Íslendingur - 09.10.1975, Blaðsíða 2
Fara 5 Akureyringar í
skíðalandsliðið? —
Skíðasamband íslands (SKÍ) gekk endanlega frá því um helgina hvcrjir skyldu sendir utan til
æfinga vegna hugsanlegrar þátttöku í Vetrarólympíuleikunum í febrúar nk. 10 manns voru
valdir og þar af voru 5 frá Akureyri. Það eru þau Árni Óðinsson, Haukur Jóhannsson, Tómas
Leifsson, Margrét Baldvinsdóttir og Halldór Matthíasson. Auk þeirra fara utan til æfinga Sig-
urður Jónsson ísafirði, Hafþór Júlíusson ísafirði, Trausti Sveinsson Fljótum, Jórunn Viggós-
dóttir og Steinunn Sæmundsdóttir, báðar frá Kvík. Hópurinn fer utan 15. nóvember og verð-
ur við æfingar og keppni til 23. des. Keppnisfólkið í Alpagreinum fer til Mið-Evrópu, e.n göngu-
mennirnir til Noregs.
Æfingatáfla Þórs 67 5—76
SUNNUDAGAR:
Kl. 10,00-12,00
- 17,00-18,00
MÁNUDAGAR:
Kl. 16,10-17,00
- 17,00-17,45
- 19,15-20,15
- 21,30-22,45
MIÐVIKUDAGAR:
Kl. 16,10-17,00
- 17,00-17,45
- 19,15-20,30
- 20,30-21,30
FÖSTUDAGAR:
Kl. 20,45-21,45
- 5. fl. karla.
- 3. fl. kvenna.
- 4. fl. karla.
- 3. fl. karla.
- 2. og mfl. kvenna.
- 2. og mfl. karla.
- 4. fl. karla.
- 3. fl. karla.
- 2. og mfl. karla.
- 2. og mfl. kvenna.
- 2. og mfl. karla.
Geymið auglýsinguna!
HANDKNATTLEIKSDEILD ÞÖRS.
Félagsmálastofnun
Akureyrar og
Kvenfélagið
gangast fyrir
SÍÐDEGISSKEMMTUN FYRIR ALDRAÐA,
í Sjálfstæðishúsinu, sunnudaginn 12. október,
frá kl. 15,00 - 17,00.
VEITINGAR! - SKEMMTIATRIÐI! - DANS!
Aðgangur er ókeypis. Þeir, sem óska eftir akstri
á skemmtunina eru beðnir að hafa samband við
Félagsmálastofnun fyrir kl. 12,00 á föstudag. Sím-
inn er 2-10-00.
Félagsmálastofnunin vill einnig minna allt aldrað
fólk á Akureyri á OPIÐ HÚS, sem verður í fyrsta
skipti 20. okt. Takið eftir, að OPIÐ HÚS verður
nú annan hvorn mánudag. Fram að jólum verður
OPIÐ HÚS að Hótel Varðborg þessa daga: 20.
október, 3. nóvember, 17. nóvember og 1. desem-
ber.
Þegar skíðafólkið keraur
heim aftur úr æfingaferðinni
verður endanlega gengið frá
því hverjir verða valdir í
landslið íslands, en alls verða
sendir 4 karlar í alpagreinar,
2 stúlkur í alpagreinar og 2
göngumenn.
Það er Skíðasamband ís-
lands sem greiðir kostnað við
æfingaferðina að mestu, en þó
verður Skíðaráð Akureyrar að
leggja til 435 þúsund krónur
með sínu fólki og er gert ráð
fyrir því að SKÍ endurgreiði
þessa upphæð síðar.
bforio
bifreiðina
tilbúna fyrir
vetrar-
aksturinn
FROSTLÖGUR
KEÐJUR
KEÐJUHLUTAR
SNJÓÞURRKUBLÖÐ
RÚÐUSKÖFUR
MÖÐUHLÍFAR
HITARAR fyrir kælikerfi,
2 stærðir
AFTURRÚÐUHITARAR
og BLÁSARAR
ÞOKULJÓS
KASTARAR
GÖLFMOTTUR, uppháar
og m. fl.
IMestin
TRYGGVABRAUT 14.
VEGANESTI.
KRÖKEYRARSTÖÐ.
IVIarkakóngur II. deildar
gengur
Markakóngur annarar deild
ar í knattspyrnu, Hinrik
Þórhallsson, Breiðabliki,
Kópavogi, er fluttur til Ak-
ureyrar og hefur ákvcðið að
Ieika með 2. deildarliði
Þórs. Hinrik hyggst stunda
nám í Öldungadeild MA
jafnframt því sem hann
í ÞOR
æfir og leikur mcð Þór. Er
þess að vænta að Hinrik
verði lyftistöng fyrir liðið,
cn Breiðablik missir þarna
cinn af bestu sóknarmönn-
um liðsins, sein átti hvað
mestan þátt í því að Iiðið
vann sér 1. deildar sæti í
sumar.
*
Armartn keppir við KA
*
og ÞOR um nk. helgi
Handboltatímabilið nálgast og verður fyrsti leikur Akurcyrar-
liðanna í 2. deild um aðra helgi, en J»á kcppa Jiau við lið Breiða-
bliks úr Kópavogi.
Um sl. helgi fór lið KA til
Reykjavíkur og lék þar þrjá
æfingaleiki. Skoruðu þeir sam
tals 78 mörk en fengu á sig 71
Af óviðráðanlegum orsök
um dregst kynning sú er
átti að vera í þessu blaði
á liði Þórs í handknatt-
lcik. Er hennar að vænta
innan skamms.
Jeg.
mark. Úrslit einstakra leikja
urðu þessi:
Ármann — KA 23:27
Haukar — KA 23:26
Víkingur — KA 25:25
Um næstu helgi kemur lið
Ármanns norður og keppir við
Þór og KA. Fyrsti leikurinn
verður við KA á föstudags-
kvöld kl. 20.15. Næsti leikur
verður við Þór og fer hann
fram á laugardaginn kl. 16.00.
Klukkan 13 á sunnudag hefst
hraðmót með þátttöku liðanna
þriggja í Skemmunni.
Jeg.
Viö höfum opnað nýja og fullkomna bensínstöó og smávöruverslun vió Mýrarveg á
Akureyri. Þaö er von félagsins aó Akureyringar jafnt sem gestkomandi megi þar
njóta góórar fyrirgreiöslu og þjónustu og aó fyrirkomulag allt á stöóinni eigi eftir aö
falla væntanlegum vióskiptavinum okkar vel i geó.
IMý
Bensínstöð
Nýr þjónustuáfangi á Akureyri
Olíufélagiö Skeljungur hf
Shell
ÍÞRÚTTAFÓLK!
ADIDAS-íþróltaskór
ÍÞRÓTTABÚIMIIMGAR
utan og innanhúss
Amerískar kuldaúlpur
SPORT- og
hljóðfæraverslun Akureyrar
SÍMI 2-35-10
%
2 - ISLENDINGUR