Íslendingur - 21.09.1956, Qupperneq 8
FIMMTA SÍÐAN í DAG:
Kraftaverk
í skurSstofunni.
Föstudagur 21. sept. 1956
Nýir kaupendur fá blaðið
ókeypis
fil óramóf’a.
Fftltir ðr Svarlaiiordol
Messað í Akureyrarkirkju n.k. sunnu-
dag kl. 2 e. h. Sálmar: 226, 573, 117,
317, 58. — K. R.
Messað í skólahúsinu í Glerárþorpi
kl. 5 e.h. Sálraar: 210, 117, 318, 203.
— K. R.
Áheit til Akureyrarkirkju kr. 200.00
frá Á. S. — Kærar þakkir. S. Á.
Munið hin fögru minningarkort til
fegrunar umhverfis Akureyrarkirkju.
Fást í Bókabúð Rikku.
I. O. O. F. — 1389218% —
KA og Þór keppa til úrslita á Norð-
urlandsmótinu á morgun kl. 2 e.h.
____*_______
»Við myndum
ekki sætta okkur
við það stjórnar-
faríf
í Alþýðublaðinu í fyrradag
á ritstjórinn tal við Stein Stein-
arr skáld, sem nýlega var með-
limur í sendinefnd til Ráð-
stjórnarríkjanna. M.a. spyr rit-
stjórinn, hvort skáldinu finnist
Rússar vera að framkvæma
sósíalismann. Og skáldið svar-
ar:
„Nei, ekki held ég það. Það er
að minnsta kosti ekki só sósíal-
ismi, sem okkur „gömlu menn-
ina" eitt sinn dreymdi um. Ég
held, að það sé einhvers konar of-
bcldi, ruddalegt, ondlaust og ó-
mannúðlegt. — Og okkur svo-
kölluðum Vesturlondamönnum
myndi sennilega finnast það ó-
bærilegt. Mér er að vísu ekki
fyllilega (jóst, hvernig þessu er
varið, en það er ekki sósialismi,
þcð er miklu fremur einhver teg-
und fasisma. Kannske er þetta só
margumtalaði sósíalfasismi, ef
menn vita cnnþó, hvað það orð
þýðir."
Og síðar segir skáldið:
„Við á Vesturlöndum myndum
ekki sætta okkur við það stjórn-
arfar, sem ríkir og rikt hefir í
Sovét-Rússlondi. Það er í grund-
vallaratriðum fullkomin ond-
stæða þess, sem okkur þykir eftir-
sóknarverðast. Þetta er öllum
Ijóst. Flestir eða ollir alvarlega
hugsandi menn ó Vesturlöndum
hafa fyrir löngu séð ■ gegnum
hina sovét-rússnesku blekkingu.
Aftur ó móti er þetta rússneska
ævintýri enginn dómsúrskurður
um ógæti eða fónýti sósialism-
ans, heldur blótt ófram vegna,
þess, AÐ ÞAÐ ER EKKI SÓSIAL-
ISMI (Ibr. hér). Það væru stór-
felld og hættuleg ósannindi að
halda slíku from."
Sumarið hefir lengst af verið
kalt og þurrklítið. Að vísu fengu
þeir, sem allra fyrst byrjuðu að
slá, góðan þurrk á hey sín nokkra
daga, en síðan voru aldrei nema
flæsur fyrr en um og eftir höfuð-
dag, að verulega batnaði. Hey-
skap er nú nær alls staðar lokið,
og eru hey víða orðin mikil, en
þó mun ekki afgangur af því, að
sumir hafi nóg, enda fer búíé
stöðugt fjölgandi. Heyin muna
vera allmisjöfn að gæðum. —
Kartöfluspretta er víðast neðan
við meðallag, og berjatínsla er
engin að kalla. — Silungsveiði
var léleg í Svarfaðardalsá í sum-
ar, þar til rétt fyrir lok veiðitím-
ans, að haustganga kom, og varð
áin kvik af smábleikju. Þeir fáu,
sem þá voru við veiðar, öfluðu
ævintýralega. — Réttað var í
Tungurétt sl. mánudag. Veður
var afburða gott, sunnan gola,
sólskin og hiti, enda kom á réttina
aragrúi fólks. Kvenfélagið hefir
komið sér upp skúr við réttina og
selur þar veitingar við miklar vin-
sældir. Allmiklar viðbætur og
viðgerðir hafa verið unnar á rétt-
inni undanfarið, enda fé Svarf-
dælinga orðið fleira en nokkru
sinni fyrr, og á Dalvík verður nú
slátrað ri/sklega 7700 fjár og hef-
ir aldrei fleira verið, nema niður-
skurðarárið. Er nú höfuðnauðsyn
Frá bæjarstjórn
Framlag til Fnjóskárvegar. Lengd
vatnslögn í innbœ. — Benzíndœla
við Slippstöðina.
Á fundi bæjarstjórnar 18. þ.m.
var samþykkt að verða við beiðni
hreppsnefndar Grýtubakkahrepps
um 4 þús. kr. framlag til vegarins
um Dalsmynni, frá neðri Fnjósk-
árbrú að Böðvarsnesi, á næsta
fjárhagsári, en uppbygging þessa
vegarkafla er talin mjög greiða
samgöngur við Þingevjarsýslu,
þegar Vaðlaheiði er lokuð.
xxx
Þá var samþykkt að heimila
vatnsveitustj óra að lengja vatns-
leiðsluna inn bæinn inn á móts
við Flugstöðvarbygginguna, svo
að sú bygging geti fengið vatn úr
vatnslögn bæjarins.
xxx
Loks samþykkti bæjarstjórn að
heimila Slippstöðinni h.f. að setja
upp og reka benzíndælu á lóð
hafnarinnar hjá Slippstöðinni,
enda verði hún sett niður í sam-
ráði við slökkviliðsstjóra og
hafnarnefnd. Mun hin fyrirhug-
aða dæla greiða mjög fyrir trillu-
bátaeigendum að fá eldsneyti á
báta sína, þar sem hún mun verða
staðsett í nánd við verbúðirnar
og bátakvína.
að stækka frystigeymslu slátur-
hússins, því að mikið vantar á,
að sláturhúsið geti tekið á móti
sláturfé nógu greiðlega.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Stefáni Snæv-
arr á Völlum Heiðbjört Jónsdótt-
ir frá Mýlaugsstöðum í Aðaldal
og Gísli Þorleifsson bóndi á
Hofsá. Ungu hjónin eru þegar
tekin við búi á Hofsá. — Nýlega
hafa opinberað trúlofun sína
Hekla Tryggvadóttir Dalvík og
Jón Anton Jónsson bifreiðastjóri
Böggvisstöðum.
Áskell Jóhannesson bóndi á
Syðra-Hvarfi og systkini hans
hafa gefið Vallakirkju 3000.00
kr. til minningar um foreldra sína
og tvær systur látnar.
Vegfl- og tirúflflerðir
(Framhald af 1. síðu.
og Hólssels. Brýr þessar byggði
vinnuflokkur Jóns Grímssonar á
Vopnafirði, en annars er þetta ut-
an við mitt umdæmi, segir Karl.
í Axarfirði.
Þá er unnið að stórbrú yfir
Jökulsá í Axarfirði. Verður það
hengibrú, rétt neðan við gömlu
brúna. Hafa turnar og ankeri ver-
ið steypt í sumar, og standa vonir
til, að brúin verði fullgerð næsta
ár. Yfirmaður þess verks er Jón-
as Snæbj örnsson.
Vegabætur
á Öxnadalsheiði.
Á suðurleiðinni standa nú yfir
vegabætur á Öxnadalsheiði, í
Giljareit og Klifinu, þar sem veg-
urinn getur orðið hættulegur í
svellalögum á vetrum. Vinnur
vegaflokkur Rögnvaldar Jónsson-
ar á Sauðárkróki að þeim umbót-
um. Á þessum kafla er vegurinn
breikkaður, grafið og sprengt úr
brekkunni ofan hans og skurðir
gerðir undir brekkurótunum, þar
sem vatn seitlar fram á öllum árs-
tímum og veldur á vetrum mynd-
un svellabólstra fram á veginn.
(Erfitt mun þó að fyrirbyggja
slíkar svellmyndanir, þar sem veg-
urinn er alveg láréttur, en breikk-
unin á a. m. k. að tryggja betra
öryggi en áður í umferðinni, og
þar sem einhver halii er, ættu
svellbólstrarnir að hverfa úr sög-
unni.
6 vinnuflokkar
í umdæminu.
— Hve margir eru vinnuflokk-
arnir í þessum tveim sýslum?
spyrjum vér Karl að lokum.
— Þeir eru tveir í Eyjafjarð-
arsýslu og fjórir í Þingeyjarsýslu.
Verkstjórar eyfirzku flokkanna
eru Guðmundur Benediktsson ost
Annóll íslendings
HELGI MAGRI
Myndin er af styttu þeirri, er Jónas
Jakobsson myndlistarmaður hefir gert
fyrir Akureyrarbœ á Hamarkotsklöpp-
um. Sýnir hún Helga magra, landnáms-
mann Eyjafjarðar, þar sem hann bend-
ir konu sinni, Þórunni hyrnu, jram i
Eyjafjörð, en þar nam hann land og
byggði sér bœ að Kristnesi. Einhvern-
tíma í sumar mun mynd þessi hafa ver-
ið afhjúpuð í kyrrþey, og cr það út af
fyrir sig virðingarverð hœverska af
hálfu bœjarins. — Ljósm.: H. Ingi-
marsson.
Keppni í hæfniakstri fer fram í
Reykjavík. Þátttakendur um 30, að
langmestu leyti einkabílstjórar.
□
Jóhannes Markússon flugstjóri hjá
Loftleiðum flýgur viðkomulaust frá
New York lil Reykjavíkur á 10 klst. og
12 mín., en það er fljótasta ferð ís-
lenzkrar flugvélar á þeirri leið.
□
Þrír ungir menn í Reykjavík og
llafnarfirði gera kvikmynd út af þjóð-
sögunni um „Gilitrutt". Tekur sýning
myndarinnar um 1% klst. og vcrður
væntanlega frumsýnd um n.k. áramót.
□
Togarinn Askur siglir á þýzkan tog-
ara (Mechtild frá Bremerhaven) vestur
á Halamiðum. Kom stórt gat á miðja
stjórnborðssíðu þýzka togarans, er
mundi brátt hafa sokkið, ef vatnsheld
skilrúm hefðu ekki verið í lestinni.
Togarinn komst til ísafjarðar með að-
stoð annars þýzks togara. Askur
skemmdist tiltölulega lítið.
□
Olvaður sjómaður á hollenzku skipi
stingur ungan mann á Seyðisfirði með
beltishnífi, svo að af verður holsár, þó
ekki lífshættulegt.
□
Ekið á mann á Suðurlandsbraut í
Reykjavík að næturlagi, án þess að
hirða frekar um, en vegfarendur finna
liann þar stórslasaðan og meðvitundar-
lausan. Lézt hann af meiðslunum..
íkviknun
Á 10. tímanum sl. þriðiudags-
morgun var slökkviliðið kallað
að Bjarkastíg 6 hér í bæ. Lagði
þar reyk upp úr kjallara, en þar
höfðu tveir menn verið að log-
skera gat á næturhitunardunk.
Brugðu þeir sér frá í morgun-
kaffi, en er þeir komu til baka,
hafði eldur komizt í einangrun
utan um rör, og varð af allmikill
reykur. Tókst slökkviliðinu strax
að slökkva eldinn, og urðu ekki
bruna- eða vatnsskemmdir, en
einhverjar af reyk.
Árni Friðriksson. Hafa þeir ann-
azt vegagerðirnar í Eyjafirði og
Hörgárdal. Leónard Albertsson
hefir svæðið frá Eyjafirði austur
að Skjálfandafljóti, Jón Gíslason
hefir haft Tjörnesveg og nvbygg-
ingu í austanverðum Bárðárdal,
og Pétur Jónsson í Reykjahlíð
annazt svæðið frá Breiðumýri
austur að Jökulsárbrú, einnig
Laxárdal og Austurhlíðarveg
norður frá Laugum. Loks er
Friðgeir Árnason, en hann ann-
aðist byggingu Múlavegar, Ólafs-
fjarðarmegin, og er nú við Skjálf-
andafljótsbrú undan Stóruvöllum
að ganga frá uppfyllingu og fyr-
irhleðslugörðum við liana.
Tónleikar
Sovéllistamanna
Á þriðjudagskvöldið héldu 5
sovézkir tónlistarmenn hljómleika
í Nýja Bíó á vegum MÍR. Voru
]>að Khalida Aktjamova fiðlu-
leikari, Dimitri Baskíroff píanó-
leikari, Tatjana Lavrova sopran-
söngkona og bassa-söngvarinn
Viktor Morozov. Allan undirleik
annaðist Frieda Bauer.
Hljómleikarnir vöktu mikla at-
hygli, og var listamönnunum
fagnað með dynjandi lófataki og
öllum færðir blómvendir. Við-
fangsefnin voru mörg eftir rúss-
nesk tónskáld en einnig eftir
Chopin, Grieg, Wagner og Saint-
Saens. Meðal viðfangsefna söngv-
arans Morozov voru nokkur rúss-
nesk þjóðlög, svo sem Stenka Ra-
sin, sem Rússar einir kunna að
túlka á hrífandi hátt.
MAÐUR
BRÁÐKVADDUR
Síðastliðinn laugardag lézt hér
í bænum Magnús Baldvinsson
Lækjargötu 22, áður vitavörður
á Siglunesi. Var hann á leið heim
með fé sitt af Glerárrétt, er hann
hné skyndilega niður og var þeg-
ar látinn. Magnús var um sextugt,
valinkunnur og gegn maður.