Íslendingur - 19.12.1979, Blaðsíða 9
Rowenta
Hraðgrill, djúpsteikingar-
pottar, vöflujðrn, gufu-
burstar o.fl. o.fl.
Og svo er það
jólasœlgcetið
sem ekki má vanta
Hér koma nokkrar upp-
skriftir af heimatilbúnu kon-
fekti, grunnuppskrift af
marsipani og einnig upp-
skrift af skemmtilegri jóla-
köku, sem óhætt er að mæla
með.
• Hnetukonfekt
200 gr. fínt saxaðar hnetur
150 gr. flórsykur
1 eggjahvíta
2 msk. romm
225 gr. súkkulaði
dósamjólk
10 gr. smjör
Hrærið vandlega saman hnetur,
flórsykur, eggjahvítu og romm
og breiðið deigið á botninn á
20x20 cm. stóru móti, sem má
búa til úr álpappír. Bræðið
súkkulaðið yfir heitu vatni,
blandið dósamjólk og smjöri
saman við og sjóðið við vægan
hita í um það bil 5 mínútur.
Jafnið massann yfir deigið í
mótinu og skerið í litla bita,
þegar það hefur harðnað.
• Döðlukonfekt
2 bollar corn-flakes
250 gr. döðlur
50 gr. vaihnetukjarnar
2 msk. hunang
10 gr. smjör
1 msk. sítrónusafi
flórsykur
helmingaðir valhnetukjarnar
Hakkið eða saxið smátt corn-
flakes, döðlur og valhnetu-
kjarna og hnoðið vel saman við
hunang, smjör og sítrónusafa.
Búið til litlar kúpur úr deiginu
og veltið þeim upp úr flórsykri
og pressið hálfan valhnetu-
kjarna inn í hverja kúlu. Látið
kúlurnar harðna.
• Súkkulaðimolar
100 gr. hjúpsúkkulaði,
hnetukjarnar,
hakkaðar möndlur,
hakkaðar valhnetur
og rúsínur.
Súkkulaðið er brætt í vatns-
baði og hnetum, möndlum og
rúsínum blandað saman við. Þá
er súkkulaðihræran tekin upp
með teskeið og sett í litla toppa
á álpappír. Látið standa þar til
súkkulaðið er orðið hart. Ef til
vill má skreyta hvern topp með
lituðu kókosmjöii.
• Seglskútur
1 pakki af döðlum
50 gr. möndlur
100 gr. marsipan
Steinarnir eru teknir úr döðlun-
um og marsipanið rúllað út,
skorið í litia bita og hver biti
hnoðaður þannig að hann verði
í laginu eins og lítil pylsa. Einn
marsipanbiti er settur innan í
hverja döðlu. Hýðið er tekið af
möndlunum eftir að þær hafa
verið látnar liggja í bleyti í 10
mín. í heitu vatni. Möndlu er
síðan stungið ofan í hverja
marsipanpylsu.
eitt vínber með hverjum fern-
ingi. Bræðið súkkulaði og látið
eina teskeið af því yfir sam-
skeytin á marsipaninu. Setjið
loks hálfan valhnetukjarna eða
möndlu ofan á súkkulaðið.
• Marsipan
Marsipan er hægt að fá keypt í
verslunum, en einnig er hægt að
búa það til. Það sem til þarf er:
500 gr. möndlur
500 gr. flórsykur
1 msk. eggjahvíta
og svolítið vatn.
Möndlurnar eru afhýddar og
þurrkaðar vel og síðan eru þær
hakkaðar 2-3svar sinnum og
settar í skál. Flórsykurinn er
sigtaður og honum blandað
saman við möndlurnar ásamt
eggjahvítunni og vatninu.
• Súkkulaðikaka með
marsipankjarna
2 stk. súkkulaði
2 msk. sterkt kaffi
250 gr. kókosfeiti
2 egg
2 msk. sykur
Fylling:
20 gr. marsipan, sem hefur
verið bragðbætt með 2-3
möndludropum.
Súkkulaðið er brætt í vatns-
baði og kaffinu blandað saman
við. Takið súkkulaðið af hitan-
um og bætið kókosfeitinni sam-
an við og látið hana bráðna í
súkkulaðinu. Egg og sykur eru
þeytt saman og súkkulaðijafn-
ingnum er síðan bætt út í eggja-
hræruna. Aflangt form er fóðr-
að með álpappír. Dálitlu af
súkkulaði er hellt í formið og
látið harðna. Marsipanið er
rúllað út og látið í formið. Þá er
súkkulaðinu hellt meðfram
marsipaninu og litlir hlaupbit-
ar eru settir ofan á súkkulaðið.
Loks er afgangnum af súkku-
laðinu hellt yfir, þannig að bæði
marsipanið og hlaupbitarnir
hverfi. Látið kökuna harðna.
Takið hana úr forminu og
skreytið hana með litlum hlaup-
bitum.
PHILIPS
blaupunkt
litsjónvarpstæki,
útvörp,
segulbandstæki,
plötuspilarar o.fl.
PHILCO
þvottavélar, þurrkarar
og
Isskðpar
PHILIPS
janrafWmWI
kæliskápar, frystikistur,
ryksugur og þvottavélar
Aðventuljós
og jólaseríur
^gTFfrrrrjj i /jrjnjimr trrrrrrrrmrrrrjw
El
rafmagnshandverkfæri
skíðabindingar
KOFLACH skór
og Wolfcraft fylgihlutir
Tilvalin jólagjafasett
handa honum.
R0SSIGN0L
skíði
Hárliðunartæki
frá SHG, Philips og
Rowenta
rafmagnshandverkfæri
og Wolfcraft fylgihlutir
Tilvalin jólagjafasett
handa honum.
• Vínberjakonfekt
Fletjið út marsipan og skerið
það niður í litla ferninga. Þekið
Glerárgötu 20 Simi 22233
ÍSLENDINGUR - 9