Íslendingur - 28.07.1954, Side 2
1
í S L E NDINCUR
Miðvikudagur 28. júlí 1954
Fréttir frd Dolvíh
S. 1. föstudag komu tvö skip
með síld til söltunar til Dalvíkur,
Þorsteinn EA 15 og Baldur EA
770. Þessi síld veiddist á austur-
svæðinu út af Melrakkasléttu. —
Slld Þorsteins var söltuð hjá
Múla h.f. 170 tn., 485 tn. (upps.)
voru saltaðar upp úr Baldri hjá
Söltunarfélagi Dalvíkur. Veður
hefir verið mjög óhagstætt síð-
ustu dagana á miðunum, og hafa
fles’ir heimabátar legið hér í
höfn auk nokkurra annarra skipa.
Hér í Dalvík sem annars staðar
á landinu hefir veður verið mjög
óhagstætt til heyþurrka. Hefir
margur bóndinn í Svarfaðardal
átt við mikla erfiðleika að stríða
sökum sífelldra rigninga. Aftur á
móti standa þeir baéndur betur
að vígi, sem fengið hafa súgþurrk
un á bú sín, en þeir munu vera
tiltölulega fáir.
Er það mál manna, að „sól-
mánuður“ þessa árs hafi illa
brugðizt.
—ks.
Tvö jnfntefli við Frflm
Um helgina kom hingað til Ak-
ureyrar meistaraflokkur í knatt-
spyrnu úr félaginu Fram í Rvik
og keppti tvo leiki við sameigin-
Iegt liff Akureyrarfélaganna, er
báðum lauk með jafntefli. Fyrri
leikurinn fór fram á laugardaginn
og endaði með einu marki gegn
einu, en hinn síðari á sunnudag-
inn. Þá urðu úrslitin 2 : 2.
Tilraunir með höððsteypo
i
Samband íslenzkra samvinnufé-
laga hefir í hyggju að gera íil-
raunir með nýjungar í húsbygg-
ingum með það fyrir augum að
stuðla þannig að betri og ódýrari
húsakosti í landinu. Hefir verk-
efni þetta verið falið félaginu
Reginn, og verður á þess vegum
komið upp verksmiðju til fram-
leiðslu á höggsteypu hér á landi.
Frá þessum fyrirætlunum var
skýrt á aðalfundi SÍS. Vilhjálm-
ur Þór, forstjóri, skýrði þar frá
máli þessu og gat þess, að þjóð-
inni væri brýn nauðsyn endur-
bóta á þessu sviði, enda væru
mikil verkefni þar óunnin. Hann
skýrði frá því, að samvinnumenn
hefðu komizt í samband við hol-
lenzku verksmiðjuna Schockbeton
og tekið að sér uppsetningu á
höggsteypuhúsum fyrir varnar-
liðið. Nú hefir hið hollenzka fyr-
irtæki samþykkt að veita tækni-
lega aðstoð við að koma upp
höggsteypuverksmiðju hér á
landi, og eru 2 íslendingar í Hol-
landi að kynna sér framleiðsluna.
Vilhjálmur Þór skýrði svo frá,
að Reginn hefði gerzt aðili að
samlökum verktaka fyrir varnar-
liðið með það fyrir augum að
afla reynslu og aðstöðu til frek-
ari átaka í byggingamálum. Hann
sagði að lokum um mál þetta, að
samvinnufélögin hefðu ekki þurft
að binda neitt fé vegna þessara
aðgerða.
NÝICOMIÐ
Flöskuhettur
N YTT!
Bómullarpeysur,
kr. 38.00
D
Ullar-golftreyjur
kr. 138.00
D
Blússur
kr. 60.00
D
Hólsmen
kr. 45.00
D
Hólsfestar
D
Armbönd
D
Eyrnalokkar
D
Brjóstnælur
D
Hringir —
barna, dömu, herra.
Verzlunin Drífa
Veggfóður
nýkomið.
Stærsta og fjölbreyttasta
úrval í bænum.
Ennfremur
VEGGFÓÐURSLÍM
Linoleum
venjulegt —
fleiri þykktir
Kork linoleum
þykkt.
Plast linoleum
kemur á næstunni.
Mobiloil
Bifreidaeigendur!
Notið aðeins þá beztu smurningsolíu.
Notið smurningsolíur frá Socony-Vacuum Oil
Co. Inc.
Mobiloil Arctik
Mobiloil A.
Mobiloil A.F.
Mobiloil B.B.
Mobiloil B.
Aðalumboð á íslandi:
H. Benediktsson & Co. h.f., Reykjavík.
Umboð á Akureyri og við Eyjafjörð:
Verzlun Eyjafjörður h.f.
Akureyri.
úr gúmmí, sérstaklega hent-
ugar á saftflöskur.
Ef þessar flöskuhettur eru
notaðar, þarf hvorki kork-
tappa eða flöskulakk. Þær
eru algjörlega loftþéttar og
má einnig nota sem tappa í
hitageyma.
Flöskuhetturnar kosta kr.
0.75 stk.
Verzlunin VÍSIR
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
Krossviður
Birki
Gabon
Okola
Knattspyrna hér í
framför
Enginn vafi leikur á því, að
knattspyrnan á Akureyri hefir
% tekið verulegum framförum að
undanförnu. Kom það berlega í
ljós, er meistaraflokkur KR
keppti hér i sumar og beið ósigur.
Síðan hafa Akureyringar tekið
þátt í I. flokks móti í Reykjavík,
en þar var þátttaka svo mikil, að
keppa varð í 2 riðlum. Báru Ak-
ureyringar mjög af í sínum riðli
og kepptu til úrslita við KR, sem
efst varð í hinum riðlinum. Var
almennt búizt við, að Akureyring-
ar ynnu leikinn eftir spám knatt-
spyrnudómara dagblaðanna, og
var óvenjulegur áhorfendaskari á
vellinum, er leikurinn fór fram.
Leikar fóru þó svo, að KR vann
leikinn með 3 : 1, enda hafði fé-
Iagið styrkt lið sitt með 4 meist-
urum.
Reykjavíkurblöðin skrdfuðu
mjög lofsamlega um leik Akureyr
inga á mótinu. T. d. segir Morg-
unblaðið: „í fyrsta flokki eru það
Akureyringar, sem mesta athygli
hafa vakið og það fyrir frábæran
leik. Segja knattspymufróðir
menn, að þeir myndu geta sigrað
hvaða meis’araflokkslið Reykja-
víkurfélaganna sem væri.“ Og
Þjóðviljinn segir: „Akureyrarlið-
ið hafði að því er virtist lítið j
fyrir að ná sigri í sínum riðli og.
náði í þeim leikjum mjög góðum 1
Strandgötu 17. Sími 1451.
NÝKOMIÐ
Kvenskór,
rifs með svampsóla,
ýmsir litir.
Sfrigaskór,
lágir og uppreimaðir,
allar stærðir.
Gúmmístígvél
karlmanna á aðeins
kr. 64.00 parið.
4, 5 og 6 mm.
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
STEINULL
fyrirliggjandi í
Byggingavöruverzlun
Tómasar Björnssonar h.f.
Akureyri Sími 1489
Hvannbergsbræður
Skóverzlun.
leik, svo góðum, að fáum, sem
þá sáu, datt í hug, að KR gæti
staðizt þeim snúning.“
í A-riðlinum vann Akureyri
Val, íslandsmeistarana í I. fl.,
með 6 mörkum gegn 1, Vest-
mannaeyjar með 5:3, en Hafn-
firðingar gáfu leikinn fyrirfram.
SAUMUR
1”—7”
aðeins kr. 6.00 kílóið
fæst í
ByggingavÖruverzlun
Tómasar Björnssonar h.f.
Akureyri - Sími 1489
Nylon sokkar
ágætar tegundir.
Verð frá kr. 25.00.
Verzlun ESJA
Strandgötu 25 . Byggðaveg 114.
KNORR SÚPUR
1 Vi/i Scíutumimtfy
f'AfNtkÍTRÆrrWO SIMI U70
Kaupum flöskur
pela- og hálfs annars pela.
Öl og gosdrykkir h.f.
Sími 1337.
í sumarleyfinu svalar
bezt:
Appelsín.
Öl og gosdrykkir h.f.
Sími 1337.
Vörubíll
í bezta standi, lítið keyrður
til sölu. — Hentugur fyrir
sveitaheimili.
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
GÚMMÍHANZKAR
margar tegundir.
Niðursuðuglös
V2, 3Á °g 1 l»tra
nýkomin.
Vöruhúsið b.f.
Alto-saxofónn
til sölu. Hagstætt verð, ef
samið er strax. Allar upp-
lýsingar gefur
STEINAR MARINÓSSON
Hafnarstræti 37 (miðhæð).
Kristilegt mót
verður haldið við Ástjörn í
Kelduhverfi, ef Guð lofar. 31. þ.
m. til 2. ágúst. Upplýsingar um
ferðir, ferðakostnað o. fl. í síma
1050 og 1842. Sjónarhœðarsöfn-
uður.
Karlmannsreiðh j ól
nýuppsett, til sölu í Fjólugötu
8. Ennfremur klæðaskápur á
sama stað.