Íslendingur - 06.02.1975, Page 1
Berklar komnir
upp í M.A.
Berklar hafa koinið upp í Menntaskólanum á Akureyri. Hér er
um nýsmiíun að ræða hjá uin 20 neinenduin. Aðeins einn er á
Kristneshæii af þessum orsökum.
íslendingur hafði samband
við skólalækni Menntaskólans
í gær og sagði hann að fyrst
hefði orðið vart við berklatil-
felli í skólanum í lok janúar.
Þá var hafin rannsókn á nem-
enum og starfsliði skólans. Við
hana kom í Ijós að um það bil
20 nemendur eru nýsmitaðir.
Önnur rannsókn verður gerð
á öllum nemendum og starfs-
liði að mánuði liðnum. Þeir
nemendur sem hafa smitast
fara á 9 mánaða lyfjagjöf og
að sögn læknisins eiga þeir
ekki að hljóta neinn skaða á
lungum þar sem smitið upp-
götvaðist þetta fljótt.
Smittilfellin fundust í öll-
um bekkjum skólans og þau
virðast vera yfirgnæfandi með-
al nemenda sem búsettir em
utan heimavistarinnar. Að-
spurður sagði læknirinn að
ástæðulaust væri með öllu að
loka skólanum vegna berkla-
smitsins.
Berklavarnastöðin hefur nú
tekið að sér rannsókn og með-
ferð á þeim nemendum, sem
hafa smitast. Niðurstöður úr
mvndatökum munu liggja fyr-
ir á næstu dögum.
IMy áætlun-
arleið
IMorðurflugs
Norðurflug hefur tekið upp þá
nýjung í rekstri sínum að
halda uppi áætlunarflugi milli
Akureyrar og Sauðárkróks og
hafa ferðir þessar gefið góöa
raun. Flug milli þessata
tveggja staða tekur um 20 mín
útur og kostar far aðra leiðina
1700 krónur á mann.
Að sögn Sigurðar Aðalsteins
sonar hjá Norðurflugi hefur
verið flogið daglega til Sauð-
árkróks að undanförnu, en
þegar saingöngur á landi batna
er ætlunin að fækka ferðunum
niður í 3 á viku.
Afgreiðslutími verslana
á Akureyri endurskoðaður
í jan., febr. og mars loka kvöldsölurnar kl. 20.00 á kvöldin.
Fyrir skönnnu tók til
starfa nefnd, sem á að end-
urskoða gildandi reglur um
afgreiðslutíma verslana á
Akureyri. Samkvæmt nú-
gildandi reglum um af-
greiðslutíma loka allar al-
mennar verslanir kl. 6 frá
f mánudegi til fimmtudags.
Á föstudögum er opið til kl.
7, en flestar verslanir hafa
lokað á laugardögum.
Kvöldsölurnar hafa leyfi ti!
að hafa opið til kl. 11.30
öll kvöld á tíinabilinu frá
1. apríl til áramóta, en frá
1. jan. til marsloka er lok-
unartíminn kl. 8 á kvöldin.
Nefndin, sem Iítur á sig
sem fulltrúa neytenda, tel-
ur æskilegt að einhverjar
tilslakanir verði gerðar á
þessum reglum og að gilö
andi listi yfir vörur sem má
selja í kvöldsöíunum verði
cndurskoðaður.
Mjög skiptar skoðanir
eru ríkjandi um reglur þess
ar og því hefur nefndin sent
bréf til Félags verslunar- og
skrifstofufólks, Verslunar-
mannafélags Akureyrar
Kaupmannasamtakanna,
Kaupfélags Eyfirðinga,
Kaupfélags verkamanna og
til kvöldsöluleyfishafa og
óskað eftir tillögum þeirra
og ábendingum um breyt-
ingar á samþykktum þeim
sem nú gilda. Eiga þessir
aðilar að hafa skilað áliti
fyrir 15. þessa mánaðar.
Þrír menn eiga sæti í
nefndinni og eru það Freyr
Ófeigsson, Sigurður Jó-
hannesson og Sigurður Jóli.
Sigurðsson. íslendingur
hafði samband við þessa
þrjá menn og spurði þá
hvernig þeir vildu breyta ?.f
Framhald á bls 6.
Efni í
blaðinu
■ dag:
Grein um bruna-
varnir í heimahúsum
„01d-boysararnir“
heimsóttir í
íþróttahúsinu
Fastir miðsíðu-
þættir, leiðari um
erfiðleika sveitar-
il'élaga o. m. fl.
B
Af hverju skilja KA og ÞÓR?
KA og Þór eru skilin að skipt-
um í meistaraflokki í knatt-
spyrnu en þau hafa keppt und
ir merki ÍBA í mörg ár. Það
hefur oft verið talað um að
félögin hættu samvinnu, en
þó koin þessi ákvörðun ýms-
um á óvart, sérstaklega þar
sem búið var að tilkynna um
þátttöku liðs ÍBA í II. deild.
Tilkynningarfrestur um þátt-
töku í deildárkeppni KSÍ rann
út 31. des. sl en á fundi 27.
jan. tilk. stjórn Þórs. að félag-
ið hefði sótt um frest til að
tilkynna uin þátttöku í deildar
keppninni til janúarloka og
hefði nú sótt um að fá að spila
í III. deild undir nafni Þórs.
Að fengnum þessum upplýs-
ingum hafði stjórn KA sam-
band við formann mótanefnd-
ar KSÍ og óskaði einnig eftir
undanþágu frá gildandi regl-
um um þátttökutilkynningar,
vegna fyrrgreindra orsaka
Leyfið fékkst og nú hefur KA
sent formlega beiðni um að fá
að spila í II. deild í sumar.
Svar við þeirri beiðni mun
liggja fyrir um næstu helgi.
En af hverju skilja KA og
Þór að skiptum?
Haraldur Sigurðsson, for-
maður KA, sagði í viðtali við
íslending að honum skyldist
að ástæðan fyrir ákvörðun
Þórs væri sú að knattspyrna
á Akureyri væri á svo lágu
stigi að hún næðist ekki upp
nema félögin skildu.
— Ég er hins vegar á ann
ari skoðun, sagði Haraldur,
Ég held að ástæðan fyrir öldu-
dal knattspyrnunnar hér sé
vanræksla á þjálfun ungling-
anna, en þjálfun þeirra hefur
verið vanrækt síðan þeir Ein
ar Helgason og Kári Árnason
hættu. En úr því að svona er
Framhald á bls. 6.
Einingar-
kosningar um
helgina
Kosning stjórnar, trúnaðar-
mannaráðs og endurskoð-
enda verkalýðsfélagsins Ein
ingar fer frain við allsherj-
aratkvæðagreiðslu um
næstu helgi, 8. og 9. febrú-
ar. Kosið verður á skrifstof
um félagsins á Akureyri,
Dalvík, Hrísey og Ólafs-
firði og stendur kosningin
frá kl. 10 — 19 báða dag-
ana.
Tveir listar eru í kjöri að
þessu sinni. A-listi borinn
fram af stjórn og trúnaðar-
nrannaráði og B-listi borinn
fram af ITelga Guðmunds-
syni o. fl. I formannskjöri
eru af A-lista Jón Helgason,
núverandi formaður Eining
ar, og af B-lista Jón Ás-
geirsson, formaður Alþýðu-
sambands Norðurlands.
IBA-liðið á tindi frægðarinnar. Mynd þessi var tekm á Akureyrarflugvehi þegar liðið kom heim
sem sigurvegari í Bikarkeppninni fyrir nokkrum árurn.