Íslendingur - 19.12.1979, Blaðsíða 12
Grunnlínupunktar
1133^11(2
ICELANDIC
shearling lamb
For further ínformatton write to
Samband, Industries Divisíon
P.O. Box 180,121 Reykjavlk, lceland
Telex 2023 sis is
12 - ÍSLENDINGUR
:r -
Nýstdrlegt listaverk eftir Kristján frá Djúpalæk
rrf I ff • ••• /»
Tiívalm jolagjof
handa henni
handa honum
HERRADEILD
VEFNAÐARVÖRUDEILD
Kristján frá Djúpalæk er mikil-
virkur höfundur og lætur
skammt milli listaverka. Tólf
eru ljóðabækur hans orðnar, ef
safnritið í víngarðinum er með-
talið, og nú kemur hin þrett-
ánda, PUNKTAR í MYND.
Útgefandi er Skjaldborg á Ak-
ureyri. Um þessa bók segir höf-
undur sjálfur í blaðaviðtali:
„Ég hef verið í tíu ár að fást
við hugmynd og tók mig til í
vetur og vann stanslaust að því
að koma henni í endanlegt
form.
Raunar má tengja þetta verk
barnaári, því þetta er saga sálar-
innar. Sálin kemur utan úr
geimnum og sest að í fræi í móð-
urskauti, þar sem hún byrjar að
verða fyrir áhrifum sem halda
áfram eftir að barnið fæðist.
Bókin er með skírskotun til
eigin reynslu og nær til fimm ára
aldurs. Ég vil raunar segja, að
hún sé til varnar sálinni.
Þetta er ljóðrænn texti, að
mestu leyti stuðlaður. Verkiðer
ólíkt öllu öðru sem ég hef gert
og því sem allir aðrir hafa gert
líka, - vona ég.“
Kristján frá Djúpalæk.
Ekki skal þessu andmælt,
nema þeirri fullyrðingu að þetta
nýja verk sé ólíkt öllu öðru sem
Kristján hefur gert. Sú fullyrð-
ing er ekki nema að nokkru leyti
rétt. Blær Kristjáns ér vissu-
lega á þessu verki. Enda þótt
formið sé nýstárlegt, efast ég um
að handbragð Kristjáns leyni
sér, og þó einkum andi hans. Ég
held enginn yrki svona nema
hann.
Mér hefur ekki unnist tími til
að kafa undir yfirborð þessa
nýja forms eins og ég hefði
viljað. Verk sem þetta er ekki
leikið af fingrum fram, þótt ein-
hverjum kunni að finnast það
laust í reipunum. Vera má að
hrynjandi og atkvæðasetning sé
háttbundnari en virðist við
.fyrstu sýn, og verkið leyni á sér
að því leyti. Stuðlasetningin
blasir hins vegar við alstaðar,
þótt með sínu lagi sé.
Eins og í Óði steinsins (I977)
hefur tekist góð samvinna með
Kristjáni og Ágústi Jónssyni
byggingameistara, og prýða
margar myndir hins síðar-
nefnda úr furðuríki steinanna
þetta nýja verk.
Allur frágangur bókarinnar
er mjög smekklegur. Helst
mætti draga í efa, í sjálfri bygg-
ingu verksins, réttmæti þess að
setja tilvitnanir eins og höfund-
ur hefur gert, framan við hvern
hinna fjórtán þátta.
Bók þessi er veglegt framlag
til margnefnds barnaárs Sam-
einuðu þjóðanna og hin hnýsi-
legasta, þegar tal um fóstur-
eyðingar er mikið í tísku. En
sálarinnar
fyrst og fremst er þetta lista-
verk í sjálfu sér, og vel ég mér
hluta ellefta þáttarins sem sýn-
ingardæmi. Hann þykir mér
fagur:
Ljósálfar flykkjast að í litklæðum,
klifra upp í fang hennar,
kyssa hendur og enni.
Hún brosir við þeim og blessar þá.
Einnig gróðurinn vígir hún
guðdóminum,
þeim er ræður sól og regni.
Hún tekur mig í fang,
vaggar á örmum, hvíslar:
Þetta er nú bústaður þinn, barn mitt,
festu þér trúlega í minni
fegurð þessa dags
að hún geymist þar sem forði
til daprari daga.
Þitt er að syngja henni iof
er kraftar leyfa,
rjúfa aldrei við hana bönd
tryggðar né bróðurást.
Því fegurðin er systir þín
og inntak alls sem grær
í veröld Guðs.
Gísli Jónsson.
Gístt
Jónsson
skrifar
um nýjar
bœkur
Hlýjar hendur
og sterkar
Sagt frá liknarstörfum Einars
á Einarsstöðum
Skrýtið að eftir lestur bókar-
innar MIÐILSHENDUR EIN-
ARS Á EINARSSTÖÐUM,
sem bókaútgáfan Skjaldborg
hefur sent frá sér, koma upp í
huga minn eintómar ljóðatil-
vitnanir. Og þó er það kannski
ekkert skrýtið. Fegurðin og
trúin eiga farveg sinn í ljóði.
Grímur Thomsen kvað:
Reynt það hef ég, eldri og yngri,
ei þótt ég í svipinn skildi,
að sínum bendir forsjón fingri
fyrðum, ef þeir hlýða vildi.
Margra gerir þrautir þyngri
þverúðin gegn drottins mddi.
Varðhaldsenglar voru gefnir
í vöku mönnum bæði og svefni.
Af því flýtur auðnubrestur
öllum, sem ei trúa vilja,
ósýnilegur oss að gestur
innan vorra situr þilja.
Þylur sá ei langan lestur,
en lætur sína meining skilja.
En ef ekkert á oss bítur,
engill fer, - og lánið þrýtur.
Heiðrekur Guðmundsson kvað:
Naut ég Einars hlýju handar,
hún var bæði mjúk og sterk.
Hér fá guð og góðir andar
gert á mönnum kraftaverk.
Jólatrés-
fagnaður
Jólatrésfagnaður í Sjálf-
stæðishúsinu laugardaginn
29. des. kl. 14.00.
Miðasala hefst í Sjálfstæð-
ishúsinu kl. 12.30.
Stjórnin.
Einar Jónsson.
Enn kvað Grímur Thomsen:
Gef ég öllum góðar nætur,
sem gaman hafa af rímna
vessum,
óska þess að svefninn sætur
sé með góðra drauma blessun
og að aftur fari á fætur
fjörugir með anda hressum,
og trúi því að til sé fleira
en taka þeir á og sjá og heyra.
Auðvelt er það fyrir þann sem
reynt hefur á sjálfum sér krafta-
verk hins góða, og ekki rengir
hann vitnisburðina í þessgri
merkilegu bók.
Gísli Jónsson.