Íslendingur - 09.10.1975, Page 1
60. ÁRGANGUR . AKUREYRI . FIMMTUDAGINN 9. OKTÓBER 1975
VÖRUSALAN SR • HAFNARSTRÆT1104-AKUREYRI
b VERZLAR í / VÖRUSÖLUNNI
Á sunnudaginn hófust sýningar á Tangó eftir Mrozek hjá
Leikfélagi Akureyrar, en það er fyrsta verkefnið sem LA
tekur fyrir á hinu nýbyrjaða starfsári. Góð aðsókn var á
frumsýningu og leiknum vel tekið. Tangó segir frá frelsis-
dýrkendum nokkrum, fjölskyldu sem eftir mikið bram-
bolt hefur tckist að því er þau sjálf segja, að brjóta af sér
lilekki fordóma og úreltrar hefðar og lifir „frjálsu nú-
tímalífi“ með listrænar tilraunir og fyrirhyggjuleysi sitt
á stcfnuskrá. Ungi maðurinn í fjölskyldunni fellur hins
vegar ckki inn í munstrið og leggur til atlögu við „Þetta
frelsisvíti“. Föður hans og fjölskyldu tekst þó að snúa
allri hans siðabót upp í fáránlegan skopleik lengi vel, en
leikurinn fær óvæntan og snöggan endi „svo sein vænta
mátti“.
Myndin liér að ofan cr tekin af Sigurveigu Jónsdóttur
í hlutverki Elenoru og Sögu Jónsdóttur í hlutverki Ollu.
Hægt að byggja
yfir sundlaugina
fyrir 4 milljónir
Aðstaða til sundkcnnslu á Akurcyri yfir vetrartímann er mjög
lélcg. Innisundlaugin ein getur engan vcginn fullnægt þörfum
skólanna og þegar kalt er í vcðri er illmögulegt að kenna sund
í útilauginni. Hcrmann Sigtryggsson íþróttafulltrúi lýsir ástand
inu í sundkennslumálunum scm vandræðaástandi. — Það cr
eilíf óánægja meðal þeirra sem þurfa að fá tíma í sundlaugun-
uin og aðstaðan sem Gagnfræðaskólanum er boðin upp á til
ltennslu er til skammar. Skólinn fær aðcins tíma í útisundlaug-
inni og þegar kalt er í veðri er sundkennarinn ekki öfundsverð-
ur á sundlaugarbakkanum bæði vcgna kuldans og eins vegna
þcss að hann sér varla til ncmenda sinna fyrir gufu scm mynd-
ast yfir lauginni, sagði Hcrmann.
Um margra ára skeið hefur
verið í athugun að reisa létta
byggingu yfir útisundlaug-
ina, sem hægt væri að setja
upp að haustinu og taka nið-
ur að vori. Margar tillögur
hafa verið gerðar til þessa en
engin talin nógu hagkvæm.
Fyrir nokkru barst nýtt tilboð
í þessa byggingu frá H.f. Herði
Gunnarssyni, heildverslun, en
Framhald á bls. 6.
Loka efstu hæðinni ef
ekki kemur brunastigi
Ef ekki verður búið að sctja brunastiga á suðurhlið Barnaskóla
Akureyrar fyrir 26. október nk. verður efstu hæð skólans lokað
af öryggisástæðum. Það er Eldvarnareftirlitið sem hefur gefið
þessa yfirlýsingu og ástæðan er sú að ekki þykir fullnægjandi
að hafa aðcins einn stiga í liúsinu ef t. d. eldur kæmi upp þar.
Að sögn Ágústar Berg, húsa
meistara bæjarins, hefur
málið verið rætt í skólanefnd.
Hann sagðist hafa gert það að
tillögu sinni að í stað þess að
setja járnstiga utan á húsið,
sem aðeins væri ætlaður fyrir
efstu hæðina, yrði settur
steyptur stigi sem væri innan-
gengt frá á allar hæðir húss-
ins.
— Ég tel að stigi utan á hús
inu, 10 metra hár, gæti verið
hættulegur ef börn fyndu upp
á því að klifra í honum.
Steyptur stigi væri heppilegri,
þó svo að hann sé töluvert dýr
ari, og vonast ég til að eld-
varnareftirlitið gefi okkur
lengri frest ef ráðist verður í
gerð slíks stiga, sagði Ágúst.
Erum mörgum árum á eftir með skólabyggingar
Ekki hægt aö veita
fulla kennslu Jbar
sem Jbrengst er
— Allir barnaskólarnir á Akureyri cru fyrir löngu sprungnir
uta.n af þcirri starfsemi sem þar á að fara fram. Við crum mörg
um árum á cftir áætlun með byggingarnar og ástandið t. d. í
Oddeyrarskólanum orðið svo slæmt að nemendur gcta ekki
fcngið fulla kennslu vcgna skorts á húsnæði. Þá má líkja ástand
inu í sex ára bekkjum í Lundarskóla við neyðarástand. — Þetta
sagði Ágúsl Berg, húsamcistari bæjarins, þegar íslendingur
innti hann eftir því hvað skólabyggingum á Akureyri liði.
Allir barnaskólarnir eru orðnir of litlir fyrir þann barnafjölda
sem þar stundar nám.
Ágúst sagði að upphaflega
hefði verið ráðgert að fara af
stað með byggingu II. áfanga
Lundarskóla á þessu ári. Til er
fjárveiting frá ríkinu til verks
ins, en bæjaryfirvöld hafa
ekki enn gefið fyrirskipun um
að hefja framkvæmdir og þar
sem tíð er nú orðin erfið eru
ekki miklar líkur á að fram-
kvæmdir hefjist í ár. Arki-
tektateikningar af II. áfanga
eru tilbúnar og sömu sögu er
að segja um teikningar við-
bótarbyggingar við Oddeyrar-
skólann. Þar er áætlað að
byggja 2 kennslustofur við
austurálmu skólans og er hugs
anlegt að byrjað verði á verk
inu á næsta ári.
— í raun og veru má segja
að það verði að byrja á þess-
ari viðbyggingu sem allra
fyrst, því Oddeyrarskólinn er
mjög aðþrengdur með pláss,
sagði Ágúst. — Ég hef stung-
ið upp á því að leysa vanda
skó'lans til bráðabirgða með
því að fá lausar kennslustofur
úr timbri sem yrðu notaðar
þar tii smíði viðbyggingar lýk
ur. Þessi lausn hefur gefist vel
í nýjum hverfum í Reykjavík.
Þegar Ágúst var spurður
um hvort ekki lægi meira á að
Framhald á bls. 7.
Símaskrá ‘76
Atvinnu og v/ð-
skiptaskrá tyrir
allt landió en
ekki bara höfub-
borgarsvæbib
Þegar flett er í gegnum
atvinnu- og viðskiptaskrá
símaskrárinnar sem er án
efa með mest lesnu bók-
um landsins, má sjá að
fyrirtækin sem þar eru
skráð eru öll á höfuðborg
arsvæðinu. Þetta kemur
spánskt fyrir sjónir þar
sem símaskráin er ætluð
fyrir alla símnotendur
livar sem þeir eru búsett-
ir á landinu og mikill
fjöldi fyrirtækja er stað-
settur utan liöfuðborgar-
svæðisins. Hafsteinn Þor-
steinsson ritstjóri síma-
skrárinnar og símstjóri í
Reykjavík sagði í viðtali
við Islending að viðskipta
skráin hefði einhvern veg
inn þróast þannig að hún
takmarkaðist eingöngu
við liöfuðborgarsvæðið,
enda hefðu engir aðilar
utan af landi leitað eftir
því að fá inni með fyrir-
tæki sín í viðskipta-
skránni.
— Nú er hins vegar
ætlunin að reyna að
breyta þessu sagði Haf-
steinn, — við sendum
kynningarrit til allra fyr-
irtækja á landinu sem við
náum til og þar fá þeir
upplýsingar um viðskipta
skrána, verð á auglýs-
ingaplássi og fl. Vonumst
við til að þessi kynning
beri jákvæðan árangur og
viðskiptaskráin í síma-
skránni 1976 gefi heillegri
mynd af þeim fyrirtækj-
um sem starfa í landinu.
Þá sagði Hafsteinn að
viðskiptaskráin í næstu
símaskrá yrði prentuð á
gulan pappír eins og gert
hefur verið lengi víða er-
lendis og ganga þær síður
gjarnan undir nafninu
„Yellow pages“.
Aðspurður sagði rit-
stjóri símaskrárinnar að
frestur til að skila inn ósk
um um auglýsingar í við-
skiptaskrána rynni út í
nóvemberbyrjun, en
möguleiki væri á að fá
lengri frest. Til fróðleiks
má geta þess að lokum að
1 dl. x 15 millimetrar í
símaskránni kostar 18.750
kr., en heill dálkur, þ. e.
einn þriðji úr síðu kostar
325 þúsund krónur.