Íslendingur - 07.05.1968, Page 7
L>i 11111111111111111111111111111111111 '• 1111111 u 111111 i 1111111111111II11111 (S11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 iíi
=Jón Hafsteinn menntaskólakennari færir út kvíarnar í kommúnistauppfræðslunni, prédikar nú í-------------------------------------------------------------„De'gi“!E
Nýkomið
GÖNGUGRINDUR
BRÚÐUVAGNAR
HLIÐARTÖZKUR
SIPPUBÖND
ÞYRLUR
SVIFFLUGUR
SUNDHRINGIR
SUNDGLERAUGU
SÓLGLERAUGU
Leikfangamarkaðurinn
LEIKFÉLAG
AKUREYKAR:
„ÓVÆNT
HEIMSÓKN#/
eftir J. B. Priestley.
Leikstjóri:
Gfsli Halldórsson.
Sýningar fimmtudag,
laugardag og sunnudag
kl. 8.30.
Aðgöngumiðasalan er opin
daglega kl. 14—17.
NÝ SENDING
KIÓLAEFNA
Verzlunin RÚN
HLUTUR MA ENN OBÆTTUR
Jón Hafsteinn Jónsson mennta-
skólakennari, sá sem upplýst
er að hafi staðið fyrir skipu-
lagðri kommúnistauppfræðslu
meðal mcnntaskólanema í frí-
stundum sínum og stjórnað
fæðingu fyrsta afsprengis
þeirrar klíkustarfsemi á opin-
berum vettvangi, skrj/ar pistil
í „Dag“ á laugardaginn, þar
sem hann gerir tilraun til að
slá ryki í augu manna í þcssu
sambandi. Sá málflutningur
og ummæli hans um þá, sem
fordæmt hafa gerðir hans
gagnvart ncmendum og sak-
lausum bömum á Akureyri,
sýnir og sannar, svo að ekki
verður um villzt, að „tslend-
ingur“ hefur hitt naglann ná-
kvæmlega á liöfuðið í skrifum
sínum.
Jón Hafsteinn reynir ekki'
að færa rök gegn neinu af því,
sem blaðið hefur sagt um mál-
ið. Og hann fær að sjálfsögðu
engu hnekkt. Frýjunarorð
hans lætur blaðið sem vind um
eyrun þjóta, cnda falia þau
hvert um annað þvcrt.
En Jóni Hafsteini tekst ann-
að. Honum tekst að fá „Dag“
til að koma kommúnistaboð-
skapnum á framfæri, og það
undir þvi yfirskini, að hann
„hafi taiið vafasamt að hann
hefði í önnur hús að venda
með yfirlýsingu sína“. Á það
hefur aldrei reynt. Jón Haf-
steinn hefur aldrei óskað eftir
því, að „íslendingur" birti „yf-
irlýsingu“ þessa.
Það er athyglisvert, að þessi
harðsvíraði kommúnistapréd-
ikari skuli telja „Dag“ sitt sið-
asta skjól. Og þá ekki síður,
að „Dagur“ skuli reynast
traustsins verður.
Hann gengur jafnvel enn
lengra og kórónar þátt sinn í
málinu með því að lýsa yfir,
að hann taki ekki afstöðu tii
þess. Cr því scm komið er,
hefði „Dagur“ einnig mátt láta
þess getið, að hann hefur ekki
heldur séð ástæðu til að flytja
neinar fréttir af viðburðum í
sambandi við þetta mál, sem
þó eru búnir að vera á vörum
flestra bæjarbúa um skeið. Það
er heldur einkenniiegt frétta-
mat. Eða er fréttaþjónusta
„Dags“ svona gloppótt?
Einkennin á „yfirlýsingu"
Jóns Hafsteins í „Degi“ eru
þau, að annars vegar sakar
hann ritstjóra „Islendings“,
formann Aiþýðubandalagsins á
Akureýri, fréttaritara „Morg-
unbiaðsins" og ritstjóra
„Verkamannsins" um ógnvekj-
andi „mcnningar- og hugará-
stand“, „heimsku", „annarleg-
ar hvatir" og „smáborgaravið-
horf“ m.m., en hins vegar, að
hann itrekar rækilega innihald
margnefnds Vietnam-bréfs
Æskulýðsfylkingarinnar í
Reykjavik .
Eh Jón Hafsteihn lýsir einn-
ig sínu eigin „menningar- og
hugarástandi.“ Hann segir. að
Victnam-bréfin frá Tjarnar-
götu 20 „innihaldi hlutlægar
upplýsingar“, en það kallar
hann „þjóðarmorð það, sem
Bandarikjamenn eru að fremja
í Vietnam“. Hann skýrir einn-
ig frá því, að það hafi verið
af ásettu ráði, sem hann stóð
fyrir því ásamt einum sam-
kennara sínum, skv. uppl.
form. Alþýðubandalagsins, að
einmitt blaðburðarböm v Mbl.
voru elt uppi og fengin til að
dreifa Vietnam-bréfinu. Þar
mcð sannar hann á sig þá and-
styggð, að hafa misnotað sér
sakieysi og greiðvikni bama
til að láta þau óafvitandi taka
þátt í annarlegri árás á vinnu-
veitanda sinn.
Það er hæfiiega vel til fund-
ið hjá Jóni Hafsteini, að enda
grein sína á því, að málið sé
þar með útrætt af hans hálfu.
Þessi grein hans segir nefni-
lega nákvæmlega ekkert um
það sem mestu máli skiptir, þá
hneisu sem Menntaskólinn og
kennaraliðið liggur undir,
vegna tómstundastarfs Jóns
Hafsteins og félaga. Með því
að láta hjá líða, að hreinsa
skólann og saklausa samstarfs-
menn sína af frekari tengslum
við kommúnistastarfsemina,
lætur hann sér sæma, að halda
áfram að fótumtroða sæmd
þcssara aðila. Og það er með
ólikindum, ef þeir una slíku.
N.B. Það er athyglisverð
getgáta hjá Jóni Hafsteini, að
jafn kunnugur aðili og Halldór
Blöridál, sem til skamms tíma
kenndi í MA, sé höfundur frá-
sagna „íslendings". Hún er þó
út 1 hött.
nimiiimmmmiimmimmiummunimiiiiiiiNimmnmmiiMmNimmNmiiinmimmMiiMimmiummmimmiiiiiíimimiiimimimmimmmiimTi
SELLUSTARFSEMI —
Framliald af bis. 8.
eins og hún sé starfrækt innan
Menntaskólans. Þætti okkur
fróðlegt að vita við hvað grein-
arhöf. á með þessum dylgjum.
Einnig væri fróðlegt að vita,
hvaðan greinarhöf. hefur heim-
ildir sínar um sendimennina
frá Tjarnargötu 20. í öllu falli
er ekki flugufótur fyrir þeim,
því af öllum þeim hópi, sem
sótt hafði samræðufundina fram
yfir dreifingu bréfsins, var eng-
inn af hvatamönnúnum Reykvík-
ingur. Varðandi stóra glæpinn,
setu Einars Olgeirssonar á
Strætisvagnafargjöld
Frá og vieð 2. maí verða fargjöld sem liér segir:
Einstakar ferðir fyrir fullorðna .kr. , 8.00
Einstakar ferðir fyrir börn .. — 4.00
22 miðar fyrir fullorðna . — 125.00
20 miðar fyrir börn....... — 50.00
20 miðar fyrir skólafólk . — 75.00
STRÆTISVÁGNAR AKUREYRAR.
fundi hj áokkur, efumst við stór-
lega um, að forráðamönnum Is-
lendings finnist það í rauninni
athugavert, að hópur ungra á-
hugamanna um þjóðmál noti sér
komu jafn reynds stjómmála-
skörungs og Einars.
Þær stoðir, sem greinarhöf.
notaði undir þá kenningu sína,
að harðsvíruð kommaklíka væri
hert upp í hatramma baráttu
gegn Hanníbalistum, eru falln-
ar. Furðuskrif Islendings hafa
verið vegin, metin og léttvæg
fundin. Öll bera þau vott um
vanþekkingu og gremju. Slíkar
Nýkomið
Dönsk
PEYSUSETT
Dralon
GOLFTREYJUR
verð kr. 485.00.
Verzl.
ASBYRGI
kenndir fá oft útrás i lágkúru-
legri blaðamennsku.
Fyrir hönd hlutaðeigandi.
Pétur Þorsteínsson“.
Það athyglisverðasta við
grein þessa er að sjálfsögðu,
eins og áður segir, viðurkenn-
ingin á sellustarfseminni. En
hún ber einnig vott um helzt til
einhliða uppfræöslu ungling-
anna um þau málefni, sem þeir
fjaila um, og ekki sízt gefur
hún tilefni til að álíta, að mat
þeirra á áróðri kommúnista sé
orðið full trúarlegs eðlis.
Það, er fremur undarlegt, að
véfengja tengsl seilunnar við
Tjarnargötu 20, þegar í grein-
inni er viðurkennt að nokkrir
þcirra, sem mætt hafa á fund-
um hennar, hafi unnið að dreif-
ingu Vietnam-bréfsins, en það
kom beint frá Tjamargötu 20
og var rækilega merkt föður-
húsunum.
Það er einnig dálitið ein-
kennilegt, að láta sem það sé
fráieit ásökun að segja Vietnam-
bréfið hlaðið „hinum hroðaleg-
ustu ásökunum á Bandaríki
Norður-Ameríku“, þegar í bréf-
inu standa ásakanir á Banda-
ríkjamenn um að brytja niður
sakiausa borgara í stórum stíl
og stefna að „þjóðarmorði“.
Um tilganginn með eflingu
kommúnistastarfseminnar hér á
Akureyri þarf ekki að fjölyrða
frckar en gert hefur verið. Við-
tökur Hannibalista eru órækur
vitnisburður í því sambandi.
Hins vegar má vel vera, að for-
sprökkunum hafi láðst að skýra
þetta atriði fyrir nemendunum.
Að öðm leyti er ekki frekara
tilefni tii umræðna um þetta
leiðinda mál að sinni. Vonandi
vcrður það sem fyrst úr sög-
unni, ef ekki fyrir tilstilli
þeirra, sem verja eiga sæmd
Menntaskólans, þá fyrir samtök
nemenda um að upræta af sinni
hálfu hlutdeild að kommúnista-
seliu kennaranna tveggja.
Akureyringar!
Ung, reglusöm stúlka óskar að taka herbergi með
aðgangi að eldhúsi á leigu frá byrjun september.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 12042 eða
21042.
LÆKNAÞJÓNUSTA
NÆTURVAKTIR A AKUREYRI
hefjast kl. 17 og standa til kl.
8 morguninn eftir.
• Þessir læknar hafa næstu
næturvaktir: 7. Sigurður Óla-
son, 8. Guðmundur Magnús-
son, 9. Baldur Jónsson, 10.
Jónas Oddsson, 11. og 12. Er-
lendur Konráðsson, 13. Jónas
Odd^son, 14. Baldur Jónsson.
LYFJABUÐIR
LYFJABUÐIRNAR A akur
EYRI eru opnar sem hér seg-
ir: A virkum dögum eins og
verzlanir, en eftir það er vakt
I annárri lyfjabúðinni i senn
á timunum kl 18—19 og kl
21—22. A Jaugardögum er
vakt til kl. 16 og aftur kl 20—
21. A sunnudögum er vakt kl
10—12, kl. 15—17 og kl. 20—
21
\ Vaktir þessa viku hefur
Stjörnu-Apótek, sími 11718, en
næstu viku Akureyrar-Apótek,
sími 11032.
• Upplýsingar um vaktir
lækna og lyfjabúða eru gefn-
ar i slma 11032 allan sólar-
hringinn.
MESSUR '
AKUREYRARKIRKJA. Messa
n.k. sunnudag kl. 14. — P.S.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA.
Messa n.k. sunnudag kl. 10.
Ferming. — P.S. Messa sama
dag kl. 14. Ferming. — B. S.
ÝMSAR TILKYNNINGAR
Frá Halldóri Halldórssyni lækni.
Verð fjarverandi mal—ágúst.
Staðgengill í mai og júní:
Brynjólfur Ingvarsson. Við-
talstími á stofu minni kl. 13—
14.30, nema laugardaga 1 maí
kl. 13—13.0. Sími utan viðtals-
tíma3 11041, Staðgengill i júlí
og ágúst: Guðmundur T.
Magnússon. Viðtalstími á stofu
minni á mínum venjulega við-
talstíma. Simi utan viðtals-
tíma 21363.
7 ISLENDINGUR