Íslendingur - 19.12.1979, Blaðsíða 17
Rúnar Gunnarsson gerir tillögu að matseðlinum á aðfangadagskvöld
Laxasneiðar, T-beinsteik
og ávaxtaábætir
„Það sem mér fínnst mest gaman við jólin, er að þá fæ ég
alltaf veislumat,“ sagði einn lítil snáði við blaðamann
fslendings fyrir helgina. Þetta er kanski ekki svo galið hjá
stráksa og eflaust margir sem gætu tekið undir þetta með
honum, þó svo menn geri sér fyllilega grein fyrir ástæðunum
fyrir jólahaidinu og hátíðleik þeirra. Tilbreyting í matargerð
tilheyrir jólunum. En hvað eigum við að hafa í matinn. Hjá
mörgum fjölskyldum er þetta nokkuð fastbundið, t.d. rjúpur
á aðfangadagskvöld og siðurinn er að hafa hangikjöt með
tilheyrandi á jóladag. Við fengum Rúnar Gunnarsson,
yfírmatreiðslumann á H-100 að velja fyrir okkur matseðilinn
á aðfangadagskvöld og það ætti enginn að vera svikinn af
þessu. En hér kemur matseðillinn - og verði ykkur að góðu.
Matseðill
fyrir 6 manns ca.
• Laxasneiðar með chantilly-sósu
• T-beinsteik með eggjasósu
• Avaxtaábœtir
Laxasneiðar
es fcn-a. VStx.
Og svo er það aðferðin við að
matreiða þessa rétti. Við byrj-
um á laxinum:
4-6 punda lax, flakaður og
skorinn í sneiðar, settur í pott
með köldu vatni í. Kryddað
með salti, heilum pipar, /2
sítrónu og 1 matskeið af ediki.
Þegar suðan kemur upp er
potturinn tekinn af ogfiskurinn
látinn standa í soðinu í 10
mínútur. Síðan eru sneiðarnar
teknar upp úr pottinum, roðið
tekið af og síðan settar á fat.
Chantilly sósunni er síðan
sprautað yfír sneiðarnar og
sítrónur, gúrkur og tómatar
notaðar í skreytingu.
• Chantilly-sósa
/2 kg. mayonnaise er blandað
safanum úr einni sítrónu ásamt
% dl af þeyttum rjóma.
• T-beinsteik
3 sneiðar af hryggjarstykki úr
nauti, 4-5 sm. þykkar. Steiktará
pönnu í smjöri. Kryddaðar með
salti, piparog kjötkryddi. Steik-
ingartíminn fer eftir því hversu
rautt kjötið á að vera. Borið
fram með frönskum kartöflum,
belgjabaunum, gulrótum og
hrásalati.
• Eggjasósa
6 st. eggjarauður stífþeyttar og
600 gr. af bræddu smjöri
blandað saman við. Smáttsöx-
uð steinselja sett út í. Kryddað
með súpukrafti og bernesessens.
• Ábœtir
6 egg, 2 dl. strásykur, 5 blöð
matarlím, 1 heil dós af blönd-
uðum ávöxtum, 2 dl. rjómi og 1
sítróna. Eggjarauðurnarogsyk-
urinn þeytt saman. Rifnum
sítrónuberki, sítrónusafa og
ávöxtunum blandað saman við.
Hrærið_bræddu matarlími út í.
Þegar byrjað er að hlaupa er
þeyttum rjómanum og eggja-
hvítunum stífþeyttum hrært
varlega saman við. Berist fram í
glösum, skreytt með rjóma og
rifnu súkkulaði. Verði ykkur að
góðu.
• Tabu.
Staður: Hvar sem er.
Efni: Miðar með áletruðum
léttum ræðuefnum t.d.:
t Veðrið.
Þegar ég var 2 ára.
Það sem ég fékk í jólagjöf.
Hver gestur fær að draga 1 miða
og má tala um efnið í tvær
mínútur. Einnig má haga leikn-
um þannig að gestirnir velja
sjálfir ræðuefni fyrir þá sem
ætla að tala og velja þá
jafnframt bannorð sem ræðu-
maður veit ekki um og er hann
síðar „púaður“ niður ef hann
nefnir bannorðið. Dæmi Ræðu-
efni: Prúðu leikararnir (bann-
orð Kermit) Ræðuefni: Jóla-
maturinn (bannorð laufa-
brauð).
Góða skemmtun
Hrefna Hjálmarsdóttir.
SPURT
í Lundaseli
ivað fínnst þér skemmti-
legast á jólunum?
Áki Harðarson
Þá fær maður alltaf veislu-
mat og svo er það líka svo
margt annað sem er skemmti
legt.
Hlynur Tómasson
Ég veit það nú eiginlega ekki,
jú - að dansa í kring um
jólatréð.
örn Traustason
Mér fínnst bara allt skemmti
legt á jólunum.
Hulda Hrönn Bergþórs-
dóttir
Mér finnst skemmtilegast að
dansa í kring um jólatréð og
leika mér að dótinu. Svo er
líka svo gaman að fá jóla-
pakkana.
Katrín Pétursdóttir
Bara að leika mér að dótinu
sem ég fæ í jólagjöf. Pabbi
ætlar líka að kaupa jólagjöf
handa mér og hann heitir
Pétur.
V !
ÍSLENDINGUR - 17