Íslendingur - 19.06.1947, Blaðsíða 6
6
ÍSLENDINGUR
Fimmtúdagur 19. júní 1947
-N ý j a x ó
Næsta mynd. sem Nýja*Bíó
sýnir er
„LE CAPlf AN“
Frön9k atórmynd í tveimur köfl-
inn, gerð samkvæmt frægri sögu-
legri skáldsögu eftir Michael
Zovara.
Kvikmyndastj óri:
R 0 B E R T VERNAY.
Skjaldborgarbíó
Næsta mynd:
Ævintýri í
Mexico
NÝKOMIÐ:
gardínuefni,
margar gerðir.
VerzL LONDON
Búðarlnnrétting
úr birki til sölu.
TækifærisverS.
Uppl. í Gufupressunni
Skipagötu 12.
TAKIÐ EFTIR!
8—10 þÚ9und krónur óskast
að láni. Góð trygging, vextir
og afborgun eftir samkomu-
lagi. Þagmælsku heitið. Þeir,
sem vildu lána ofangreinda
upphæð, leggi tilboð sín á af-
greiðslu blaðsins merkta 8—
10 þÚ9und fyrir 22. þ. m.
BfLAEIGENDUR!
Vanir bílstjórar geta tek-
ið að sér bílkeyrslu.
A. v. á.
Landhelgl Islands
Framh. af 5. sí6u.
lands, einmitt sá hlutinn sem sjó-
mannastéttin íslenzka á óskoraðan
rétt á að já fyrir sig og niðja sína,
ósvikin og óskiptan um aldur og œfi.
Farmanna- og fÍ9kimanna9amband
Islands!
Stigið á stokk og strengið þess
heit, að skiljast ekki fyrr við land-
helgiímálið en fullur réttur er feng-
inn.
Gjörið Sjómannadaginn framveg-
is og að landhelgisdegi jjjóðarinnar.
Hnsavík, 1. júní 1947.
J. J. H.
Rósont Sigurðsson fró Homri
andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar 15. júní síðastliðinn. Jarðar-
förin verður ákveðin síðar.
Börn hins lánta.
s. u. s.
F. U. S. Vörður
KVÖLDSKEMMTUN
verður haldin fyrir fulltrúd á Sambandsþingi ungra
Sjólfstæðismanna og félaga í „Verði" og gesti
þeirra að Hótel Norðurland n. k. laugardagskvöld,
21. þ. m, kl. 9 síðdegis.
DAGSKRÁ:
ÁVÖRP
DANS.
Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn fró
kl. 8 á laugardaginn.
Samband ungra Sjálfstæðismanna.
„Vörður" félag ungra Sjólfstæðismanna.
AUGLYSING
um arðsutborgun
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar verður greiddur 4% arður
af hlutabréfum bankans fyrir árið 1946.
Arðmiðar verða innleystir í aðalbankanum í Reykjavík og í
útibúum hans á venjulegum skrifstofutíma.
Útvegsbanki íslands h.f.
Salernispappír
— ógætur —
nýkominn í
Byggingavöruverzlun
Tómasar Björnssonar h.f.
Akureyri Sími 489
TILKYNNING
Vegna sumarleyfa verður hætt að taka á móti
fatnaði til hreinsunar þann 20. þ. m.
Afgreiðsla og vinnustofur vorar verða lokaðar
fró 1.—20. júlí.
„G U F U P R E S S A N'
Skipagötu 12, Akureyri.
í GÆR átti ég sjötugsafmœli. Var mér þá sýndur sómi og hlýhugur með
heimsóknum, árnaSaróskum og veglegum gjöjum. Áttu þar hlut að máli vinir
mínir og vandamenn. Nejni ég sérstaklega stjórn verksmiðja S.Í.S. og jor-
stjóra þeirra, og síðast en ekki sízt starjsfólk GEFJUNNAR og IÐUNNAR.
Öllum þessum aðilum jæri ég hjartanlegar þakkir, og óska þeim árs og
friðar.
Akureyri, 18. júní 1947.
Ó. METHÚSALEMSSON.
Valið 1 úrvalslið Akur-
eyringa,
- Auglýsið í „íslendingi“ -
Knattspyrnukappleikurinn - milli
meistaraflokkanna í Þór og K. A.
þann 12. þ. m. endaði með sigri Þórs
3 mörkum gegn 1. Þessi árangur var
þó varla í samræmi við leikgetu lið-
anna. Þórsliðið var jafnara og bar-
óttuandi þess meiri og réði það úrslit-
unum. Leikurinn var meðal annars
leikinn vegna þess að velja átti úr-
valslið Akureyringa. Það er auðvit-
að vafasamt að leggja þennan eina
leik til grundvallar fyrir slíku vali,
en það mun þó gert hér í aðalatrið-
um.
Fyrst er þá að velja markvörðinn.
Þar verður Baldur fyrir valinu, því
að þótt Sveinn hafi oft varið vel í
þessum leik, þá verður að lelja að
verja hefði mátt að minnsta kosti
mark það, sem vinstri útherji Þórs
skoraði.
Enda þótt enginn bakvarðanna
stæði sig vel, var þó vörn Þórs mun
betri en vörn K. A. Fyrir valinu
verða því Kristján og Sverrir. Báðir
miðframverðirnir verðskulda að
verða teknir í úrvalsliðið. Guttorm-
ur miðframvörður Þórs var beztur.
Hann staðsetti sig prýðilega, enda
virtist hann vera einasli varnarleik-
maðurinn, sem skildi þriggja bak-
varða kerfið. Framverðir verða því
Einar, Guttormur og Baldur. Baldur
lék að vísu innfraT&herja og stóð sig
vpl, enda þótt honum hætti til að stað-
setja sig of aftarlega á vellinum.
Bezti leikmaðurinn á vellinum var
Ragnar Sigtryggsson hægri inn-
framherji K. A. Þrátt fyrir ágæta
knattmeðferð og margar góðar til-
raunir til „short passing“ voru þó á-
hrif hans á gang leiksins einkenni-
lega lítil, og var þar um að kenna
bæði öllu frumstæðari leikaðferðum
samherjanna og veigrun hans sjálfs
við því að taka forustuna í leiknum.
Akureyringar hafa aldrei þótt hæfir
til að leika í íslenzka úrvalsliðinu,
en eins og nú er ástatt í knattspyrnu-
málunum Í.Reykjavik, ætti hann þó
að vera fullboðlegur 1 úrvalsliðið.
Sem miðframherji verður fyrir val-
inu Júlíus Magnússon, enda þótt
frammistaða hans bæri augljósan
vott um æfingaleysi. Vinstri útherji
ætti að vera Ottó Jónsson. Hann var
bezti útherjinn í leiknum, enda þótt
nokkuð skorti á samvinnu hans við
hina framherjana. Af öðrum fram-
herjum eru líklegastir þeir Jóhann
og Hreinn og yrðu þá framherjarnir
talið frá vinstri útherja: Ottó, Ragn-
ar, Júlíus, Hreinn og Jóhann.
Nú er eftir að vita, hvort knatt-
spyrnuráðið fellst á þessa tillögu. -—
Þess skal geta, að tveir góðir leik-
menn, þeir Eyjólfur Eyfeld og Helgi
Schiöth voru ekki með í leiknum.
Dómari var knattspyrnuþjálfarinn
Mikson og þótti mér hann of vægur
í dómum sínum. Línuvörð vantaði
öðruin megin og er það hin mesta
óhæfa.
Það er bersýnilegt, að ef knatt-
spyrnan hér á Akureyri á að komast
á hærra stig, verður að beita nokkr-
um öðrum þjálfunaraðferðum en áð-
ur. Fyrst verður að kenna hinum
einstö’ðu leikmönnum betri knatt-
meðferð og síðan að æfa þá sarnan
sem eina heild. Reynslan sýnir líka,
að án góðrar knattmeðferðar verð-
ur samleikurinn óþarflega erfiður
og þunglamalegur. G. F.
ÞVÍ EKKI SELJA SALTFISK
TIL SPÁNAR?
Um það bil þriðjungur af saltfisks-
eign íslendinga hefir nú verið seld-
ur, aðallegu til Bretlands, Grikk-
lands, Þýzkalands og Ítalíu. Verðið
er yfirleitt nokkuð lægra en ábyrgð-
arverðið, kr. 2.25 pr. kg., og verður
ríkissjóður að greiða mismuninn.
Ekki hefir neitt heyrzt um það, að
reynt hafi verið að selja saltfisk til
Spánar, sem keypti mikið af þeirri
vöru fyrir stríð. Norðmenn hafa
neitað að taka til greina viðskipta-
bann það, sem Sameinuðu þjóðirn-
ar vildu setja á Spán, og við íslend-
ingar höfum áreiðanlega ekki frem-
ur efni á að vera aðilar að slíkum
aðgerðum, ef Spánverjar vilja greiða
gott verð fyrir saltfiskinn.
ENGIN SAMÚÐARVERKFÖLL
Æsifregnir kommúnista um sam-
úðarverkföll eru flestar ósannar. —
Þannig eru hvorki samúðarverkföll í
Hafnarfirði, Húsavík, Patreksfirði
og Borgarnesi, en þar hafa verka-
menn risið gegn hinni kommúnist-
isku stjórn félagsins.
LÉREFTSTUSKUR
Kaupum við hæsta verði.
Prcntsmiðja
Bjöms Jóns»onar h. f.
SILDARSTÚLKUR
Óskum eftir stúlkum, er vilja ráða sig til Siglufjarðar í
sumar. Húsnæði, ferðakostnaður og annar aðbúnaður ókeypis.
Miklir tekjumöguleikar. Látið skrá yður sem fyrst. Uppl. gefa Hin-
rik Hinriksson, sími 197, Akureyri. Einnig í síma 5, Siglufirði.