Íslendingur - 08.03.1950, Page 1
XXXVI. árg.
Miðvikudagur 8. marz 1950
12. tbl.
latisnaí.
Er ríkisstjórn ólais Thors
lagði frumvarpið um geng-
isbreytingu o. fl. fram á Aiþingi
litlu fyrir s.l. mánaðamót, iögöu
Framsóknarþingmennirnir, Her-
mann Jónasson og Eysteinn Jóns
son fram þingsályktunartiliögu
um vantraust á ríkisstjórnina.
Var það tekið til meðierðar á
kvöldfundi í Samein. þingi 1.
marz, og var umræðunni útvarp-
að. Af háifu Framsóknarílokks-
ins töluðu báðir tlutningsmenn
vantraustsins, af hálfu Aiþýðufi.
Stefán Jóhann og Emil, en Ás-
mundur Sigurðsson og Einar 01-
geirsson fyrir kommúnista.
Bjarni Benediktsson utanr.kis
íáðherra talaði einn fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, og hélt uppi svör-
um fyrir stjórnina, þar sem for-
sætisráðherra, Ólafur Thors var
veikur af kvefi. Umræður voru
öllu hógværari en útvarpsumræð-
ur frá Alþiiigi eru vanar að vera,
og áttu áheyrendur erfitt með að
skilja, hvað fyrir flutningsmönn-
um vakti með vantraustinu a
þessum tíma, einmitt þegar
stjórnin leggur fram þær tillögur
sem Framsóknarflokkurinn læzt
í meginatriðum vera fylgjandi og
telur vonum seinna fram komn-
ar. Sú skýring, að flutningsmenn
hafi viljað láta stjórnina segja
af sér, áður en tillögurnar voru
lagðar fram, án þess að til stað-
ar væri önnur ríkisstjórn til að
fylgja þeim eftir, er í senn furðu
leg og óviturleg, enda gerði utan
r.'kisráðherra glögga grein fyrir,
livers vegna stjórnin féllst ekki á
það.
Vantrauststillagan var sam-
þykkt méð 33 atkvæðum gegn 18.
Greiddu allir Framsóknar og Al-
þýðuflokksmenn og kommúnist-
ar henni atkvæði, en Sjálfstæðis-
inenn á móti. ólafur Thors var
jarverandi, eins og áður var
sagt.
Daginn eftir, eða 2. marz,
baðst Ólafur Thors lausnar fyrir
stjórn sína, en forseti kvaddi til
viðtals við sig formenn stjórn-
málaflokkanna. Að þeim viðræð-
um loknum fól hann Hermanni
Jónassyni að gera tilraun til að
nfynda stjórn, er hefði nægileg-
an þingstyrk að baki, og til-
kynnti II.J. forseta í fyrradag,
að hann myridi ekki geta myndað
slíka stjórn að svo stöddu.
Framkoma Framsóknar á
Alþingí vekur íurðu og gremju
Síðustu atburðir, sem gerzt hafa
á Alþingi, liafa vaklð almenna undr-
un og talsverða gremju ábyrgra
Framsóknarmanna. Þegar ríkisstjórn
in leggur fram á Alþingi síðustu dag
ana í febrúar frumvarp til laga um
gengisskráningu o. fl. til að bjarga
við útflulningsverzluninni og at-
vinnulífinu í landinu, leggja tveir
fremstu menn í þingflokki Fram-
sóknar fram á þinginu vantraust á
ríkisstjórnina og fá það samþykkt
með tilstyrk krata og kommúnista.
En þessir frómu menn höfðu enga
stjórn tiltæka daginn eftir, er ríkis-
stjórnin, sem vantraustið hafði verið
samþykkt á, baðst lausnar. Forseti
felur þá Hermanni Jónassyni að
reyna að mynda nýja s.jórn, er nyti
nægilegs þingfylgis. Hermann tekur
að sér tilraunina til málamynda,
snýr sér til Sjálfstæðisflokksins og
býður honum samstjórn, ef hann
samþykkti dýrtíðartillögur, sem
Framsókn hefði á boðstólum og tæki
við stjórn þeirra mála í ríkisstjórn-
irini, er Framsókn þar með byði
þeim. Og er Sjálfstæðisflokkurinn
hafnar þessu „stórhöfðinglega“ boði,
tilkynnir Hermann forseta, að hann
sjái sér ekki fært að gera frekari til-
raunir til stjórnarmynduuar að sinni,
og virðist hann því ekki hafa reynt
við þá flokka, er studdu hann í van-
traustsbröltinu á dögunum.
Dagur reynir s. 1. miðvikudag að
klóra yfir hina undarlegu framkomu
Framsóknarforustunnar að undan-
förnu, Hefur hann mál sitt á því, að
reyna að sýna fram á, hve allt hafi
gengið vel á árunum fyrir stríðið
(þangað lil Sjálfstæðisflokkurinn
varð að koma inn í ríkisstjórnina til
að bjarga atvinnuvegunum ÞÁ, með
gengislögunum). Næst hælir hann
Framsókn fyrir það, að hafa sífellt
varað við dýrtíðarhættunni á stríðs-
árunum (eftir að Framsókn hafði
haft forgöngu um að hleypa dýrtíð-
inni lausri með því að fleyga gengis-
lögin). Og þannig heldur hann á-
fram að vegsama Framsókn, og ekki
minnst fyrir það að hafa slitið stjórn
arsams'.arfið s. 1. sumar og hrint
þjóðinni út í ótímabærar kosningar,
Telur hann „hreinar L’nur“ hafa
myndast við kosningarnar, þar sem
Framsókn hafi unnið 3 þingsæti. Og
því hafi Hermanni af eðlilegum á-
sts*ðum verið falið að reyna stjórn-
armyndun. En allt hafi þetta endað
með því, „að heildsalar Reykjavíkur
hafi knúið Sjálfstæðisflokkinn til
þess að taka völdin!“ — Að þessum
gáfulegu ályktunum loknum fer blað
ið að ræða undirbúninginn að sam-
stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokksins, og tekst þá ekki betur til
um að halda sig við sannleikann en
áður.
Dagur minnist ekki á þá kröfu
Framsóknar, að ríkisstjórn Ólafs
Thors segði af sér, ÁÐUR en gengið
væri til sanminga um málefnagrund-
völl nýrrar stjórnar og ÁÐUR en
Framsókn hafði fengist til að lýsa
afstöðu sinni til frumvarpsins um
gengisskráningu o. fl. En Framsókn-
arflokkurinn vildi ekki láta í Ijós álit
sitt á tillögunum, þótt eftir því væri
leitað. Kom þá til tals að mynda
sljórn, án þess að semja um úrlausn
mála fyrirfram, en það sáu Sjálf-
stæðismenn, að verið gat að tjalda
til einnar nætur. Febrúarmánuður
var að verða liðinn, en ríkisstj órnin
hafði ásett sér að koma tillögunum
inn í þingið fyrir mánaðamót af á-
stæðum, er áður hefir verið gerð
grein fyrir.
Dagur getur ekki hreinþvegið
Framsóknarforingjana af því vand-
ræðaástandi, sem nú er að skapast,
jafnvel þótt hann stækki um helm-
ing. Öllum er ljóst, að á því á Fram-
sókn alla sök. Hvað nú tekur við,
verður ekkerl unt sagt að svo stöddu.
Líklegast má telja, að utanþings-
stjórn verði mynduð til bráðabirgða
en Alþingiskosningar fari frarn í
vor. Framsókn má þá eiga heiðurinn
af því að hafa neytt þjóðina á alvar-
legustu tímum út í tvennar kosning-
ar á fám mánuðum, og mun hún
reikna skakkt, ef hún hyggst með því
að vinna sex þingsæti á ári. Miklu
líklegra mun liitt, að hún tapi ekki
aðeins í næstu kosningum þeim sæt-
um, er hún bætti við sig í haust sem
leið, heldur og nokkrum í viðbót.
Vísitalan 347 stig
Vísitala framfærslukostnaðar í
febrúar var 347 stig, hafði hækkað
um 5 frá næsta mánuði á undan. 1
Stafar hækkunin mest af verðhækk-
un á benzíni, olíum og brauðum
(vegna hækkunar á hveitiverði), og
er það afleiðing af gengislækkun ísl.
krónu gagnvart dollar i haust sem
leið.
Frá bæjarstjórn
ATHUGUN Á
HERMANNASKÁLUM.
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum 16. f. m. að fela bæjar-
verkfræðingi og byggingafulltrúa
að athuga alla »bragga« sem
íengið hafa bráðabirgöastöðu-
leyfi, og gera skrá yfir eigendur
þeirra, ásigkomulag íbúöar-
bragga, og til hvers geymslu-
braggar eru notaðir. Þá gera þeir
og tillögur um, hvaða braggar
ættu að fá framlengingu á stöðu-
leyíi, með tilliti til ásigkomulags
þeirra og livort þeir eru fyrir
væntanlegum vegagerðum og
skipulagningu.
LAUNAUPPBÖT
STARF SMANNA BÆJARINS.
Á sama fundi samþykkti bæj-
arráð tillögu um það til bæjar-
stjórnar, að laun starfsmanna
verði greidd fyrstu 3 mánuði árs
ins með 10% álagi, miðað við
gildandi launareglugerð frá jan-
úar 1949, og var það samþykkt
í bæjarstjórn, en stjórn Starfs-
mannafélagsins hafði farið fram
á 20% álag, eins og greitt er í
Reykjavík og víðar.
LAXÁRVIRKJUNIN
NÝJA 30 MILJ. KR.
Lögð var fyrir bæjarstjórn á
siðasta fundi hennar áætlun um
kostnað við viðbótarvirkjun Lax-
ár. Samkvæmt henni er heildar-
kostnaður áætlaður 30 milj. kr.
þar af 10,4 inilj. í $ og 3 milj. kr.
í pundum, og er þá ráðgert að
verkið sé unnið af innlendum að-
ilum. Þá er gert ráð fyrir að
! hefja byggingavinnu við virkjun
j .ina af fullum krafti, á næsta vori.
Ætti þá aö vera unnt að taka á
móti túrbínunni vorið 1951 og
rafalnum það sama sumar, og
ætti þá virkjuninni að geta ver-
ið lokið um áramót 1951 — 52.
Þess ber að sjálfsögðu að
gæta, að mikil gengislækkun
raskar eðlilega nefndri áætlun,
ef til hennar kemur.
VERKLEGAR
FRAMKVÆMDIR
Bæjarráð heimilaði á fundi
sínum 9 febrúar bæjai'verkfræð-
ingi og bæjarstjóra að láta vinna
að þeim vegagerðum og öðrum
verklegum framkvæmdum í vetur
sem veður og önnur aðstaða
leyfði. S'ðar heimilaði það að
befja vinnu við grjótpúkkun á
neðsta hluta Strandgötu, ef gjör
legt væri að brjóta götuna upp
vegna frosta.
Svijlegt sjtíslys við
Reykjanes
Stærsta sjóslys, sem orðið hefir
hér við land um margra ára bil, varð
við Reykjanesvita 28. febrúar, er
brezka olíuflutningaskipið Clam, rak
þar upp í brimgarðinn með 51
manns áhöfn. Skip þetta hafði bilað
í Reykjavík, og var brezkur dráttar-
bátur á leið með það til Bretlands í
eftirdragi. Slitnuðu dráttarvírarnir
um morguninn, en brim var mikið
og álandsvindur, og rak skipið
stjórnlaust upp í brimgarðinn und-
an Reykjanesvita. Er skipið tók niðri,
virðist felmtri hafa slegið á skips-
höfnina, því að hún setti þegar út
tvo björgunarbáta, sem telja mátti
hið mesta glæfraverk, enda brotnuðu
bátarnir þegar við skipshlið, og fóru
allir, sem í þá voru komnir, í sjóinn.
Rak 4 mennina lifandi í land, en 28
drukknuðu. Voru um 20 þeirra Kín-
verjar en hitt Bretar. Þá voru 23
eftir í skipinu og biðu átekta.
Björgunarsveitinni í Grindavík
var strax gert aðvart um strandið,
og kom hún á staðinn fullum 3 klst.
eftir að skipið tók niðri. Náði hún
öllum í land í björgunarstól, er eftir
voru í skipinu.
Líklegt er talið, að sveitinni hefði
tekizt að bjarga allri áhöfninni, ef
hún hefði verið um kyrrt í skipinu.
MAÐUR DRUKKNAR
í óveðrinu fyrir helgina lentu
margir bátar í Faxaflóa í hrakning-
um, eða urðu fyrir áföllum. Einn
bátanna, v.b. Fylkir á Akranesi var
mjög hætt kominn, er stórsjór reið
yfir liann og skolaði flestu lauslegu
útbyrðis en hálffyllti bátinn. Tók 2.
vélstjóra, Kristján Kristj ánssón, út,
og sökk hann mjög fljótt. Er álitið,
að hann hafi fengið höfuðhögg og
misst meðvitund. Bróðir hans, Ein-
ar, sem einnig var á bátnum, hlaut
allmikil meiðsli. Kristján var heit-
bundinn og átti eitt barn.
SKÁKÞINGI NORÐLEND-
INGA AÐ VERÐA
LOKIÐ
I meistaraflokki er einni biðskák
ólokið, og í II. flokki er eftir ein eða
fleiri umferðir. í I. fl. varð hæstur
Kristinn Jónsson með 3Ví> vinning.
í meistaraflokki er röðin þessi:
Unnsteinn Stefánsson 3% vinning
Margeir Steingrímsson 3 v. og biðs.
Jón Þorsteinsson 3 vinninga
Júlíus Bogason
2V2 vinning
Steinþór Helgason
Jón Ingintarsson
1 v. og biðs.
1 vinning