Íslendingur - 09.10.1975, Side 6
MESSUR
Messað í Akurcyrarkirkju á
sunnudaginn 12. okt. kl. 2 e. h.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson
skólaprestur predikar. Sálm-
ar: 211, 7, 180, 21, 41. Kiwanis
félagar annast bílaþjónustu.
Hringið í síma 2-10-45 f. h.
á sunnudag. — P. S.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju er á sunnudaginn kl.
11 f. h. Eldri börn á skóla-
skyldualdri eru í kirkjunni.
(Þau eru beðin að muna eftir
gjaldinu kr. 150 fyrir sunnu-
dagspóstinn). í kapellu eru
börn innan við skólaskyldu-
aldur. Öll börn eru velkomin
í sunnudagaskólann, sem er
hálfsmánaðarlega. — Sóknar-
prestar.
Samkoma votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, 2. hæð,
sunnudaginn 12. okt. kl. 16.00.
Fyrirlestur: Undir hinu ófor-
gengilega „himnaríki“ er hæli
okkar. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag
kl. 5 e. h.: Fjölskyldusam-
koma. Yngriliðsmannavígsla,
strengjasveit. Þriðjudag kl.
8.30 e. h.: Kvöldvaka. Ofursti-
laut. Knut Hagen frá Noregi
talar. Brigader Óskar Jónsson
stjórnar. Happdrætti. Strengja
sveit. Verið þið öll velkomin
á þessar samkomur.
Kristniboðshúsið Zíon: Sunnu
daginn 12. okt. Sunnudaga-
skóli kl. 11 f. h. Öll börn vel-
komin. Samkoma kl. 8.30 e. h.
Ræðumaður séra Jón Dalbú.
Æskufólk komið og hlustið á
skólaprestinn. Allir hjartan-
lega velkomnir.
FÉLAGSLÍF
IOOF 2 — 157 101 081/2
Fyrsta Bingó haustsins. —
Eins og margir muna, hélt
Handknattleiksdeild Þórs
Bingó sl. vor. Þar sem þetta
gekk vel hefur verið ákveðið
að reyna að nýju. Meðal vinn-
inga nú eru 2 frystikistur, 2
frystiskápar og 1 kæliskápur.
Stjórnandi verður Alli Rúts.
Bingóið hefst í Sjálfstæðishús
inu kl. 20.30 sunnud. 12. okt.
n.k. Forsala aðgöngumiða er á
sama stað frá kl. 15—17 sama
dag.
Frá Sjálfsbjörg. Fyrsta spila-
kvöld okkar verður í Alþýðu-
húsinu föstudaginn 10. þ. m.
kl. 8.30 e. h. Vinsaml. mætið
á réttum tíma. Takið með ykk
ur gesti. — Nefndin.
Slysavarnafélagskonur, Akur-
eyri. Fundur verður í Hvammi
sunnud. 12. okt. kl. 3. Rætt um
föndurkvöldin. Magnús Ólafs-
son sjúkraþjálfari sýnir kvik-
mynd og kynnir starfsemi fatl
aðra. Kaffiveitingar og bingó.
Stjórnin.
Stúlkurnar tvær á myndinni
hér að ofan komu inn á rit-
stjórnarskrifstofu íslendings
fyrir skömmu með f járupphæð
sem þær höfðu safnað með
hlutaveltu. Báðu þær um að
peningunum yrði komið til
Dýraverndunarfélagsins og
hefur gjaldkeri félagsins nú
tekið við þeim. Bað hann um
að komið yrði á framfæri
þakklæti til stúlknanna. Stúlk
urnar hcita Hólmfríður Harð-
ardóttir og Þórunn Óttars-
dóttir.
Nýja bíó sýnir á næstunni
myndirnar „Slagsmálahund-
arnir“ með Bud Spencer í að-
alhlutverki og „Allt sem þú
hefur viljað vita um kynlífið,
en hefur ekki þorað að spyrja
um.“ Á sunnudaginn kl. 3 sýn
ir Nýja bíó Tarsan mynd, en
kl. 5 „Reiði Guðs“ með Robert
Mitchum í aðalhlutverki.
Borgarbíó sýnir í kvöld kvik-
myndina „O Lucky Man“. Að-
alhlutverk leikur Malcolm Mc
Dowell, en hann lék einnig í
„Clockwork Orange“. Þetta er
mynd, sem óhætt er að mæla
með. Á sunnudag kl. 3 verður
„Vinir indíánanna" sýnd. Á
næstunni hefjast sýningar á
„Dagur Sjakalans“.
Leikfélag
Akureyrar
TAMGO
NÆSTU SÝNINGAR:
Fimmtudag, föstudag og
sunnudag, ld. 8,30 e. h.
Miðasala frá ld. 4 —6 e. h.
miðvikudag og sýningar-
dagana. Einnig frá Id. 7,30
e. h. fyrir sýningar.
LEIKFÉLAG
AKUREYRAR.
AA-samtökin
Símsvari A-A samtakanna er
2-23-73.
Kynna skrifstofuvélar
Þessa dagana eru staddir á
Akureyri menn frá Skrifstofu
vélum h.f. og gefa þeir eigend
um skrifstofuvéla sem fyrir-
tækið verslar með, kost á
fræðslu og upplýsingum um
vélarnar, og er tilgangurinn sá
að eigendurnir nái sem best-
um árangri með vélunum.
Nú er nýlokið í Laugardals-
höllinni í Reykjavík Alþjóð-
legri vörusýningu þar sem
Skrifstofuvélar kynntu ýmsar
nýjungar á sviði skrifstofu-
tækja. Verða þessar nýjungar
nú kynntar á Akureyri. Menn
frá fyrirtækinu eru staddir á
Hótel KEA og einnig veitir
umboðsmaður fyrirtækisins á
Akureyri, Aðalsteinn Jóseps-
son í Bókval, nánari upplýs-
ingar.
Kvennafrí 24. október
Dagana 20.—21. júní 1975 var
haldin kvennaráðstefna í
Reykjavík, þar sem saman
voru komnar konur úr öllum
starfsstéttum og öllum stjórn-
málaflokkum. Þær samþykktu
m. a. að skora á konur að taka
sér frí frá störfum á degi Sam
einuðu þjóðanna 24. okt. n.k.
til þess að sýna fram á mikil-
vægi vinnuframlags síns.
Þá var stofnuð 11. sept. sl.
framkvæmdanefnd um kvenna
frí þann 24. okt. n.k. Aðild að
þeirri samstarfsnefnd eiga
stéttarfélög, stjórnmálafélög,
kvenfélög og aðrir áhuga- og
hagsmunahópar kvenna.
Kannanir hafa verið gerðar
á ýmsum vinnustöðum, og
hafa þær leitt í Ijós víðtækan
stuðning við þessa aðgerð.
Hér á Akureyri hefur kom-
ið fram áhugi á, að konur taki
sér frí frá störfum 24. október.
Ákveðið hefur verið að koma
saman til fundar að Hótel
Varðborg n.k. sunnudag, 12.
okt., kl. 15. Þar verður rætt
um skipulagningu og ýmis
framkvæmdaatriði varðandi
fyrirhugað kvennafrí 24. okt.
Fundurinn er opinn öllum,
sem áhuga hafa á jafnréttis-
málum.
Verkalýðsfélagið Eining
Fulltrúakjör
Kjör fulltrúa á 14. þing Alþýðusambands Norður-
lands og 7. þing. Verkamannasambands íslands,
fer fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu,
og skulu framboðslistar hafa borist skrifstofu fé-
lagsins að Strandgötu 7, Akureyri, fyrir kl. 12 á
hádegi, mánudaginn 13. október.
Framboðslisti til þings Alþýðusambands Norður-
lands skal skipaður 18 fulltrúum og jafnmörgum
til vara, en framboðslisti til þings Verkamanna-
sambands Islands 9 fulltrúum og jafnmörgum til
vara. Þá skulu meðmæli 100 fullgildra félags-
manna fylgja hverjum framboðslista.
Akureyri, 2. október 1975,
STJÓRN VERKALÝÐSFÉLAGSINS EININGAR.
Sjómannafélég Eyjafjarðar
Fulltrúakjör
Kosning fulltrúa félagsins á 14. þing Alþýðu-
sambands Norðurlands fer fram að viðhafðri alls-
herjaratkvæðagreiðslu, og skulu framboðslistar
hafa borist skrifstofu félagsins að Strandgötu 7,
Akureyri, fyrir kl. 12 á hádegi, miðvikudaginn 22.
október. Á hverjum framboðslista skulu vera nöfn
3ja aðalmanna og 3ja til vara, ennfremur skulu
fylgja meðmæli 30 fullgildra félagsmanna.
STJÓRN SJÓMANNAFÉLAGS EYJAFJARÐAR.
- SUNDLAUGIIM
Framhald af bls. 1.
fyrirtækið býður svokallaða
Aldek-skála. Hér er um að
ræða 12x24 m bogaskála sem
möguleiki er á að bæta við
endana á síðar ef hagkvæmt
þætti að fá yfir alla laugina.
Kostnaður við kaup og upp-
setningu skálans er um 4
milljónir og er aðeins einnar
viku afgreiðslufrestur á skál-
unum hjá framleiðanda. Væri
því möguleiki á að skálinn
væri kominn upp fyrir ára-
mótin ef af framkvæmdum
verður.
Hermann Sigtryggsson sagði
að þegar væri vitað að mögu-
legt væri að fá 1.5 milljón
BÆKUR
Framhald af bls. 8.
sjó“ eftir Dougal Robei’tson,
„Bílaborgin“ eftir Hailey og
„Hvítklæddar konur“ eftir
Slaughter.
Björn Eiríksson hjá Skjald-
borg sagði að hjá þeim væru
norðlenskir höfundar hafðir í
hávegum eins og undanfarin
ár og 4 af 5 væntanlegum bók
um væru skrifaðar af norð-
lenskum höfundum. Þar ber
fyrst að nefna 4. bindið í bóka
flokknum „Aldnir hafa orðið“
skráð af Erlingi Davíðssyni
ritstjóra og „Konan frá Vínar
borg“, sem einnig er eftir
Erling. Bók þessi fjallar um
ævi Maríu Bayer Juttner, sem
dvaldist á Akureyri í nokkur
króna lán erlendis til sex mán
aða og vonir stæðu til að frek
ari lán fáist af hendi seljanda
og eru þau mál í athugun.
Sagði Hermann ennfremur að
íþróttaráð Akureyrarbæjar
legði mikla áherslu á að gerð
verði gangskör að því að bæta
aðstöðuna við sundlaugina
með þessu, en fram hefur kom
ið hörð gagnrýni frá skóla-
stjórum bæjarins vegna slæmr
ar kennsluaðstöðu við laugina.
Þá benti hann að lokum á að
yfirbygging á sundlauginni
gæti orðið til þess að auka að-
sókn í laugarnar yfir vetrar-
tímann og lækka hitunarkostn
að.
ár og kenndi m. a. við Tón-
listarskólann. Þá er von á smá
sagnasafni eftir Einar Krist-
jánsson og fyrstu bók í nýjum
bókaflokki eftir Indriða Úlfs-
son. Heitir sú bók „Krumma-
félagið“. Einnig kemur út 5.
bókin í bókaflokknum um
Kátu og heitir hún Káta fer til
sjós, og er hún þýdd af norð-
lendingi, Magnúsi Kristinssyni
menntaskólakennara.
H J ÓLHÝ S AEIGENDUR
Svifflugfélag Akureyrar
getur tekið nokkur hjól-
hýsi til geymslu í flug-
skýlinu á Melgerðismel-
um n.k. vetur.
Upplýsingar gefur Bragi
Snædal, sími 2-31-96,
kl. 7—8 á kvöldin.
6 — ÍSLENDINGUR