Íslendingur


Íslendingur - 27.06.1974, Síða 6

Íslendingur - 27.06.1974, Síða 6
Lánamál bænda i ólestri — Viðtal við Benjamín Baldursson á Ytri-Tjörnum 10 manns á framboðslista Sjálfstæðisflokksíns Benjamín Baldurs. skipar 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokks- ins í þessum kosningum. Hann býr með föður sínum Baldri á Ytri-Tjörnum. íslendingur ræddi lítillega við hann um þjóðmálin og var í fyrstu rætt um hin nýju lánakjör Stofn- lánadeildarinnar: — Lánamál bænda eru nú í algjörum ólestri, — lánveit- ingar hafa dregist mjög úr hófi fram og nú er búið að vísitölutryggja lánin. Ég veit ekki hvernig bændum líst á það, — núna á þessum tímum óðaverðbólgu og dýrtíðar. Það verður vissulega erfiður ráð- ur. Er þetta enn eitt dæmið um, hvernig stjórnarstefnan Lögregla 1-22-22 Slökkvilið' 1-22-00 Sjúkrabílf 1-22-00 CJpplýsingar um vaktþjónustu lækna og apóteka 1-24-45 GJAFIR Áheit á Möðruvallakirkju frá S.B. kr. 200 Kærar þakkir — Bjartmar Kristjánsson. hefur rúið alla fjárfestingar- sjóði landsmanna að fé. Þá eru niðurgreiðslurnar litlu betri, þær eru orðnar allt Benjamín flytur ávarp á rabb- fundi ungra kjósenda á Húsa- vík. of miklar og óskynsamar. Þess ar miklu sveiflur á búvöru- verði koma bændum illa, og þéss utan vita allir að þeim verður hætt stuttu eftir kosn- ingar. Ég skil ekki, að það geti leitt til velfarnaðar að selja landbúnaðarafurðir fyrir fjórðung framleiðsluverðsins, og það á alls eklci að nota land búnaðarvörum sínkt og heilagt til þess að falsa vísitöluna. Og þess utan niðurgreiðslurnar einungis á hluta landbúnaðar varanna og þær raslca því eðli legu- hlutfalli milli einstakra afurða. Þeir bændur, sem fram leiða vörur sínar utan niður- greiðslna eru settir í erfiða stöðu með sölu sinna afurða. Þá vil ég geta þess, að ég hef alltaf verið óánægður með það, að kaup bænda sé alltaf að hluta greitt á næsta ári eftir að þeir framleiða vöruna, og hitt kemur svo ekki inn fyrr en eftir dúk og disk. Aðrar stéttir sættu sig tæpast við þennan gang mála. — Hvað viltu segja um varnarmálin? — Uppsögn varnarsamn- ingsins er alls ótímabær eins og málin standa í heiminum í dag. Tillögur Einars Ágústs- sonar eru fálmkenndar og virð ast fyrst og fremst gerðar til þess að friða alla aðila, bæði þá sem eru með vörnum og eins hina, sem vilja öryggis- leysið. Hins vegar eru innan Framsóknarflokksins mjög stór hópur manna, sem vill hafa hér varnir. Ég veit ekki, hvort Einari tekzt að lconu sínum tillögum fram, en ég ráðlegg því fólki, sem vill var ið land að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn, — hann hefur mark að sér ákveðna stefnu og ó- tvíræða í varnar og öryggis- málum og það vita allir. Það er óljóst nú, hvað Fram sóknarmenn verða eftirlátir við kommúnista, ef vinstri stjórn verður áfram, — það bland ast engum hugur um, að hing að til, hafa forystumenn þeirra verið allt of eftirgefanlegir við kommúnistana. — Þú telur að kosið verði um varnarmálin? — Ég er í engum vafa um það. En það verður ekki síð- ur lcosið um efnahagsmálin. Menn hafa nú rekið sig á það að minnsta kosti þrisvar, að vinstri menn ráða ekki við efnahagsmálin. Veikleiki þeirra er fyrst og fremst sá, að þeir gefa allt of mikil og óraunhæf loforð, sem vonlaust er að standa við. Og síðan þarf Sjálfstæðisflokkurinn að koma til hjálpar og rétta þjóðar- skútuna af á ný. Ég tel full- komna nauðsyn á því, að svo verði einnig nú. Þess vegna er það nauðsyn- legt, að allir þeir fjölmörgu sem vilja þjóðinni vel, standi nú saman án tillits til flokks- banda og kjósi Sjálf stæðisflokkinn og stuðli þann- ig að nýrri uppbyggingu og framförum til sjávar og sveita. ÁRNAÐ HEILLA 75 ára varð 20. þ.m. Páll Sig- urðsson kennari Gilsbakka- vegi 5, Akureyri. Fimmtugur verður 28. þ.m. Sverrir Pálsson, skólastjóri G.A. Áttræður verður sunnud. 30. þ.m. Sigurður Hannesson tré- smiður. Grundargötu 7, Ak- ureyri. Frá rabbfundinum á Húsavík. Á framboðsferðum sínum hafa irambjóðendur Sjálfstæðisflokksins orðið varir við mikinn á- huga ungra kjósenda á helztu stefnumálum flokksins í þessum kosningum, — aö koma vinstri stjórninni frá og þar með tryggja öryggi landsins inn á við og út á við. Athygli er vakinn á auglýsingu frá póststofunni á Akureyri, á öðrum stað í blaðinu. Þar seg ir, að póststofan og bögglapóst stofan verði opnar frá kl. 9 -17 frá mánudögum til föstu daga og frá kl. 9 —12 á laug ardögum, en þess í stað opnar til kl. 18 aðra virka daga. Breyting þessi tekur gildi frá næstkomandi mánaðarmótum. TIL SÖLL: 5 herbergja íbúð við Aðalstræti 4 herbergja íbúð við Strandgötu 3 herbergja íbúð við Munkaþverárstræti 2 herbergja íbúð við Víðilund Lítið fyrirtæki í fullum rekstri. Tilvalið tækifæri fyrir 2 samhenta menn. Málaflutningsskrifstofa Gunnars Sólnes hdl. Strandgötu 1, Akureyri — Sími 21820 Skrifstofan er opin frá kl. 16—18 virka daga Frá yfirkjörstjórn IMorðurlandskjör- dæmis eystra Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra hefur aðsetur á kjördegi 30. júní nk. í Oddelrarskól- anum á Akureyri, sími 22954. Undirbúningur og talning atkvæða í kjördæm- inu mun hefjast í Oddeyrarskólanum kl. 23.00 að loknum kjörfundum. YFIRKJÖRSTJÓRNIN í NORÐURLANDS- KJÖRDÆMI EYSTRA Húsbyggjendur fyrirliggjandi: Steypustyrktarstál; 8. mm kr. 70.703 pr. tonn 10. mm kr. 68.138 pr. tonn 12. mm kr. 66.110 pr. tonn BORÐ; 2x8 kr. 268 pr. metri 2x7 kr. 234 pr. metri 2x6 kr. 200 pr. metri 2x5 kr. 168 pr. metri 2x4 kr. 134 pr. metri PLANKAR; 7/8x9 kr. 147 pr. metri 7/8x8 kr. 130 pr. metri 7/8x7 kr. 114 pr. metri 7/8x6 kr. 98 pr. metri 7/8x5 kr. 81 pr. metri 7/8x4 kr. 64 pr. metri Allt með söluskatti. — Birgðir takmarkaðar. Byggingavöruverzlun Tómasar Björnssonar Glerárgötu 34 — Akureyri — Símar 96)11960 og 22960 - Pósthólf 144 6 - ISLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.