Íslendingur - 19.12.1979, Blaðsíða 3
Þrengs/i há starfseminni í Dynheimum
Eins og að búa
í einni stofu
Það kannast tlestir við Dynheima, sem áður hét Lón, en er nú
í eigu Akureyrarbæjar, sem rekur þar ýmiskonar æskulýðs-
starfsemi. Akureyrarbær á þó ekki alla húseignina því
Kaupfélag Eyfirðinga á hluta af neðri hæðinni, þar sem
starfrækt er trésmíðaverkstæði, sem gengur undir nafninu
„kassagerðin“ frá gamaili tíð. Oft hefur komið til tals að
Akureyrarbær keypti hluta KEA, en af því hefur þó ekki
orðið. Fullur áhugi er þó á því innan æskulýðsráðs, enda há
þrengsli starfseminni í Dynheimum. Nú hafa samstarfshópar
unglinga í Dynheimum sent forráðamönnum KEA nokkurs-
konar bænaskjal, sem fer í heild hér á eftir.
Allt frá því æskulýðsstarf-
semi hófst í Dynheimum (þá
Lóni) hefur skipan húsnæðisins
verið stærsti þröskuldurinn
fyrir fjölbreyttu æskulýðsstarfi
þar. Dynheimar samanstanda
af sal, sviði, svölum, sælgætis-
sölu, fatahengi, diskotekklefa,
snyrtingum, anddyri og einu
litlu herbergi, sem nú er skrif-
stofa. Húsnæði af þessu tagi er
hentugt undir diskotek (dans-
leiki), dansæfingar og leikæf-
ingar eða öðru í þeim dúr, enda
hefur sú raunin orðið á að mest
er um slíka starfsemi þar.
Hjálprœðisherinn
Sunnud. 23. des. kl. 17 „Við
syngjum jólin í garð“. Fjöl-
breytt dagskrá.
Jóladag kl. 17 hátíðarsam-
koma.
Miðvikud. 26. des. jólahátíð
sunnudagaskólans, kl. 13 fyrir
9 ára og yngri, kl. 16 fyrir 10
ára og eldri.
Föstud. 28. des. kl. 15 jóla-
hátíð fyrir eldra fólk í Hótel
Varðborg. Major Guðfinna
Jóhannesdóttir stjórnar.
Sunnud. 30. des. kl. 15 jóla-
hátíð fyrir börn, aðgangur
ókeypis.
Kl. 20.30 almenn samkoma.
Mánud. 31. des. kl. 23 ára-
mótasamkoma.
Nýársdag kl. 17 hátíðarsam-
koma. Deildarstjórinn og frú
stjórna og tala á áramóta-
samkomunum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kristniboðshúsið Zion:
Hátíðarsamkomur um jól og
áramót. Jóladag samkoma kl.
20.30, ræðumaður Jón Viðar
Guðlaugsson. Nýjársdag, sam
koma kl. 20.30, ræðumaður
Reynir Valdimarsson. Allir
hjartanlega velkomnir,
KFUM og KFUK
Kristniboðsfélögin.
Ef neðri hæðin (og skúrinn)
fengist undir æskulýðsstarf,
myndi þar skapast aðstaða fyrir
hið eiginlega félagsstarf, klúbba,
föndur, fundi, námskeið o.fl.
Þar mætti einnig hafa setustofu
og fundarsal. Skúrinn er mjög
mikilvægur, þvi þar mætti vera
með grófari smíðar og föndur
og þar væri og möguleiki fyrir
geymslur, en það er einmitt eitt
af stærstu húsnæðisvandamál-
unum í dag, að það fyrirfinnst
engin geymsla. Við (ungiingar)
vinnum að því í samtökum,
hópum eða nefndum að skreyta
f
höggþétt
vatnsþétt
pott-
þétt
Eftir að hafa gjörbylt
áratuga gamalli fram-
leiðslutækni armbands-
úra hefur TIMEX nú
sannað yfirburði sína
um allan heim. Fram-
leiðslan er ótrúlega ein-
föld og hagkvæm, en ár-
angurinn er níðsterkt og
öruggt gangverk.
1
Fleiri og fleiri fá sér
Timex. Nú getur þú líka
fengið þér ódýrt, en
vandað og fallegt úr.
Tilvalin jólagjöf
Ólafsfirði
Dalvík
Hljómdeild Grenivík
húsið innan með nokkurra
mánaða millibili. Oft eru þeir
ekki merkilegir, hlutirnir sem
notaðir eru til skreytinganna, en
margir eru þess eðlis að mjög
bagalegt er að geta ekki geymt
þá einhvers staðar og notað þá
aftur síðar, (s.s. hestakerruhjól,
hjallastaurar, net o.fl.) Einnig
þyrfti að vera geymsla fyrir
stóla, borð, leiktjöld o.fl.
Það væri hægt að lýsa því í
mörgum orðum hversu mjög
starfsemin gæti aukist með
þessari stækkun. Aðstaðan,
sem nú er fyrir hendi, er góð og
erum við mjög ánægð með hana
sem slíka, en möguleikarnir eru
ekki margir. Það mætti e.t.v.
segja um húsaskipan Dynheima
að möguleikarnir þar væru
svipaðir og fyrir fjölskyldu, sem
ætti íbúð er aðeins væri ein
stofa.
Dynheimar hafa byggst upp
nokkuð jafnt, þ.e.a.s. lagfær-
ingar og endurbætur hafa verið
framkvæmdar í áföngum á
nokkrum árum. Þó nokkuð er
síðan að fyrst var farið að ræða
um það í alvöru, að freista þess
að neðri hæðin fengist undir
æskulýðsstarf. En því miður
hefur það ekki orðið ennþá.
Við vonum að forráðamenn
KEA sjái hve þetta er stórt mál
fyrir okkur og reyni að verða
við óskum okkar og vinni að því
sem allra fyrst að flytja núver-
andi trésmíðaverkstæði í annað
húsnæði, enda er þessi aðstaða
engan veginn hagstæð fyrir þá
starfsemi.
F.h. samstarfshópa unglinga í
Dynheimum.
- hael
HúUum
, Háinu
• Það verður húllumhæ í H
100 á gamlárskvöld, sem
stendur fram á næsta ár.
• Húsið opnað kl. 23.00 og
síðan verður allt á hundrað
fram á morgun.
• Hattar, grímur, knalletturog
annað tilheyrandi til að
skapa áramótastemming-
una.
• Bjarki Tryggvason verður
líka í áramótaskapi í diskó-
tekinu og heldur uppi fjör-
inu. Svo ef menn verða
svangir; þá bjóðum við stolt-
ið okkar, ,,H 100 special" á
lystaukandi verði.
Það bregðast ekki áramótin
í háinu.
Athugiö!
Það verður aðeins rúllugjald
svo það er betra að koma
tímanlega.
Annars verður dagskráin hjá okkur um hátíðarnar á
þessa leið:
Fimmtudaginn 20. des. - opið kl. 20-01'
Föstudaginn 21. des. - opið 20-02
Laugardaginn 22. des. - opið 20-03
Sunnudaginn 23. des. - opið 20-01
Annan í jólum verður opið 20-01
Fimmtudaginn 27. des. - opið 20-01
Föstudaginn 28. des. - opið 20-02
Laugardaginn 29. des. - opið 20-03 ’
Sunnudaginn 30. des. - opið 20-01
Mánudaginn 31. des. - opið 23-04
Þriðjudaginn 1. jan. - opið 20-01
G\e
*\\eð
Samkvæmt venju heilsum
við nýja árinu með
nýársfagnaði
á nýársdag.
Matseðill:
Hænsnakjötseyði
Soðin smálúðuflök
í'hollenskri sósu
Hreindýrasteik
Ávextir í Madeira-
hlaupi
Pantið borð
tímanlega.
Síminn er 22200
(samkvæmisklæðnaður)
1980
Hótel KEA.
ÍSLENDINGUR - 3