Íslendingur


Íslendingur - 08.08.1958, Qupperneq 8

Íslendingur - 08.08.1958, Qupperneq 8
ÍSLENDINGUR fæst í Söluturninum Hverf- isgötu 1, Reykjavík. Föstudagur 8. ágúst 1958 íslendingur kostar hér eftir kr. 1,50 í lausasölu. n Ekki verSur messað í Akureyrar- arkirlcju á sunnudaginn vegna presta- fundarins að Hólum og á Sauðárkróki, og verða sóknarprestarnir fjarverandi frá því á laugardagsmorgun til mánu- dags. Fertugur varð 29. júlí síðastliðinn Pétur Hallgrímsson skrifstofumaður hjá Utgerðarfélagi Akureyringa h.f. Dánardœgur. Látinn er að heimili sínu, Reynimel 25 Reykjavík, Isleifur Oddsson trésmiður, er lengst ævi sinn- ar bjó hér á Akureyri (síðast í Glerár- götu 7). ísleifur var hinn vandaðasti maður í öllu dagfari og vann sér vin- sældir samborgara sinna. Hann var 84 ára gamall. Grundarþingaprestakall. Séra Benja- mín Kristjánsson verður fjarverandi um tveggja mánaða skeið og munu ná- grannaprestarnir gegna prestsverkum fyrir hann á meðan. Þeir, sem kynnu að þurfa á vottorðum að halda úr em- bættisbókum, snúi sér til séra Péturs Sigurgeirssonar, Akureyri. Hjúskapur. 26. júlí voru gefin saman í hjónaband Gerður Benediktsdóttir, Eyrarlandsvegi 12, Akureyri, og Jón Þorláksson, bóndi að Skútustöðum. Heimili þeirra verður að Skútustöðum. — 1. ágúst gengu í hjónaband ungfrú Hildur Jónsdóttir og Jón Stefánsson, skrifstofumaður. Heimili þeirra er í Oddagötu 26, Akureyri. — í gærkvöldi voru gefin saman í hjónaband brúð- hjónin ungfrú Svanhildur Ólöf Magn- úsdóttir frá Jódísarstöðum og Bjarni Steinar Konráðsson, iðnfræðinemi. Þau munu dvelja í Stokkhólmi næsta vetur. — Hinn 20. júlí sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú Svava Kristín Svavarsdóttir, Brekku- götu 2, Akureyri, og Gissur Jónasson, Lyngholti III, Glerárhverfi. Heimili þeirra verður að Lyngholti III. — 2. ágúst s. 1. voru gefin saman í hjóna- band í Akureyrarkirkju ungfrú Jónína Maggy Þorsteinsdóttir og Axel Björn Clausen Jónasson, verzlunarmaður. Heimili þeirra er að Norðurgötu 50, Akureyri. Dánardægur. Nýlega er látinn að heimili sínu hér í bæ Vigfús Einarsson bókhaldari, rúmlega fimmtugur að aldri. — Vigfús var sonur hjónanna frú Marenar Vigfúsdóttur og Einars Gunn- arssonar verzlunarstjóra og kaupmanns. Hafði hann lengstaf bókfærslu með höndum, og var síðustu árin starfsmað- ur hjá Bílasölunni h.f. Þótti Vigfús mjög fær í sinni starfsgrein. Hann var einhleypur. F.F.A. 8. ferð 9.-10. ág. Þorvaldsdalur. Ekið að Fomhaga. Gengið um Þor- valdsdal að Kleif. Á sunnudag kemur bifreið þangað. Heim um Árskógs- strönd. Tveggja daga ferð. Þátttaka til- kynnist Jóni D. Ármannssyni, sími 1464. Bœjarverkfrœðingur verður í sumar- leyfi dagana 12.—23. þ. m. Erlendir gestir á vinabœjamótinu. Myndin er tekin í Lystigarðinum 19. júlí. Talið frá vinstri til hœgri: S. Krabbe-Knudsen, frú Olsson, Asger Jensen, Gustaf Olsson, Anton Möller Nielsen, frú Nielsen, Olavi Kokko, Thjelvar Hedberg, Dagfinn Flem, E. 0. Castberg, Olavi Kajala, S. Tingholm, Gösta Sjöberg. — Ljósm.: E. Sigurgeirsson. Fulltiúar vinabæja heimsækja Akureyri *«! £>» '<** & -j íi . Skoðuðu fegurstu staði á Norðurlandi björtustu sumardagana í sambandi við heimboð nor- rænna gesta á vegum Norrænu fé- laganna á íslandi, efndi bæjar- stjórn Akureyrar til Vinabæja- móts hér í bæ dagana 18.—22. júlí s.l. Sóttu mótið 11 fulltrúar frá vinabæjum Akureyrar á Norð- urlöndum, og voru það einkum bæjarstjórar, forsetar bæjar- stjórna eða formenn bæjarráða. Tveir fulltrúar komu frá Lathi í Finnlandi, 4 frá Vásterás í Sví- þjóð, 2 frá Álasundi í Noregi og 3 frá Randers í Danmörku. Frá Álasundi: Dagfinn Flem, ritstjóri, forseti bæjarstjórnar Álasunds, S. Krabbe-Knudsen, bæjarstjóri. Frá Lathi: Olavi Kokko, for- stjóri, bæjarfulltrúi, Olavi Kajala, bæjarstjóri. Frá Randers: S. Tingholm, borgarstjóri, Asger Jensen, þing- maður og varaborgarstjóri, E. 0. Castberg, bæjarframkvæmdarstj. Frá Vásterás: Gösta Sjöberg, forseti bæjarstjórnar, Gustaf Ols- son, forseti bæjarráðs, Thjelvar Hedberg, bæjarstjóri. Auk þess tók þátt í mótinu frú Olsson frá Vásterás og gestir Nor- ræna félagsins hér, lektor Anton Hœsti vinningur í 7. flokki Happ- drættis Háskóla íslands kom á heilmiða í Akureyrarumboði. Var vinningurinn 100 þúsund krónur og númer miðans 31116. Dánardœgur. I fyrrakvöld andaðist í sjúkrahúsi í Reykjavík Bjami Vil- mundarson verkstjóri, Fjólugötu 2 hér í bæ, 63 ára að aldri. Möller Nielsen og frú frá Randers. Gestirnir frá vinabæjunum komu hingað með flugvél 18. júíí, og var flestum þeirra fenginn dvalarstaður að Hótel KEA. Þann dag höfðu þeir að mestu til frjálsra umráða. Laugardaginn 19. júlí sátu þeir árdegis fund með bæjarstjórn Akureyrar í bæjarstjórnarsalnum, og var umræðuefni fundarins um möguleika á gagnkvæmum heim- sóknum milli Norðurlandanna og þá sérstaklega vinabæjanna og samstarf vinabæjanna í framtíð- inni. Síðdegis sama dag var aftur komið saman í bæjarstjórnarsaln- um. Sagði þá Friðrik Magnússon hdl. gestunum ágrip af sögu Ak- ureyrar, en Ásgeir Valdimarsson bæjarverkfræðingur skýrði þeim frá yfirstandandi framkvæmdum og fyrirhuguðum á vegum bæjar- ins. Að þeim fundi loknum var ekið um bæinn undir leiðsögn bæjarverkfræðings. Um kvöldið var kvikmyndasýning. (íslenzkar litmyndir.) Sunnudaginn 20. júlí var farið austur í Mývatnssveit og Náma- skarð, að Laxárvirkjun og upp í Reykj ahverfi, þar sem tókst að koma á allgóðu gosi úr einum hvernum. Þótti gestunum það eitt hið furðulegasta, er fyrir þá bar hér nyrðra. Mánudaginn 21. júlí, árdegis, var gestunum sýnt hraðfrystihús- ið, hafnarmannvirkin og Krossa- nesverksmiðjan. Að loknum há- degisverði var farin hringferð um Eyjafjörð. Skoðuðu gestirnir Nonnahúsið, Grundar- og Saur- bæjarkirkju og drukku síðdegis- kaffi að Freyvangi. í heimleið var staðnæmst í Gróðrarstöðinni, þar sem Árni Jónsson tilrauna- stjóri tók á móti gestunum og skýrði þeim í stórum dráttum frá starfseminni þar og árangri henn- ar. Um kvöldið var kveðjuhóf fyr- ir gestina að Hótel KEA, og sátu það um 90 manns. Stýrði Magn- ús E. Guðjónsson bæjarstjóri hóf- inu, en Jakob Frímannsson bæj- arráðsmaður ávarpaði gestina af hálfu bæjarstjórnar og Jóhann Þorkelsson héraðslæknir af hálfu Norræna félagsins. Fluttu margir gestanna stutt ávörp og afhentu bæjarstjóra ýmsar vinagjafir frá vinabæjunum til Akureyrar sem minjagripi um þetta fyrsta vina- bæjamót og vott einlægrar vin- áttu. Lýstu þeir allir ánægju sinni yfir dvölinni hér og þeirri sér- kennilegu náttúru, er þeir hefðu fengið að skoða á Norðurlandi. Daginn eftir héldu gestirnir til Reykjavíkur. Alla dagana, sem gestirnir dvöldu hér, blöktu fánar Norður- landaþjóðanna á Ráðhústorgi og torginu við Hótel KEA. Veðrið var mjög ákjósanlegt, flesta dag- ana sólskin og heiður himinn og alltaf þurrt veður. í móttökunefnd störfuðu bæj- arstjórinn, Helgi Pálsson og Jak- ob Frímannsson (Stefán Reykja- lín í forföllum hans), og höfðu þeir mestan veg og vanda af mót- tökunum, ásamt verkfræðingi bæjarins, Ásgeir Valdimarssyni. Ánnáll íslendings JÚLÍ : Blóma- og trjáræktarkonan þjóð- kunna, Guðbjörg Þorleifsdóttir að Múlakoti í Fljótshlíð andast að heimili sínu 88 ára gömul. □ Leigubílstjóri í Reykjavík, Gísli Öl- ver Guðmundsson (Gíslasonar skóla- stjóra) verður bráðkvaddur í bifreið sinni, 23 ára gamall. □ Eldur kemur upp í fiskimjölsverk- smiðju á Eyrarbakka og veldur miklu tjóni á mjölbirgðum og raflögnum, svo að verksmiðjureksturinn stöðvast um ó- íyrirsjáanlegan tíma. Sjálfsíkveikja í mjölinu talin valda. □ Guðjón M. Guðlaugsson frá Grinda- vík dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur í 16 ára fangelsi fyrir morð á unnustu sinni síðastliðinn vetur. □ Hallgrímur Pétursson vélgæzlumaður í Fiskiðjunni Vestmannaeyjum brenn- ist lífshættulega, er þrýstivél springur og fljótandi ammoniak spýtist á hann úr sprungunni. □ Hjúkrunarkona úr Reykjavík, Líney Sigurbjörnsdóttir, slasast til bana, er bíll veltur út af Hafnarfjarðarvegi á mikilli ferð. Bílstjórinn, Óli G. Laxdal, meiddist talsvert. □ Tveir menn á ísafirði skaðbrennast, er stórsprenging varð í vélarúmi á bát, þá er þeir opnuðu súrefnishylki. □ Þorsteinn Jónsson vélstjóri bíður bana í síldarþró í Neskaupstað, er skil- rúm í þrónni springur, og grófst hann undir síldinni. Hann var 24 ára, kvænt- ur og átti 2 börn. □ Vörubifreið veltur út af veginum á Jökuldal. Helgi Jónsson bóndi að Stuðlafossi, er var farþegi í bifreiðinni, bíður bana. Aðra sakaði lítið sem ekki. □ Tveggja ára drengur að Tungu i Fróðárhreppi Snæfellsnessýslu, drukkn- ar í ósi rétt neðan við túnið. □ Magister Þórhallur Þorgilsson bóka- vörður við Landsbókasafnið verður bráðkvaddur að heimili sínu i Reykja- vík, 55 ára gamall. □ Ragnlieiður Jónasdóttir hlýtur titil- inn „Miss Adria“ í fegurðarkeppni á Ítalíu. Hún er 18 ára verzlunarskóla- stúdent, dóttir hjónanna Ragnheiðar Hafstein og Jónasar Sveinssonar lækn- is. □ Maður á Akranesi, Bjarni Oddsson, fellur úr stiga við hús sitt niður á steyptar tröppur og rotast til bana. Hann var kvæntur og átti 2 börn. □ Bærinn að Brandsstöðum í Blöndu- dal Austur-IIúnavatnssýslu brennur til grunna ásamt all-miklu af innbúi bænd- anna, Sigmars og Sigurjóns Ólafssona.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.