Íslendingur - 30.04.1968, Side 1
1. MAÍ ÁVARP
verkalýðsfélaganna u Akureyri
NÚ, eins og jafnan áður, helga vinnandi nienn um heim all-
an 1. maí báráttu sína fyrir bættum kjörum og réttlátara
þjóðskipulagi. Alþýða manna og samtök hennar fagna unnum
sigrum, en líta jafnframt fram á leið til hinna mörgu óleystu
viðfangsefna og baráttumála komandi tíma.
Helmingur af íbúum jarðar býr nú við skort brýnustu
matvæla, hungur, fáfræði og sjúkdóma, og kynþáttamisrétti
færist í aukana. Bilið á milli vanþróaðra ríkja og hinna þró-
uðu iðnaðarlanda vex, gjáin milli hinna auðugu og hinna
fátæku þjóða breikkar og slík öfugþróun ógnar friði í heim-
inum i æ ríkara mæli. Þvl rísa kröfur alþýðunnar um heim
allan, um efnahagslegt réttlæti þjóða í milli, hærra nú en
nokkru sinni fyrr, um afnám kynþáttamisréttis, um frið og
allsherjar afvopnun, um afnám allía hernaðarbandalaga. Is-
lenzk verkalýðshreyfing styður þessar kröfur hinnar alþjóð-
legu hreyfingar og krefst þess, að fulltrúar íslands á alþjóða-
vettvangi geri þær að sínum.
Hérlendis eru þau verkefni brýnust, að tryggja atvinnuör-
yggi og viðunanleg lífskjör með 40—44 stunda vinnuviku.
Tafarlaust verður aö útrýma því atvinnuleysi, sem hefur ver-
ið viðvarandi um skeiö, og hefja framsýna uppbyggingar-
stefnu atvinnuveganna til vegs. Skýrslur sanna, að árgangar,
sem bætast á vinnumarkaðinn næsta áratuginn, eru fast aö
helmingi fjölmennari en þeir, sem bættust við síöasta ára-
tuginn. Hér þarf því stórfellt og markvisst átak að koma til,
ef vá á ekki að verða fyrir dyrum á næstu tímum.
Með bættu skipulagi atvinnuveganna, er unnt að stytta
þann óhóflega langa vinnudag, sem hér hefur tíðkazt, og
bæta svo launakjör, að þau færi vinnandi fólki lífvænleg
laun, engu að síður. Að því ber verkalýðssamtökunum að
stefna með kjarasamningum, samhliða fræðslu og áróðri í
verkalýðsfélögunum, sem sannfæri menn um, að yfirvinna
umfram dagvinnu sé ekki einasta skaðleg heilsu og hagsmun-
um verkafólks, heldur ósamboðin frjálsri og siðmenntaðri
verkalýðsstétt.
I. maí nefnd verkalýðsfélaganna á Akureyri hvetur allt
vinnandi fólk til þess, að sýna hug sinn til hinna alþjóðlegu
krafna verkalýðshreyfingarinnar, jafnt sem hinna sérstöku, er
íslenzk verkalýðshreyfing gerir sér til handa, með þvi, að
taka virkan þátt í hátíðahöldum dagsins, sækja samkomur
félaganna og bera merki dagsins í barmi.
I. maí nefnd verkalýðsfélaganna á Akureyri.
VORGALSI í SJÓFUGLUNUM Á AKUREYRARPOLLI
Þessi symfónía, sem Friðrik Vestmann for-
stjóri Pedro festi á filmu við Akureyrarpoll
á dögunum, er um vorgalsa sjófuglanna, cins
og sjá má. Á pappírnum er þetta þögul
symfónía, en í reynd er hún óneitanlega
hljómmikil og mergjuð, hvað sem um fcgurð
ina má segja.
Og fyrst minnzt cr á vorið og dýrin, má
gjarnan minna kaupstaðarbömin *á, að senn
fara kýrnar skvettandi úr fjósunum og að
„bráðum fæðast lítil iömb, leika sér og
hoppa“.
Akureyringar kynna norienzkan sjávarútveg
— á sjávarútvegsssýningunni „Islendingar og hafið" i sumar
□ Á fundi, scm atvinnumála-
nefnd Akureyrarbæjar hélt með
nokkrum fulltrúum atvinnufyr-
Dr. Bjarni
Benediktsson
forsætisráðherra
sextugur í dag
Dr. Bjarni Benediktsson for-
sætisráðlicrra, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, á sextugsafmæli
í dag, þann 30. apríl.
Hann hefur á fjórða áratug
gegnt ýmsuin af helzlu forystu-
embættum í þjóðfélaginu, þar
Framh. á bls. 7.
irtækja á Akureyri nú nýlega,
var ákveðið að Akureyringar
tækju þátt i sjávarútvegssýning-
unni „lslendingar og hafið“,
= UNDANFARNA mánuði ltef-
E ur virkjun gufunnar í Náma-
= skarði við Mývatn til raf-
E orkuframieiðslu verið ntjög á
scin haIdin vcrður í Reykjavík
í suntar. Ætlunin mun hafa vcr-
ið, að Norðlcndingafjórðungur
samcinaðist um deild á sýning-
dagskrá, eftir að Sveinn Ein-
arsson verkfræðingur upplýsti
um hugsanlega hagkvæmni
slíkrar framkvæmdar í saman-
unni, cn ekki mun hafa verið
nægilegur áhugi á því hjá
heimamöunum. Forráðamenn
sýningarinnar buðu því atvinnu-
burði við vatnsaflsvirkjanirn-
ar. Rafmagnsveitur ríkisins
ltöfðp mikinn áhtiga á málinu
og könnuðu það, m.a. með ferð
málanefndinni að ráðstafa sýn-
ingardeildinni, og verða það því
Akureyringar einir, sem taka
Framh. á bls. 6.
yfirntanna stofnunarinnar
austur í Mývatnssveit fyrir
skömmu. Nú hefur stjórn Lax-
Framh. á bls. 7.
iiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiimimiiiiiiimiiiiiiiimimmimmiiimmiiiiuiimimmiiiiimiiimmmiimiimnmimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimmiimimmiiiii
= Laxárvirkjun seinkað um eitt til tvö ár:
| Gufuraforkuver reist við Námaskarð
| — fyrsta gufuknúna raforkuverið á landinu
=mmmmmmimimimiimimmmmiii