstandenda
barnanna flutti skólastjóri
kveðjuorð til hinna brautskráðu
barna. Nefndi hann þau börn
allsnægtanna og benti þeim á þá
rniklu hamingju, er það gæti
haft í för með sér, en jafnframt
þá hættu, er í því felst.
Kvenkápurnar
eftirspurðu, eru komnar,
gular, rauðar, grœnar, bláar, hvítar.
Einnig KVENSLÁR o. fl.
fyrir dömur, svo sem:
PEYSUR í 4 lilum,
Snyrtiveski, Púðttrdúsir (ný gerð),
Hárspennur, Hárklemmur, Hár-
nálar og margt fleira.
ÁSBYRGI hf. Skipag.
og
Söluturninn Hamarst.
NYKOMIÐ:
Suðuplötur, Therma
Strokjárn, Therma
Rafmagnsofnar
Lækningalampar.
SAMÚEL.
BÓKHALD
Aðstoð við bókhald
veitir Richard Ryel,
sími 162.
íil.
ÉSÆNSKAR
þvottaklemmur
n
S
I ENSKIR
W/á
gólfklútar.
B
1
I i
r?
i
I
I
BRÁUNS- VERZL UNÍ
Páll Sigurgeirsson
1
1
|
1
|
8
|
8
jN g) a
Föstudagskvöld kl. 9:
Bófaborgin
í síðasta sinn
Laugardaginn kl. G:
Tarzan og
skjaldmeyjarnar
Laugardaginn kl. 9:
Innrásin á Guadalcanal
í síðasta sinn
Sunnudaginn kl. 3 og 5:
Tarzan og
skjaldmeyjarnar
Sunnudagskvöldið kl. 9:
Stríðsfangar
í síðasta sinn
Skjaldborgarbíó
Föstudagskvöld kl. 9:
Draugurinn gloftir
Laugardagskvöld kt 5 og 9:
UNAÐSöMAR
Sunnudaginn kl. 5:
UNAÐSÓMAR
/ allra síðasta sinn.
Sunnudagskvöld kl. 9:
Draugurinn gloHir
Mánudagskvöld kl. 9:
l
Sumarhref
Teppahreinsararnir
sænsku,
eru komnir.
ÁSBYRGI Iif. Slcipag.
Söluturninn Hamarst.
Barnavagnar
1
I
nýkom
nir.
1
Byggmgavöruvorzlmi
Tómasar BjÖrussunar h.f.
|| Sími 489
I
I
I
I
I
Akureyri N
i
; f1? 'SSÉfciÉS'TU
1
Mancheltuskyrtur
og
M
p
ií
1
I
1
| .
I
|
I
| Fataverzlun Tómasar Björnssonar h. f. |
Akureyri Sími: 155 f
Hálsbindi
í miklu úrvali.
|
1
b
1
|
1
li