Íslendingur - 09.10.1975, Qupperneq 5
Lraftaverk í sérkennslubekk
— Það cr óskapleg þolinmæðisvinna að kenna börnum með sérþarfir og oft sést enginn árang-
ur lengi cn svo koma smáglætur sem hvetja kennarann og gefa starfi hans tilgang, segir
Hólmfríður, en hún er hér að ofan við kennslu í sérkennslubckk BA ásamt Valdísi Jónsdóttur.
koma
ta
ienn&luhæfra
ia, þær Hólmfríður Guð-
nsdóttir, en Hólmfríður er
æfra vangefinna barna og
Við heimsóttum Hólmfríði
fá svar við þessari spurn-
forvitnast um ýmis atriði
arfir.
ar eru tiltölulega algengari (í
95% tilfella) hjá börnum með
lága greindarvísitölu en börn-
um með eðlilega greind og
þarf að sinna þessu atriði sér-
staklega mikið í kennslu barn-
anna.
— Hér á landi er mikill
skortur á talkennurum, sagði
Hólmfríður, en við erum svo
heppin að hafa einn slíkan bú
settan á Akureyri og önnumst
við kennslu barnanna saman.
Við erum enn varla komnar
almennilega í gang með bekk-
inn, enda stuttur timi síðan
við byrjuðum. Sérkennslu-
bekkurinn hér á Akureyri er
samansettur af nemendum
með mjög ólíkar þarfir og eng
inn má ætla að kraftaverk ger
ist þó börnin séu komin í sér-
kennslubekk. Það er óskapleg
þolinmæðisvinna að kenna
börnum með sérþarfir og oft
sést enginn árangur lengi, en
svo koma smáglætur, sem
hvetja kennarann og gefa
starfi hans tilgang.
Ekki farið eftir
námskrá
Verkefnaval í sérkennslu-
bekkjum er ólíkt því sem ger-
ist í almennri bekkjardeild,
enda er ekki kennt eftir nám-
skrá þar. Hólmfríður sagði að
þarfir barnanna væru svo mis
jafnar að kennslan yrði í raun
og veru að vera mestmegnis
einstaklingskennsla. Þar sem
hæfileiki barnanna til þess að
einbeita sér er yfirleitt mjög
takmarkaður þarf að skipta
oft um verkefni og reyna að
hafa þau sem fjölbreytilegust.
Sérkennarar þurfa oft að búa
til alls konar gerfi á sama hlut
inn til þess að börnin verði
ekki leið á kennslunni og
einnig til að þroska hjá þeim
hæfileikann til að yfirfæra
fengna reynslu á nýtt við-
fangsefni.
— í sérkennsludeildum er
ekki farið eftir venjulegri
námskrá, enda er tilgangur
þeirra ekki sá að útskrifa börn
með ákveðnar einkunnir úr
ákveðnum prófum, heldur er
tilgangurinn að reyna að
koma börnunum til eins mikils
alhliða þroska og hæfileikar
hvers og eins leyfa. Sum
þeirra barna, sem eru í deild-
inni hjá okkur eiga örugglega
eftir að geta bjargað sér í
hjálparbekk eða almennum
bekk með stuðningskennslu,
önnur aftur á móti ekki.
Aukið eftirlit
Börnin sem nú eru í sér-
kennsludeildinni í Barnaskóla
Akureyrar eru öll á skóla-
skyldualdri, en þó á töluvert
mismunandi aldri. Að sögn
Hólmfríðar er það algengt er-
lendis að börn með sérþarfir
hefji nám heldur fyrr en börn
með eðlilega greind.
— Það er reynt að finna
þessi börn svo snemma sem
unnt er og þeim þá gefinn kost
ur á sérstakri þjálfun á þar
til gerðum stofnunum (oft í
tengslum við sérskóla). Enn-
fremur má benda á að heyrn-
arskert börn á íslandi eru
skólaskyld frá 4 ára aldri.
Ástæðan er sú að því fyrr sem
börnin komast í sérmeðferð
þeim mun .meiri von er til að
koma þeim til meiri þroska,
sagði Hólmfríður. — Talgallar
eru algengir hjá greindarskert
um börnum og ef þeir eru ekki
lagfærðir fljótt er hætt við að
erfitt verði að vinna bug á
þeim. Ennfremur er málþroski
mjög oft lélegur hjá börnum
með skerta greind, og fylgist
þetta tvennt oft að og þar sem
tjáningarhæfileikinn og and-
legur þroski eru í nánu sam-
hengi og hvort öðru háð, verð
ur augljós kostur þess að börn
með skerta greind fái kennslu
eða þjálfun mun fyrr en al-
mennt gerist hérlendis.
Uppgötvast of seint
Síðan sagði Hólmfríður að
því miður væri það allt of al-
gengt hér á landi að það væri
ekki uppgötvað fyrr en barn
er komið á skólaskyldualdur
að það er fatlað á einhverju
sviði og þá væri það orðið
nokkuð seint t. d. fyrir tal-
kennara að hjálpa því. Það
þyrfti að koma á skoðun
barna þegar þau eru t. d. 3 ára
og 5 ára til að fylgjast með
þroska þeirra og vinsa þá
strax úr börn með sérþarfir.
Næst vék Hólmfríður að því
að hérlendis væru yfirvöld og
áhugamannafélög komin mjög
misjafnlega langt á veg með
að uppfylla þarfir barna fyrir
þjálfun og kennslu. Blind,
heyrnarlaus og líkamlega löm
uð börn eru nú tiltölulega bet-
ur sett en þau sem t. d. hafa
skerta greind.
— Greindarskert börn á ís-
landi hafa verið vanrækt allt
of lengi. Almenningur hefur
af einhverjum ástæðum sýnt
þessum hópi þjóðfélagsþegn-
anna einna minnsta samúð og
skilning. Sérstaklega hafa
börn, sem flokkuð eru sem
kennsluhæf vangefin farið illa
út úr þessu. Þau eiga hvorki
heima í sjálfu skólakerfinu
eins og það er í dag né inni á
stofnunum. Aftur á móti hefur
sú tilhneiging verið að reyna
að koma þeim inn á stofnanir
og láta þau vera þar. Ég vona
að þetta fari að breytast og ég
hef veitt því athygli að síðustu
5 árin hefur skilningur yfir-
valda aukist töluvert á þörf-
um þessara barna. En því mið
ur er ástandið enn langt frá
því að vera gott, sagði Hólm-
fríður.
Aðspurð sagði Hólmfríður
að skortur á sérkennurum
hefði að einhverju leyti tafið
fyrir því að koma málum
barna með sérþarfir í viðun-
andi horf, en á síðustu árum
hefur kennurunum fjölgað
mikið og því væri von á úr-
bótum.
örn, sem eru fötluð. Hér birtist listi yfir þá helstu:
ilbraut
tngefin börn
Afbrigðileg börn/
börn með
sérþarfir
'jölfatlaðra skóla.
im eða sérstökum bekkjum hins almenna grunnskóla.
ur auðveldlega breyst við breytta aðstöðu barnsins.
❖❖❖❖❖❖♦í'❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖♦j
Loks fylgir hér kökuupp-
skrift.
Eplakaka:
150 gr. sykur
150 gr. hveiti
150 gr. smjörlíki
3 egg
örlítið ger
1—2 epli
50 gr. suðusúkkulaði
Egg og sykur eru þeytt vel
og smjörlíki (bræddu) bætt
út í. Þá er þurrefnum bætt út
í og loks er brytjuðum eplum
og súkkulaði bætt út í deigið.
Deigið er sett í stórt form og
skreytt með eplabátum og
súkkulaðibitum. Þá er kanel-
❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖•:•♦:••:•❖❖❖❖•:'
° y
i ca. 3 stundarfjórðunga við !•!
150—175 gráðu hita, eða þar *j‘
til kakan er orðin vel brún. !•!
Að lokum skora hjónin á !j!
þau Guðrúnu Þorkelsdóttur og
Skúla Lórenzson að koma með !•!
næstu uppskrift. X
♦>
':•❖❖❖❖❖❖❖•:•❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖•:••:•♦:••:•❖•:••;
FJÁRSÖFIMLIM
Stjórn Náttúrulækningafélags
Akureyrar hefur sent frá sér
eftirfarandi fréttatilkynningu:
N áttúr ulækningaf élag ís-
lands hefur stofnað til happ-
drættis vegna starfsemi sinn-
ar. Vinningar eru m. a. bif-
reið, ferðir til sólarlanda og
fleira. Rétt þykir að benda
Norðlendingum á að helming-
ur ágóðans af happdrættinu
rennur til byggingar heilsu-
hælis á Norðurlandi. Eru því
þeir sem hafa fengið senda
happdrættismiða eindregið
hvattir til að senda andvirði
þeirra til happdrættisins og
flýta þannig fyrir byggingu
heilsuhælis í Skjaldarvík.
Hundaeigendkir Akureyri!
Hundaeigendum á Akureyri er hér með bent á
gildistöku samþykktar um hundahald á Akureyri
nr. 89 frá 7. mars 1975, en hún tók gildi 25. apríl
1975.
Samkvæmt henni ber hundaeigendum m. a. að
greiða leyfisgjald. Gjaldið hefir verið ákveðið kr
10.000,00 yfir árið og verður tekið við gjaldinu í
skrifstofu heilbrigðisfulltrúa Geislagötu 9, virka
daga frá kl. 10 — 12 f. h. til miðvikudags 15. okt.
n. k.
Jafnframt er bent á að síðla í októbermánuði
mun fara fram hundahreinsun, sem nánar verður
auglýst síðar.
Akureyri, 6. október 1975,
BÆJARSTJÖRI.
ISLENDINGUR — 5