Íslendingur


Íslendingur - 27.06.1958, Blaðsíða 1

Íslendingur - 27.06.1958, Blaðsíða 1
íslendingur lektor vid Edioborgorhósbóln Norshu söngmennirnir gdfu Ahureyri höfðinglegar i gjafir Ánægjuleg heimsókn kariakórs fró Álasundi. Laust fyrir kl. 8 að kvöldi 18. júní safnaðist mikill hópur bæjarbúa saman á Ráðhústorgi til að heilsa karlakórnum „Aalesunds Mands- styrk í sólólögum þeim, er kórinn hafði valið. Norski ræðismaðurinn á Akur- eyri, Sverrir Ragnars, ávarpaði kórinn að samsöngnum loknum, bauð liann velkominn til Akureyr- ar og þakkaði hið ánægjulega söngkvöld, en formaður kórsins þakkaði viðtökurnar. ann um hríð, en lagði annars stund á heimspeki og erlend mál við háskólann í Edinborg og lauk þaðan meistaraprófi (M.A. hono- urs) með miklu lofi fyrir nokkr- um árum. Síðan hefir hann verið aðstoðarkennari við Edinborgar- háskóla, en jafnframt unnið að doktorsritgerð, sem hann er nú að búa sig undir að ljúka. í vor lét einn af heimspekikennurum Ed- inborgarháskóla af störfum, og var þá Páll valinn í hans stað úr hópi margra umsækjenda, enda þótt útlendur væri og ungur að árum. Páll er kvæntur Hörpu Ásgríms- dóttur Péturssonar fiskimats- manns á Akureyri og konu hans Maríu Guðmundsdóttur, og eiga þau þrjú börn. Skipan Páls í hið nýja embætti sýnir, hvers álits hann nýtur ytra, og er það íslandi mikill sómi að eiga slíka fulltrúa á erlendri grund. Aalesunds Mandssangforening samanhominn á Ráð hústorgi 18. júní. — Ljósm.vig. Blaðinu hafa borizt þær fregn- ir, að Páll S. Árdal hafi verið ráðinn fastur kennari í heimspeki við Edinborgarháskóla. Páll er fæddur hér á Akureyri 27. júní 1924 og verður því í dag 34 ára gamall. Hann er sonur hjónanna Hallfríðar Hannesdóttur Jónas- sonar bóksala á Siglufirði og Steinþórs Pálssonar Árdal skálds Jónssonar. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri árið 1944 með mjög hárri einkunn. Hann kenndi við skól- sangforening“ frá vinabæ Akureyrar, Álasundi í Noregi, sem þá kom hingað til bæjarins eftir að hafa haldið samsöng í Reykjavík. Söngkveðjur. Móttakan hófst með leik Lúðra sveitarinnar, en karlakórar bæj- arins tóku sér stöðu á stéttinni sunnan við Landsbankahúsið og heilsuðu hinum norsku söng- bræðrum með íslenzkum og norsk um sönglögum, en Aalesunds Mandssangforening svaraði á sama liátt, ■— söng m. a. þjóðsöng íslendinga. Hermann Stefánsson bauð hina góðu gesti velkomna til vinabæjarins Akureyrar, en far- arstjóri þeirra þakkaði. Síðan dreifðust söngmennirnir um bæ- inn til kvöldverðar hjá ýmum borgurum bæjarins, en næturstað- ur var })eim fenginn í Heiinavist Menntaskólans. Samsöngur í Nýja Bíói. Kvöldið eftir, 19. júní, hélt norski kórinn samsöng í Nýja Bíói fyrir fullu húsi. Söng haiín þar 18 lög, sem á söngskránni voru, en auk þess endurtók hann lög og söng aukalag.Söngstjóri er Edvin Solem, en við hljóðfærið var Árni Ingimundarson. Einsöngvari P. Schjell-Jakobsen. Bárust söng- stjóra og lionum blómvendir. Söngur kórsins er allur mjög fágaður og bassarnir sérlega sam- stilltir. Yfirleitt var þýðleiki ráð- andi í þessum samsöng, þótt kór- inn sýndi einnig raddstyrk, t. d. í lögunum Olav Trygvason og Brennið þið vitar, en það vakti hrifningu bæði fyrir söngþrótt og textameðferð. Einsöpgvarinn hef- ir þýða tenór-baryton-rödd, er hann beitir af ótvíræðri smekk- vísi, en lítið reyndi á raddþol eða Skipzf á gjöfum. Bæjarstjórn hafði boð til kvöld verðar að Hótel KEA að sam- söngnum loknum, og sátu hann auk bæjarstjórnar norsku gestirn- ir, Karlakórinn Geysir, sem hafði móttökur kórsins með höndum, ýmsir forvígismenn söng- og tón- listarmála hér í bæ, blaðamenn o. fl., alls um 200 manns. . Framhuld á 6. síðu. Formaður Aalesunds Mandssangforening, Bjarne Korsnes, gróður- setur fyrstu gjafaplöntuna (sitkagreni) í Kjarnaskógi sl. föstudag. — Ljósm. vig. Rekstur Ú.3. frnmvegis n óbgfrgð bnjnrins Á fundi bæjarráðs sl. laugar- dag var svohljóðandi tillaga sam- þykkt: „Þar sem bæjarráð telur, að fullnægt verði þeim skilyrðum, sem sett voru fyrir aðstoð Akur- eyrarkaupstaðar við Útgerðarfé- lag Akureyringa h.f. í bæjarstjórn arsamþykkt þann 20. maí sl., leggur bæjarráð til, að orðið verði við tilmælum Útgerðarfé- lagsins um, að Akureyrarkaup- staður ábyrgist allt að 8 milljón króna lán til 20 ára, sem félagið tekur hjá Landsbaka íslands og ennfremur að bærinn ábyrgist greiðslu á skuldabréfum, sem fé- lagið gefur út til skuldheimtu- manna sinna fyrir allt að kr. 5 milljónir, með 7% vöxtum, og greiðist bréfin upp á næstu 10 ár- um með jöfnurn árlegum afborg- unum. Leggur bæjarráð til, að bæjar- stjóra verði gefið umboð til að undirrita ábyrgðarskjöl í sam- bandi við framanritað og enn- fremur til að undirrita lánsskjöl vegna atvinnubótaláns hjá ríkis- sjóði, að fjárhæð allt að kr. 2 milljónir og ábyrgð eða lán úr atvinnuleysistryggingasjóði allt að kr. 1.000.000.00. Þá verði rekstur Útgerðarfélags ins framvegis, þar til öðruvísi verður ákveðið, með ábyrgð bæj- arins eins og verið hefir undan- farna mánuði.“ Bæjarstjórnarfundur var kvadd ur saman á þriðjudaginn, og var tillaga bæjarráðs samþykkt þar með 9 atkv. gegn 1. Togararnir Kaldbakur kom af veiðum frá Vestur-Grænlandi aðfaranótt mið- vikudags eftir 46 daga útivist. Afli áætlaður ca. 360 til 380 tonn af saltfiski. Svalbakur kom af veiðum til Sauðárkróks 19. þ. m. Landaði þar ca. 290 tonnum af ísvörðum fiski. Fór þaðan í slipp til Reykja- víkur og hefir væntanlega farið þaðan á veiðar í gær. Harðbakur fór á veiðar aðfara- nótt 18. júní.Væntanlegur af veið- um í næstu viku. Sléttbakur kom af veiðum 20. júní. Landaði hér í frystihúsið ca. 273 tonnum af ísvörðum fiski. Fór aftur á veiðar 21. júní. Aðalfundur Fegrunarjél. Akureyrar verður mánudag 30. þ. m. kl. 8.30 að Hótel KEA. — Venjuleg aðalfundar- störf.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.