Íslendingur - 06.02.1975, Blaðsíða 2
Það þarf ekki
að reka á eftir
„Old-boysuruntim4*
Bolbeygja áfram, einn tveir .. . Og þá er það hliðbeygjan.
Boivinda er líka nauðsynleg.
— Uff, þessi er erfið. En það dugir ekki að gefast upp.
Þarna tókst mér vel upp.
Hestamenn
Smíðið múiana sjálfir.
Höfum fyrirliggjandi:
Borða, hnoð og sylgjur.
Einnig leðurfeiti, hóf-
olíu, leðursápu, höfuð-
leður, mél, reiðstígvél
og buxur o. fl. o. fl.
Komið og skoðið
hestavörurnar.
ÍBIJÐIIM
Strandgötu
Sveitarstjóri
Grýtubakkahreppur óskar að ráða sveitarstjóra.
Umsóknarfrestur til 28. febrúar 1975. Nánari
upplýsingar veitir Sveinn Jóhannesson, sími
96-33107.
Einingarkosningarnar
Kosningaskrifstofa
A-lisVans
lista stjórnar og trúnaðarmannaráðs;
verður í Brekkugötu 4, báða kjördagana.
Kosningasímar verða
21635 og 22119
Hreyfing er holl og hreyfingu getur fylgt mikil ánægja. Þeir eru
sammála um þetta, karlmennirnir, sem Haukur Berg, sund-
laugarstjóri, þjálfar í íþróttahúsinu tvisvar í viku. Mæting í
tímana er oftast 100% og mættu margir yngri taka þá sér til
fyrirmyndar. fslendingur heimsótti hópinn fyrir skömmu og
spjallaði aðeins við Hauk á milli æfinga, til þess að forvitnast
um það, sem þarna fer fram.
— Það þarf sannarlega
ekki að reka á eftir „Old boys-
urunum“ mínum í leikfimitím
unum þeirra. Þeir mæta yfir-
leitt allir með tölu og eru elcki
ánægðir nema að þeir svitni
rækilega. Þó meðalaldur hóps-
ins sé 45 ár, þá eru þeir ekki
eftirbátar unglinganna í leilc-
fimi, nema síður sé, sagði
Haukur.
Haukur, sem er leikfimis-
kenngri að mennt, hefur þjálf-
að Old boysarana sína, eins og
hann kallar þá, undanfarin 4
ár og gerir það í sjálfboða-
vinnu. Þeir hittast á hverju
fimmtudagskvöldi og gera æf-
ingar og spila blak og í fyrra
kræktu þeir sér í aukatíma eft
ir hádegi á laugardögum og
fara þá eingöngu í blak.
— Þeim fannst ekki nóg að
liðka sig einu sinni í viku og
tóku því fegins hendi við laug-
ardagstímunum, sagði Haukur
og bætti síðan við, að ef til vill
væri eitthvað fleira, sem kæmi
inn í með áhuganum fyrir laug
ardagstímunum.
— Þeir sleppa kannski frá
laugardagshreingerningunni
heima hjá sér, sagði Haukur
glottandi.
Sá clsti af Old boysurununi
er 57 ára, en sá yngsti er 36
ára og hafa flest allir verið
saman á æfingum í fjögur ár.
Upphaf þessa var, að Halldór
Matthíasson auglýsti leikfimi
fyrir fullorðna karlmenn. --
varlega, eins og sjá iná af þess-
ari mynd.
Fljótlega varð hann að hætta
og þá hljóp Haukur í skarðið
en í byrjun var hann einn af
þeim, sem sóttu tímana sem
leikmenn.
— Ég hafði ekki kennt leik-
fimi og fór út í þetta fyrir þrá-
beiðni hinna. En ég sé ekki
eftir því. Þessir tímar eru mér
miklar ánægjustundir og það
er gaman að sjá hversu miklu
sprækari strákarnir eru nú en
fyrir fjórum árum þegar þeir
voru að byrja, sagði Haukur.
Þegar litið var yfir hópinn
virtust þeir ekki vera síður
ánægðir en Haukur. Þeir
gerðu æfingarnar möglunar-
laust og af svo mikilli lipurð
að hvaða unglingur sem er
má öfunda þá af.
Félagsmálastofnun Akureyrar og Kvennadeild
Slysavarnarfélags Akureyrar gangast fyrir
skemmfun
fyrir aldraða
sunnudaginn 9. febrúar kl. 15.00 — 17.00 í Sjálf-
stæöishúsinu.
Veitingar, skemmtiatriði, dans.
Þeir, sem óska eftir akstri á skemmtunina, til-
kynni það til félagsmálastofnunar fyrir hádegi á
föstudag. — Síminn er 21000.
Auglýsið í
ÍSLENDINGI
2 - ISLENDINGUR