Íslendingur - 19.12.1979, Side 2
H 100
Nýársfagnaður
í H-100 1. janúar 1980.
Matseðill:
• LAXAKOTILETTA m/chantillysósu
• KJÖTSEYÐI með grænmeti
INNBAKAÐAR NAUTALUNDIR
í franskbrauðsdeigi
með berneissósu.
• TIA MARIA
Miðasala og borðapantanir 28. og 29.
desember frá 17-19.
Fagnið nýju ári
í H-100.
H-10
Dyr dauðans
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur gefið út nýja skáldsögu
eftir hinn kunna rithöfund
Frank G. Slaughter, Dyr dauð-
ans. Áður hafa komið út eftir
sama höfund: Eiginkonur lækn-
anna, Hættuleg aðgerð, Síðasta
augnablikið, Læknaþing, Hvít-
klæddar konur og Spítalaskip.
Þetta er saga um Lynne
Tallman, alræmda hryðju-
verkakonu og útsendara hins
illa. Hún ferst í flugslysi, en
blaðakonan Janet Burke, sem
er að skrifa greinaflokk um
Lynne og myrkraverk hennar,
bjargast naumlega úr slysinu.
Frægur skurðlæknir, Mike
Kerns, sem er sérfræðingur í
líkamslýtum, tekst ekki ein-
göngu að bjarga lífi Janet -
honum tekst einnig með skurð-
aðgerðum að gera hana að
stórglæsilegri konu sem allir
karlmenn sækjast eftir og sjálf-
ur verður hann ástfanginn af
henni. En hinn illi andi sem bjó í
Lynne Talmann hefur nú skipt
um aðsetur og búið um sig í
Janet. Þá hefst baráttan við
hinn illa anda ....
Bókin er 252 blaðsíður, prent-
uð og bundin í Prentverki Odds
Björnssonar hf. á Akureyri.
Þýðinguna gerði Hersteinn
Pálsson en bókin heitir á
frummálinu Devil’s gamble.
HOFDALA-
JÓNAS
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur gefið út bókina Hofdala-
Jónas, og er þetta sérlega
glæsileg og mikil bók, 454
blaðsíður. Bókina prýða fjöldi
ljósmynda, alls 64myndir. Þáer
einnig nákvæm nTnaskrá í
bókarlok á 12 blaosíðum.
Jónas Jónasson frá Hofdöl-
um í Skagafirði var kunnur
hverju mannsbarni í Skagafirði
og á efri árum varð hann
þjóðkunnur sem snjall hagyrð-
ingur, sagna- og skemmtunar-
maður.
Bókin skiptist í ljóra hluta:
Sjálfsævisögu, frásöguþætti, úr
ýmsum syrpum og bundið mál.
Minningar og frásöguþættirnir
eru með því besta, sem birst
hefur í þeirri grein. Sýnishornið
af ljóðagerð Jónasar er staðfest-
ing á þeim vitnisburði, að hann
væri einn snjallasti ljóðasmiður
í Skagafirði um sína daga.
Jónas stundaði 18 sumur hlið-
vörslu við Héraðsvatnabrú
fremri, á þjóðleið milli Reykja-
víkur og Akureyrar; hóf þar
starf 1938, um sextugt; bjó í
litlum skúr, sem enn stendur.
Hofdala-Jónas var af þeirri
gæsku gjör að laða að sér fólk,
enda var hann að eðlisfari mikill
heimsmaður. Langferðamenn
af öllum stéttum og stigum áttu
glaða stund með Jónasi í skúrn-
um. Fólk hvaðanævaaflandinu
á ljúfar minningar við hliðvörð-
inn.
Kristmundur Bjarnason
fræðimaður á Sjávarborg og
Hannes Pétursson skáld hafa
séð um útgáfu bókarinnar af
stakri nákvæmni og vandvirkni.
Bókin er sett, prentuð og
bundin í Prentverki Odds
Björnssonar hf. á Akureyri.
SKEMMAN
Tr r 1
T 1
wmm
xm
Húsmæður!
Enn eigum viö gott úrval af
KJÓLAEFNUM,
BLÚSSUEFNUM
og BUXNAEFNUM.
• SMÁVARA í úrvali.
Eiginmenn!
j— • Um leiö og við óskum ykkur f“
gleöilegra jóla
þá hugsið til áramótanna og
kaupíö efni i kjól
handa frúnni.
«»
W£
J I I I I I F:
Nýjar vörur
daglega!
' “ • Kvenskór í mjög mlklu úrvali.
• Kvenleöurstígvél, há og lág.
• Karlmannaskór, aldrei meira _
úrval.
• Kvengötuskór.
• Karlmannakuldaskór.
• Háskólabolir.
M
hk
J iLl I IX
og gjafavörur
í miklu úrvali!
- • Vorum að taka upp mikiö af
KERAMIKI
eftir Jónínu Guðnadóttur.
- • Ennfremur KERAMIK-LAMPA
og aöra SKRAUTMUNI
úr leir.
• Góöar vörur ó góöu veröi.
• Verið velkomin.
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla, árs og fríðar
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
2 - ÍSLENDINGUR