Íslendingur


Íslendingur - 02.05.1958, Blaðsíða 6

Íslendingur - 02.05.1958, Blaðsíða 6
6 ÍSLENDINGUR Föstudagur 2. maí 1958 T Jónína Guðmundsdóttir írá Húsabakka Hinn 5. desember síðastliðinn andaðist að heimili sínu á Akur- eyri, húsfrú Jónína Guðmunds- dóttir, nær 82 ára. Jónína var fædd á Selá á Skaga 23. febrúar 1876. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guðrún Jónsdótt- ir og Guðmundur Andrésson, er bjuggu á Selá síðasta fjórðung 19. aldar, velmetin sæmdarhjón. Jónína ólst upp í foreldrahúsum, en er hún var 25 ára giftist hún Jónasi Magnússyni Árnasonar frá Utanverðunesi. Jónas var bróðir hins alkunna veiði- og krafta- manns, Jóns, er lengi var ferju- maður við Vesturós Héraðsvatna, áður en þau voru brúuð á Osn- um. Jónas og Jónína byrjuðu bú- skap á Garði i Hegranesi, en að 2 árum liðnum — 1903 — fluttu þau að Syðri-Ilúsabakka í Seylu- hreppi og bjuggu þar til 1919, að Jónas andaðist eftir langa van- heilsu, 25. marz 1919. Eftir að þau fluttu að Húsa- bakka, voru þau í nágrenni við þann, sem þetta ritar. Húsabakki stendur á vesturbakka Héraðs- vatna gegnt Eyhildarholti. Er jörðin erfið votlendisjörð, tún- laus, en grasspretta bregst þar ekki. En ærið erfiður og vossam- ur var heyskapurinn á búskapar- árum þeirra hjóna, þó nú sé tölu- vert breytt til hins betra. En ungu hjónin drógu eigi af sér, enda bæði áhugasöm og dug- mikil, sem bezt átti eftir að sýna sig, hvað sérstaklega húsfreyjuna snerti. En nú kom reiðarslagið- Húsbóndinn missti heilsuna svo algjörlega, að hann varð rúmfast ur til dauðadags, sem skipt nokkrum árum. Þá reyndi á hús freyjuna, kjark hennar og þrek En hvorugt bilaði. Hélt hún bú skapnum áfram óhikað, þótt það aukastarf bættist við önnur störf, að annast um mann sinn rúm- liggjandi, lítið sjálfbjarga hin síðustu ár. En umönnun liennar var með ágætum. Þótti okkur, er vel þekktum til, mikils vert um þrek hennar og dugnað. Árið eftir lát manns síns — 1920 — fluttist Jónína til Akur- eyrar með tvo drengi sína 10 ára, en þeir eru tvíburar. Eru þeir vel þekktir borgarar á Akureyri, Magnús lögregluþjónn og Guð- mundur bílstjóri. Þau hjónin eignuðust einnig þrjár dætur, er allar dóu ungar. Jónína var vel gefin mann- kostakona, er öllum vildi gott gjöra. Einhver allra sterkasti þátt- ur í skapgerð hennar var örlætið. Enginn Skagfirðingur, sem til Ak- ureyrar kom og hún náði til, mun hafa farið á mis við örlæti henn- ar, og sumir dvöldu þar svo dög- um skipti. Og sá er þetta ritar, hefir þá sögu að segja. Engu var líkara en maður ynni henni mikinn greiða, með því að njóta gestrisni hennar. 011 árin eftir að hún kom til Akureyrar og synir hennar voru vaxnir, var hún bústýra hjá Magnúsi syni sínum. En Guð- mundur sonur hennar er kvæntur fyrir allmörgum árum. Eru þeir bræður báðir mannkostamenn, enda fellur eplið þar eigi langt frá eikinni. Á síðustu árum var heilsu Jónínu farið að hnigna, lúi og þreyta farin að gera vart við sig, en meðfæddur dugnaður og áhugi hélt henni uppi. Allt fram á áttræðisaldur var hún við heyvinnu tíma og tíma á hverju sumri. Undi sér alltaf vel við þá vinnu. En síðast kom sá, er engu lif- andi þyrmir, og lífið fjaraði út. Við gömlu nágrannarnir minn- umst þín með þökk og virðingu, góða og dugmikla húsfreyja, sem öllum vildir gott gjöra. 13. apríl 1958. Hjörtur Kr. Benediktsson. mm& Öflugi flokkurinn. Dagur 23. þ. m. hefir það eft- ir Jóni Kjartanssyni áfengisfor- stjóra ríkisins, að Framsóknar- flokkurinn sé nú „langöflugasti andstöðuflokkur Sjálfstæðis- flokksins“. Þessi öflugi flokkur hlaut við síðustu Alþingiskosningar 12925 atkvæði eða 15.6% gildra atkv., og hefir minnst fylgi þeirra flokka, er nú eiga fulltrúa á Al- þingi. Við næstu kosningar á und- an (1953) hlaut hann nær 17 þúsund atkvæði og 1949 náði hann 17659 atkvæðum. Þessi langöflugasti andstöðuflokkur Sjálfstæðisflokksins er því sýni- lega að tærast upp og kemur eng- um á óvart, sem fylgzt hefir með ferli hans. Söguleg fölsun. Hinn nýi aðstoðarritstjóri Dags reynir nýlega að koma sök erfiðrar gjaldeyrisstöðu á bak Sjálfstæðisflokksins. Segir hann þar m. a.: „Sjálfstæðisflokkurinn var í stjórn haustið 1947, þegar gripið var til róttækari skömmt- unaraðgerða en nokkru sinni fyrr og síðar í sögu landsins.“ I febrúar 1947 var mynduð ríkisstjórn undir forsæti for manns Alþýðuflokksins, og var af suraum nefnd Stefanía. í þeirri stjórn áttu Sj álfstæðismenn tvo ráðherra af sex. Að eigna Sjálf- sta:ðisflokknum öðrum fremur gerðir þeirrar stjórnar er söguleg fölsun, enda veit hvert manns- TIL VIÐSKIPTAMANNA VORRA. Allar matTÖru- mjölktir- buðir vorar verða opnaðar kl. §,30 á lau^ardö^um I §umar Það eru vinsamleg filmæli vor til húsmæðra, að þær geri inn- kaupin til helgarinnar ó FÖSTUDÖGUM, eftir því sem hægt er, til að grynna á laugardagsösinni. Kaupfélag Eyfirðinga barn, að Sjálfstæðisflokkurinn barðist fyrir afnámi skömmtunar og hafta, þótt sú barátta bæri ekki árangur fyrri en á árinu 1950. Ófullkomin tillaga. Alþm. segir frá því í fyrradag, að á Dagsbrúnarfundi hafi verið ,einróma“ samþykkt tillaga á mánudagskvöldið, um að skora á ríkisstj órnina að gefa án tafar út reglugerð um stækkun fiskveiði- landhelgarinnar upp í 12 sjómíl- ur, og komi stækkunin til fram- kvæmda eigi síðar en 1. júní. Röggsamleg tillaga, eins og hún ber með sér, en þó mundi sumum finnast vanta aftan í hana eitthvað á þessa leið: „.... enda tryggi ríkisstjórnin fyrir þann tíma nægan kost varðskipa og flugvéla til að verja hina nýju landhelgi fyrir ágangi erlendra togara.“ 17. jiiní-nefnd til að undirbúa og stjórna hátíða- höldunum á þjóðhátíðardaginri var kjörin á síðasta bæjarstjórn- arfundi. I nefndina voru kjörnir Magnús Björnsson, Sveinn Tóm- asson, Haraldur M. Sigurðsson cg Jón Ingimarsson. Nýir.ríkisborgarar Alþingi hefir nýlega samþykkt lög um veitingu ríkisborgararétt- ar, en með þeim öðlast 70 menn, konur og börn íslenzkan ríkis- borgararétt. Á Akureyri og við Eyjafjörð öðlast eftirtaldir menn og konur þenna rétt: Ágúst Berg verkstj. Akureyri, Fredriksson, Iris Gunborg, hús- móðir Akureyri (f. Svíþjóð) Húbner, Lotta Erika, húsmóðir Hlíð Svarf. (f. Þýzkalandi) Jónbjörn Gíslason múrari Ak. Malmquist, Liesel, húsmóðir Akureyri (f. Þýzkalandi) Olsen EIi, sjómaður Akureyri (f. Færeyjum) Petersen, Joen Peter, iðnverka- maður Ak. (f. Færeyjum) Rossebö, Johan, verkam. Akur- eyri (f. Noregi). Þeir, sem erlendum nöfnum heita, öðlast ekki réttinn fyrri en þeir hafa tekið sér íslenzkt nafn. Iðnaiormenn Húsbyggjendur Ilöfum venjulega fyrirliggjandi A G O-lím Einkaumboð á íslandi. Leðurverzlun Magnúsar Víglundssonar hf. Garðastrœti 37, Reykjavík. Sími15668. Frí IMÉti Akureyrar Skólanum verður slitið laugardaginn 10. maí kl. 2 síðd. Oskað eftir að sem flestir foreldrar mæti. Fimmtudaginn 8. maí fer fram inntökupróf og innritun allra 7 ára barna (fædd 1951). — Sjá nánar á öðrum stað í blaðinu. Tilkynna þarf forföll. Vorskólinn hefst mánudaginn 12. maí kl. 9 árd. Hannes J. Magnússon. Frd Oddeyrarshólanum Skólanum verður slitið laugardaginn 10. maí kl. 5 síðd. Verða þá til sýnis í kennslustofum skrift barnanna, teikning- ar og önnur skólavinna. Skólasýning þessi verður einnig opin sunnudaginn 11. maí kl. 1—4 síðdegis. Inntökupróf barna, sein fædd eru 1951, fer fram í skólanum föstudaginn 8. inaí kl. 3 síðdegis. Skólastjóri. Geymið þessa auglýsingu.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.