Íslendingur - 19.12.1979, Page 6
Heilabrot
um hátíðamar
1. Óvenjulegt reiknis-
dœmi.
Hér fer á eftir heldur óvenjulegt
reiknisdæmi, sem ekki er ,í
reikningsbókum, ef við þekkj-
um þær rétt. En leggið nú
heilann í bleyti og þá ætti að
liggja nokkuð ljóst fyrir hvað
gæsin er þung.
1. Gæsin vegur = 1 kg. + pottur-
inn.
2. Potturinn vegur = 1 kg. + tvær
vínflöskur.
3. fjórar vínflöskur vegajafnt og
gæsin.
Hve þung er gæsin?
★ ★ ★ ★
Hve margar eldspítur?
í eldspítnastokknum, sem ég
hef hér í hendinni, er ákveðinn
fjöldi eldspítna, sagði reiknings-
kennarinn dag nokkurn við
nemendurna. - Ef ég legg þær í
raðir hér á borðið og hef þrjár
eldspítur í hverri röð, verður ein
afgangs. Ef ég legg fjórar í
hverja röð verða tvær afgangs.
Með fimm eldspítur í hverri röð
fæ ég þrjár afgangs og leggi ég
loks sex í hverja röð ganga 4 af.
Hve margar eldspítur eru þá í
stokknum.
3. Talnaleikur.
Takið tölurnar frá 1 upp í 9 og
setjið þær upp í 3 raðir með
þremur tölum í hverri röð,
þannig að út komi 15 hvort sem
þær eru lagðar saman lárétt eða
lóðrétt. (Fleiri en ein lausri geta
verið á þessari þraut).
4. Það er jú hœgt.
Fáið lárv.öar tíu buxnatölur hjá
mömmu og leggið þær í fimm
raðir þannig, að í hverri röð
verði fjórar tölur.
5. Kíló sinnum pund.
Margfaldið 10 pund með 5 kg. -
auðvitað gildir einu, hvort
kílóunum er breytt í pund eða
pundunum í kíló.
Prófum: 5 kg. = 10 pund,
- 10 X 10 pund - 100 pund.
Eða: 10 pund = 5 kg. - 5X5 kg. =
25 kg. - eða 50 pund.
Er vitlaust reiknað eða hvað?
Gátur.
Hér koma nokkrar íslenskar
vísnagátur, sem gaman er að
spreyta sig á.
6 - ÍSLENDINGUR
gÉggs/ / Óskum \ '
——/ öllum landsmönnum \---------
GLEÐILEGRA JÓIA
"M - ársogfriðar i--------
... • ™ ^ SAMBANDISL.SAMVINNUFELAGA
1. Mikil frú, um mittið þykk,
móðu geymir staupa,
ofan í hana eftir drykk
ótal strákar hlaupa.
2. Margvíslegt mitt efni er,
en eðli mitt er jafnan það,
að óvörum ég öllum ber,
einkum þegar náttar að.
3. Oft á hrygginn er mér bylt,
opnuð til að liggja,
ef þú dyggur af mér vilt
uppfræðingu þiggja.
4. Eineygð snót með yddum
hramm
ærið langan hala dró,
við sporið hvert sem fór
hún fram,
frúar styttist rófan mjó.
Veistu???????????
1. Hvenær gaus Hekla í fyrsta
sinn síðan sögur hófust?
2. Hvert er frostmark vatns
á Fahrenheit?
3. Hvaða tveir merkisatburðir
gerðust í sögu íslands
árið 1954?
4. Hve mörg kíló eru í einni
smálest?
5. Hvert er stærsta stöðuvatn
á fslandi?
6. Hvaða ár lést Kristján 1Q
Danakonungur?
7. Hvernig er merki forseta
íslands?
8. Hver er félagsmálaráðherra
á íslandi?
9. Eftir hvern er jólasálmurinn
„í dag er glatt í döprum
hjörtum? (Textinn)
10. Hvað heitir yfirsetjarinn
í Skjaldborg h.f.?
Svör á bls. 19.
—■ Til skýringar viljum
við segja þér aíT við
þurftum að ná í lækminn
í skyndi af grímuballi.
o
o
Guði sé lof að ég skuli hafa haft
þig til að tala við allan tfmann!
Óskum viðskiptavinum vorum
gleðilegra jóla
Þökkum viðskiptin á árinu
Olfufélagið Skeljungur
Akureyri