Íslendingur - 03.12.1947, Side 6
-
ÍSLENDINGUR
Miðvikuflaginn 3. desember 1947
*
~ ÞANKABROT -
Framhald aí 4. síðu.
írumþörfum mannanna til þess að
gela lifað sómasamlegu lífi. Þenn-
an dugnað hefir því oþinbera þó
ekki þótt ástæða íil að verðlauna.
Skattyfirvöldin krefjast þess, að
menn reikni sér alla þessa aukavinnu
sem tekjur, og eru þær síðan skatt-
lagðar. Afleiðingin verður sú, að
menn þessir verða oft að greiða há
úlsvör og skatta, þótt þeir hafi í
rauninni ekkert fé aflögu í slíkar
greiðslur. Hér er á mjög alvarlegan
hátt verið að draga úr framtaki
manna og sjálfsbjargarviðleitni. Það
niá vera, að erfitt sé að breyta þess-
um skattlagningarreglum, en það
getur naumast nokkrum dulizt,
hversu skaðlegar þær eru. Þungar
kvaðir eru hér lagðar á atorkumann-
inn, sem stritar sjálfur við að koma
upp húsi sínu, en menn, sem annað-
hvort ekki nenna eða ekki þurfa að
leggja sjálfir á sig slíkl erfiði, þurfa
ekki að bera hliðstæðar kvaðir. En
hér er ekki öll sagan sögð. Maður,
sem hefir komið sér upp dýru húsi
af litlum efnum, verður að telja sér
hærri tekjur af því sem húsaleigu
fyrir sjálfan sig en maður, sem/býr
í gömlu og ódýru húsi. Það verður
því ekki sagt skattyfirvöldum til
hróss, að þau greiði fyrir þeirri við-
leitni manna að eignast hús.
Það er sjálfsagt, að þeir menn,
sem mesta gjaldgetu hafa, beri
stærstar byrðar hinna opinberu
gjalda, en það er næsta hæpið, hversu
langt á að ganga í því að skattleggja
þá menn, sem eru að reyna að brjót-
ast í ýmsum framkvæmdum til að
tryggja framtíð sína. Kemur mér í
því efni í hug grein, sein ég fyrir
nokkru las eftir merkan bandarísk-
an verklýðsleiðtoga. Taldi hann frá-
leitt að skattleggja fyrirtæki. fyrr en
þau hefðu vel komið undir sig fót-
unum, því að það væri til hagsbóta
fyrir verkalýðinn og alla þjóðina,
að atorkusamir einstaklingar stofn-
settu sem flest atvinnufyrirtæki.
Eignakönnun.
OG SVO er það eignakönnunin.
Þar fá vafalaust margir menn at-
vinnu og nýtt flóð af skýrslum og
eyðublöðum streymir yfir iandið, en
fæstir munu hafa mikla trú á árangr-
inum. Þeir menn, sem ástæðu hafa
haft til að óttast eignakönnun, munu
sennilega flestir hafa búið svo um
hnútana, að miklar skattsviknar fjár-
upphæðir komi ekki fram í dagsljós-
ið nú. Hitt er aftur á móti rétt, að
óttinn við eignakönnun mun þegar
hafa koinið því til leiðar, að fram-
töl hafa verið réttari í ár en oft áð-
ur. Er sá árangur góðra gjalda verð-
ur, en það er vafasamt, hversu mikið
á að leggja í kostnað vegna eigna-
könnunar riú, þegar óvíst cr, að hún
beri nokkurn árangur.
,Stuðningsfélög sameinuð11
þjóðanna.
VÍÐA TJM heirn hafa að undan-
förnu verið stofnuð félög, sem hafa
það markmið að styrkja samtök sam-
einuðu þjóðanna og skýra hlutverk
þeirra í þágu alþjóðasamvinnu.
Þessi félög hafa svo stofnað heims-
samband, sem hefir náið samstarf
við miðstöð sameinuðu þjóðanna í
Nev\ York. Sarntök almennings í hin-
um ýrnsu löndum sameinuðu ])jóð-
anna eru mjög líkleg til þess að geta
orðið til mikils stuðnings við þá við-
leitni að skapa frið og öryggi í
heiminum. Islendingum hefir' þegar
verið ýms sómi sýndur á ráðstefn-
um sameinuðu þjóðanna, þótt þeir
séu þar allra þjóða smæstir. Það
hlýtur að vera mikils virði fyrir litla
og vanmáttuga þjóð, ef sameinuðu
þjóðunum tekst að leysa hlutverk
sitL af hendi. Það færi því vel á því,
að einnig hér á landi yrði stofnað
félag, er hefði það hlutverk að glæða
skilning þjóðarinnar á því merki-
lega starfi, sem sameinuðu þjóðirnar
reyna að vinna, eftir því sem hið
stirða samkomulag þar leyfir.
Grasœtur fá kjötuppbót.
JOB sendir hlaðinu svohljóðandi
( fyrirspurn: „Viljið þér gjöra svo vel
að útvega mér og öðrum svar frá við-
komandi aðilum við spurnirigunni:
Fá ineðlimir Nátlúrulækningafélags
Islands fullar kjötuppbætur úr ríkis-
sjóði?“ — Já, það er ef til vill ekki
ástæðulaust þótt þannig sé spurt, því
að það virðist harla einkennilegt að
veita þeim mönnum styrk til kjöt-
kaupa. sem aldrei neyta þeirrar á-
gætu fæðu. Hins vegar mun sann-
leikurinn sá, að þetta fólk fær sömu
kjötuppbót og aðrir. Stafar það af
því, að nú er ekki lengur krafizt
neinna gagna um það, hvort maður
liafi neitt tiltekins kjötmagns eða
ekki, heldur er hverjum og einum
greidd ákveðin upphæð, sem á að
vera miðuð við meðalkjötneyziu
manna eins og hún er reiknuð í vísi-
tölu.
I tilefni af þessu skal það tekið
fram, að blaðinu er íjúft að veita
móttöku fyrirspurnum frá lesend-
um sínum og svara þeim, eftir því
sem kostur er á.
ÚR ANNÁLUM
Framh. af 4. síðu.
er hét Árni Berzason. Tíu menn aðr-
ir fengu áverka af grjóti og vopn-
um. Grímur lögmaður vildi stilla,
og var hann sleginn. Greip hann þá
stálboga, er hann hafði, og lét ör á
streng og skaut í handlegginn á
Teili, og með það varð hlé á slag-
inu. Kom og þá ábóti Helgi heiman
frá Þingeyrunr með marga menn og
gekk á milli, og skildu þeir síðan.
Kjöru Norðlendingar Jón Arason til
biskups, en biskup Ogmundur lét þá
Jón Einarsson sigla um sumarið, en
skip lá þann vetur í Kolbeinsárósi,
og voru 20 menn af því heima á Hól-
um um veturinn. Það sigldi út um
vorið að páskum og þar á Jón bisk-
upsefni Arason. Féll þann vetur
mikill grúi fátækra manna.
Lancihelgin
Framhald aí 5. síðu.
ari, þegar erlendum veiðiskip-
um fjölgar við Jandið, eins og
nú er útlit fyrir. Þess vegna
verður ekki hjá því komizt að
gefa þessum málum frekari
gaum, hagsmunir og sómi þjóð-
arinnar krefst þess“.
Orð í tíiria töluð, ekki sízt, þegar
annað víðlesið blað birtir um sama
leyti fregn um það, að nýsköpunar-
togurum Þjóðverja, sem alls munu
verða um 300, eigi, með samþykki
hernámsstjórnar Breta og Banda-
ríkianna/ að vísa til veiða í hafið
kringum ísland, og að þetta sé sam-
kvæmt tilmæluin Norðmanna, sem
síður vilji, að hafið meðfram Nor-
egsströndum verði fyrir ágangi þessa
nýja og vaxandi veiðiflota.
Þótt fregn þessi sé enn óstaðfest,
eins og sagt er á máli sendiráða, er
bezt að vera við öllu búinn, taka
saman ráð sitt í tíma og inuna orð-
tak hins reynda herforingja, að „þar
er mér úlfsins von, er ég eyrun sá“.
Flæmum vargana í véum íslenzkr-
ar landhelgi.
Júl. Ilavsleen.
Áfengisiiiálin i
ar kvittun. Þessi ráðstöfun ætti aci
geta komið í veg fyrir leynisölu
sumra bifreiðarstjóra og annarra,
sem nú veldur mikilli spillingu í þjób
félaginu.
5. Fundurinn skorar á Alþingi ab'
verja tekjunum af áfengissölunni tii
sjúkrahúsbygginga og byggingn
skólahúsa, en láta þær ekki verði,
eyðslueyri ríkissjóðs.
6. Fundurinn skorar á Alþingi ab
láta áfengismálaráðunaut fá fös;
laun, svo að hann geti ferðast un
landið og fýlgzt með störfum áfeng
isvarnanefnda, jafnframt að aukn
svo framlag til bindindisstarfsemi,
að 4 til 5 rrienn geti starfað stöðugt
að bindindisboðun í landinu árib
um kring.
7. Fundurinn skorar á bæjarstjóru
ir í öllum kaupstöðum landsins acf
láta ekki undir höfuð leggjast ac>
kjósa áfengisvarnanefndir eins og
lög mæla fyrir, svo að þær geti fylgzt
með því, að áfengisútsölur brj óti
ekki áfengislöggjöfina m. a. með því
að selja unglingum innan 21 árs ald'
urs áfengi. *
8. Fundurinn skorar á bæjarstjórn
Akureyrar, að veila ekki áfengi i
veizlum þeim, er hún gengst fyrir.
9. Fundurinn átelur þá veitinga-
húsatízku, að afgreiða vínneytendui
á undan biiidindismönnum, og fyrii
að hafa ekki óáfenga drykki á boð-
stólum, þar sem vínveitingar eru.
ALLIR EITT
Dansleikur í Samkomuhúsinu
laugardaginn 6. des. Hefst kl.
22.30. — ATH. Það er ekki
hægt að taka fleiri meðlimi í
klúbbinn fyrir áramót.
Stjórnin.
Sveinbjörn Sveinsson,
sem andaðist 26. nóvember, verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju fimmtudaginn 4. desembcr klukkan 1 eftir hádegi.
Guðlaug Jónsdótlir.
Ollum þeim mörgu, nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför konu minnar, móður okkar og tengda-
móður,
Jennýjor Eyland,
og heiðruðu minningu hennar, þökkum við hjartanlega.
Gísli Eyland, synir og tengdadœtur.
Happdrætti Háskóla Islands
Dregið verður í 12. flokki 9. desember.
í 12. flokki eru 3009 vinningar
samtals kr. 746,000,00.
Endurnýið strax í dag.
Þorst. Thorlocius.
HÖFUM OPNAÐ
Málningarvinnustoíu
VIÐ GEISLAGÖI U (áður Söluskálinn).
Málum húsgögn, skilti og hverskonar muni.
Opið fyrst um sinn milli kl. 5-6 e. h.
Jón A. Jónsson. Þórir Jónsson.
Söluskálinn
er fluttur í Hressingarskálann á horninu á Glerár- •
götu og Strandgötu. Höfum mikið af fatnaði, hús-
gögnum o. fl.
Söluskólinn, sími 427.
Nýja Símaskráin
verður afhent símanotendum í skrifstofu Lands-
símans kl. 10-12 og 1-4 daglega.
Símastjórinn.
Vindratstövar
6 og 12 volt
fyrirliggjandi.
ELECTRO CO.