Íslendingur - 08.03.1950, Blaðsíða 4
4
fSLENDINGUR
Miðvikudagur 8. marz 1950
Úlgefandi: Útgáfufélag íslendings.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Jakob Ó. Pétursson.
Auglýsingar og afgreiðsla:
Svanberg Einarsson.
Skrifstofa Gránufélagsgata 4.
Sfmi 354.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.j.
Brezku
kosningarnar
Allur heimurinn hlýddi meÖ sér-
stakri athygli á fregnir af úrslitum
brezku þingkosninganna, sem fram
fóru seint í febrúar. Síðast þegar
kosið var, árið 1945, náði Verka-
mannaflokkurinn mjög sterkum
meiri hluta, og hefir síðan farið einn
með stjórn þar í landi. Hefir hann á
valdatímabili sínu framkvæmt ýms
stefnuskráratriði sósíalismans, svo
sem þjóðnýtingu atvinnuvega og ein-
stakra iðngreina.
Kosningaúrslitin leiddu skýrt í
ljós, að brezku þjóðinni geðjast ekki
að of mikilli íhlutun ríkisvaldsins
um málefni horgaranna, eftir að þeir
hafa reynt hana í nokkur ár. Ihalds-
flokkurinn vann urn 100 þingsæti, en
allir aðrir flokkar töpuðu. Verka-
mannaflokkurinn náði nauðulega
meiri hluta, en sá meiri hluti er svo
veikur, að ekki þarf nema kvefpest
gangi meðal þingmanna, svo að
stjórnin geti fallið, eins og kunnur
Breti komst að orði, er úrslitin voru
kunn.
Það hefir jafnvel verið lálið í
veðri vaka, að þingkosningar kunni
að fara fram á nýjan leik í Bretlandi
innan nokkurra mánaða, þar sem
aldrei liafi verið þar svo veik ríkis-
stjórn sem nú.
Kommúnistar,- sem áður höfðu 2
þingmenn í neðri málstofunni,
þurrkuðust nú alveg út, eins og við
hafði verið búizt eftir hrakfarir
þeirra við kosningar í öðrum frjáls-
um löndum, og frjálslyndi flokkur-
inn, sem áður hafði aðeins 12 þing-
menn, hlaut nú ekki nema 8. Sýnir
þetta, að smáflokkarnir, sem sums
staðar geta ráðið, hvaða stjórnar-
stefna er ríkjandi með því að ná
oddaaðstöðu, eru nú að þurrkast út
í Bretlandi, en í þess stað að komast
á tveggja flokka kerfi, sem á allan
hátt er heilbrigðara.
Alþýðumaðurinn hér lætur lítt
bera á hinum gífurlega kosninga-
ósigri brezku jábræðramia. I þriggja
dálka fyrirsögn segir hann 28. febr.
s. I.: „Verkamannaflokkurinn hlaut
meira kjörfylgi en nokkur annar
flokkur hefir áður hlotið þar.“
Ut af fyrir sig er hér rétt skýrt
frá. En þar er ekki sagður nema
hálfur sannleikur. Til viðbótar mætti
benda á þau sannindi, að af hverjum
43 atkvæðum, sem stóru flokkarnir
í Bretlandi bæta við sig í kosningun-
um, fær Verkamannaflokkurinn 10
en íhaldsflokkurinn 33. Af þeim
Reiðilestur út aj prentvillu. — Leyji
jyrir lcnattborðsstofu synjað. — Ný
blöð í pappírsskortinum. — Bílstjóri
skrijar um snjóhreinsun af götunum.
KONRÁÐ VILHJÁLMSSON hefir fundið
hvöt hjá sér til að 6krifa mér opið bréf í
síðasta Degi út af fáum línum, er ég rit-
aði nýlega vegna þágufallsvillu, er ég
rakst á í ónefndri bók. Kveður hann til-
fæ.ða þágufallsvillu vera prentvillu, og
hef ég enga ástæðu til að rengja það, enda
miklu líklegra, þegar þess er gætt, hver
oókina hefir íslenzkað.
En fyrst þetta er ekki annað en prent-
/illa, hví þá allan þennan reiðilcstur? K.
v\ segir, að engu sé líkara, en að ég hafi
viljað veita sér eða áminnstri bók ein-
t
hverja „bak lettu“. Ég get fullvissað K. V. |
um það, að æði margir munu þá hafa
fengið slíkar bakslettur írá mér, því að ég
hef árum saman rætt í dálkum mínum um
þágufallsvillu og aðrar málvillur í prent-
uðum ritum og tilfært dæmi, þó að hann
verði þess fyrst var nú (e. t. v. af skiljan-
iegum ástæðum). Þá ráðleggur K. V. mér
að taka heldur í lurginn á „héraðsmönn-
um“ mínum fyrir þolfallsvillu í bæjanöfn-
um, sem hann réttilega bendir á, svo sem
„Vallni“ og „Hlaðni" (mætti einnig nefna
„fram í Tjarni“), en að eyða tíma mínum
í að elta málvillur sínar.
Tónninn í þessu er þannig, að engum
getur dulizt, úr hvaða „héraði" hann muni
upprunninn. Hann er ekki frá „liéraðs-
mönnum" mínum með þolfallsvillurnar.
Ifann er ættaður þaðan, sem fólkið býr
yfir meiri þekkingu og menntun, meiri
málvöndun, að mjög margra áliti (og eigi
sízt þess sjálfs).
En þó að ég hafi leyft mér að ympra
nokkrum sinnum á því, sem mér hefir þótt
miður fara í rituðu og mæltu máli, ætla ég
mér ekki þá dul, að telja mig íslenzku-
mann á borð við bréfritara, sem ég tel
standa þar í fremstu röð.
FYRIR skömmu var hér í dálkunum fyrir-
spurn frá einum bæjarbúa um það, hvort
bæjaryfirvöldin hefðu veitt leyfi fyrir
rekstri knattborðsstofu þeirrar, sem opnuð
hefir verið í miðbænum, og aðallega er
sótt af unglingspiltum, m. a. úr skólum
bæjarins.
Fyrir síðasta bæjarstjórnarfundi lá
samanburði verður ljósast, hvert
straumurinn liggur.
Atilee forsætisráðherra hefir nú
endurskipað stjórn sína, enda féll
einn ráðherranna í kosningunum.
Vegna þess, hve stjórnin er veik,
mun eitthvað draga úr þjóðnýtingar-
áformum stjórnarinnar. Jarðvegur
fyrir sósíaliskar athafnir er ekki sem
beztur meðal elztu lýðræðisþjóðar
heims.
beiðni um samþykki bæjarstjórnar fyrir
rekstri stofunnar, en henni var synjað.
ÚTVARPIÐ hefir að undanförnu birt til-
kynningar öðru liverju um útkomu „nýrra“
mánaðarrita eða blaða. Á sama tima og
elztu og þekktustu útgáfufyrirtæki lands-
ins telja sig neýdd til að minnka upplög
bóka sinna, hlaupa „Heimilispósturinn",
„Allt“, „Vikublaðið", „Annáll erlendra
tíðinda" og enn fleiri af stokkunum. Menn
eru að vonum bissa á því, hvar ný blöð fá
pappír til að hefja útkomu á sama tíma og
flestar pappírsvörur eru ófáanlegar, svo
sem skrifblokkir, teikniblokkir, teikniark-
ir, reikningsbækur o. s. frv.
BÍLSTJÓRI NOKKUR hefir beðið blað-
ið að koma því áleiðis til réttra aðilja, að
þegar götur bæjarins sén hreinsaðar þá sé
þess gætt, að skafið sé ekki mikið út
fyrir vegbrúnina eins og komið hefir oft
fyrir. Segir bílstjóri þessi, að hann hafi
tvívegis ekið út af veginum nú nýlega
vegna þess, að skafið hefir verið út fyrir
brautarkantinn og hafi hann ekki varað
sig á því að svo var. Engin slys hlutust þó
af útafkeyrslu þessari — Munu fleiri dæmi
þess að bifreiðastjórar hafi ekið út af
veginum af framangreindri ástæðu.
BariwíÉrlé'ag
stolriað á Akureyíi
Þegar dr. Matthías Jónasson var
á ferð hér á Akureyri í vetur, ræddi
hann við nokkra menn um siofnun
Barnaverndarfélags hér í bænum, en
þá hafði nýlega verið stofnað barna-
verndarfélag í .Reykjavík fyrir at-
beina hans.
Þann 8. febrúar s. 1. var haldlnn
fundur í Gildaskála Hótel KEA til að
undirbúa stofnun barnaverndarfé-
lags. Á þeim fundi skráðu sig sem
félaga 29 manns og kosin var undir-
búningsnefnd.
Framhaldsstofnfundur var svo
haldinn að Hótel Norðurlandi þann
23. þ. m. Fundur þessi var mjög
fjölsóttur og mun hafa sótt hann um
200 manns.
Hannes J. Magnússon skólastjóri
setti fundinn fyrir hönd undirbún-
ingsnefndarinnar og skýrði frá til-
gangi hans. Kvaddi hann Snorra
Sigfússon námstjóra til að vera
fundarstjóra. Dr. Matthías Jónasson
hafði komið hingað norður til að
sitja fundinn og flutti þarna prýði-
legt erindi um afbrigðileg börn í
skóla. Lýsti hann því, hve mikil yfir-
sjón það væri, að ætla vangefnum
börnum sama námsefni í skólum og
öðrum börnum, og hver nauðsyn
bæri til að þau fengju viðfangsefni
við sitt hæfi. Á fundinum var til
fullnustu gengið frá stofnun félags-
ins með 130 félögum og lög sam-
þykkt. Samkvæmt lögunum er mark-
mið félagsins:
a. Að vinna að almennri barna-
vernd.
b. Að vinna að verndun og upp-
eldi vanheilla og annarra afbrigði-
legra barna.
c. Að hjálpa börnum og ungling-
um, sem framið hafa lögbrot, eða
eru á annan hátt á glapstigum.
j Markmiði s.'nu hyggst félagið að
j ná:
a. Með fræðslustarfsemi í ræðu
og riti.
b. Með samvinnu við barnavernd-
arnefndir, barnaverndarráð, skóla,
sóknarpresta og aðra aðila, er að
slíkum málum vinna.
c. Með því að stuðla að því, að
uppeldisheimili verði stofnuð og
starfrækt.
Formaður var kösinn Eiríkur
Sigurðsson yfirkennari. Aðrir í
s.jórn félagsins eru Hannes J. Magn-
ússon skólastjóri, séra Pétur Sigur-
geirsson, Elísabet Eiríksdóttir, bæj-
arfulltrúi og Jón J. Þorsteinsson
kennari. I varastjórn voru kosnar:
Frú Fillippía Kristjánsdóttir, frú
Sigríður Oddsdóttir og frú Anna
Helgadóttir.
Endurskoðendur voru kosnir Þor-
sleinn M. Jónsson, skólastjóri, og
Guðmundur Karl Pétursson, yfir-
læknir.
Á fundinum barst félaginu
5000,00 kr. gjöf frá hjónunum Sól-
veigu Einarsdóttur og Hannesi J.
Magnússyni skólastjóra til minning-
ar um dóttur þeirra, Sigríði
Jakobínu, er lézt úr mænuveikinni
árið 1935.
Væntanlega eru margir bæjarbúar,
sem ekki gátu mætt á stofnfundin-
um, fúsir til að s.yðja þetta velferð-
armál með því að gerast félagsmenn.
Geta þeir í því skyni snúið sér til
einhvers úr stjórninni.
Með stofnun Barnaverndarfélags
Akureyrar er stigið nýtt spor í menn
ingarmálum þessa bæjar.
'///,
C&
'ý'/'
'///
'///.
GENGISLÆKKUN
EINA FÆRA ÚRLAUSNIN.
Fyrir nokkrum kvöldum hélt
Stúdentafélag Reykjavíkur fund í
höfuðstaðnum til umræðna um frum-
varp ríkisstjórnarinnar um gengis-
skráningu o. fl., sem nú er efst á
dagskrá, hvar sem tveir eða fleiri
menn hittast. Framsögu í málinu
1 liafði Ólafur Björnsson hagfræðing-
ur, er vann að undirbúningi frum-
varpsins ásamt Benjam.'n Eiríkssyni.
Auk þess löluðu hagfræðingarnir:
Gylfi Þ. Gíslason, Jónas Haralz,
Klemens Tryggvason og Haukur
Helgason. Útvarpað var þessum um-.
ræðum s.l. sunnudag, en þær höfðu
verið teknar á stálþráð.
Við umræður þessar voru þrír
hagfræðingarnir: Ólafur, Jónas og
Klemens, á einu máli um það, að
gengislækkun væri ekki einungis eina
færa leiðin til viðreisnar efnahags-
málum þjóðarinnar og til bjargar
sjávarútveginum, heldur væri hún
og minnst tilfinnanleg fyrir almenn-
ing. Hins vegar töldu flestir ræðu-
menn, að jafnframt væri ýmissa
annarra ráðstafana þörf, sem annað
hvort væru ekki teknar með í frum-
varpið, eða þyrftu þar breyanga við.
KJÖR LAUNÞEGA.
Nokkuð greindi ræðumenn á um,
hvernig frumvarp þetta kæmi við
'//■""/Z/P//////;
'////////;///////
ZZ/Z////Z//,
//,////•. •///&
lífskjör launþega. Einn ræðumanna
taldi það ókost á frumvarpinu, að
gert væri ráð fyrir við útreikning
nýrrar vísitölu, að húsaleiga í nýjum
húsum yrði lögð lil grundvallar og
kjötverð án kjötstyrks. Ekki verður
séð, að slík ráðstöfun rýri lífskjör
launþega, þar eð fjöldi þeirra býr
við 5—8 falda húsaleigu, miðað við
þá, sem vísitalan er nú reiknuð eílir,
og menn á miðlungslaunum fá yfir-
lei:t ekki kjötuppbætur, nema þeir
hafi mikla ómegð. Má því segja, að
einmitt í þessu ákvæði frumvarpsins
felist miklar réttarbætur fyrir laun-
þega, sem fyrr hefði mátt veita þeim.
LAUNAHÆKKUN YFIRMANNA
Á FISKISKIPUM.
Þá kom það fram í þessum um-
ræðum, að með gengislækkuninni
fengju yfirmenn fiskiskipaflotans, er
taka mikið af launum sínum í afla-
hlut og nú eru einna bezt launaðir
allra, er laun taka fyrir störf sin,
sórkostlega hækkuð laun, meðan
aðrar launastéttir ættu að búa við
hlulfallslega sömu kjör og áður. Ef
til vill er þarna um að ræða helztu
veilu frumvarpsins, sem auðveldlega
mætti lagfæra í meðförum Alþingis.
Enda ekki við að búast, að svo vel
sé frá öllu gengið, að engra umbóta
sé þörf á einstökum greinum frum-
varpsins.
HVAÐA LEIÐ VILL
GYLFI FARA?
Ræða Gylfa Þ. Gíslasonar gekk út
á það eitl, að hann væri undir öllum
kringumstæðum á móti gengislækk-
un, og skildi þar með honum og öðr-
um hagfræðingum, er til ináls tóku á
fundinum. Yfirleitt var ræða hans í
sama tón og annarra flokksbræðra
hans, að gengislækkun yrði aldrei
gengið til fylgls við af Alþýðuflokkn-
um, en þeir eiga eftir að benda á úr-
ræðin til bjargar útveginum. Gylfi
á enn eftir að segja til um, hvaða
leið hann vilji fara út úr ógöngun-
um.
TÚLKUN ÞJÓÐVILJANS.
„Það er verið að leiða fátæktina,
sára og beizka, yfir íslenzku þjóðina
á ný“, segir Þjóðviljinn í aðalfyrir-
sögn sinni 28. febr., og á hann þar
við gengislækkunarfrumvarpið. Það
er einkennileg túlkun, að ráðstafan-
ir til að viðhalda áframhaldandi at-
vinnulífi í landinu og fyrirbyggja al-
mennt atvinnuleysi, sem reksturs-
stöðvun atvinnutækj anna óhjákvæmi-
lega myndi hafa í för með sér leiði
af sér sára og beizka fátækt. At-
vinnuleysið og reksturshalli atvinnu-
veganna er að sjálfsögðu undirrót
fátæktar og eymdar en ekki blóm-
legt atvlnnulíf. íslenzka þjóðin hafði
of lengi Iifað um efni fram og var
þar með að leiða yfir sig fátækt og
eymd, en frumvarpið er stórt spor i
þá átP að firra hana því. Þjóð, sem
þannig er ástatt um, getur ekki búizt
við að ré:ta hlut sinn og bæta efna-
hag s'nn án þess að rýra lífskjör sín
í bili. Og þótt Þjóðviljinn treysti
mjög á dómgreindarskort lesenda
sinna, má hann ekki ætla þá eintóma
blábjána.