Íslendingur


Íslendingur - 08.08.1958, Blaðsíða 1

Íslendingur - 08.08.1958, Blaðsíða 1
Aflabrögð tognranno mun meiri en i ijrrs Frá aðalfundi Útgerðarfélags Akureyringa h. f. Aðalfundur Útgerðarfélags Ak-1 inn. Stjórn félagsins er nú skipuð ureyringa h.f. var haldinn í Sam- þessum mönnum: Helgi Pálsson, komuhúsinu þriðjudagskvöldið 5.1 Kristján Kristjánsson forstjóri, þessa mánaðar. Albert Sölvason, Jakob Frímanns- Formaður félagsstjórnar, Helgi | son og Tryggvi Helgason. Sú Púlsson, setti fundinn og nefndi breyting ein hefir því orðið á EiSaskóli á Héraði. Eiðaskóli <5 ára til fundarstjóra Braga Sigurjóns- son ritstjóra, en hann nefndi til fundarritara Pétur Hallgrímsson skrifstofumann. Helgi Pálsson flutti skýrslu fé- lagsstj órnar, þar sem hann rakti rekstur togaranna, hraðfrystihúss- ins og fiskvinnslustöðvarinnar á s.l. ári. Formaður skýrði frá því, að félagið hefði lent í nokkrum fjárhagserfiðleikum á árinu sem leið, en nú gæti hann upplýst, að með hagkvæmum lánum hjá Landsbanka íslands og samning- um við lánardrottna hafi félagið nú getað staðið við allar skuld- bindingar sínar á lánum og lausa- skuldum. Að því loknu las Ólafur Bjarki Ragnarsson útdrátt úr reikning- um félagsins s.l. ár. Niðurstöður reikninganna eru: Rekstrarhalli 1957 kr. 9.343.- 552.39, þar af fyrningaafskriftir kr. 2.269.139.87. Eignir, bókfært verð 42.174.634.03. Fyrningaaf- skriftir frá upphafi 6.710.785.76. Tap án fyrningar frá upphafi kr. 17.882.741.93. Skuldir félagsins 31. des. 1957 kr. 66.768.161.72. Til skýringar á bókfærðu verði má upplýsa, að bókfært verð Kaldbaks er kr. 1.631.844.26. Svalbaks kr. 2.125.566.39. Harð- baks kr. 7.421.125.54. Sléttbaks kr. 5.524.666.74. Fram kom á fundinum tillaga um breytingu á 9. grein félagslaga, og var hún samþykkt einróma. Var þar um að ræða viðbótartil- lögu, og er greinin svohljóðandi í heild (viðbótin með breyttu letri): „Rétt til að sækja fundi félags- ins hafa hluthafar einir, þó geta þeir falið öðrum að fara með at- kvæði sín á fundum. Enginn má þó fara með fleiri atkvæði á fund- um fyrir sjálfan sig og aðra sam- anlagt en Ys hluta samanlagðra atkvæða í félaginu, — þó skal þessi takmörkun eigi gilda um hlutafjáreign Akureyrarkaupstað- ar og stofnana hans.“ "J ! t .1 'A ]-¥i Stjórnarkjör. Bæjarstjórn Akureyrar hafði lagt fram lista til stjórnarkjörs í félaginu, og kom enginn annar listi fram. Var hann því sjálfkjör- stjórninni, að Kristján Kristjáns- son tekur sæti í henni í stað Steins Steinsen fyrrverandi bæjarstjóra, sem fluttur er brott úr bænum. Varastjórn er þannig skipuð: Gunnar H. Kristjánsson, Jónas G. Rafnar, Jón M. Árnason, Gísli Konráðsson og Jóhannes Jósefs- son. Endurskoðendur Ragnar Stein- bergsson hdl. og Þórir Daníelsson. Varamenn Kristján Jónsson full- trúi og Sigurður Kristjánsson. Afli skipanna. í skýrslu sinni gaf formaður félagsstjórnar eftirfarandi upp- lýsingar um afla togaranna á ár- inu 1957: Kaldbakur 3511 tonn, 308 út- haldsdagar. Svalbakur 3355 tonn, 310 út- haldsdagar. Harðbakur 3496 tonn, 268 út- haldsdagar. Sléttbakur 2941 tonn, 296 út- haldsdagar. Utan Akureyrar var landað 3721 tonnum. Til samanburðar gaf formaður Meðan framkvæmdum við flug- vallargerðina innan Akureyrar miðaði bezt áleiðis hér á árunum, taldi Dagur þeim lítt miða og kenndi það þáverandi þingmanni bæjarins, Jónasi G. Rafnar. Að vísu viðurkenndi blaðið svo að segja samtímis, að allt að % hlut- upp tölur um afla skipanna á þessu ári til júlíloka, en hann var sem hér segir: Kaldbakur 2747 tonn, Svalbak- ur 2975 tonn, Harðbakur 3067 og Sléttbakur 3084 tonn. Þessar tölur sýna, að aflabrögð togaranna það sem af er árinu eru miklum mun meiri en í fyrra, og það svo, að einn togarinn, Slétt- bakur, hefir á 7 mánuðum þessa árs aflað meira en á öllu árinu 1957, en hinir nálgast mjög það mark, að hafa aflað jafn mikils og þá. Með tilkomu hraðfrystihússins hefir aðstaða útgerðarinnar stór- batnað. Þar hafa nú verið 6ettar upp 3 flökunarvélar, 2 fyrir karfa og 1 fyrir þorsk. Ef vélar þessar hefðu ekki komizt í gang fyrir síldarvertíð í sumar, er hætt við, að fólksekla hefði háð starfsemi frystihússins verulega. Níldyeiðin hefir gengið treglega að undan- förnu vegna óhagstæðs veðurs á miðunum. Aflahæstu skipin um s. 1. helgi voru Víðir II með 6549 mál og tunnur, Grundfirðingur 5375, Haförn 5338, Jökull 5096, Björg Eskifirði 4914, Þorsteinn þorska- bítur 4882 og Snæfell 4559. ar þess fjár, er varið væri til flug- vallagerða, kæmi í Akureyrar- flugvöll. Nú er Degi vel vært, þótt bygg- ing sú, sem hér birtist mynd af (flugstöðin) standi óhreyfð og ekki hálfköruð ár eftir ár. ------□------ Nú um helgina verður hátíðlega minnst á Eiðum 75 ára afmælis Eiðaskóla, og um þessar mundir kemur út saga skólans, sem Bene- dikt Gíslason frá Hofteigi hefir safnað til og búið undir prentun. Eiðaskóli var fyrst rekinn sem bændaskóli (á árunum 1883— 1918). Fyrsti skólastjóri var Gutt- ormur Vigfússon, síðar bóndi í Geitagerði. Næstur honum varð Jónas Eiríksson, síðar bóndi á Breiðavaði. Aðrir skólastjórar bændaskólans voru: Benedikt Kristj ánsson, bóndi að Þverá í Axarfirði, Bergur Helgason Kirkjubæjarklaustri og Metúsal- em Stefánsson, síðar búnaðar- málastjóri, en hann var síðasti skólastjóri bændaskólans. Árið 1919 er skólanum breytt í alþýðuskóla með sérstakri lög- gjöf frá 1917, eftir að Múlasýslur höfðu afhent ríkinu allar eignir Eiðaskóla með því skilyrði, að það héldi uppi alþýðuskóla á staðnum. Fyrsti skólastjóri hins nýja skóla var sr. Ásmundur Guð- mundsson, nú biskup íslands. Þá tók við sr. Jakob Kristinsson, síð- Siys við bíladrehstor Aðfaranótt síðastliðins þriðju- dags rákust tvær bifreiðar á í nánd við Hof í Arnarneshreppi, á blindri hæð. Bifreiðarnar voru báðar frá Keflavíkurvelli, L 418 og J 65. Auk bílstjórans í L 418 var stúlka, er hlaut veruleg meiðsl við áreksturinn. í hinum bílnum voru tvær konur og karlmaður auk bílstjórans. Allar konurnar voru fluttar í sjúkrahúsið, en ein þeirra fékk að fara heim, eftir að gert hafði verið að höfuðskurði, er hún hafði hlotið. Báðar bifreiðarnar eru nær ó- nýtar eftir áreksturinn. Hvorugur bílstjórinn var undir áfengisáhrifum. ar fræðslumálastjóri, en síðan Þórarinn Þórarinsson cand. theol. frá Valþjófsstað, sem verið hefir skólastjóri sl. 20 ár. Síðustu ,árin hefir Eiðaskóli verið héraðsgagnfræðaskóli með bóknáms- og verknámsdeild til landsprófs og gagnfræðaprófs. Mörg undanfarin ár hefir hann verið fullsetinn, og hefir orðið að neita umsækjendum um skólavist í vaxandi mæli vegna þrengsla. Þeir eru orðnir margir, sem hlotið hafa undirstöðumenntun í Eiðaskóla, sem reynzt hefir þeim notadrjúg, er út í lífið kom. Margt Eiðamanna skipar nú þýðingar- miklar opinberar trúnaðarstöður víðs vegar um land. Norðnrlandsmót í frjálsíþróttum Um helgina 9. og 10. ágúst verður háð hið árlega meistara- mót fyrir Norðurland í frjálsum íþróttum. Mótið fer fram á Akur- eyri. Búizt er við mikilli þátttöku að þessu sinni og er væntanlegum keppendum á það bent, að til- kynna þátttöku sína í tæka tíð og til réttra aðila. Keppni hefst á laugardag kl. 2 e. h. og verður þá keppt í 100 m. og 1500 m. hlaupi og ennfremur 1000 m. boðhlaupi. Einnig í þrístökki, kringlukasti og hástökki karla og kvenna og 80 m. hlaupi kvenna. Á sunnudaginn hefst svo keppn- in fyrir hádegi með 110 m. grindahlaupi og langstökki ‘ karla og kvenna. Eftir hádegi sama dag verður keppt í 400 m., 3000 m., 4x100 m., stangarstökki, spjót- kasti, kúluvarpi og kringlukasti kvenna. — Ungmennasamband Eyjafjarðar sér um mótið. Mót- stjóri verður Ingimar Jónsson. Hwað «l\elur ?

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.