Íslendingur - 19.12.1979, Page 14
Slökkviliðsvaktin; Skúli Lórenzson, Kristinn Jónsson og Þorkell Eggertsson.
Við reynum að hafa
jólalegt hjá okkur
- segir Þorkell Eggertsson, sem verður varðstjóri
á slökkvistöðinni á jólanóttina
Þorkell Eggertsson verður
varðstjóri á slökkvistöð-
inni á Akureyri á jólanótt-
ina, en með honum á
vaktinni verða þeir Krist-
inn Sigurðsson og Skúii
Lórensson. Þeir félagar
koma á vaktina klukkan
hálfátta á aðfangadags-
kvöld.
14 WSLENDINGUR
- Það er nú ekki mikið sem
við getum gert okkur til tilbreyt-
ingar á vaktinni, sagði Þorkell í
stuttu spjalli við blaðið. - Við
skreytum jólatré og reynum að
gera svolítið jólalegt hjá okkur á
varðstofunni. Svo reynum við
<tináttúrlega að hafa með okkur
svolítið skárra nesti á vaktina en
venjulega, en það er lítið annað
sem við getum gert til hátíðar-
<brigða. Það hefur komið fyrir,
að brunaútkall hafi verið á
aðfangadagskvöy, en samt er
yfírleitt rólegra yfir öllu, einnig í
sjúkraflutningunum. Það er
reynt að koma þeim sem heilsu
hafa heim til sín af sjúkrahús-
unum yfir hátíðarnar og nýir
sjúklingar ekki teknir inn nema
nauðsyn beri til, sagði Þorkell
Kjartan Sigurðsson verður
varðstjóri á lögreglustöð-
inni á Akureyri jólanótt-
ina. Með honum á vakt-
inni verða lögregluþjón-
arnir Lárus Ragnarsson,
Ólafur Ásgeirsson, Ingi-
mar Skjóldal og Stefán
Tryggvason. Koma þeir á
vaktina kl. 8 á aðfanga-
dagskvöld og verða til 6 á
jóladagsmorgun.
- Að öllu jöfnu er rólegt hjá
lögreglunni á jólanóttina, en þó
getur brugðið til beggja vona,
sagði Kjartan í spjalli við
blaðið. - Ég man t.d. eftir því
einu sinni, að það brast á með
norðaustan stórhríð á aðfanga-
dagskvöld, en um daginn hafði
verið sunnanrok og hláka. Þá
varð fólk að gista þar sem það
var niðurkomið og við höfðum í
nógu að snúast við að veita
ýmiskonar aðstoð. Rafmagnið
fór einnig af mestum hluta
bæjarins, t.d. var rafmagnslaust
á spítalanum þegar við komum
þangað með sjúkling, en þá sá
lögreglan um sjúkraflutning-
ana. En sem betur fer heyrir
þetta til undantekninga, þó við
fáum oftast ýmiskonar venjuleg
útköll, þó það séu jól. Við
Lögregluvaktin; Ingimar Skjóldal, Kjartan Sigurðsson, Ólafur Ásgeirsson, Lárus Ragnarsson, Stefán Tryggvason.
skreytum jólatré hjá okkur og
reynum að gera varðstofuna
jólalega og ef skikkanlegt er að
gera skjótumst við heim í
jólakaffið. Hvort ég hef fundið
fyrir sérstakri stemmingu þegar
ég hef verið á vakt á jólanóttina
- ja, eru ekki jólin allstaðar,
svaraði Kjartan síðustu spurn-
ingunni.
XX
X
Oskum viðskiptavinum vorum
Gleóilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að
líða.
O. Jónsson & Co. h.f.
- vöruflutningar
Dalvík
Bílaverkstæði Dalvíkur
Ó. Jónsson & Co. hf.
- vöruflutningar
Þeir eru á nœturvakt slökkviliðs og lögreglu ájólanóttina
Eru ekki j ólin allsstaðar?
- segir Kjartan Sigurðsson, sem verður á jólavaktinni hjá lögreglunni