Íslendingur - 31.05.1950, Síða 3
Miðvikudaginn 31. maí 1950
íSLENDINGUR
3
Vorþing
Umdæmisstúkunnar nr. 5 var haldið
á Akureyri laugardaginn 20. maí s.l.
Á þinginu mættu 26 félagar Umdæm-
isstúkunnar og voru 15 af þeim
kjörnir fulltrúar. Eirikur Sigurðsson
umdæmistemplar gaf skýrslu um
störf framkvæmdanefndar á liðnu
ári og hag Reglunnar í umdæminu.
Framkvæmdanefndin hafði haldið
útbreiðslufundi síðastliðinn vetur á
Skagaströnd, Dalvík og Akureyri.
Auk þess liafði liún heimsó.t barna-
stúkur í nágrenninu. Þá heimsótti
Jón Hjartar, regluboði Stórstúkunn-
ar, flestar stúkur í umdæminu og
flutti erindi í skólum. Hann stofnaði
stúkuna „Höfðaborg“ nr. 267 á
Skagaströnd og telur hún nú 33 fé-
faga. Æ.ðsd templar stúkunnar er
Kristinn Ásgrímsson. Þá var stofn-
uð barnastúkan „Leiðarstjarnan“ nr.
136 með 58 félögum á Dalvík að til-
hlutun framkvæmdanefndar. Gæzlu-
maður hennar er Freyja Antons-
dóttir. Stórgæzlumaður unglinga-
starfs, Þóra Jónsdóttir, hefir einnig
heimsótt all-margar barnastúkur í
umdæminu á liðnum vetri. Félagar
í 6 undirstúkum eru nú 706 og var
fremur dauft starf í flestum þeirra
í vetur.
Bjarni Halldorsson, umdæmis-
gæzlumaður ungtemplara, gaf
skýrslu um störf barnastúknanna í
umdæminu. Eru nú staríandi í um-
dæminu 13 barnastukur með sam-
tals 1573 félögum og var starf í
mörgum þeirra mjög gott á síðast-
liðnurn vetri.
í framkvæmdanefnd hlutu kosn-
ingu:
U. Templar Eiríkur Sigurðsson.—
U. Kanslari Hannes J. Magnússon.
— U. Varatemplar Jónína Steinþórs-
dóttir. — U. Ritari Jón J. Þorsteins-
son. — U. Gjaldkeri Ólafur Daníels-
son. — U. Gæzlum. ungt. Bjarni
Halldórsson. — U. Gæzlum. löggjaf-
arstarfs Jón Kristinsson. — U.
Gæslum. fræðslum. Kristján S. Sig-
urðsson. — U. kaptlán Stefán Ág.
^Kristjánsson. — U. fregnr. Guð-
mu.ndur Mikaelsson. — Fyrrv. U.
Temp 'laí Jóhann Þorvaldsson.
Mælt var með Brynleifi Tobíassyni
sem ui uboðsmanni Stórtemplars.
Fulltrúai" á Stórstúkuþing voru
kosnir: Eir ikur Sigurðsson og Jón
J. Þorsteinss on.
Á þinginu voru mjÖg fjörugar
umræður um framtíðarstarf Regl-
unnar og aulina bindindisstarfsemi.
Það vakti alirtermsi ánægju að Stór-
stúkan gengst fyrir námskeiði fyrir
templara að Jaðri í sumar. í ufnræð-
unum kom fram áhugi fyrir norð-
lenzku bindind’sm.anuamóti á næs'.a
sumri. Einnig var ræ’tt um fjórðungs
mót ungtemplara. Á þinginu ríki
mikill áhugi fyrir fra.mgangi Regl-
unnar og efiingu bindíndismáls.ns.
Auglj'sið í íslendingi!
r-
[ÞRÓTTAÞÁTTUR
IÞRÓTTAFÉLAGIÐ
ÞÓR
35 ÁRA
Næstkomandi þrlðjudag, 6. júní,
á íþróttafélagið Þór 35 ára afmæli.
Hyggst félagið halda upp á afmælið
með íþróttakeppni á íþróttavelli sín-
um á Gleráieyrum.
Hefst keppnin á hinu árlega Odd-
eyrarboðhlaupi félagsins kl. 8 e. h.
Keppa þar Knattspyrnufélag Akur-
eyrar og Þór, og eru 20 menn í
hvorri svelt. Keppt er um verðlauna-
bikar, gefinn af Blómabúð KEA, en
handhafi hans er nú K. A.
Lelðin, sem hlaupin verður að
þessu sinni er þannig: Hlaupið hefst
á Þórsvellinum, og verður hlaupinn
éinn hringur á vellinum en síðan
suður Glerárgölu, að Lögreglustöð-
inni, austur Eiðsvallagötu, norður
NorðurgöLu, að Slippnum, slðan
vestur norðan við netalitunarstöð-
ina, upp með Glerá og inn á völlinn
aftur og þar hlaupnir tveir hringir,
og lýkur hlaupinu með því.
Að boðhlauplnu loknu hefst knatt-
spyrnukappleikur í meistaraflokki
milli K. A. og Þórs.
Iþró Uiunnendur eru hvattir til að
horfa á þessa keppni.
Það niá vekja athygli á því, að af
Þórsvellinum er hægt að fylgjast
með hlaupinu lengst af.
Íþróttasíðan árnar Þór allra heilla
á þessu merkisafmæli.
—X—
í. B. A.
vann Hvítasunnuhlaupið
Kristján Jóhannsson
fyrstur að marki
Hvítasunnuhlaupið 1950 fór fram
sl. mánudag í kuldaveðri.. Hlaupin
var sama braut og síðasta ár. Því
miður gátu Þingeyingar ekki mætt í
keppnina, en þeir hafa unnið sveita-
keppnina undanfarin ár. Alls tóku
þátt í hlaupinu 10 keppendur, 5 frá
hvoru, UMSE og ÍBA. Kristján Jó-
hannsson UMSE tók þegar forustuna
í sínar hendur og hélt henni allt
hlaupið. Einar Gunnlaugsson hélt
öðru sæti fyrri hluta leiðarinnar, en
er eftir var um 1 km. tók Óðinn
Árnason fram úr honum og dró
Kristján uppi og hélt fast í við hann
það sem eftir var af hlaupinu, þótt
Kristján héldi öruggur forustunni.
Úrslit urðu:
1. Kristján Jóhannsson UMSE á
10:08.6 mín.
2. Óðinn Árnason ÍBA á 10:09.7
3. Einar Gunnlaugsson ÍBA á
10:16.8 mín.
4. Hörður Rögnvaldsson UMSE á
10:21.8 mín.
ÍBA vann sveltakeppnina naurn-
lega, hlaut 18 stig, en UMSE 19 stig.
í sveit ÍBA voru Óðinn, Einar,
Kristinn Bergsson og Hreiðar Jóns-
Eins og undanfarin ár var keppt í
tveim yngri flokkum. Eldri dreng-
irnir 13—16 ára hlupu 1200 m., en
12 ára og yngri 600 m. — í eldri
flokknum voru 11 keppendur.
Úrslit:
1. Ólafur Gíslason ÍMA 3:10.4
mín.
2. Haukur Árnason ÍMA 3:15.7
mín.
3. Sverrir Georgsson ÍMA 3:16.6
mín.
4. Gunnar Jakobsson KA 3:16.8
mín.
í yngri flokknum voru 17 kepp-
endur. Fyrstir urðu:
1. Tryggvi Gíslason KA 1:41.5
mín.
2. Ingimar Jónsson KA 1:42.8
mín.
3. Svanbjörn Sigurðsson Þór
1:43.4 mín.
4. Jón Stefánsson KA 1:44.1 mín.
í þessum flokkum var þriggja
manna sveitakeppni. — Vann hana
ÍMA í eldri en KA í yngri.
13—16 ára:
1. I. M. A. 6 stig
2. K. A. 17 stig
3. Þór 24 stig
12 ára og yngri:
1. KA A-sveit 7 stig
2. KA B-sveit 19 stig
3. Þór A-sveit 20 stig
—X—
Knatispyrna.
I meistaraflokki í knattspyrnu á
annan í hvítasunnu vann Þór KA
með 2 mörkum gegn 1 eftir lélegan
leik. Mörkin seltu Tryggvi Georgs-
son og Hreinn Óskarsson fyrir Þór,
en Einar Einarsson fyrir KA. Árni
Ingimundarson dæmdi og hefði
gjarnan mátt hreyfa sig meira.
Þór sá um mótið.
Stjórn ÍBA hefir kveðið upp dóm
út af kæru, er Þór sendi vegnadl. fl.
knattspyrnukappleiks, er háður var
21. þ. m. milli KA og Þórs. Var KA
dæmdur umræddur kappleikur tap-
aður, þar sem kæran reyndist rétt-
mæt.
Frét+ir fró
íþróHasambandi Islands.
Evrópusundmeistaramótið. F ram-
kvæmdastjórn ÍSÍ hefir ákveðið sér-
stakan lágmarkstíma til þátttöku í
Evrópusundmeistaramótinu, sem
heyja á í Vínarborg í ágústmánuði
n. k. Er lágmarkstíminn bundinn við
1050 til 1061 stig (samkv. sænsku
stigatöflunni) eins og sjá má á eftir-
farandi löflu:
100 m. frjáls aðferð karla tími
59.5 sek. = 1051.3 stig.
400 m. frjáls aðferð karla 4:54.5
mín. = 1051.6 stig.
1500 m. frjáls aðf. karla 20:00.0
mín. = 1054.5 stig.
200 m. bringusund karla 2:45.0
mín. = 1061.5 stig.
Ujvö Qvœdi
Ort í tilefni af komu Guilfoss til Akureyrar
Gullfoss nýi er kominn heill til hafna,
honum fagnar þjóðin einum rómi.
Blakta fánar beggja milli stafna,
blikar yfir honum frægðarljómi.
Gæfan fylgi Eimskips óskabarni,
yfir torsótt höf, á nótt og degi.
Þó að landið verpist hörðu hjarni,
hvika mun það eklci af réttum vegi.
NafniÖ, sem að frægan garöinn gerði,
gleymist aldrei meðal Islendinga,
hugir þeirra standa á vökuverði,
völvur góðar heillakvæði syngja.
Heill þér Gullfoss! Heill sé áhöfn þinni!
Heill þér Eimskip! Störf þín blessi drottinn;
Þjóðin geymi þau í muna og minni,
meðan lífgrös sjást í túni sprottin.
Akufeyri 28. maí 1950
Friðgeir H. Berg
Heill til hafnar Gullfoss,
hörðu í landi norður. —
Þjóð, við þönglaslóðir,
þráðu fagnar magni.
Sótti utar ótti,
yfir virtist birta.
Ártið, æðri sárum, —
ómar þina komu.
Ei er heillum öllum,
Island horfið — visa,
þar eð þegnar megna,
þig að eignast Gullfoss.
Óskar þjóð í óði, —
undir tekur grundin:
Gamla nafna geymdu,
gæfu-langa ævi
Sigurður G. Sigurðsson
100 m. baksund karla 1:09.2 mín.
= 1052.8 stig.
100 m. frjáls aðferð konur 1:08.3
mín. = 1050.5 stig.
100 m. baksund konur 1:19.0 mín.
= 1051.2 stig.
200 m. bringusund konur 3:05.3
mín. = 1051.3 stig.
Gulhnerki ÍSÍ hefir Magnús Kjar-
an stórkaupmaður verið sæmdur í
tilefni af 60 ára afmæli hans þann
19. apríl s. I.
Einnig hefir Helgi H. Eiríksson
skólastjóri verið sæmdur gullmerki
ÍSÍ í tilefni af 60 ára afmæli hans
þann 3. maí s. I.
Staðfest met í sundi. 3x100 mtr.
boðsund (þrísund) 3:42.0 mín. —
Sundfélagið Ægir: sett 7. marz 1950
(Hörður Jóhannesson, Georg Frank-
linsson og Ari Guðmundsson).
Staðfestir íþróttabúningar. Þessi
félög hafa fengið staðfesta íþrótta-
búninga: Umf. Samhygð, Árnessýslu
og Umf. Stöðfirðinga, Stöðvarfirði.
TOGARAKAUPIN.
Framh. af 2. síðu.
Einnig að þið vinnið sleitulaust
að því, að sem allra flestir bæjarbú-
ar mæti á skrifstofu félagsins næstu
daga og kaupi hlutabréf.
Ef bjartsýni og framfaravilji,
ásamt ást og velvilja til bæjarins og
þeirra, sem liann byggja í framtíð-
inni, fær ráðið, verður þátttakan al-
menn og átakið þá létt, og togarinn
siglir hér í höfn á næsta ári til ómet-
anlegs gagns fyrir þennan bæ á
ókomnum árum.
Að endingu vil ég geta þess, að
félagsstj órnin vinnur nú að því að
koma hér upp fiskþurrkunarhúsi all-
stóru, og er fjárfestingarleyfi þegar
fengið. í þessu sambandi þarf félag-
ið einnig á miklu fé að halda, en hér
er um geysilega mikla atvinnuaukn-
ingu að ræða, atvinnu, sem öll yrði
að erlendum gjaldeyri.“
Tillaga stjórnarinnar urn hluta-
fjáraukningu félagsins var samþykkt
af eigendum 4000 hluta, eigendur
900 hluta skiluðu auðu en 20 mót-
atkvæði. Fengust á fundinum loforð
fyrir 72 þús. króna hlutafé.
son.