Íslendingur


Íslendingur - 02.11.1955, Page 5

Íslendingur - 02.11.1955, Page 5
Miðvikudagur 2. nóv. 1955 ISLENDINGTTR 5 Dr. Richard Beck: Sjötíu 09 fimm drii afmceli Kvenna- skólii Ein af þeim menntastofn- unum, sem við hjónin heim- sóttum í íslandsferð okkar síðastliðið sumar og minn- umst með sérstaklega þakklát um huga, er Kvennaskólinn á Blönduósi. Dvöldum við tvo daga þar í bæ í höfðinglegu vinaboði þeirra Páls Kolka læknis og frú Guðbjargar, og áttum þar hinum ágætustu við tökum að fagna. Hafði Páll læknir ennfremur ráðstafað því, að við ættum næturgist- ingu í Kvennaskólanum, sem eigi er starfræktur að sumr- inu; eigi stóð á samþykki frú Huldu Á. Stefánsdóttur (skólameistara á Akureyri), forstcðukonu skólans, er tók okkur með sömu alúð og risnu og þau læknishjónin. Skoðuðum við að sjálfsögðu skólann undir leiðsögn henn- ar, og þótti mikið til hans koma og harla vel að honurn búið, enda var hann nýlega endurbættur. Sáum við þess einnig næg merki, að þar ráða húsum stjórnsemi, hagsýni og smekkvísi. Þegar ég nú sting niður penna til þess að minnast Kvennaskólans á Blönduósi í tilefni af 75 ára afmæli hans, geri ég það því minnugur hinnar ánægjulegu komu okk- ar hjóna þangað, og þá eigi síður minnugur þeirrar miklu menningarlegu skuldar, sem íslenzka þjóðin á því ágæta menntasetri, Kvennaskóla þeirra Húnvetninganna, að gjalda; hygg ég, eins og síðar mun nánar sagt verða, að ís- lendingar vestan hafs standi einnig í skuld við skólann fyrir uppeldisleg og menning- arleg áhrif þaðan. Kvennaskólinn á Blönduósi, eða öllu heldur Kvennaskóli Húnvetninga, eins og hann er réttnefndari, sögulega talað, því að Blönduósskólinn er arf taki eldri skóla á þeim slóð- um,’átti 75 ára afmæli síðast- liðið haust. Var þeirra merku tímamóta í sögu skólans minnst með veglegum og fjöl- þættum hátíðahöldum á Blönduósi laugardaginn og sunnudaginn 21. og 22. maí í vor. Tóku þátt í hátíðahaldinu fjöldi virðingarmanna innan héraðs og utan, meðal þeirra Steingrímur Steinþórsson ráð- herra, er flutti skólanum þakk ir og árnaðaróskir ríkisstjórn ar íslands og hélt síðan ræðu um forystu Húnvetninga í menntun kvenna og á öðrum sviðum félagsmála. Sóttu há- tíðina 5—600 manns, og fjölmenntu konurnar mjög á þeLta virðulega afmælismót síns gamla skóla; voru honum einnig færðar verðugar af- mælisgjafir. Á sextíu ára afmæli skól- ans (1939) kom út í Reykja- vík á vegum skólaráðs hans myndarlegt og myndum prýtt Minningarrit, — Kvennaskóli Húnvetninga 1879—1939, -— og fróðlegt að sama skapi, enda var það samið af körl- um og konum, er gagnkunnug voru sögu skólans og starfi. Verður hér aðallega stuðst við Minningarrit þetta, og skal þess jafnframt þakklát- lega getið, að frú Hulda Stef- ánsdóttir sýndi okkur hjónum þá vinsemd og virðingu að af- henda okkur að gjöf áritað eintak af ritinu til minningar um komu okkar í skólann. Kvennaskóli Húnvetninga á rætur sínar að rekja til þeirrar vakningaröldu, sem snart hjörtu og hugi íslenzku þjóðarinnar um og eftir Þjóð- hátíðarárið söguríka 1874. Auk Kvennaskólans í Reykja- vík, sem hóf starf sitt sjálft Þjóðhátíðarárið, risu á næstu árum upp kvennaskólar í þrem sýslum norðanlands, Laugalandsskólinn eldri í Eyjafirði, Kvennaskóli Skag- firðinga og Kvennaskóli Hún- j kennslukraftar vetninga, en haustið 3 883 bærilega. voru tveir hinir síðarnefndu sameinaðir í Ytri-Eyjarskól- anum, er nánar verður getið. Áttu margir ágætismenn og merkiskonur í hópi Húnvetn- inga hlut að því, að hugsjónin fagra um stofnun kvennaskóla þeirra varð að veruleika, en einum manni, öðrum fremur, ber þó heiðurinn af því, að hafa átt meginþáttinn í stofn- un skólans. Fer ofangreinl Minningarrit hans um það svo felldum orðum: „Sá maður, er þar fór í fararbroddi, var þá enn ung- ur, ekki þrítugur, og lítt kunnur utan sinnar sveitar. Það var Björn Sigfússon frá Undirfelli, er síðar bjó lengi á Kornsá í Vatnsdal og varð þjóðkunnur merkismaður. Hafði hann framazt erlendis og haft þar kynni af Jóni Sig- urðssyni forseta. Urðu flest- um dugandi mönnum drjúg til framtaks um þjóðnytjamál á- hrifin frá forsetanum mikla.“ Meðal annarra fremstu hvatamanna að stofnun skól- ans voru þeir klerkarnir séra Eiríkur Briem í Steinsnesi, séra Hjörleifur Einarsson að Undirfelli, séra Páll Sigurðs- son á Hjaltabakka, og konur þeirra, þau Lækjamótshjón, Sigurður Jónsson og Margrét Eiríksdóttir, ungfrú Margrét Magnúsdóttir Olsen á Stóru- Borg (síðar kona Ólafs lækn- is Guðmundssonar á Stórólfs- hvoli) og þær dætur séra Jóns Sigurðssonar á Breiðabóls- stað í Vesturhópi, Ingibjörg og Kristín. Fyrs'.a veturinn, 1879—’80, var skólinn haldinn að Undir- felli í Vatnsdal, næstu tvo vet- ur að Lækjamóti í Víðidal, þvínæst veturinn 1882—’83 að Hofi í Vatnsdal, en þá um haustið var hann fluttur að Ytri-Ey á Skagaströnd. ,,Með staðsetningu skólans á Ytri- Ey og samþykktar reglugerð- ar og námsskrár fyrir hann, varð hann fast mótuð menn- ingarstofnun, og rættist þá hinn djarfi draumur hugsjón- armannanna um nýtt mennta setur í Húnaþingi“, segir Stefán Davíðsson í prýðilegri afmælisgrein um skólann (Vísir, 31. maí 1955). Árið 1901 var Kvennaskól- fluttur frá Ytri-Ev til Dr. Richard Beck. ínn Blönduóss og byggt nýtt skóla hús, enda hafði aðsókn að skólanum verið svo mikil, að þess var brýn þörf. í hinu nýja skólahúsi var húsrúm meira fyrir námsmeyjar auknir Aðfaranótt 11. febrúar ár- ið 1911 brann Kvennaskóla- húsið á Blönduósi, og er auð- velt að gera sér í hugarlund, hvert áfall þetta mikla óhapp var fyrir skólastjórnina og skólann í heild sinni. Eigi féll þó kennslan niður, góðu heilli, og var skólanum haldið áfram í bráðabirgða húsa- kynnum, þangað til vandað steinhús hafði verið byggt yf- ir hann; flutti skólinn þangað 1912, og hefir starfað þar síð an. Skólahúsið hefir þó á síð- ustu árum verið stækkað og endurbætt, eins og fyrr var vikið að. Breytingar hafa einnig ó- hjákvæmilega orðið á reglu- gerð skólans og kennslugrein- um, einkum síðan 1923, er honum var breytt í húsmæðra skóla með nútímasmíði, verk- árum hefir einnig verið kom- , ið á framhaldsnámi í ýmsum aðalgreinum skólans, er gefist hefir ágætlega. Eins og Minningarritið ber með sér, er það orðinn stór hópur ágætismanna og kvenna, sem átt hafa sæti í stjórnarnefndum skólans á hinum langa og merka veg- íerli hans. Á Ytri-Eyjar árum skólans komu þar mest við * sögu séra Eggert O. Briem á Höskuldsstöðum, Jóhann G. Möller, kaupmaður á Blöndu ósi, og Árni Þorkelsson Geitaskarði, er þannig var og líkamlegt atgervi? er sótt hafa skólann. Eðlilega hefir meiri hluti námsmeyjanna verið úr Húnaþingi, og annars staðar af Norður- og Austurlandi, en jafnan hafa einhverjar þeirra verið úr öðrum landshlutum, og hefir það farið í vöxt á síðari árum. Uppeldisleg og menningarleg áhrif frá skól- anum hafa því borizt inn á heimili um land allt, og þjóð- in öll á honum þess vegna skuld að gjalda. Venjulegur hlutlægur mælikvarði verður að sönnu eigi lagður á slíka andlega strauma, en áhrif þeirra eru djúptæk og raun- veruleg eigi að síður, enda er það löngu viðurkennt, að það er móðirin, um aðra fram, sem mótar heimilislífið og börnin, án þess að lítið sé gert úr áhrifum föðursins í þeim efnum. Skáldið ágæta vissi hvað það söng, er það sagði: „í sálarþroska svanna býr sig- ur kynslóðanna“. Og þó að ég hafi ekki við hendina skjallegar upplýsing- ar um það atriði, mun óhætt mega fullyrða, að ýmsar af fyrrverandi námsmeyjum Kvennaskóla Húnvetninga hafi flutt vestur um haf og orðið hér í landi ágætar hús- mæður og mæður, og forystu- konur í menningarmálum, og að með þeim hætti hafi holl áhrif frá skólanum borizt all- ar götur hingað vestur yfir ál- ana, og séu Vestur-íslending- ar því einnig í nokkurri skuld við hann. lengstum í skólanefnd fram til 1919, samtals nálega 30 ár. Þeir Þórarinn Jónsson á Hjaltabakka og Jónatan J. Líndal á Holtastöðum hafa einnig starfað í skólastjórn- inni áratugum saman, en um hina mörgu aðra forystu- menn, er hér eiga hlut að máli, verður að vísast til Minningarritsins. Kvennaskóli Húnvetninga hefir einnig frá upphafi vega átt á að skipa ágætum for- stöðukonum og kennslukon- um, en um þær í heild fer Þórarinn Jónsson þessum orð- um í Minningarritinu: „Allar liafa forstöðukonur skólans og kennslukonur reynst vel. Hefir það verið skólans aðal- styrkur, hve góða kennslu- krafta hann hefir ávalt haft.“ Eigi verður hér þó, rúmsins vegna, getið sérstaklega nema tveggja af forstöðukonunum. Frú Elín Briem, er var for- stöðukona skólans á Ytri-Ey og einnig síðar á Blönduósi um allmörg ár, átti öllum öðr- um meiri þátt í því að móta skólann. Var hún mikil gáfu- kona, þjóðkunn fyrir prýði- lega menntun, skörungsskap í sam' i skólastjórninni og frábæra ! kennarahæfileika. Núverandi forstöðukona skólans, frú Hulda Stefáns- dóttir, skipaði þann sess 1932 til 1937, og tók aftur við stjórn hans 1953. Hefir hún getið sér ágætisorð fyrir lær- dóm sinn og kennslu, og sköru lega og trausta skólastjórn. Með hliðsjón af náms- meyjaskránni fyrir árin 1879 —1939, sem prentuð er í Minningarritinu, og ef maður áætlar nemendafjöldann þau fimmtán ár, sem síðan eru lið- in (námsmeyjar voru 36 síð- astliðinn vetur), mun ekki fjarri lagi að telja, að um eða yfir 2000 ungmeyjar hafi stundað nám á Kvennaskóla Húnvetninga síðan hann hóf starf sitt. Er það mikill hópur og þá um leið að sama skapi glæsilegur, því að vitanlega lega kennslan aukin, en dreg-^hafa það ekki verið óálitleg- ið úr bóklegu námi. Á síðarijiistu stúlkurnar, um andlegt í því sambandi er maklegt að minnast þess, að ein af fyrrverandi kennslukonum skólans, frú Dýrfinna Jónas- dóttir frá Keldudal í Skaga- firði, merkis- og ágætiskona, átti um allmörg ár lieima í Winnipeg, en hún kenndi í skólanum að Ytri-Ey 1885 til 1889 og á Blönduósi 1901 til 1904. Minnast enn margir dvalar frú Dýrfinnu vestur hér, enda á hún fjölda nákom- inna skyldmenna þeim megin hafsins. í þrjá aldarfjórðunga hefir Kvennaskóli unnið Húnvetninga mikilvægt og víðtækt

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.